Drekinn frá OZ

fimmtudagur, janúar 12, 2012

Það þarf lítið til að gleðja foreldra

Sólný Inga missti tvær tennur á tveimur dögum nýverið og það var mikil gleði í kringum það. Henni finnst hún miklu stærri fyrir vikið og er á góðri leið með að borga Icesave úr sjóðum Tannálfsins. Sigurpáll Valmar er að hætta með bleiu og það hefur gengið illa. Hann heldur bara í sér þar til hann fær bleiu fyrir svefninn eða fegurðarblundinn. En í gær sagði hann skyndilega "ég pissa" og það er fyndið að hugsa hvað sama setning getur valdið skelfingu eða gleði eftir hvað er meint með henni. Ég hélt að hann væri búinn að pissa liggjandi hjá mér í sófanum. Ég reyndar mundi svo strax að ég hafði sett bleiu á hann fyrir nóttina þannig að ég róaðist snöggt og spurði hvort hann væri búinn að pissa og hann neitaði því. Ég spurði hvort hann vildi fara á klósettið en hann neitaði því og svo spurði ég hvort hann vildi fara á koppinn og hann sagði "já" við því :-) Það hefur verið oft á tíðum erfitt að fá hann til að setjast á koppinn hvað þá pissa. En nú settist hann á koppinn og fyrst var eins og ekkert myndi koma eins og svo oft áður en skyndilega kom svaka buna og hann pissaði svona rosalega vel. Svo fékk hann að hella pissinu í klósettið og við skoluðum koppinn og gengum frá honum á sinn stað og hann fékk límiða að launum. Svo tók ég hann í fangið og hoppaði með hann og söng "Sigurpáll, Sigurpáll" aftur og aftur eins og versta gelgja :-) Hann hló mikið og var mjög ánægður með sig. Svo sofnaði hann fljótt eftir þetta. Í morgun pissaði hann aftur í koppinn :-) þannig að nú erum við loks að sjá fyrir endann á þessu erfiða tímabili og gleðin er mikil sem fyrr segir ;-)


Sigurgeir Sigurpálsson 9:28:00 AM

0 Comments:

Add a comment

Links to this post:

Create a Link

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name:

Father of three (2 girls and 1 boy), married to Signý Björg Sigurjónsdóttir.

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com

Blogger

Gamlar færslur