Drekinn frá OZ

mánudagur, janúar 16, 2012

Fínasta helgi

Ég fór í barnaafmæli á laugardaginn sem var bara ágætt. Fínar veitingar og fínn félagsskapur. Svo í gær fór ég með börnin í Ævintýragarðinn í Skútuvogi. Það er bara snilld. Strákurinn rauk af stað þegar við vorum rétt komin inn í salinn og stoppaði ekki nema til að þamba vatn hjá mér og hljóp svo af stað aftur. Börnin voru kófsveitt eftir c.a. tvo tíma þarna :-) Strákurinn sofnaði svo snemma um kvöldið ;-) Signý tók svakalega syrpu á meðan í tiltekt og er heimilið glæsilegt á eftir og ég fór með marga kassa af barnafötum til Valda og Irene til að fara í gegnum. Gott að losna við þessa kassa ;-) Já og svo fann ég eina hillu sem við tókum niður um daginn og skellti henni upp í bílskúrnum og gekk frá dóti sem hafði verið í óreiðu þar upp á þessa hillu þannig að það svæði er allt miklu snyrtilegra. Þá endurvaknaði draumur minn um að innrétta bílskúrinn upp á nýtt þ.e.a.s. losa mig við hillur sem eru að hrynja fyrir skápa sem eru mun snyrtilegri og nýtast mun betur.


Sigurgeir Sigurpálsson 10:14:00 AM

0 Comments:

Add a comment

Links to this post:

Create a Link

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name:

Father of three (2 girls and 1 boy), married to Signý Björg Sigurjónsdóttir.

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com

Blogger

Gamlar færslur