Drekinn frá OZ

fimmtudagur, janúar 19, 2012

Góð skita

Ég horfði á handboltaleikinn í gær. Svo þegar Ísland var 4 mörkum undir þá fannst mér ég vera búinn að horfa nógu mikið á skitu að ég ákvað sjálfur að skella mér á postulínið. Eftir dágóða stund ákvað ég að tékka á stöðunni og þá var hún orðin 1 marki Íslandi í hag. Ég er því að spá í að færa sjónvarpið inn á klósett fyrir næsta leik og vera þar bara....eða opna ísskápinn reglulega yfir næsta leik því ég gerði það líka....eða kannski var það bland af þessu tvennu sem kom Íslandi í gang....tek enga sénsa geri þetta allt næst.... En aaaaalla vega þá kíkti Atli í heimsókn í gær og við æfðum okkur aðeins á gítar saman. Það er gott að æfa sig saman því þá nær maður að koma aftur inn í lagið ef maður ruglast aðeins :-) Stundum er maður með góða acoustic útgáfu af lagi og getur spilað með því. En ég þarf greinilega að æfa mig meira ;-) en þetta mjakast.


Sigurgeir Sigurpálsson 9:32:00 AM

0 Comments:

Add a comment

Links to this post:

Create a Link

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name:

Father of three (2 girls and 1 boy), married to Signý Björg Sigurjónsdóttir.

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com

Blogger

Gamlar færslur