Drekinn frá OZ

föstudagur, febrúar 28, 2003

Í tilefni afmælis Valda, smellið hér!


Sigurgeir 4:35:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "A view to a kill".

Ég er að keppa í kvöld strax á eftir þessum leik!

Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á afmæli í dag og hann fær hamingjuóskir frá mér og fjölskylda hans kærar kveðjur.

Ég er busy í dag þannig að bloggið verður bara svona sorry krakkar!

Ég er ekki með bamba!

Pæling dagsins: "Hvernig stendur á því að sætar stelpur eru ekki með skemmdar tennur?"

1-10 dagsins: Pali = eka - dvi - ti - catu - pañca - cha - satta - attha - nava - dasa

Kvikmyndagetraun dagsins: "If you could take a dump sometime in this century, then we could go home where it's warm".
Senda svar!


Sigurgeir 2:27:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 27, 2003

Sigurvegari dagsins er "Dagmar Þórðardóttir" með "Road House".

Mont mont mont ég verð að monta mig. Salný Kaja dóttir mín er snillingur. Hún skríður á skemmtilegan hátt, það er eins og hún sé í herþjálfun því hún skríður á maganum alveg eins og þegar ungir drengir skríða undir hindranir með geltandi vélbyssur spýtandi kúlum rétt yfir höfuðið til að undirbúa þá undir stríð. En alla vega þá á hún sokka sem eru með bjöllum á sem henni finnst ofsalega sniðugir. Hún hélt á öðrum sokknum um daginn og var að hrista hann til að heyra í bjöllunni þegar hana langaði af stað og þá fattaði hún að það væri svo erfitt að skríða með sokkinn í höndinni. Hún hugsaði sig smá stund um og stakk honum svo upp í sig og beit með tönnunum sínum tveim og skreið af stað með sokkinn í trantinum. Já hún deyr sko ekki ráðalaus.

Ég læt skipta um þerriblöku að aftan á Polo-inum á mánudag!

Pæling dagsins: "Ég hafði ekki tíma til að fara í ljós þannig ég klæddi mig í svart....gengur það?"

1-10 dagsins: Ardhamagadhi = ege - do - tao - cattaro - pamca - cha - satta - attha - nava - dasa

Kvikmyndagetraun dagsins: "You discharged her, so she and her accomplice came here to kill you. Then they set fire to the office, to conceal the crime but they were trapped in the elevator and perished in the flames".
Senda svar!


Sigurgeir 5:33:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 25, 2003

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "Dirty Dancing".

Á leiðinni heim í gær sáum við Signý skemmtilega aftanákeyrslu. Reyndar ekki þegar það gerðist en við sáum bílana. Fremri bíllinn var hvítur fólksbíll með 3 "asískum íslendingum" í en aftari bíllinn var jeppi sem var merktur "Kennsluakstur" og ung ljóshærð stelpa undir stýri alveg í rusli. Kennarinn var greinilega ekki gáfaðri en svo að hann beið þarna með öllu fólkinu eftir að löggan kæmi eða eitthvað álíka gáfað. Maður sem kennir á bíl á að vita að aftanákeyrsla eins og þessi er bara einfalt mál og hann hefði átt að reka hinn bílinn upp á umferðareyjuna og láta nemanda sinn keyra sinn bíl þangað líka. Þoli ekki þegar fólk bíður eftir aðstoð þegar þetta er svona svart á hvítu. Í staðinn veldur þetta fólk stórhættu, þúsundir borgarbúa á leið heim úr vinnu um hálfsex leitið á sæbrautinni mynduðu langa röð fyrir aftan þessa jólasveina sem biðu þarna. Merkilegt er að ekki urðu fleiri aftanákeyrslur eða önnur slys út af umferðaröngþveitinu sem skapaðist. Ég held að fólk sem gerir svona bíður eftir aðstoð án þess að færa bílana sé að bíða eftir tímavél sem getur sent þau nógu langt aftur í tímann til að afstýra slysinu en aðeins ef bílarnir standa óhreyfðir. Annars er ekki hægt að ferðast nógu langt aftur í tímann.

Pæling dagsins: "Er til Þiðey? Afhverju bara Viðey?"

1-10 dagsins: Prakrit = ekko: - do: - tao: - chatta:ri - pañcha - ch`a - satta - atta - n.ava - dasa

Kvikmyndagetraun dagsins: "That gal's got entriely too many brains to have an ass like that".
Senda svar!+


Sigurgeir 2:41:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 24, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "End of days".

Bloggið í dag er tileinkað góðum manni. Magnús Ólafsson fyrrverandi forstjóri FMR lést í gær sextugur að aldri. Andlát hans bar fljótt að og andrúmsloftið í vinnunni er svolítið þungt í dag. Ég votta hans nánust samúð mína og sérstaklega syni hans honum Ólafi Magnússyni sem vann í OZ þegar ég var þar.

Orð dagsins er 24 en það er einmitt sama tala og afmælisdagurinn minn en afmælisdagurinn minn er tvöföld tala mánaðarins sem ég er fæddur í. Það er skemmtilegt og mánaðartalan er númerið mitt í körfunni. Orð föstudagsins er óduli sem á við drengina sem slógust á bikarleik HK og Aftureldingar um helgina. Orð fimmtudagsins er mjala en ég hélt mig heima á fimmtudag og föstudag til að mjala engann.

Pæling dagsins: "Ég fór í ísbúðina Álfheimum í gær og viti menn, það var kveikt á ljósaskiltunum sem sýna númer þess sem væri næstur í röðinni en hvergi var hægt að taka númer....þetta er pæling?!?!?"

1-10 dagsins: Kalasha-ala = ew - dü: - tre: - chata: - pu:~ - shu: - so:t - o:sht - nu:~ - do:sh

Kvikmyndagetraun dagsins: "I don't wanna sound like a queer or nothin', but I think Depeche Mode is a sweet band"! Þessi er fyrir Ævar frænda og DJ BJ! Þið megið ekki klikka strákar! Þetta er úr snilldarmynd.
Senda svar!+


Sigurgeir 3:34:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 21, 2003

Enn er ég veikur og meðan maður er veikur er ekki hægt að ætlast til að maður sé eitthvað afkastamikill. Þannig að bloggið er með öðru sniði þessa dagana. Ætlaði bara að nefna það að Korsnoj rúllaði Helga Áss upp í fyrradag í einni glæsilegustu skák sem ég hef séð í háa herrans tíð. Hann nánast fórnaði öllu sem hægt var að fórna og var með gjörunnið tafl þrátt fyrir liðsmuninn. Svo setti ég upp lappann hennar Bryndísar og fékk mikið lof á blogginu hennar en svo er vélin farin á verkstæði.....leit ekki vel út fyrir mig en mér skilst að það sé vélbúnaðarbilun sem var til staðar áður en ég setti XP á hana.

Í gær áttum við Signý eins árs trúlofunarafmæli. Það fór ekki alveg eins og við höfðum planað það. Rómantíski kvöldverðurinn var ekki alveg perfect, þar sem ég skreið úr rúminu sveittur og illa lyktandi á nærfötunum og borðaði hann með takmarkaðri lyst. Signý var glæsileg og maturinn frábær en ég bara of veikur til að njóta hans og vera snyrtilegur. Svo hef ég ekki ennþá náð að fara í búð og kaupa gjöf handa henni sem er ömurlegt en hún Signý mín er full skilnings og þolinmóð og veit að hún fær eitthvað sætt.

Ég kem ferskur á mánudag með megablogg eða bara eins og venjulega :D



Sigurgeir 11:57:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 20, 2003

Sorry krakkar ég er bara veikur í dag :-(


Sigurgeir 4:53:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 19, 2003

Sigurvegari dagsins er "Sigurður Ingi Ævarsson" með "Predator".

Nýherji er búið að redda málinu fyrir mig. Maður þarf greinilega bara aðeins að rífa sig ef þeir eru eitthvað utan við sig og þá fær maður súper þjónustu. Vonandi var þetta bara undantekningartilfelli :-D

Ég er kominn með 17" flatan skjá og það er fáránlegt. Ég hef aldrei verið með flatan skjá áður nema á lappa, alltaf fundist þeir of litlir. Núna er maður kominn með almennilega upplausn í þá og það er hægt að horfa á skjámyndina frá hlið. Þetta er snilld. Eina sem ég er að venjast er að skjáflöturinn er með svo mjóan ramma í kringum sig að mér finnst eins og augun séu að reyna að fókusera á skjáinn og allt það sem er í bakgrunninum líka. Erfitt að útskýra þetta en það er alla vega eitthvað sem augun mín eru að venjast við þetta.

Salný Kaja stóð upp í fyrradag. Hún var að brölta í tölvuherberginu mínu heima og það var kassi á gólfinu sem hún bara varð að kíkja í og hún bara reisti sig upp við hann og stóð við hann og skoðaði innvolsið. Jebb hún er bara nýorðin 8 mánaða stelpa. Ég sjálfur byrjaði að labba 9 mánaða og ég vona að hún slái það met.....ja vona og ekki vona það er gaman að sjá krílið labba en örugglega óþolandi að elta hana út um allt og passa hana ;-)

Einu sinni var skondra í götunni minni en svo var hún send í sveit.

Pæling dagsins: "Hvað fengi Davíð Oddsson mörg atkvæði ef hann léti tattúvera sig í 70 mínútum?"

1-10 dagsins: Kati = ev - d'u - tre - shtevo - puch - shu - sut - usht - nu - duc

Kvikmyndagetraun dagsins: "We had a difference of opinion. I thought my wife and daughter should live. He felt otherwise".
Senda svar!


Sigurgeir 12:53:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 18, 2003

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "Minority report". Andri er snillingur og við vitum það öll. Leiðinlegt með síðuna hans....mjög dapurt.

Nýherji er officially að skíta á sig í að þjónusta mig og ég er í samræðum við IBM í Danmörku og þeir ætla að skamma þá.

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að tapa kosningunum því það er ekki snjóboltaséns í helvíti að Davíð Oddsson drekki ógeðisdrykkinn. Til að vinna kosningarnar þar hann að mæta í 70 mínútur á popptíví og ekki aðeins drekka drykkinn heldur gera það ber að ofan og segja svo "Jenna Jamison rokkar feitt"! Þá fá sjálfstæðismenn hreinan meirihluta. Við vitum öll að þetta gerist ekki og Davíð kyngir ekki hverju sem er eins og Ingibjörg Sólrún og Steingrímur J. Það er alkunna að við fílum stelpur sem kyngja og hommar fíla stráka sem kyngja. Þannig að þetta er búið.

Denni er vonandi hamingjusamur með Reykjavíkurmeistaratitilinn sem þeir grísuðust til að vinna af Fylki sem komst marki yfir en lét Fram jafna og vinna vítaspyrnukeppnina. Jón Björgvin skoraði fyrir Fylki en hann lenti í öðru sæti í herra Ísland nú á dögunum og bjó í götunni minni þegar við vorum litlir....bara svo það sé á hreinu.

Pæling dagsins: "Hvers vegna er riddarinn eini maðurinn fyrir utan peðin sem má hreyfa sig í upphafi skákar?"

1-10 dagsins: Wasi-weri = i - pü:n - lü: - cshi: - chipu: - wuchu - wu:sh - sëtë - a:stë - nu:~ - lezë

Kvikmyndagetraun dagsins: "You're one ugly motherfucker".
Senda svar!


Sigurgeir 1:25:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 17, 2003

Sigurvegari dagsins er "Sigurður Ingi Ævarsson" með "Commando".

Ég náði að setja upp mp3 server um helgina, kom með hann í vinnuna og er að fínpússa hann aðeins. Ekki segja neinum frá þessu krakkar! Það eru c.a. 35 gíg af mp3 á honum núna og pláss fyrir c.a. 80 gíg í viðbót. Mjög gott að hafa svona græju þegar manni leiðist í vinnunni. Þessi server var ekki amplalítill en hann er vel þess virði.

Helgin var mjög góð, kíkti til Sibba og Örnu á laugardagskvöld og þar voru fyrir Jói og Hlín. Við ætluðum að spila og hafa gaman en það klikkaði eitthvað því við töluðum og höfðum gaman. 50% árangur það. Svo ákvað ég að gefa skít í miðannaprófin mín því skólinn er ekki að virða tilvist okkar sem erum á námsbraut þeirra sem heitir Háskólanám með vinnu. Öll próf eru sett á vinnutíma og ekki nóg með það heldur á klukkan 9 á morgnanna, sko það er auðveldara að fá að mæta seint í vinnuna heldur en að mæta í vinnuna, fá að skreppa og koma svo aftur. Auk þess sem líklegra er að maður finni barnapíu eftir hádegi en fyrir. En eðlilegast er að prófin væru ekki fyrr en eftir 16:00 á daginn. Þetta eru algjörir jólasveinar þarna. Ég veit að brottfallið er rosalega mikið í HMV en það verður meira ef þeir ætla bara að stappa á þeim sem eftir eru. Þetta er strembið nám og því þarf skólinn að gera betur við okkur. Við hljótum að eiga skilið betri þjónustu sérstaklega þar sem við borgum 50% meira fyrir hverja einingu í skólanum. Ég semsagt hef ákveðið að fara í verkfall, ætla að senda mail á nemendafélagið, stjórnendur skólans og hvern sem vill hlusta og kvarta undan þessu fyrirkomulagi. Næst sendi ég þeim reikning fyrir þann tíma sem þeir draga mig frá vinnu. Argh hata svona rugl.

Pæling dagsins: "Hvað myndirðu gera ef þú sætir í bíó og horfðir á spennandi mynd og allt í einu sleikti einhver gaur, fyrir aftan þig, hálsinn á þér?"

1-10 dagsins: Ashkun = ach - do: - trä - cata: - po:nc - shû: - su:t - o:sht - no: - dus

Kvikmyndagetraun dagsins: "But it didn't. Because you caught it. The fact that you stopped it from falling doesn't mean it wasn't going to fall.".
Senda svar!


Sigurgeir 12:12:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 14, 2003

Auka Aukablogg: Mér var bent á það að söngkona Stuðmanna heitir Ragnhildur Gísla og því var alnöfnudæmið hjá mér í dag kolvitlaust því frænka mín heitir Hrafnhildur Gísladóttir sem er auðvitað miklu flottara nafn. Svona er þetta þegar maður bloggar of hratt!


Sigurgeir 3:06:00 PM | 0 comments links to this post |
Aukablogg: Ég varð að koma þessu að. Ég er að deyja úr hlátri!


Sigurgeir 12:43:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "Hot Shots!".

Litlu frænkur mínar komu í heimsókn ásamt frænku annarar þeirrar og litla frænda mínum. Þetta var voða gaman og gott að fá fólkið í heimsókn. Sú frænka mín sem er alnafna söngkonu stuðmanna er á leiðinni í ungfrú Reykjavík og það er gott. Hún vinnur þá keppni létt enda fegurðin gríðarleg í þessari ætt minni og reyndar þessari líka.

Ég vil biðja alla sem hafa einhverja þekkingu á ættingjum mínum að lesa yfir og benda mér ef eitthvað er vitlaust eða vantar á þessi ættartöl.

Denni gerir manni ekki auðvelt fyrir í dag því ég er svo dannaður en eitt er víst að Denni er með beytil.

Pæling dagsins: "Er eitthvað vit í að eiga gull?"

1-10 dagsins: Kumzari = yek - doh - soh - cha:r - panj - shish - haf'ta - hash'ta - na'hata - da'hata

Kvikmyndagetraun dagsins: "You're a funny man, Sully, I like you. That's why I'm going to kill you last".
Senda svar!


Sigurgeir 12:10:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 13, 2003

Sigurvegari dagsins er "Sigurður Ingi Ævarsson" með "The Naked Gun".

Siggi var ekki þiðrandalegur þegar hann giskaði á rétt svar. Reyndar giskaði hann ekki neitt því hann vissi upp á hár hvaða mynd þetta var. Siggi kom með góðar hugmyndir um nýja kvikmyndagetraun og þær er ég að melta og má búast við að kvikmyndagetraunin fái nýjar reglur fljótlega.

Það eru ennþá 8 manns veikir hérna í vinnunni og allir stjórnendur á námskeiði. Það er neyðarástand hérna! En það er í lagi með mig. Ég sit hér og horfi út um gluggann og sé að það er fugl fastur inni í byggingunni sem verið er að smíða hér við hliðina á Höfða. En mér sýnist sem smiðirnir séu að reyna að bjarga greyinu.

Pæling dagsins: "Ef ég væri með til sölu pillur, sem stúlka tekur inn og 20 mínútum seinna er hún komin með fullkomin brjóst í einni skálarstærð fyrir ofan þá sem hún er með og ef hún er t.d. A þá tekur hún tvær til að komast í C, mundirðu borga 5000 krónur fyrir hverja pillu? Þær myndu svo endast í 6 klst en þá þarf að taka aðra pillu."

1-10 dagsins: Luri = ya - du - se - cha:r - panch - shish - haf - hash - nuh - dah

Kvikmyndagetraun dagsins: "You have the whitest white-part-of-the-eyes I've ever seen. Do you floss"?
Senda svar!


Sigurgeir 1:41:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 12, 2003

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Peggy Sue got married".

Keli er ekki þutur yfir myndinni í gær múhahahaha!

Ég er að spá í að breyta kvikmyndagetrauninni eitthvað. Vinsældir hennar hafa minnkað. Sennilega vegna þess að einn ónefndur maður er alltaf að rúlla henni upp. Hugmyndir um stigagjöf eða form á keppninni eru vel þegnar og þið megið maila á mig.


Svona á að bjarga mönnum frá því að fremja sjálfsmorð.Svona á að bjarga mönnum frá því að fremja sjálfsmorð.Svona á að bjarga mönnum frá því að fremja sjálfsmorð.


Svona áttu að refsa mönnum fyrir að sofa hjá konunni þinni ;-)Svona áttu að refsa mönnum fyrir að sofa hjá konunni þinni ;-)Svona áttu að refsa mönnum fyrir að sofa hjá konunni þinni ;-)



Af hverju fara hafnfirðingar alltaf með reikningana niður að tjörn?

Nú til að láta endur skoða reikningana!

Hvað get ég sagt um daginn í dag? Enginn reyndi að drepa mig á leiðinni í vinnuna, allir yfirmenn eru á stjórnendanámskeiði og hluti af starfsfólkinu er veikt heima með matareitrun eftir rauðsprettuna í mötuneytinu í gær. Ég sem betur fer fúlsaði við rauðsprettunni og borðaði rækjusamloku í staðinn. Það er því fámennt en góðmennt í vinnunni í dag. Ég borðaði svínahnakkann í mötuneytinu í dag og vil láta alla vita sem ég þekki að það var gaman að þekkja þá og mér þykir vænt um ykkur flest. Ef ég blogga ekki á morgun þá vitiði hvað hefur gerst. Þau ykkar sem ég þoli ekki vil ég óska hörmunga í lífinu og vona að þið fylgið mér sem fyrst tja... nei ég er ekki á leiðinni til helvítis...... æi þetta er ljótt ég meina ég vona að þið bætið ráð ykkar og farið ekki til helvítis.

Bjarki leyfði mér loksins að vinna í 80's getrauninni sinni. Held að það sé vegna þess að ég er hans maður í því að gera hann og Söru að pari.

Er þetta orðin spurning um að ég setji upp könnun hérna um hvort ég sé efni í Frímúrara?

Svo er ég að spá í að setja upp lista yfir fýlupúka en 3 hafa beðið um að vera teknir af bloggtilkynningarlistanum mínum en það eru Svessi Rokk, Loftur Litli og XTækniValli. Athugið að þetta er auðvitað réttur hvers manns að afskrá sig af bloggtilkynningarlistanum mínum en ég má líka vera sár og fúll og móðgaður....en ég verð við beiðninni...það er ekki málið. Ef ég man rétt þá hef ég bætt fleirum við listann heldur en tekið af listanum og því held ég ennþá vinsældum mínum ;-)

Þeir sem vilja fara á bloggtilkynningarlistann sendið mér mail og gerið ykkur grein fyrir að þetta eru 5 e-mail á viku sem þið fáið frá mér.

Pæling dagsins: "Ætli Decode geti fundið og tjúnað upp 'reload' genið í karlmönnum....if you know what I mean!'"

1-10 dagsins: Lari = yak - do - se - ca:r - panj - shish - 'aft - 'asht - no - da

Kvikmyndagetraun dagsins: "Oh, my poor Nordberg! He was such a good man, Frank. He never wanted to hurt anyone. Who would do such a thing"? Kaldhæðni miðað við hvað leikarinn gerði svo....
Senda svar!


Sigurgeir 1:51:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 11, 2003

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Clueless".

Þrófa nokkrum softurum í pósbreikið fyrir utan gýginn og skokka á staur á sýru án þess að gebba.

Ég var í 25 ára afmælinu hans Kela fyrir nokkrum vikum og þar var stuð. Ég skemmti mér mjög vel og stóð mig vel í að passa kærustu Kela og frænku hennar. Keli var sérlega ánægður með mig og hringdi í mig daginn eftir til að þakka mér fyrir vel unnið verk. Myndin hér að neðan er af okkur og er mjög lýsandi fyrir það stuð sem var þarna og hvað ég er fyndinn!
Mér finnst ég ekki vera metinn að verðleikum.  Svona hlutir staðfesta það að ég er fyndnastur í heimi og það er fátt sem menn geta gert til að toppa svona hluti.  Svona húmor er algjör snilld.


Sara er farin til Hollands til Valda og Fjólu og Ástu Indíu. Hún ætlar að kaupa opna Nike skó handa mér og Creatine. Það er gott að vera með eitthvað svona ákveðið til að biðja um.

Búið!

Pæling dagsins: "Ef landnám verður á Mars. Hvað gerist fyrir alla megrunarkúrana? Verður hægt að selja lóðir á Mars undir kjörorðinu 'Fluttu til Mars og misstu 20% af líkamsþyngd þinni'"

1-10 dagsins: Fars = yek - do - se - chår - pänj - shisht - häft - häst - nu -das'a

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm an adult. I want to have fun. I want to go to Liverpool and discover the Beatles".
Senda svar!


Sigurgeir 10:55:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 10, 2003

Sigurvegari dagsins er "Dagmar Þórðardóttir" með "Pulp Fiction".

Denni er ekki þekktur fyrir að þórodda en það er gott hjá honum.

Ég fór með fjölskylduna mína í sund í gær og við tókum Söru með. Salný Kaja var ýkt dugleg og fór oft í kaf en hló mest þegar ég var að lyfta henni upp og niður í vatninu (þetta skilst alveg er það ekki?). En þessi annars mjög svo ánægjulega ferð var eyðilögð af perra. Það var gaur sem mér sýndist vera útlenskur en hann var alltaf að væflast við innilaugina í Árbæjarlaug þar sem börnin voru að leika sér. Hann sat á stól við bakkann og fiktaði í sundskýlunni sinni og talaði við sjálfan sig allan tímann. Svo kippti hann í félagann nokkrum sinnum og losaði strenginn á sundskýlunni og hnýtti hana aftur. Fór meira að segja nokkrum sinnum inn á skýluna sína og "klóraði" sér. Þetta var algjör viðbjóður. Ég vil hvetja fólk með börn til að vara þau við svona gaurum því það voru mörg eftirlitslaus börn á staðnum og ég vil ekki hugsa til þess að hann plati þau inn í gufubaðið eða eitthvað slíkt.

Svo vil ég bara nefna það hér að Bjarki var ekki í sundi þennan dag en ef hann hefði mætt þá hefði hann séð Söru í bikini :-Þ

Morgunsjónvarpið í morgun var alger snilld. Þar var einhver kerling að væla yfir því hvað karlar væru alltaf að vaða yfir konur. Ég þoli ekki svona druslur. Allt slæmt sem gerist í lífi þeirra er tengt einhverjum karlmanni. Well no shit, ef þú hugsar þannig þá geturðu rakið orsakir alls til hvors kynsins sem er bara ef þig langar. Hata fólk sem kennir öllum um hvað allt er ömurlegt hjá því sjálfu. Taktu bara ábyrgð á lífi þínu og hættu að grenja!

Pæling dagsins: "Bin og Cue er hægt að skrifa með Nero og út úr því kemur SVCD! Pælið í því!"

1-10 dagsins: Chali = i - dö - sö - cua:r - panj - shesh - haft - hasht - nö - da:

Kvikmyndagetraun dagsins: "I would like to say this. Tardiness is not something you can do on your own. Many, many people contributed to my tardiness. I would like to thank my parents for never giving me a ride to school, the LA city bus driver who took a chance on an unknown kid and last but not least, the wonderful crew from McDonalds who spend hours making those egg McMuffins without which I'd never be tardy".
Senda svar!


Sigurgeir 1:27:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 07, 2003

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "Basic Instinct".

Denni er ekki búinn að blogga í dag.

Það dugir greinilega ekki að setja myndir af fólki hér á vefinn til að stöðva það í að stríða mér. Í morgun var búið að teipa snúruna á músinni minni fasta....ég fæ mér þráðlausa núna!!!! En ég hefni mín bara grimmilega.

Ég fékk mér Nonna áðan og sá enga Moppugaura þar. Hvað á það að þýða?

Nú er það helgin framundan og flestir slaka á eða djamma rækilega en ég þarf að gera skilaverkefni. Er lífið ekki dásamlegt. Hvað ætla ég að gera við þetta helv.... B.S. próf þegar ég er búinn að þessu?

Ú je ég man pælinguna sem ég mundi ekki í gær.

Pæling dagsins: "Ímyndið ykkur að þegar við sofum þá erum við vakandi í veröld sem er samhliða okkar veröld. Draumarnir okkar eru raunverulegir atburðir sem berast með okkur úr þessari veröld. Þannig að ef ég er vakandi og Signý er sofandi í rúminu, þá erum við í raun í sitt hvorum heiminum."

1-10 dagsins: Er í útrýmingarhættu því ég fæ bara ekki neitt frá upplýsara mínum....demit nú er Benni glaður!

Kvikmyndagetraun dagsins: "It ain't no fuckin' ballpark either. Look maybe your method of massage differs from mine, but touchin' a lady's feet, and stickin' your tongue in her holiest of holies, ain't the same fuckin ballpark, it ain't the same league, it ain't even the same fuckin' sport. Foot massages don't mean shit".
Senda svar!


Sigurgeir 1:39:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "My big fat Greek wedding".

Denni er ypparlegur.

Hvað getur maður bullað um svona á hverjum degi? Ég er alltaf að fatta eitthvað sniðugt á kvöldin heima hjá mér en ég man það aldrei þegar ég byrja svo að blogga daginn eftir. Ég var t.d. með pælingu dagsins í gær sem var svo góð að hún hefði getað verið pæling ársins. En ég man hana ekki.

En ég fann góða leið til að verða ríkur. Þetta er bara algjör snilld!

Ég hef ekkert meira að segja í dag og hananú.

Ennþá er verið að stríða mér og að þessu sinni var það Ásbjörg. Ég hefni mín þá bara svona!
Don´t mess with me


Pæling dagsins: "Hver var pælingin sem ég var með í gær? Hún var hrikalega heimspekileg."

1-10 dagsins: Fellur niður vegna tæknilegra vandamála

Kvikmyndagetraun dagsins: "Killing isn't like smoking. You can stop.".
Senda svar!


Sigurgeir 2:21:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 05, 2003

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Scooby Doo".

Ég er vilgis upptekinn í dag!

Alltaf er verið að pressa á eitthvað. Svona er tölvubransinn, maður er ekki búinn með eitt verkefni þegar maður á að byrja á næsta og svo kvarta menn yfir göllum sem eru auðvitað vegna þess að draslið er ekki tilbúið en samt sett í notkun. Afhverju fær maður ekki tíma til að gera hlutinn almennilega áður en maður byrjar á næsta? Það hlýtur að skila sér í því að maður eyðir minni tíma í að hlusta á kvartanir og meiri tíma í að kóða.

Pæling dagsins: "Hver er heimasíða .NET? Er það www..net.net eða eitthvað annað?"

1-10 dagsins: Tati = yæ - dy" - sæ - char - panj - shæsh - hæft - hæsht - ny"h - dæh

Kvikmyndagetraun dagsins: "The men may be the head of the house but the women are the neck and they can turn the head anyway they want".
Senda svar!


Sigurgeir 3:55:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 04, 2003

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The New Guy".

Dastu í blundsköku??!!!!

Viljiði hætta að senda mér page og mail til að láta mig vita af því að Eiður Smári hélt framhjá. Ég veit það vel!

Ég fæ 17" flatan skjá við tölvuna hérna í vinnunni ligga ligga lái!

Ég var í lífshættu í gær. Ég var í opnu skónum mínum að keyra heim eftir að hafa lært fram á kvöld í Háskólanum í Reykjavík. Skórnir eru orðnir svolítið slappir og einhver festing var orðin laus þannig að hún myndaði skemmtilega lykkju og ég hafði ekkert pælt meira í því en er búinn að pæla í því að endurnýja skóna. Ég er svo kominn að Grænatúni og ætla að beygja niður það af nýbýlavegi, en ég er að keyra í austurátt, þegar ég uppgötva að lykkjan hafði fest sig í einhverju undir bremsupetalanum og fóturinn minn var semsagt fastur með bensínið í botni og ég gat hvorki lyft löppinni af bensíninu né stigið á bremsuna. Ég byrjaði þá að jugga fótnum í allar áttir til að losa hann og ekkert gekk og ég sá fram á ofsaakstur yfir fullt af rauðum ljósum og að ég þyrfti að taka 90°beygjur á fullri ferð í hálku ef ég gæti ekki losað fótinn. Hugmyndir eins og að stíga á kúplinguna, taka bílinn úr gír eða drepa á honum og grípa svo til handbremsunnar voru ekki heillandi þar sem að ég gæti brætt úr vélinni ef ég stigi bensínið í botn með bílinn í lausagangi og það er hætta á að stýrið læsist ef maður svissar af á bílnum og ef maður grípur í handbremsu á fullri ferð þá gæti maður velt bílnum. Ég rykkti þá rækilega í og lykkjan rifnaði og ég negldi á bremsuna, náði beygjunni niður í Grænatún og komst heill á húfi heim. Skórnir eru dæmdir ónýtir og verða endurnýjaðir við fyrsta tækifæri.

Pæling dagsins: "Ætli strákarnir í 70 mínútum myndu taka þeirri áskorun að hlaupa í gegnum bílaþvottastöðina Sigtúni á sundskýlunni einni saman?"

1-10 dagsins: Tajik = yak - du - se - chor - panj - shash - h=aft - h=asht - nu:h= - dah=

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hey! I'm a man of substance! Dorky chicks like you turn me on, too!"
Senda svar!


Sigurgeir 2:43:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 03, 2003

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "The Bourne identity".

Auví!!!! Ég náði að borga fyrir mig. Vinnufélagi minn sem hrekkti mig rækilega með matseðlinum hérna um daginn fékk alls herjar útreið hjá mér. Ég fór inn í mailboxið á admin notanda sem við settum upp meðal annars til að taka á móti pósti sem tilkynnir að vírus hafi fundist í pósti á inn eða út leið hjá FMR. Svo bjó ég til lítið script sem sendi afrit á vinnufélaga minn, afrit af öllu sem komið var í pósthólfið sem var hátt í 200 póstar. Svo triggeraði ég þetta á laugardagskvöldi og hann fékk flog þegar hann opnaði póstinn í morgun. Hann hélt að allt kerfið hjá okkur væri með vírus og ég fylgdist með því hvernig örvæntingin magnaðist upp hjá honum og sprakk úr hlátri þegar hann rauk upp úr sætinu og ætlaði að grípa til aðgerða. Ég náði að stoppa hann áður en hann slökkti á öllu tölvukerfinu okkar.

Nágranni minn er kominn með mannsæmandi laun og enn er verið að ásaka hann um eitthvað.

Svo er gaman í vinnunni þegar maður getur eitthvað sem aðrir geta ekki. En dagurinn í dag er sérstaklega skemmtilegur. Þannig er að ég var á námskeiði alla síðustu viku en þá var aðstoðarforstjórinn að vandræðast með Word hjá sér. Alltaf poppaði save as glugginn upp óumbeðinn og enginn skildi neitt í þessu. Tölvugaurarnir hérna voru búnir að aftengja autosave og voru að spá í hvort þetta tengdist þráðlausa netinu og að hún var að vinna með my offline files kerfi og ég veit ekki hvað þeir voru ekki búnir að pæla í. Nú ekkert virkaði og þeir prófuðu að taka office út og setja það aftur inn og það gekk ekki. Vandamálið kom stundum og alveg óháð því hvað hún var með opið fyrir utan word og hvað hún var að gera í wordinu. Eitt sem hún var viss um og það var að þetta gerðist aldrei heima hjá henni (þetta er fartölva sem er í svona "dockingstation" og tengd við almennilegt lyklaborð og skjá) og því voru netdrifin sterklega grunuð. En svo kem ég ferskur eftir helgina og er beðinn um að tékka á þessu. Ég sest niður við tölvuna og reyni að kalla fram villuna en hún kemur ekkert upp. Ég fer þá að losa snúrur til að athuga hvort þetta væri netið og viti menn þá poppaði glugginn upp. En ég er með þjálfað körfuboltaauga, sé 360° í kringum mig. Ég sá að þegar ég var að fikta í snúrunum, þá færðist lyklaborðið til og rakst í spjald sem hún er með til að halda skjölum sem hún er að pikka eftir. Spjaldið ýtti snyrtilega á F12 hnappinn sem er shortkey fyrir Save As. Þannig að ég færði spjaldið c.a. 3 cm og vandamálið var úr sögunni. Oft er það hið augljósa sem maður á að skoða fyrst ;-) Nú geng ég um í allan dag og segi öllum frá því hvernig ég bjargaði laptop frá því að vera fargað!

Pæling dagsins: "Ef það er búið að vera frost í tvo daga, er það nóg til að maður geti keyrt jeppa á Hafravatni?"

1-10 dagsins: Isfahani = ye(k) - do - se - tsâr - payn - shish - haf - hash - no: - da

Kvikmyndagetraun dagsins: "Yesterday, an eighty-year-old librarian broke my penis"
Senda svar!


Sigurgeir 2:03:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur