Drekinn frá OZ

mánudagur, mars 31, 2003

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Face off".

Salný Kaja fór á kostum um helgina, hún er farin að standa upp við borð og teygja sig í hlutina sem eru á borðinu. Nú þarf maður virkilega að passa alla hluti. Það er fyndið að sjá litlu gelluna rétt ná með augun upp fyrir ýmsa hluti sem hún stendur upp við.

Ég er búinn að læra alla helgina og verð að læra alla daga þessa viku en seinna prófið mitt er á föstudag. Það verður svo gaman þá ó já. Árshátíðin í vinnunni verður á laugardag og því er dagskráin fyrir helgina að fyllast af gleðskap og afslappelsi.

Frændi minn er farinn að blogga og hann er með algjöra snilld á síðunni sinni. Hérna kemur einn pistill eftir hann:
"Af hverju er alltaf verið að tala um að karlmenn vilji bara einhverjar horaðar stelpur? Ef maður lítur yfir flestar klámmyndir, eða rennir í gegnum næsta playboy, þá sér maður aðallega flottar konur með kúrvur. Mjaðmir, Rass og Brjóst eru lykilorðin í því samhengi, og sama hversu mikið þær reyna, þá eru litlu heróín gellurnar aldrei að komast á blað í því samhengi.

Heróín-útlitið kemur einmitt úr tískunni, þessum blöðum sem enginn heilvita karlmaður les eða blaðar gegnum sjálfviljugur. Kannski er það alhæfing (kannski þýðandi "pottþétt alhæfing svínið þitt!"), en ég er þeirrar skoðunar að ímyndarvandamál ungra stúlkna liggi meira hjá konum og þeirri ímynd sem þær hafa sett sér sjálfar, heldur en nokkurn tímann karlmönnum. Kannski má rekja þá stöðu aftur til vandamála sem skapast hafa vegna stöðu kvenna gegnum tímans rás, en einstaklingurinn hefur alltaf frjálst val. Ég til dæmis horfi ekki á fótbolta og samt er ég með typpi...allaveganna síðast þegar ég tékkaði.


Öll tíska er stjórnuð af geðsjúklingum (eins og komast má að ef maður horfir á einn eða tvo þætti af Fashion Television) sem hugsa um markaði og að búa til föt sem enginn heilvita manneskja myndi vilja ganga um í, en líta kúl út á catwalkinu. Og módelin eru iðulega valin af hommaelementinu, sem fílar frekar gelgjulega stráka en alvöru konur.


Í klámi, hafa konur komið inn, og í staðinn fyrir þá tísku sem talað er um í blöðunum, þurfa þær að verða sér úti um fallegri varir, flottari rass og stærri brjóst. Reyndar eru núverandi straumar á þá leið að náttúrulegt sé betra, allaveganna vona ég að sú sé raunin, en gervibrjóst eru samt enn, og verða væntanlega áfram stór hluti af ferilskrá klámstjörnunnar.


Ég hef aldrei snert gervibrjóst. En sei sei, mig langar til að prófa. Á hinn bóginn eru gervibrjóst frekar spúkí. Ég veit ekki með aðra, en ég get í 97 prósent tilvika spottað hvort brjóst séu gervi eða ekki, og örin á geirvörtunum, eða skökku brjóstin frá ódýra lýtalækninum eru alger turn-offs.


Síðan gera slysin ekki boð á undan sér. Áhrif sílikons á vefi líkamans eru hreint og beint geigvænleg. Allir ættu að kíkja á þessa síðu en vara ber börn og viðkvæmar sálir við því að þar bíður þeirra ekki falleg sjón. Klikkið á myndirnar til að lesa viðkomandi sögur."

lesið meira eftir hann hér.

Ég er hress eins og ætla að leyðramig áður en ég fer í laugina á eftir!

Pæling dagsins: "Ef maður mætti fara hvert sem er og gera hvað sem er og komast upp með það, hvað myndi maður gera?"

1-10 dagsins: Dameli = ek - du: - trâ - cho:r - pâ~ch - sho - sat - asht - nõ: - dash

Kvikmyndagetraun dagsins: "How about having sex WHILE boosting cars?"
Senda svar!


Sigurgeir 11:31:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, mars 28, 2003

Sigurvegari dagsins er "Hrafnkell Helgi Helgason" með "The adventures of Ford Fairlane".

Fyrsta bjórkvöld ever er að byrja í vinnunni hjá mér. Ég er að skipuleggja og setja upp drasl hef ekki tíma til að blogga bæjó!

Ég er hress eins og fress!

Pæling dagsins: "Hvað getur meðalmaður drukkið marga bjóra án þess að fara á klósettið?"

1-10 dagsins: Khowar = i - ju - troy - chhor - ponj - chhoy - sot - osht - nyuf - josh

Kvikmyndagetraun dagsins: "No more drugs for this guy!"
Senda svar!


Sigurgeir 2:13:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, mars 27, 2003

Sigurvegari dagsins er "Hrafnkell Helgi Helgason" með "Deuce Bigalow, Male Gigolo".

Ég ætla að segja eitthvað sniðugt í dag!

Eitthvað sniðugt.

Búið!

Menn eru alltaf að óra í morgunsjónvarpinu!

Pæling dagsins: "Hvað kallar maður gemsa sem er alltaf til vandræða?"

1-10 dagsins: Kalasha = ek - du - tre - chau - poñ - sho - sat - asht - nõ - dash

Kvikmyndagetraun dagsins: "Damn, baby, I hope you signed some organ donor cards!"
Senda svar!


Sigurgeir 4:34:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, mars 25, 2003

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Four weddings and a funeral".

Dagurinn í dag hjá mér í vinnunni var og verður þannig. 08:00 mættur og skipti um spólur í afritunartækjum, tékka á tölvupósti, svara því sem svara þarf og athuga hvort allt sé í gangi og í lagi. 08:30 fór ég á námskeið í Kostnaðarmatskerfum og það stóð til 12:00. 12:00-12:30 hádegismatur. 13:00-15:00 eldvarnarnámskeið sem allir í húsinu eiga að fara á. 16:15-19:30 skóli. Þvílíkt sem maður kemur í verk á einum degi!

Birna Júlía systurdóttir mín er farin að tala og gerir það vel. T.d. getur hún ekki alveg sagt Salný Kaja og kallar því dóttur mína Skanína sem er mjög sætt.

Skilaverkefnum er lokið og nú hefst próflestur.

Ég sá farþegaþotu fljúga yfir Faxaflóa en hún var alveg ómáluð. Snjóhvít með engin merki? Var Atlanta að versla?

Eru Skotar nopar?

Pæling dagsins: "Hvað kallar maður gemsa sem er alltaf til vandræða?"

1-10 dagsins: Maiya = ak - du: - tha: - saur - pa:nz - sho:h - sa:t - a:th - nau~ - dash

Kvikmyndagetraun dagsins: "This is a fourteenth century Hungarian cross-bow, it killed the king, and changed the history of Europe. If anything happens to my apartment... I'll shove it up your ass."
Senda svar!


Sigurgeir 3:52:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, mars 24, 2003

Sigurvegari dagsins er "Ásbjörg Kristinsdóttir" með "Titanic".

Allt í fokki í vinnunni bæjó sjáumst á morgun ef ég lifi af!

Pæling dagsins: "Af hverju notar Saddam ekki vopnin sem Bandamenn saka hann um að eiga?"

1-10 dagsins: Torwali = ek - du - cha - chau - pan - sho: - sat - at - no:m - dash

Kvikmyndagetraun dagsins: "Yes! Yes! I'm George, George McFly! I'm your density. I mean... your destiny."
Senda svar!


Sigurgeir 2:13:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, mars 21, 2003

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Ring".

Nú á bara að uppfæra í Lotus Notes 6.0.1 hérna í fasteignamatinu. Maður er spenntur að sjá hvernig það gengur. Það ætti að vera töff og gaman að fá loksins að vinna í því umhverfi. Svo er árshátíðarundirbúningurinn á fullu og ég hef fengið Eggert Airgert Baldvinsson ofursnilling í lið með mér. Þurfti tiltölulega litlar mútur miðað við hæfileika drengsins. Hann gerði snilldarmyndband af skírninni henna Salnýjar Kaju og ég á von á góðu dæmi fyrir árshátíðina. En þetta er leyndó og má ekki segja frá fyrr en eftir 5. apríl.

Ég er að vinna lokaverkefni í MFC og ASP um þessar mundir. Það er bara þrælgaman, var að redda vandamáli í ASP síðunni í gær og það var helvíti gaman. Ég held að það væri gaman að skella upp smá ASP síðu fyrir mp3 og divx servera en ef ég læt af því verða þá mega menn nálgast það hjá mér í býttum fyrir góða mynd eða eitthvað.

Liverpool spilaði eins og hópur af dyrgjum í gær!

Pæling dagsins: "Afhverju heitir fallbyssa fallbyssa? Datt fyrsta prótótýpan í gólfið eða hvað?"

1-10 dagsins: Tirahi = ek - do: - tre - cawo:r - panc - xo - sat - axt - nab - dah

Kvikmyndagetraun dagsins:
R: Teach me to ride like a man.
J: And chew tobacco like a man.
R: And spit like a man!
J: What, they didn't teach you that in finishing school?
Önnur létt því að stelpur eru eitthvað að klikka á því að taka þátt!
Senda svar!

p.s. kann enginn að nota shout outið hérna fyrir neðan eða eru allir hættir að lesa mig?
ýkt sæt


Sigurgeir 11:33:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, mars 20, 2003

Sigurvegari dagsins er "Snorri Örn Arnaldsson" með "Fargo".

Ég var að fylgjast með á netinu í nótt hvort það yrði gerð hörð innrás á Írak sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi nema að ég vildi hrósa blaðamanni mbl.is sem var á vakt í nótt því hann skrifaði alltaf Kúvæt sem mér þykir miklu vænna um en þetta bölvaða Kúveit sem fréttamenn vilja nota eins og unglingar á mótþróaskeiðinu. Þessir sömu fréttamenn sem ráðast á hvern stjórnmálamanninn á fætur annars og saka hann um að vera Bandaríkjasleikju eru að nota orðhátt sem þeir lærðu af sjónvarpsstöðinni CNN. Hverjir eru Bandaríkjasleikjurnar????

Svo er það helst í fréttum að Begga Ó er á leiðinni upp í flugvél og ætlar að heimsækja Íslendinga og vera hér fram í fyrstu vikuna í Apríl. Það er alltaf stuð þegar hún kemur hingað. Hún kemur venjulega í nokkrum Séð og heyrt blöðum vikurnar eftir hverja heimsókn. Þannig að þið vitið af þessu núna.

Ég tók þátt í miklu gríni í gær. Loksins fékk ég að stríða í stað þess að vera strítt. Ég hafði "brotist" inn á tölvu vinkonu mágkonu minnar og skilið eftir lítil skilaboð. Svo fengu vinkonur hennar mig til að níðast ennfrekar á henni meðal annars með því að senda henni frekar geðsjúkt ástarbréf sem var í anda Fatal Attraction og svo stofnaði ég account á msn sem var ilove(nafnstúlkunnar) og bætti henni við contact listann á þessum accounti. Svo bullaði ég í henni þannig að hún var ekki viss um hvort hún ætti að vera upp með sér eða skíthrædd. Svo gugnuðu vinkonur hennar á þessu og kjöftuðu áður en ég gat sett sms herferðina mína í gang. Þetta var þokkalegt stuð og ég þakka henni fyrir að taka þessu svo léttilega :-D

Ef fréttir.com ætla að koma út annan hvern dag þá tek ég það sem dæmi um hnignun og tel að þessi fjölmiðlarisi sé á leið á hausinn. Öll dagblöð sem fækka útgáfudögum til að geta boðið manni betri og vandaðri fréttir sjaldnar frekar en útþynntar á hverjum degi eru bara á kúpunni. Ég vona að uppáhaldsveffréttasíðan mín sé ekki að fara á hausinn!

Pæling dagsins: "Er það ekki það versta sem getur komið fyrir mann sem er með homophobíu og finna unaðslegan ilm af einhverri manneskju, snúa sér svo við og uppgötva að hún er af homma?"

1-10 dagsins: Bashkarik = ak - du: - tha: - cho:r - panj - sho: - sat - ath - num - dash

Kvikmyndagetraun dagsins: Have you heard the story about this weird videotape that kills you when you watch it? When you watch it, it looks like someone's nightmare. After you watch it, your phone rings. You pick it up and the voice on the other line says " YOU WILL DIE IN SEVEN DAYS." Þessi er bara alltof létt en ég er bara svo góður í dag.
Senda svar!


Sigurgeir 1:40:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, mars 19, 2003

Sigurvegari dagsins er "Dagmar Clausen Þórðardóttir" með "Arthur".

Það er allt á öðrum endanum hérna. Herbergi eru rifin niður og tölvur færðar til og ég veit ekki hvað.

Ég hef lítið svigrúm til að blogga en ég veit það hins vegar að þetta mun lagast og ég mun verða duglegari í blogginu.

Hver er kylja sumarblíðuna?

Pæling dagsins: "Fingralausir menn sem syngja 'Ekki benda á mig' eru þeir raunverulega sárir?"

1-10 dagsins: Phalura = a:k - du: - tro: - chu:r - pa:nzh - shoh - sa:t - a:sht - nu:~ - da:sh

Kvikmyndagetraun dagsins: So, I'm tendin' bar there at Ecklund and Swedlin's last Tuesday and this little guy's drinkin' and he says, "So where can a guy find some action? I'm goin' crazy down there at the lake." And I says, "What kinda action?" and he says, "Woman action, what do I look like?" And I says, "Well, what do *I* look like, I don't arrange that kinda thing," and he says, "I'm goin' crazy out there at the lake," and I says, "Well, this ain't that kinda place."
Senda svar!


Sigurgeir 3:14:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, mars 18, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "Zoolander".

Ég verð upptekinn næstu tvær vikurnar við próflestur og verkefnagerð. Vinsamlegast ekki biðja mig um að vera memm á þessum tíma.

Vinnan í dag er ansi skemmtileg, ég hef dregist inn í skemmtiatriði og við höfum verið að undirbúa það í dag. Árshátíðin okkar verður 5. apríl og það verður gaman að sjá hvernig þetta gengur. Það er merkilegt hvað ég er skemmtilegur. Ég hef verið í skemmtinefnd í Verzló, FunnyCommittee í OZ, skemmtinefnd meistaraflokks Breiðabliks og svo einhvers konar skemmtinefnd hér í FMR. Auk þessa hef ég skemmt mér og öðrum við óteljandi tilefni. Ég er að spá í að rukka fyrir þetta. Hver vill borga mér fyrir að skemmta í partýi hjá sér?

Hver er samvær hér?

Pæling dagsins: "Hvernig gengur fótalaus maður of langt?"

1-10 dagsins: Brokskat = e:k - du - tra - chhor - puñs - sa - sa:t - a:st - nu - da:sh

Kvikmyndagetraun dagsins: "Yes. . .fish all bath together. Though they do tend to eat one another. I often think. . .fish must get awful tired of sea food. What are you thoughts Hobson"?
Senda svar!


Sigurgeir 12:23:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, mars 17, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "Catch me if you can".

Þessi dagur er búinn að vera skrítinn!

Leiðrétting: Viggi er ekki frændi Kela heldur er Viggi frændi Bigga sem ég þjálfaði í yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Fylkis. Viggi í Írafári er s.s. ekki frændi Kela heldur Bigga og Biggi er frændi Kela en í hina ættina. Þar með eru allir búnir að ná þessum leiðinda misskilningi.

Lee Sharp með Grindvíkingum í sumar. Mér finnst það kúl. Ég átti lengi úrklippu úr mogganum þar sem Lee skoraði 5 mörk í 6-1 sigri Man. Utd á Arsenal fyrir mörgum árum.

Fárskonur er bilaðar!

Pæling dagsins: "Ef einhver segir 'haltu kjafti' við þig og þú grípur um kjaftinn hans. Ertu þá að hlýða honum?"

1-10 dagsins: Shina = êk - du - che - char - poi~ - sha - sât - â~sh - nau~ - daï

Kvikmyndagetraun dagsins: "Moisture is the essence of wetness, and wetness is the essence of beauty".
Senda svar!


Sigurgeir 5:04:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, mars 14, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "The Princess Bride".

Ég var að horfa á morgunsjónvarpið í gær. Þar sá ég hljómsveit sem heitir Smack og ég held að sé sú sama og hét Johnny on the North Pole, a.m.k. voru þeir að syngja lag sem innihélt "Johnny on the North Pole" í textanum. Aðalsöngvarinn er gamall Fylkismaður úr körfuknattleiksdeild Fylkis. Ég man nú ekki hvort hann hafi náð að spila leik með okkur en hann þjálfaði a.m.k. nokkra yngri flokka. Steini heitir hann og er sonur Bjarna Gunnars sem var lengstum formaður körfuknattleiksdeildar Fylkis meðan sú ágæta deild var til. Málið er að nú er hljómsveitin Smack enn eitt afsprengi þessarar ágætu körfuknattleiksdeildar. Aðrar frægar hljómsveitir eru Írafár, Land og synir, XXX Rottweiler hundar og Afkvæmi guðanna. Auk þess sem nokkrir krakkar í viðbót voru að sýna hæfileika í rappinu en ég veit ekki hvort þau hafi slegið í gegn ennþá. En þar voru bæði strákar og stelpur.

Ég legg því til að borgin og ríkið leggi peninga til svo að þessi deild geti verið vakin upp að nýju því hún hefur gefið íslenskri tónlistarmenningu svo margt.

Andri er kominn í 3ja sæti í kvikmyndagetraunardeildinni. Deildinni lýkur um mánaðarmótin og þá byrjar ný deild með smá breyttum reglum.

Eru einhver ussi hérna?

Pæling dagsins: "Getur fólk þakkað manni of mikið fyrir?"

1-10 dagsins: Kashmiri = akh - zi - tr'i - co:r - pa:nc - shah - sat - e:th - naw - da

Kvikmyndagetraun dagsins:
CH: Do you wanna hear me tell a joke?
EA: Yeah, I'd love to hear you tell a joke.
CH: Knock knock.
EA: Who's there?
CH: Go fuck yourself.

Senda svar!


Sigurgeir 1:30:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, mars 13, 2003

Sigurvegari dagsins er "Dagmar Clausen Þórðardóttir" með "Juwanna Mann".

Gilbert úrsmiður fær allar mínar þakkir en hann reddaði úrinu mínu og tók ekkert fyrir það. Svona menn eru bara snillingar og ég kaupi næsta úr mitt hjá honum.

Dísa sem var með mér í bekk í versló er ólétt og býr í bandaríkjunum. Bara láta alla vita.

Bilað að gera hjá mér í vinnunni. Bæjó í bili.

Eru menn að liggja í steinkalda?

Pæling dagsins: "Ef leikari fer með tvö hlutverk í leikriti og þær persónur eiga samtal er það þá monolog eða dialog?"

1-10 dagsins: Maldivian = eke - de - tine - hatare - fahe - haie - hate - ashe - nue - diha

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm not left-handed either".
Senda svar!


Sigurgeir 4:36:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, mars 12, 2003

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "I spy".

Ég reyndi enn og aftur að laga ofninn í gær og núna er hann jafnkaldur og hann hefur alltaf verið. Ég held að það sé kominn tími til að fá pípara í húsið!

Ég var svo fúll yfir því að ég náði ekki að laga ofninn að ég gleymdi að raka mig.

Svo til að toppa allt þá var það fyrsta verk mitt í morgun að kveikja ljósin í eldhúsinu og slá út rafmagninu á íbúðinni svo rækilega að rofinn fyrir íbúðina mína á töflunni í sameigninni fór niður. Gott að byrja daginn á því að vera rafmagnslaus.

Svo þegar ég var tilbúinn til að hlaupa út um dyrnar þá uppgötvaði Signý að Salný Kaja hafði slegið heimsmet í að kúka í sig. Hún drullaði alla bleyjuna út og samfelluna og náttgallann sinn. Þetta er nýtt met og var stórskemmtileg aðgerð.

En ég fór á hádegisverðarfund í dag þar sem ég hitti Borgarstjórann, Iðnaðar- og viðskiptaráðherrann og Sensei Jonna. Það er alltaf gaman að hitta svona fólk og ekki er langt síðan að ég hitti menntamálaráðherrann og samgöngumálaráðherrann. Gaman að þessu!

Ætli Dabbi (Davíð Oddsson) stundi mikla Dabbíu?

Pæling dagsins: "Af við afnemum kynjaskiptingu í almenningsklefum eins og t.d. sturtur í sundi. Myndi eitthvað merkilegt gerast?"

1-10 dagsins: Vedda = ekamay - dekamay - tunamay - hataramay - pahamay - pahamay - tava - ekamay - pahamay - dekamay - pahamay - tunamay - pahamay - hataramay - pahamay - tava - pahamay

Kvikmyndagetraun dagsins: "Girl, you are one tall glass of water, and I'm tellin' you straight up, I'm thirsty!"
Senda svar!


Sigurgeir 2:42:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, mars 11, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "The Man with two brains".

Í gær kom pabbi í heimsókn og við skiptum um krana á ofninum í stofunni. Hann hefur aldrei virkað takk fyrir. Ég komst að muninum milli túr krana og retúr krana (hef ekki hugmynd um hvernig það er skrifað) en þetta er einmitt ofn með túr krana. Við skiptum um kranann og járnstykkið sem kraninn kemur upp á og ekkert virkaði. En seint um kvöldið þá uppgötvaði Signý að ofninn væri farinn að hitna. Hann var a.m.k. volgur þeim fjærst krananum og "hlýr" við kranann. Þannig að sennilega er einhver stífla retúr meginn og ég þarf að skipta um járnstykkið þar. Ef það gengur eftir þá er ég útskrifaður úr ofnaviðgerðum og býð þjónustu mína gegn ríflegri greiðslu. Ég fæ bara hárgreiðslu hjá pabba hahahahahahahahahahahahahaha ég er svo fyndinn!

Ég held ég láti verð af því að raka mig í kvöld, ég er orðinn fúlskeggjaður. Búinn að safna í tja 3-4 tíma nei hahahahahahahaha ég er að djóka ég er búinn að safna í nokkrar vikur. Meir að segja fór í mína fyrstu skeggklippingu hjá pabba um daginn. Rakarastofan Klapparstíg er best. Það segir Ingvi hjá Hér og Nú! Ég tek tonn af myndum og læt fyrir og eftir mynd hér á bloggið á morgun og kannski ég láti gömlu góðu SigurgeirSíðhærður/SigurgeirSnoðaður myndirnar fylgja.

Hvar er orð dagsins?

Svar við pælingu gærdagsins: "Ef aftasti gaurinn sæi tvo græna hatta þá vissi hann að hann væri með rauðan hatt og þar með getum við útilokað að fremstu tveir séu með græna hatta. Aftasti gaurinn giskar á vitlaust og er skotinn í hausinn fyrir vikið. Miðjugaurinn veit núna að ef fremsti gaurinn er með grænan hatt þá er hann sjálfur með rauðan hatt. Þannig má álykta að fremsti gaurinn sé með rauðan hatt
því þá er miðju gaurinn ennþá í 50-50 vanda og veit ekki hvort hann er með rauðan eða grænan hatt. Þar sem hann er skotinn í hausinn hefur hann giskað á vitlaust og
fremsti gaurinn veit þá að hann er með rauðan hatt." Einfalt!

Pæling dagsins: "Er hljóð til án eyrna?"

1-10 dagsins: Sinhalese = eka - deka - tuna - hatara - paha - haya - hata - ata - namaya - dahaya

Kvikmyndagetraun dagsins:
K.R.: "Hey, what's this? It looks like a sock."
A.S.: "It's a secret spy mask."
[K.R. setur "grímuna" á sig]
K.R.: "Hey man, this is a sock!"

Senda svar!


Sigurgeir 1:27:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, mars 10, 2003

Sigurvegari dagsins er "Snorri Örn Arnaldsson" með "The Holy Grail".

Salný Kaja er veik og það er ekki nógu gott. Hún var voðalega lítil í sér í gær en er aðeins hressari í dag.

Signý fór enn og aftur á djammið án mín. Á laugardaginn fór hún bara í partý og ég þarf að fara að telja þetta svo ég geti notað þetta gegn henni þegar mig langar í partý.

Nú tekur við lærdómur hjá mér, næstu tvær vikurnar. Ég verð að læra allt það sem er til prófs á þessum tíma því ekki hef ég verið duglegur hingað til. Þetta reddast mar!

Sögustund er lokið.

Skemaður er sá sem prumpar allan daginn og kvartar svo yfir því hvað það er þungt loft inni á skrifstofunni!

Pæling dagsins: "3 menn standa í beinni röð. Þeir fá að vita að það eru 5 hattar á staðnum, 3 rauðir og 2 grænir. Einn hattur er settur á hvern einstakling og svo eiga þeir að giska á hvaða lit þeir eru með á höfinu. Sá aftasti er spurður fyrst, hann sér hattana á þeim tveimur sem eru fyrir framan hann. Hann giskar á eitthvað, það var rangt og hann var skotinn í hausinn. Sá aftari af þeim sem enn lifa er spurður sömu spurningar og hann sér hattinn á þeim fyrir framan sig og giskar en giskar á vitlaust og er skotinn í höfuðið. Nú er sá síðasti spurður, hann sér enga hatta en veit samt hvaða lit hann er með og svarar rétt. Hvernig er hattur hans á litinn og afhverju veit hann svarið"?

1-10 dagsins: Iranian Gypsy = yek - duy - terín - Ishta:r - pa:nj - shov - efdá: - óxto - enná - desh

Kvikmyndagetraun dagsins: "I couldn't fuck a gorilla"!
Senda svar!


Sigurgeir 1:41:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, mars 07, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "The Meaning of Life".

Ég sofnaði klukkan hálf ellefu í gær. Ég var bara uppi í rúmi að lesa Andrés Önd og ég steinsofnaði, vaknaði um miðnættið bara rétt til að hátta mig og bursta í mér tennurnar og skvetta úr skinnsokknum og svo bara beint í bólið aftur. Mér finnst ég ekkert betur sofinn í dag heldur en aðra daga vikunnar þar sem ég fékk minni svefn en ég fékk í nótt. En ætli það séu ekki bara batteríin sem eru hætt að duga eins lengi....þannig er alla vega með gemsana að batteríin klárast fyrr þó maður hlaði þau upp í topp þá endast þau alltaf styttra og styttra. Ég hef alltaf hlaðið batteríin mín um helgar en núna er maður með barn og ég missi a.m.k. tveggja tíma hleðslutíma laugardag og aðra tvo á sunnudag. Þannig að ég bætti það upp í gær og verð örugglega ferskari í kvöld en ég hef verið.

Ég er kominn með kenningu sem hjónabandsmiðlarar ættu að rannsaka. Hún er þannig að 29. febrúar er ekki til! Allt sem maður gerir á þessum degi telst ekki með og því hefur maður einn sólarhring á fjögurra ára fresti til að gera það sem mann langar. Þar sem að 29. febrúar er ekki til þá er ekki hægt að fara í fýlu eða skilja við mann útaf einhverju sem gerðist á þessum degi....því hann er ekki til. Þessi dagur ætti að vera almennur frídagur og allt lokað, ríkið ætti að skipuleggja fjöldaorgíur og veita áfengi og dópi til allra sem vilja. Allt sukk og svínarí tekið út á einum sólarhring og svo ekki meira. Ég er reyndar viss um að SÁÁ og svoleiðis samtök myndu koma með einhver mótmæli en það er bara um allt sem er skemmtilegt það er einhver sem vill banna það. Það má örugglega koma með fullt af hugmyndum en grundvöllurinn í kenningunni er sá að allt er leyfilegt á þessum degi og allt skal fyrirgefast.

Signý mín, músí mús....ekki verða reið! Ekki láta mig sofa á sófanum. Ástin mín ég elska þig og virði, þetta var bara saklaust djók! Æi kommon mar það tekur enginn mig alvarlega nema þú...ooooooo enn ein nóttin á sófanum buhuhuhuhuhuhu!

Fergir DVs er með skemmtilega gagnrýni á DV sem ég ætla að nýta í pælingu dagsins!

Pæling dagsins: "Sjálfs-æðisflokkurinn eða Sjálf-sæðisflokkurinn"?

1-10 dagsins: Armenian Gypsy = jäku - du:i - terín - ishdó:r - bench - shesh - haft - ha:sht - nu - dê

Kvikmyndagetraun dagsins: "We are now the Knights who say... 'Ekki-Ekki-Ekki-Ekki-PTANG! Zoom-Boing! Z'nourrwringmm'"!
Senda svar!


Sigurgeir 1:20:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, mars 06, 2003

Sigurvegari dagsins er "Snorri Örn Arnaldsson" með "Life of Brian".

Hvað haldið þið???? Kærastan mín kaupir "Pottþétt hinsegin" handa mér og gefur mér með þessu rosaglotti. Ég veit ekki hvað hún er að meina með þessu en diskurinn er ekki slæmur.

Jason Harden vinur minn er bara orðinn umboðsmaður takk fyrir! Jább hann er að selja körfuboltamenn landa á milli og hann er víst að gera það gott. Ég vona að hann geti selt mig til Ástralíu eða einhvers staðar þar sem er heitt næsta vetur, það væri bara gaman. Karfan er að missa vinsældir, mér skilst samkvæmt www.kkdi.is að handboltinn sé aftur orðinn fjölmennari miðað við iðkendur. Ég vil þá bara biðja fólk um að mæta á leiki og styðja okkur og senda börnin sín á körfuboltaæfinga annars losnum við aldrei við handboltann úr sjónvarpinu.

Ég ætla að koma með smá stjórnmál hérna í dag. Öll umræða um Alþingiskosningarnar hefur fjallað um hver er spilltur, hver lýgur og hver er asni! Ég segi bara fyrir mitt leiti að ég þoli ekki þegar menn reyna að fá atkvæði ekki út á sitt eigið ágæti og málefni heldur vegna þess að hinn aðilinn er svo slæmur. Það bara fíla ég ekki. Þannig að mér er skítsama hver sagði hvað um hver við hver og hvenær. Mér er skítsama hver byrjaði eina sem ég veit að ég kýs þann sem fyrr hættir þessu bulli. Ef enginn hættir þá kýs ég hana Auði!?!?!?

Ég vil ekki valda usla en orð dagsins hjá Fréttum finnst mér ekki merkilegt!

Pæling dagsins: "Hafiði tekið eftir því hversu oft það gert miklu meira fyrir kvennaklósett? Inni á karlaklósetti er stundum klósettpappír, stundum handþurkur og einstaka sinnum er sápa. Reyndar er það að vera algengara að kúkafýlueyðissprey sé á karlaklósettum en ég held að það sé ekki fyrir okkur heldur fyrir konurnar sem þurfa að labba nálægt karlaklósettinu t.d. til að fara á kvennaklósettið. Til að toppa þetta allt þá er mjög oft sem klósettin eru inni á einhverjum gangi og þá er kvennaklósettið fyrst og svo karlaklósettið lengst inn ganginn, skemmtilegar undantekningar eru þó í Smáralind og Kringlunni. En merkilegast er þó að inni á kvennaklósettunum er alltaf slatti af drasli, fyrir utan nauðsynjar eins og klósettpappír, handþurkur og sápu þá fá þær oft handáburð og jafnvel ilmvatn. Pæling dagsins er því tvíþætt....fyrst allt þetta drasl er til staðar af hverju eru konur þá alltaf með veskin sín full af þessu drasli? Seinni pælingin er... Hvað gera karlmenn með handáburð inni á klósetti sem konur gera ekki?"

1-10 dagsins: Syrian Gypsy = e:kâ - di: - târân - shta:r - panj - sha:s - h.o:t - h.aisht - na: - da:s

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hello, and welcome to 'The Middle of the Film', the moment where we take a break to invite you, the audience, to join us, the film-makers, in 'Find the Fish'. We're going to show you a scene from another film and ask you to guess where the fish is, but, if you think you know, don't keep it to yourselves! Yell out so that all the cinema can hear you. So, here we are with... 'Find the Fish'".
Senda svar!


Sigurgeir 9:39:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, mars 05, 2003

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Ghost Ship".

Vinnufélagi minn var að segja mér að hann hafi verið að djúsa til fjögur í nótt og hafi svo keyrt heim "morguninn eftir" sem var klukkan átta í morgun. Hann sagði svo að það hafi verið klikkað veður á leiðinni í bæinn og allt lauslegt að fjúka út um allt og brettið á bílnum hans hafi fokið út í buskann! Ég er með mína skýringu á þessu "veðri". Hann var svo blindfullur að hann keyrði kantana á milli, klessti utan í bíla og þannig rifnaði brettið af og hann röflandi í bílnum um að "vindurinn taki vel í stýrið". Svo smallast rúðurnar og þá er allt í einu "brjálað hvassviðri" og svo þegar hann er að keyra vegstikurnar niður og þær kastast yfir bílinn þá er "allt lauslegt að fjúka". Menn verða að hætta þessum vana að halda að klukkutíma svefn jafngildi því að það sé runnið af manni. Þetta bara gengur ekki.

Hello Darling! It's Captain Darling to you!

Do you have any idea how it feels like to have the wind rush through your hair?
No.
Prrrrrrump! Well he does!

Það háir mörgum að vera lésaralegir!

Pæling dagsins: "Hvað þýðir það þegar maður kallar homma borubrattan?"

1-10 dagsins: Kalderash Gypsy = yek(h) - duy - trin - shtar - panz' - shov - yeftá - oxtó - in'yá - desh

Kvikmyndagetraun dagsins: "All right, but apart from the sanitation, medicine, education, wine, public order, irrigation, roads, the fresh water system and public health, what have the Romans ever done for us"?
Senda svar!


Sigurgeir 12:45:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, mars 04, 2003

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "Sweet home Alabama".

Ég er einn í vinnunni. Fasteignamat ríkisins lokaði klukkan 12 á hádegi í dag vegna útfarar Magnúsar Ólafssonar. Allir fóru heim nema ég sem fékk þann heiður að vera á vakt. Þetta er svosem ekkert slæmt, ég á von á konu minni og barni fljótlega með eitthvað að éta handa mér. Svo ætla ég að leyfa Salný Kaju að ralla svolítið (as in Rally) hérna á göngunum, ég kom með göngugrindina hennar og svo eru endalausir gangar hérna fyrir hana til að hlaupa eftir. Sú verður þreytt í kvöld hehehehehehe.

Ég vona að það komi ekki neinn hvinnskur hingað inn, þá verð ég að handtaka hann....einn!

Pæling dagsins: "Verða Gozar með í utandeildinni í ár?"

1-10 dagsins: Welsh Gypsy = yek' - du:i: - trin - shto:r - pansh - shov - trin - t'a: shto:r - du:vari: shto:r - shto:r t'a: pansh - i desh

Kvikmyndagetraun dagsins: "Who the fuck you kidding Greer. Everybody knows you Navy boys take it up the ass".
Senda svar!


Sigurgeir 1:25:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, mars 03, 2003

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "The Family Man".

Ég fékk þessa tilkynningu í tölvupósti í dag og þar fylgdi að maður ætti að láta alla vita: "Ef ykkur vantar AND1 vörur, þá er tækifærið núna, þar sem það er
rýmingarsala á AND1 vörum í Sporthúsinu Dalvegi (Kópavogi)" en ef maður gerir það, verður þá eitthvað flott eftir þegar maður kemur sér loksins á staðinn?

Salný Kaja er nú alveg að fara að labba, sennilega bara mánuður í það að hún verði komin á fullt. Hún stendur upp í rúminu sínu og styður sig við rimlana, svo stendur hún upp við suma hluti í stofunni. Hún á það til að gleyma að hún kann ekki að labba og sleppa takinum á því sem hún styður sig við og pommsar þá bara á bossann. Það er allt í lagi því hún er með mjúka bleyju á bossanum.

Ég aldrei fengið jafnmikið samviskubit yfir nokkrum hlut eins og núna um helgina. Salný Kaja fékk einhverja sýkingu í efri vörina og var með graftarkýli rétt fyrir neðan nefið. Þeir sem hafa fengið unglingabólu þarna og kreist hana vita að þetta er ógeðslega viðkvæmt svæði. Kýlið stækkaði og vörin var öll orðin rauð þannig að við gripum til þess ráðs að sprengja kýlið og kreista úr þessu. Við reyndum fyrst á föstudegi og þá kom slatti út úr kýlinu og Salný Kaja orgaði af sársauka, reiði og sárindum. Við Signý vorum alveg eyðilögð því hún var svo sár að mamma sín og pabbi sinn væru svona vond við hana. Samviskan nagaði mann á fullu en maður sá ekki annan kost í stöðunni. Svo daginn eftir kom í ljós að við höfðum ekki náð öllu og kýlið orðið margfalt stærra en roðinn reyndar aðeins minni. Við ákváðum að sprengja þetta kýli og það hlyti að nægja og aftur varð Salný Kaja alveg brjáluð og það alveg réttilega því hún skilur ekki hvers vegna við vorum svona vond við hana. Út kom þessi svaka slumma af greftri og það blæddi helling úr sárinu þannig að við vorum nokkuð viss um að við hefðum náð öllu í þettað skiptið. Í gær var hún miklu betri, smá sár þarna en roðinn að mestu farinn og í dag er þetta alveg að vera komið í samt horf. Ein hjúkka sem er með mér í tölvunáminu sagði að maður ætti ekki að kreista svona nema að þetta sé komið upp undir húðina þ.e.a.s. orðinn hvítur flipi því annars er hætta á að myndist ör og þegar hún er svona lítil þá vex það með henni og getur orðið hið mesta lýti. Við sprengdum bara þegar það var kominn svona hvítur nabbur á húðina og ættum því að sleppa með þetta en maður er samt skíthræddur um að það komi ör.......en maður er svo sem ekki með neitt ör sjálfur og oft hefur maður tekið eina bólu eða svo.

Ég vil engar sóðalappir heim til mín og hananú!

Bara svo að enginn fari að kæra okkur fyrir slæma meðferð á barni þá fórum við með hana á læknavaktina og fengum krem til að bera á þetta og læknirinn settu ekkert út á það að við hefðum verið búin að kreista kýlið einu sinni.

Pæling dagsins: "Lausn á eyðingu skóganna. Öll hús verða að vera trjáhús....þ.e.a.s. hús sem byggð eru uppi í tréi. Haldiði að það myndi ekki ganga?"

1-10 dagsins: Spanish Gypsy = yes - duis - trin - sistar - parchen - jol - estér - ostor - nébel - esden

Kvikmyndagetraun dagsins: "You can't ride two horses with one ass".
Senda svar!


Sigurgeir 3:27:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur