Drekinn frá OZ

þriðjudagur, desember 31, 2002

Aukablogg: Ég get ekki hætt að hlæja!!!!

>One in a million


Sigurgeir 10:55:00 AM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Karl Óskar Þráinsson" með "Trading Places". Síðasti sigurvegari ársins en í dag er síðasta getraun þessarar deildar. Ég er að spá í breytingum á keppninni.....hvort maður verði með spurningar úr þáttum og fleira og þá spurt um karakter eða eitthvað svoleiðs.....en ég læt ykkur vita.

Nú svo eru það ýlurnar, þær geta ekki verið leiðinlegri en týpan sem bara ýlir og er ekki með kínverja í lokin sem springur....eða jú þær eru leiðinlegastar þegar þær eru svo lélegar að þær takast ekki einu sinni á loft. En nú er komið ráð við því!!! Þið takið smá slummu af kennaratyggjói og troðið því upp í rassgatið á þeim þannig að loftið á ekki greiða leið að brennandi púðrinu og teipið svo allt vel og vandlega, þeim mun betur þeim mun meiri hvellur. Svo kveikiði á kveiki þræðinum og kastið draslinu vel frá ykkur og frá öllum kvikum verum. Þetta er nokkuð góður kínverji sem springur með miklu meira fútti heldur en helv.... ýlan.

Þess má einnig geta að við gerð sprengja er ekki endilega magn púðursins sem skiptir máli heldur þéttleiki umbúðanna. Í raun er betra að hafa helminginn af hólknum tómann til að púðrið geti orðið alelda á ennþá styttri tíma.

Ég hef aldrei gert rörasprengju úr málmpípu og mæli ekki með því. Þetta er hættulegur leikur. Hins vegar er mjög gaman af alls kyns kínverjum og drasli sem er ekki hannað sem morðtól!!!

Hvað segja þeir í OZ við þessu?

p.s. Denni gleymdirðu orði dagsins!

Pæling dagsins: "Hvar er jafnvægið milli hóflegrar drykkju og hæfileikanum til að skjóta upp flugeldum án þess að slasa sig?"

1-10 dagsins: Sivandi = yä - do - se - cha:r - päng^ - shush - häf - häsh - nu - da

Kvikmyndagetraun dagsins: "One, two, Freddy's coming for you! Three, four, better lock your door! Five, six, grab your crucifix! Seven, eight, better stay up late! Nine, ten, never sleep again!".
Senda svar!


Sigurgeir 9:21:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 30, 2002

Sigurvegari dagsins er "Snorri Örn Arnaldsson" með "Stuart Little".

Ég er búinn að kaupa flugelda, ég tel mig hógværan í ár enda bara með c.a. 15 ragettur, nokkur blys og eina köku! Ég vil helst fá handsprengjur og flugskeyti en þetta verður að duga. Kannski maður mixi góðan kínverja og sturti honum logandi í klósettið niðri hjá tengdó þegar einhver er að skíta á klósettinu uppi hehehehehe það væri geðveikt fyndið en kannski ekki vel séð.

En áfram með skemmtilega hluti. Sumt af þessu dóti er svo leiðinlegt að maður verður að finna upp á einhverju skemmtilegu til að láta hlutina vera skemmtilega. T.d. helv.... hurðasprengjurnar, þær eru það alleiðinlegasta drasl í heimi....eða það hélt ég þar til ég fattaði að fylla vaskinn af vatni með tappanum í og vefja svo 4-5 hurðasprengjum vel upp á fingur mína og skella öllu draslinu ofan í vatnið og kippa í spottana. Þá kemur þessi massaði hvellur og það glymur í öllum pípulögnum í húsinu og það gusast yfir þig vatnið. Þetta kallar maður stuð. Nóg í bili!!!!

p.s. Denni gleymdirðu orði dagsins!

Pæling dagsins: "Hvenær er maður of gamall fyrir flugelda?"

1-10 dagsins: Gazi = yeg - dü - se - cha:r - ba:ng^ - shösh - häf - häsh - nô:u - de:

Kvikmyndagetraun dagsins: "That's 'happy.' In this country we say 'Happy New Year'". Sagt í kjölfar þess að einhver segir "Merry new year".
Senda svar!


Sigurgeir 1:24:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 27, 2002

Aukablogg: Ég fékk enga teflinga í jólagjöf!


Sigurgeir 12:02:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "High fidelity".

Gleðileg jól öll! Þessi jól voru þrælgóð eins og við mátti búast. Salný Kaja var reyndar veik greyið, fyrstu alvöru veikindin hennar. Hún hefur reyndar fengið í eyrun en þetta voru fyrstu veikindin þar sem þurfti að ganga um gólf með hana um miðja nótt og svoleiðis. Það setti sinn lit á jólin og sem betur fer þurfti maður ekkert að vakna snemma daginn eftir. Hún er á batavegi en samt lítil í sér. Næst eru það áramótin, eitt áramótaskaup í viðbót og svo fullt af frakertum puðrað upp í loftið. Einhverjir ætla að drekka og sumir ætla að vera edrú. Ég veit ekki hvernig þetta verður hjá mér ábyrgum fjölskylduföður en eitt er víst að á morgun er Brúðkaup, árlegur leikur meistaraflokks og 1. flokks í körfu í Breiðabliki og svo heldur Sensei Jonni upp á afmælið sitt. Það er semsagt margt og mikið á dagskrá.

Nú er maður í vinnunni, stórkostlegt afrek að mæta klukkan átta í vinnuna eftir jólin. Ég get ekki sagt að ég hafi hvílst vel yfir jólin, maður er aldrei á meiri þeytingi en ákkúrat um jólin og allt sem maður ætlaði að koma í verk í "jólafríinu" kemst engan veginn fyrir. Auk þess að Salný Kaja var veik og vildi láta halda á sér og maður fór ekki að sofa fyrr en um fjögur á næturnar þá held ég að þetta afrek mitt ætti að skrást á spjöld sögunnar. Ólafur Magnússon gamall OZ-ari er hérna í herberginu mínu að vinna eins og MoFo en hann er sonur eins af toppunum hér í FMR. Hann verður bara hérna í dag og það er ágætt því ég er annars einn hérna, allir hinir eru í fríi. Vill einhver vera memm?

Pæling dagsins: "Ef ég borða meira, get ég þá sprungið?"

1-10 dagsins: Khunsari = yäg - dô: - se - cha:r - pe:sh - shäsh - häft - häsht - no:u - de:i

Kvikmyndagetraun dagsins: "Oh, I gotta yawn, stare at traffic, lick myself. And believe me, that could take hours if you do it right".
Senda svar!


Sigurgeir 9:19:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, desember 25, 2002

Ég er virkra daga bloggari og því verður bloggið yfir hátíðirnar ekki með hefðbundnu sniði. Vonandi verða keppendur í kvikmyndagetrauninni ekki fúlir en hún heldur áfram á föstudag. Ég ætlaði bara að þakka fyrir allar kveðjur, kort og gjafir. Ég fékk fullt af góðum gjöfum og þakka fyrir þær. Ég byrjaði gærdaginn með afmælisveislu og hún varð lengri og fjölmennari en ég átti von á. Allir fengu kökur og gos og svo var horft á myndband frá skírnarveislu Salnýjar Kaju en Eggert Baldvinsson hafði nýlokið við það og látið mig fá það á Þorláksmessu. Það er glæsilegt og allir ánægðir með það. Fjóla og Sara fá sérstakar þakkir fyrir pönnukökubaksturinn en ég var drekinn frá því eftir að hafa klúðrað of mörgum pönnukökum. Signý stóð sína plikt en fékk síðan hvílt þegar Fjóla og Sara tóku við þessu og gerðu þetta af stakri snilld.


Sigurgeir 1:52:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 24, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts er jólasveinn. Viðeigandi þar sem síðasti jólasveinninn er kominn til byggða. Bæði rauða og bláa dagatölin voru eins og það kom mér gríðarlega á óvart. Súkkulaðið var enn mjög gott þrátt fyrir að hafa borðað 48 súkkulaðistykki. Gleðileg jól elskurnar mínar og til hamingju með afmælið mitt!!!!!

Þetta er ekki vírus!


Sigurgeir 11:31:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 23, 2002

Aukablogg: Fréttir hafa flutt og þarf Denni ekki lengur að flúskrast við blogspottinn! Til hamingju Denni með glæsilega síðu, ég er stoltur að eiga link í þinni síðu ;-)


Sigurgeir 10:52:00 AM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "How the Grinch stole Christmas". Það hefur aldeilis lifnað yfir kvikmyndagetrauninni. Kannski vegna þess að ég er að létta spurningarnar.

Ég er snemma í að blogga í dag þannig að orð dagsins í borði frétta kemur bara á morgun ásamt orði morgundagsins, nema Denni sé í jólafríi.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts er bangsi. Enn og aftur spyr ég hvað er jólalegt við þessa hluti sem eru í súkkulaðidagatölum? Svilkona mín vill meina að þetta séu hefðbundnar jólagjafir ofl. Kannski en ég fíla þetta ekki. Jólaskapið er hins vegar í botni bakkandi upp á kantinn með fullan bíl af tónlist, þokkalega þétt á kantinum. Þannig að ég lifi þetta af og við sjáum á morgun hvort bláa og rauða súkkulaðidagatalið séu alveg eins eða hvort eitthvað komi okkur skemmtilega á óvart. Súkkulaðið var svakalega gott mmmmm...

Denni vorkenndi mér og skrifaði í gestabókina mína í tvíriti, hafi hann þökk fyrir og ég vona að hann móðgist ekki yfir því að ég eyddi afritinu. Einu sinni er nóg krakkar sama hvað þið vorkennið mér :-D

Barnakerran hennar Salnýjar Kaju beit mig í gær. Ég fór í leiðangur og keypti XXXXXXX í jólagjöf handa Signýju (hehehe Signý hélstu að ég myndi klikka þarna?) og ég fékk leyfi hjá mömmunni að taka Salnýju Kaju með mér. Þegar ég setti kerruna saman fyrir utan Kringluna þá klemmdist þumallinn minn og kerran beit stykki úr honum og það blæddi mikið. Sem betur fer var sjúkrakassi í skottinu á bílnum og ég gat veitt mér fyrstu hjálp. Mér líður vel eftir atvikum en verð betri þegar ég er búinn að vinna í dag!

Afmælið mitt er á morgun og allir fagna því að sjálfsögðu. Ég hef ákveðið að halda upp á það með morgunkaffi klukkan tólf. Þeir sem vilja mega líta inn og þurfa ekki að tilkynna komu sína nema þeir komi ekki með gjafir, því þá mega þeir ekki fá kökur. Ég ætla að vakna eldsnemma og útbúa glæsilegt morgunkaffi. Fólk má syngja "Litla jólabarn" ef það vill en ég er ekki kominn með nett leið á því lagi.

Blogg um jólin verður eftir atvikum og ástandi, enda les enginn blogg yfir jólin. Ég held samt að ég verði duglegur. Þeir sem vilja mega skrifa afmæliskveðju til mín í gestabókina!

Pæling dagsins: "Ef ég drekk 10 lítra af Egils Orku....get ég þá dáið?"

1-10 dagsins: Natanzi = yæk - do - se - chahar - pänj - shæsh - haft - hasht - noh - d'e

Kvikmyndagetraun dagsins: "Right now it is my great pleasure to introduce Sonic Death Monkey!"
Senda svar!


Sigurgeir 10:17:00 AM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 22, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts er kerti. Kerti eru mjög jólaleg og svona skemmtileg mynd kemur manni í mjög gott jólaskap. Súkkulaðið var afbragðsgott og myndin eins í rauða og bláa súkkulaðidagatalinu mínu.


Sigurgeir 12:52:00 PM | 0 comments links to this post |

laugardagur, desember 21, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts er jólakrans. Það er mjög jólalegt og ég er í mjög góðu jólaskapi. Sama mynd ennþá í rauða og bláa súkkulaðidagatalinu og súkkulaðið ennþá ljúffengt og gott.

Eitt sem ég ætla að pirra mig á núna og það er burbury's munstrið (hvernig sem það er skrifað). Mér finnst það í lagi á fínum frúm og flottum herrum en ég þoli ekki þegar gerspilltu krakkafíflin þeirra eru að klæðast þessu. Nördalegast í heimi er að vera með svona burbury trefill og í hiphop fatnaði eru krakkarnir ekki í lagi. Þetta er ekki flott nema maður sé fínt klæddur.


Sigurgeir 11:23:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 20, 2002

Aukablogg: Ég held áfram að klúðra, í blogginu í dag sagði ég að Helgi Örn Gunnarsson hefði unnið en hann var alls ekki fyrstur heldur Fjóla Dögg Sverrisdóttir og það leiðréttist hér með og báðir aðilar beðnir afsökunar á klúðrinu.


Sigurgeir 3:01:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, desember 19, 2002

Sigurvegari dagsins er "Fjóla Dögg Sverrisdóttir" með "Office space". Ótrúlega margir svöruðu þessari og greinilegt að þetta er vinsæl mynd. Gaman að fá svona mörg svör, haldið því áfram.

Ég er grepplegur.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts er jólastjarna. Sko plantan jólastjarna en ekki jólastjarnan sjálf. Merkilegt að blómið heiti þetta, ætli það heiti það sama alls staðar og sé jólaleg í augum allra? Súkkulaðið var hins vegar mjög gott og Rauða og Bláa dagatölin haldast enn í hendur.

Föstudagur í dag og ég ætla í Andvara og svo ætla ég að versla gjafir og drasl. Skrifið í gestabókina mína annars sendi ég vírus á ykkur!

Pæling dagsins: "Ef pólarnir víxlast, deyja þá ekki allir farfuglar út?".

1-10 dagsins: Nayini = yak - - - cha:or - penj - - - - - de

Kvikmyndagetraun dagsins: "The nerve of those Whos! Inviting me down there--and on such short notice! Even if I wanted to go my schedule wouldn't allow it. Four o'clock, wallow in self pity; 4:30, stare into the abyss; 5:00, solve world hunger, tell no one. 5:30, jazzercize. 6:30, dinner with me. I can't cancel that again! 7:00, wrestle with my self-loathing; I'm booked! Of course, if I bump the loathing to 9 I could still be done in time to lay in bed, stare at the ceiling and slip slowly into madness. But what would I wear?!"
Senda svar!


Sigurgeir 1:34:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, desember 18, 2002

Sigurvegari dagsins er "Snorri Örn Arnaldsson" með "Fight Club".

Ég get ekki gonsað yfir gestabókinni minni en það hafa mjög fáir skrifað í hana!

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts er sveppur. Í hvaða landi eru sveppir tengdir jólunum? Ég er samt í jólaskapi og enn eru rauða og bláa dagatalið eins þannig að ég bara bíð enn spenntur eftir því hvort þau séu alveg eins eða bara næstum því eins. Súkkulaðið var æðislega gott mmmmmm fæst í gripið og greitt mmmmmmmmm.

Ég er kominn yfir 10.000 hits á síðuna og vil þakka mömmu og pabba, Salnýju Kaju og Signýju, Systur minni og fjölskyldu hennar, Gripnu og greiddu og öllum þeim sem hafa heimsótt síðuna mína. Sérstaklega vil ég þakka tilverunni.is fyrir að setja ekki link á síðuna mína þrátt fyrir að hún sé fyndin. Svo vil ég þakka bókaauglýsingunni sem er alltaf í sjónvarpinu og er eitthvað á þessa leið "[Nafn bókarinnar] er bók sem lætur enga móður ósnortna". Mér finnst þetta sexist og ógeðfelt. Eins og ég sem foreldri geti ekki skilið angist foreldris sem hefur misst dóttur sína í hendur mannræningja. Já karlmenn skilja ekki hvernig það er að láta taka börnin frá sér þrátt fyrir að það virðist vera viðtekin venja í skilnaðarmálum. Mætti t.d. auglýsa "Mein Kampf er bók sem lætur engan aría ósnortinn!" ..... held ekki.

Denni svarar ekki spurningu minni frá því í gær og ég gruna hann um að lesa ekki bloggið mitt daglega. Sem mér finnst súrt.

Pæling dagsins: "Að verða faðir þegar maður er 80 ára þýðir að barnið er á gelgjunni þegar þú ert 94 ára".

1-10 dagsins: Parthian = 'yw - dw - - cf'r - pnj - shwh - hft - - -

Kvikmyndagetraun dagsins: "He is immortal. Born in the Highlands of Scotland 400 years ago. He is not alone. There are others like him, some good, some evil. For centuries he has battled the forces of darkness, with holy ground his only refuge. He cannot die, unless you take his head, and with it his power. In the end there can be only one. He is Duncan MacLeod, the Highlander". Ein drullulétt fyrir jólin, en ég verð að vita nákvæmlega hvað myndin heitir.
Senda svar!


Sigurgeir 12:04:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 17, 2002

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "Rush hour 2".

Ég er ekki mjög rysjaldur þó það sé skap í mér!

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var lítill fjallakofi þakinn snjó. Ég svíf á skýi og jólaskapið orðið svo magnað að ég ræð ekki við mig. Auðvitað voru rauða og bláa jóladagatalið með sömu myndina sem tvöfaldaði ánægjuna. Súkkulaðið bráðnaði í munninum á mér og nýmjólkin sem ég skolaði því niður með fékk dásamlegt súkkulaði bragðið í sig og saman var þetta yndisleg upplifun.

Það er merkilegt hvað maður er lengi að keyra í vinnuna á morgnanna og heim síðdegis! Það eru alltof margir á ferðinni á sama tíma og svo eru nokkrir sem ekki eru enn vaknaðir en eru komnir undir stýri. Einn sá ég í morgun þar sem hann var að skoða skemmdirnar á bílnum sínum en hann hafði ekki þolinmæði á rauðu ljósi þar sem hann ætlaði á frárein framhjá ljósinu og var einum bíl frá því að komast, þannig að hann keyrði upp á kant til að komast framhjá bílnum á undan nema hvað það var svolítið hátt niður af kantinum hinum meginn þannig að hann hafði fengið kantinn harkalega undir bílinn sinn. Svo var annar sem ég sá á þessari stuttu leið sem var kominn upp á gangstétt og ekkert virtist vera að nýlegum bíl hans en löggan stoppaði hjá honum og fór eitthvað að röfla við hann. Ég var rúmlega korter á leiðinni í vinnuna en ég hef keyrt þessa leið þegar engin umferð er og lenti alltaf á grænu ljósi en þá var ég 4 mínútur á leiðinni án þess þó að botna kerruna!

Ein spurning til Denna í sambandi við spurningu dagsins. Þar er einn möguleikinn "Ég sakna þess að.... fá hvergi Spur". Ég spyr er hægt að fá Spur í dag? Hvar þá? Hvernig get ég saknað þess að fá hvergi Spur ef ég fæ hvergi Spur? Á þetta ekki að vera "Ég sakna þess að fá Spur" eða "Ég sakna þess að geta keypt Spur í hvaða sjoppu sem er"?

Sandra Lilja á afmæli í dag, til hamingju með það!!!!

Pæling dagsins: "Ég verð 35 ára þegar ég verð í fyrsta skiptið á ævi minni vitni af því að menn ganga á tunglinu. Það er pæling!"

1-10 dagsins: Ormuri = so: - dyo: - sh.re: - tsa:r - pe:ndz - sh.ah - ho: - ha:nsht - nah - das

Kvikmyndagetraun dagsins: "Everywhere I travel, tiny life. Single-serving sugar, single-serving cream, single pat of butter. The microwave Cordon Bleu hobby kit. Shampoo-conditioner combos, sample-packaged mouthwash, tiny bottles of soap. The people I meet on each flight? They're single-serving friends".
Senda svar!


Sigurgeir 9:36:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 16, 2002

Sigurvegari dagsins er "Theodór Narfason" með "Dogma".

Það er engin runkatíð hjá mér núna múhahahaha!

Ég ætla að borða laufabrauð í kvöld með smjöri. Það verður ánægjulegt. Ég hef fátt að segja annað en að ég fór í kringluna áðan og keypti jólagjafir, á undan því fórum við Signý með Salnýju Kaju í ungbarnasund og Sara Valný horfði á okkur.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var BAMBI. Hreindýr.....dádýr......æi ég veit ekki, sko þetta átti örugglega að vera hreindýr nema þetta var fucking bambi! En jólaskapið er komið á það stig að ég get litið á Bamba sem hreindýr. Súkkulaðið var geðveikt gott og vitiði hvað????? Sama mynd úr rauða og bláa súkkulaðidagatalinu. Þetta er farið að vera skuggalegt.

:-D

:-)

Mamma á afmæli í dag, til hamingju með það!!!!

Pæling dagsins: "Hversu lengi getur maður verið að drepast í lærinu eftir högg á það í leik?"

1-10 dagsins: Parachi = zhu - di - shi - cho:r - po:nc - xi - ho:t - 'osht - no: - do:s

Kvikmyndagetraun dagsins: "All he wanted was some Mu Shu".
Senda svar!


Sigurgeir 11:04:00 PM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 15, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var snjókarl. Snjókarlar hafa reyndar enga tengingu við jól, þeir voru t.d. ekki til staðar í Betlehem þegar Jésú fæddist. En þeir minna á snjóinn sem aftur minnir á vetur og jólin eru einmitt um vetur. Þannig að manni finnst snjókarlar alltaf jólalegir. Reyndar hefur í seinni tíð verið lítið um snjó um jólin en það hlýtur að koma. Rauða og bláa súkkulaðidagatalið eru ennþá eins og ég læt vita ef breyting verður á. Súkkulaðið var dásamlegt.


Sigurgeir 1:48:00 PM | 0 comments links to this post |

laugardagur, desember 14, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var jólakúla. Nú er maður kominn á fullt í jólaskapinu, kannski er það víman af lakkinu, því ég var að lakka þröskuldana sem ég pússaði í gær. Nú eru þeir eins og nýir. En súkkulaðið bragðaðist ansi vel og tvær jólakúlur velkomnar í minn munn því myndirnar voru eins bæði í bláa og rauða súkkulaðidagatalinu. En nú er það bara að gera sig kláran því Rósa amma Signýjar er 75 ára og með geðveikt partý á Sunnuhlíð!


Sigurgeir 12:33:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 13, 2002

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "The Lawnmower Man".

Ég vil ekki vera seintíver og því ætla ég að pússa upp nokkra þröskulda í kvöld. Svo ætla ég að lakka þá og vera í vímu í alla nótt.....djö ég á barn, ætli ég lakki þá ekki í fyrramálið og flýi út með fjölskylduna.

Bjarki er asni og vill ekki leyfa Man. Utd. gaurum að fara í Xboxið sitt og hann verður asni þar til hann leyfir það.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var sokkur. Jólasokk er hægt að yfirfæra á skó og því var þetta sárabót fyrir vonbrigðin í gær. Sérstaklega er ég ánægður með að í nýjasta Andrésblaðinu eru nokkrar jólasögur og þar er talað um Jólasveinana en ekki Jólasveininn. Súkkulaðið var mjög gott og myndirnar eins bæði í bláa og rauða súkkulaðidagatalinu og það er alveg hætt að koma mér á óvart en maður veit ekki, síðasta myndin gæti verið öðruvísi.

Jæja ég er farinn að pússa bæjó

Pæling dagsins: "Ef maður setur smokk upp á púströrið á bíl nágrannans og teipar hann fastann....hvað gerist!"

1-10 dagsins: Sarikoli (Tashkorghani) = iw - dhew - aróy - cavúr - pindz - xel - üvd - woxt - new - dhes

Kvikmyndagetraun dagsins: "He likes to hear people talk. Says it sounds like music to Him. Christ loved to sit around the fire and listen to me and the other guys. Whenever we were going on about unimportant shit, He always had a smile on His face".
Senda svar!


Sigurgeir 6:52:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, desember 12, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Silence of the lambs". En þessi setning kom einnig fyrir í Joe Dirt og mér til mikilla vonbrigða giskuðu flestir á þá mynd. Ég gef náttúrulega rétt fyrir það en Pétur nefndi báðar myndir og var fyrstur þannig að hann vinnur.

Ég vil ekki vera jarganlegur við Denna því hann er góður strákur. Gleðileg Jól karlinn og til hamingju með sigur lélegaliðsins gegn þreföldum NBA meisturum. Þetta gerist ekki betra fyrir dreng eins og Denna. Ég er eins og Denni mikill aðdáandi liðsins og er ekki að skipta um lið þegar illa gengur. Þetta þýðir að maður þarf að þola slæma og góða tíma. Ekki eins og aularnir sem halda alltaf með besta liðinu hverju sinni. Það er kjarklaust fólk. Ég man eftir mögrum árum frá því að Lakers unnu "back to back" um árið og svo ekkert fyrr en núna þegar þeir taka þrjá í röð. Denni fær alla mína virðingu fyrir að halda áfram með sínu liði.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var lest. Ég verð að segja að ég nærri brast í grát og jólin voru nærri eyðilögð fyrir mér. Hver hefur heyrt um jólalest? Kannski jólabílalest kókakóla en ekki jólalest. Þetta er hræðilegt og á ekki að gera börnum þetta. Súkkulaðið gerði sitt til að redda jólaskapinu og ég verð líklega kominn í lag fyrir aðfangadag en þetta er reiðarslag fyrir jólabarn eins og mig. Bæði bláa og rauða dagatalið innihélt þessa skelfilegu sýn. Ég er viss um að mörg börn grétu í morgun.

Bjössi mágur á afmæli í dag og fær bestu kveðjur.

Jæja ég er farinn að þrífa sameignina. Við heyrumst á morgun krakkar!

Pæling dagsins: "Er geðfúll orð?"

1-10 dagsins: Yazgulami = wu, - dhow - cu,y - cher - penj - xu - uvd - uxt - nu - dhu,s

Kvikmyndagetraun dagsins: "You realize, Dr. Angelo, that I have surpassed your intelligence".
Senda svar!


Sigurgeir 6:07:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, desember 11, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Three Amigos".

Ég er alltaf að góka mér í körfubolta. En til að svara Denna þá segi ég það sama og ég segi við þá sem gera grín að frammistöðu Man. Utd. "Það vinnur enginn titilinn í desember!". Lakers eru búnir að vera að kúka á sig fyrir utan fjórða leikhluta á móti Dallas um daginn. Þeir verða svona fram að úrslitakeppni, lagast smám saman og svo taka þeir titilinn eins og að drekka vatn. Denni heitir gaurinn ekki Chris Mullin en ekki Chris Mullins? Við skulum bara bíða og sjá Denni minn, hvort næsti leikur þessara liða verði ekki Lakers 127 - Warriors 14.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var bjalla. Bjöllur eru mjög jólalegar og sennilega vegna þess að þær eru í öllum kirkjum og hringja inn jólin. Súkkulaðið var ofsalega gott og fór vel niður með morgunmatnum mínum sem var úrvals askaskyr. Nammi namm. Rauða og Bláa súkkulaðidagatölin mín eru ennþá eins innihaldslega séð.

Ég var að keppa á laugardaginn í Sandgerði og var sparkaður niður í fyrri hálfleik. Gaur sem ég var að komast framhjá rak hnéið af fullum krafti í lærið á mér. Ég stífnaði svo mikið upp um kvöldið að ég gekk við hækjur þar til ég fór að sofa. Svo í dag er ég ennþá að drepast en miklu skárri að sjálfsögðu. En samt nógu slæmur til að komast ekki á æfingu og haltra þegar ég labba. Hata svona fífl og ætla að jafna um hann þegar hann kemur í Smárann.

Svo á tengdapabbi afmæli í dag og hann fær bestu kveðjur. Til hamingju með afmælið Sigurjón Valdimarsson!

Pæling dagsins: "Hvenær kemur mp4?"

1-10 dagsins: Rushani = yi:w - dhaw - aráy - cavú,r - pi:ndz - xu:,w - wu:vd - waxt - no:w - dhes

Kvikmyndagetraun dagsins: "It puts the lotion in the basket".
Senda svar!


Sigurgeir 10:33:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 10, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Matrix".

Ég er ekki glúmpinn í körfubolta.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var engill. Ef eitthvað er jólalegt þá er það enginn. Hver kannast ekki við söguna um englahópinn sem tilkynnti vitringunum að frelsarinn væri fæddur. Eitt sem ber að hafa í huga að það kemur hvergi fram í kristnum ritum að englar séu framliðið fólk heldur er líklegra að þeir séu sér kynstofn. En alla vega þá var súkkulaðið gómsætt, bæði engillinn úr blá og rauða súkkulaðidagatalinu voru æðislega góðir.

Fyndið
Annað fyndið
og eitt í viðbót fyndið

Pæling dagsins: "Ef maður sleppir dúfu og hamstri úr turni Hallgrímskirkju, hvor lendir fyrr á jörðinni?"

1-10 dagsins: Shughn = yi:w - dhu - aráy - cavó:r - pi:ndz - xo:gh - wu:vd - waxt - no:w - dhi:s

Kvikmyndagetraun dagsins: "Would you say I had a plethera?". Ég veit ekki hvernig á að skrifa síðasta orðið en það er borið fram svona Pleþera.
Senda svar!


Sigurgeir 9:16:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 09, 2002

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Go".

Ég vona að dóttir mín verði ekki glofra.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var jólatré. Jólatré er það jólalegasta af öllu þó að þau hafi ekki vaxið í Betlehem á dögum Jesú Krists og gera það sennilega ekki enn. Þetta kom mér sko í jólaskapið og ég gat ekki beðið eftir því þegar ég hafði opnað rauða dagatalið að fá annað jólatré í því bláa. Súkkulaðið bragðaðist betur en venjulega því jólaskapið var í hámarki hjá mér.

Á einhver þessa mynd? Það hlýtur að vera, hún var sýnd á stöð 2 fyrir 10 árum svona sirka!

Lítil börn kunna að svara fyrir sig:

The Sunday School Teacher asks, "Now, Johnny, tell me frankly do you say
prayers before eating?"
"No sir," little Johnny replies,
"I don't have to. My mom is a good cook."

Terri asked her Sunday School class to draw pictures of their
favorite Bible stories.
She was puzzled by Kyle's picture, which showed four people
on an airplane, so she asked him which story it was meant to
represent.
"The flight to Egypt," said Kyle.
"I see ... And that must be Mary, Joseph, and Baby Jesus,"
Ms. Terri said.
"But who's the fourth person?"
"Oh, that's Pontius-the-Pilot.

Pæling dagsins: "Á hvaða Eik uxu epli?"

1-10 dagsins: Sanglechi = vak - do:u - tra:i - safo:r - panz - - haft - ha:t - - das

Kvikmyndagetraun dagsins: "What are you trying to tell me? That I can dodge bullets?".
Senda svar!


Sigurgeir 10:01:00 PM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 08, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var jólalukt. Þvílík snilld, jólalukt. Mjög jólaleg og skreytt jólaskrauti. Já þetta líkar mér. Súkkulaðið bráðnaði í munni mínum og mjólkin góð sem skolaði því niður. Bæði rauða og bláa dagatalið innihéldu þessa mynd en þeim er fyrirgefið að vera samstíga því súkkulaði er svo gott mmmmmmmm......


Sigurgeir 8:41:00 PM | 0 comments links to this post |

laugardagur, desember 07, 2002

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var íkorni með akarn. Ég veit ekki með ykkur en í hvert skipti sem ég sé íkorna að safna akörnum í garðinum mínum, þá verður mér hugsað til jólanna.....NOT!!!! Hvaða hálfvita datt þetta í hug? Er eitthvað sem heitir jólaíkorni úti í heimi....t.d. á Jamaíka? Nú bláa og rauða súkkulaðidagatalið mitt gáfu mér eins súkkulaði í dag BIG SURPRISE! Þannig að ég fékk tvo íkorna...jibbí jólin eru að koma. En súkkulaðið bragðaðist undursamlega og því tókst íkornanum ekki að sjúga jólaskapið úr mér í akarnið sitt og hlaupa með það í burtu.


Sigurgeir 11:36:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 06, 2002

Sigurvegari dagsins er "Helgi Örn Gunnarsson" með "Austin Powers 2: The Spy Who Shagged Me".

Mér er sama hvað Denni segir hann er enginn glerjaskellir.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var piparkaka. Piparkökur er svakalega jólalegar og þessi mynd því verðug fyrir jóladagatalið mitt. Súkkulaðið var ofsalega gott úr bæði rauða og bláa dagatalinu mínu. Nú er ég nánast viss um að þau séu eins en maður veit ekki fyrr en maður er búinn að opna það allt.

Ævar frændi kom í gær og lét mig fá alla South Park þættina og Family guy þættina í tilraun hans til að uppfræða mig um húmor tisk tisk tisk. Hann er að skrifa handrit að næstu stórmynd og ég vona að honum gangi vel með það. Mikki frændi er víst að hrósa honum mikið fyrir það og það hlýtur að vera góð meðmæli hehehe. Ævar benti mér á þessa síðu og hún fær stimpilinn gargandi snilld.

Annars er ekkert merkilegt að frétta nema það verður stuð hjá mér í kvöld og alla helgina. Hvert barnaafmælið af fætur öðru....hvað er skemmtilegra en það? Nú á ég barn sjálfur þannig að maður verður buhu!

Á einhver þessa mynd?

Speki dagsins: "Í spreng í g-streng"

1-10 dagsins: Ishkashmi = uk - di, - ru, - ci,fu,r - pu,ndz - xu,l - uvd - ot - naw - da

Kvikmyndagetraun dagsins: "Tantra baby!".
Senda svar!


Sigurgeir 12:08:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, desember 05, 2002

Sigurvegari dagsins er "Guðmundur Andri Hjálmarsson" með "Ace Ventura". Hann var ekki bara fyrstur heldur sá eini sem tók skírt fram að þessi setning var í báðum myndunum.

Mér er sama hvað Denni segir ég fer ekki að kalla dóttur mína skitulögg.

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var jólapakki. Það er held ég það jólalegasta sem maður sér. Þó að jólin séu eitthvað meira en að fá og gefa gjafir þá gleymist það oft í spenningnum. En súkkulaðið bragðaðist rosalega vel og að venju var sama mynd í rauða og bláa dagatalinu mínu. Maður er farinn að halda að þau séu alveg eins.

Ég á von á frænda mínum í heimsókn í kvöld. Hann Ævar hefur ekki sést svo mánuðum saman síðan hann og vinir hans rústuðu íbúðinni minni í Kleifarási þegar þeir tóku upp stuttmynd sem aldrei var svo kláruð. Það verður áhugavert að komast að því hvað hann vilji. Það getur varla verið að hann sé að koma til þess eins að skoða frænku sína og heilsa upp á skemmtilegasta frænda sinn. Hann vill örugglega kveikja í hjá mér eða eitthvað...bara svona hugmynd. En annars er hann vænsta skinn og ég hlakka til að lesa verk hans í framtíðinni.

Speki dagsins: "Grunnur eins og grunnur brunnur"

1-10 dagsins: Yidgha = yu - loh - shuroi - chshi:r - panj - uxsho - avdo - ashcho - nov - los

Kvikmyndagetraun dagsins: "You are hairy like animal!".
Senda svar!


Sigurgeir 5:43:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, desember 04, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Cruel Intentions".

Ég hef fengið það staðfest hjá Denna hvernig Gripið og Greitt fallbeygist. Ég treysti honum í einu og öllu í þessum málum enda er hann eldri og reyndari en ég og kominn upp í 10.000 hits á síðuna sína. Ég er ekkert voðalega abbó, ég kemst í mína 10.000 í þessum mánuði og er mjög ánægður með þann árangur.

Þegar ég vaknaði í morgun fannst mér hann svolítið loðruntulegur og svo kom bara hellidemba!

Súkkulaði dagsins í boði Gripins og Greitts var Hálfmáni með jólasveinahúfu og mér algjörlega að óvörum var það bæði í rauða og bláa dagatalinu mínu. Ég fór að spá í það hvort það væri virkilega skortur á jólalegum hlutum. Eru ekki 24 jólalegir hlutir til? Hvernig tengist hálfmáni með jólasveinahúfu jólunum????? Sko þar sem myndin er teikning og ekki lituð þá veit ég ekki hvort þetta er jólasveinahúfa eða nátthúfa en ég álykta að þetta sé jólasveinahúfa. Þannig gætu þeir í raun notað sömu mynd í eitthvað allt annað og látið húfuna tákna nátthúfu í því tilviki. Mér finnst sumir þurfa að vanda sig þegar þeir framleiða jólahluti. En súkkulaðið var mjög gott og nýmjólkin skolaði því vel niður.

Ég horfði á fréttir í gær og þar var verið að ræða um það að Samfylkingin er að reyna að spara pening með því að loka leikskólum í mánuð á sumrin. Þetta finnst mér mjög skondið þar sem rúmlega hálft ár er síðan Samfylkingin náði kjöri af því þeir eru svo fjölskylduvænir. Svo voga þeir sér að segja að þetta sé fyrir börnin og að þau þurfi stöðugleika. Ekkert að pæla í því að ef fólk getur valið þessar 4 vikur þá eru meiri líkur á að foreldrarnir geti verið með börnunum í þessu fríi. Ég hélt að það væri það besta fyrir fjölskylduna að vera saman!!! Nú verður börnunum hent út af leikskólunum á ákveðnum tíma sem í mörgum tilvikum hentar foreldrunum ekki og þau þá sett í pössun hér og þar og það verður erfitt því það eru allir að leita að pössun á sama tíma. Nú svo fá foreldrarnir frí og taka þá barnið út af leikskólanum þegar hann er í gangi og barnið missir af heilmiklu í leikskólanum og "stöðugleikinn sem barnið á að finna fyrir fýkur út um veður og vind. Já ég er glaður að Reykvíkingar kusu þessa menn yfir sig og veðja að þegar að kosningaári kemur aftur verður Samfylkingin búin að spara svo mikið að hún getur gert helling fyrir okkur á kosningaárinu og allir gleyma hörmungunum hin 3 árin og kjósa Samfylkinguna aftur. Ég er að vísu Kópavogsbúi í dag en hjartað slær í Árbænum og það skiptir miklu upp á álit mitt á Samfylkingunni í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún og Stefán Jón Hafstein komu hingað í vinnuna til mín fyrir kosningar og voru með umræðu með fólkinu hér. Það sveið mikið þegar þau töluðu um Reykjavík og úthverfin eins og Árbærinn væri ekki Reykjavík og kæmi þeim ekki við, þau sögðu hluti eins og "Úthverfafólkið kemur ekki í miðbæinn, þau fara aldrei lengra en að Kringlunni og Smáralind". Þetta finnst mér hrokafullt og ömurlegt og hef ég ekki áhuga á flokki sem hugsar bara 101 og allt annað er sveitapakk sem kemur okkur ekki við. Þau gerðu ekkert annað en að tala um hvað þyrfti að gera fyrir miðbæinn og hvað það væri mikilvægt. Versta var að Sjálfstæðisflokkurinn fattaði ekki að spila út úthverfatrompinu. Ef annar hvor flokkurinn segist ætla að gera eitthvað fyrir úthverfin þá vinnur hann stórsigur yfir 101. Takk fyrir mig.

p.s. Ég bloggaði seint í gær og það getur komið fyrir aftur en þá sendi ég ekki út bloggtilkynningu til þeirra sem eru áskrifandi.

Speki dagsins: "Vanur eins og Svanur"

1-10 dagsins: Munji = yu - lu - sherai - chfu:r - pa:nj - a:xshe - avde - ashkie - nau - dah

Kvikmyndagetraun dagsins: "Like a glove!".
Senda svar!


Sigurgeir 10:55:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 03, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "40 days and 40 nights".

Sorry hvað ég blogga seint en það var svo brjálað að gera í vinnunni að ég komst ekki í það fyrr en nú og þá gildir reglan að þegar ég blogga heima hjá mér verður ekki send út bloggtilkynning.

Súkkulaði dagsins í dag í boði Gripið og greitt var Sleði með jólapakka á. Mér til mikillar undrunar voru molarnir úr bæði bláa og rauða súkkulaðidagatalinu mínu eins. Skiptir engu því mér finnst sleði með jólapakka á mjög jólalegur. Ég hef að vísu aldrei séð sleða með jólapakka á, sko þetta er svona sleði til að renna sér á ekki sleði eins og Ameríkanar vilja meina að Jólasveinninn þeysist um á á eftir Hreindýrum. En súkkulaðið var mjög bragðgott og þrátt fyrir að skola því ekki niður með mjólk var það ofsalega gott.

Litli frændi minn hann Egill Már laumaði sér inn á MSN-ið mitt og sendi mér dónósíðu!!!! Hann fermdist í vor og er greinilega að verða hinn mesti töffari. Stelpur landsins þurfa að passa sig héðan í frá.

Ég hef talað um endurkvæmni hér á blogginu mínu. Hér er flash sem lýsir helmingnum en til að það útskýrði alveg til enda þá þyrfti þetta að stoppa á einhverjum tímapunkti og spóla sig til baka. Ég verð að viðurkenna að ég horfði ekki nógu lengi á flash-ið til að fullvissa mig um að það gerði það ekki en ef það gerir það á endanum þá er þetta mjög góð skýring á endurkvæmni í forritun.

Ég fór til tannsa í dag og hann fann enga skemmd. Svona á þetta að vera, góð byrjun á jólamánuðinum.

Salný Kaja fór í ungbarnasund í gær og við foreldrarnir með henni. Hún var að mæta í annan tímann sinn en hún missti af einum sökum veikinda. Kennarinn lét hana fara á bólakaf en það er ekki venjan í öðrum tíma heldur í þriðja en þar sem hún er svo dugleg þá vildi kennarinn reyna þetta. Salný Kaja var ofboðslega dugleg og fannst þetta ekkert mál. Foreldrarnir voru að sjálfsögðu að springa úr monti. Auk þess sjarmeraði hún alla í sundlauginni þegar kennarinn notaði hana þegar hún var að sýna og Salnýju Kaju fannst svo gaman það sem þau voru að gera að hún skelli hló og bræddi hjörtu allra. Þið látið mig bara vita ef ég er orðinn of montinn :-D

Mikki frændi er kominn með link á síðunni minni!

Ég fór að borða í hádeginu með Hauki vinnufélaga og Hrafnhildi frænku. Hún sagði mér margt merkilegt og mun ég nýta mér þær upplýsingar í næsta fjölskylduboði!

TÉKKIÐ Á KONFEKTMOLASMÖKKUN SIGNÝJAR!!!!!!! Í BOÐI GRIPIÐ OG GREITT!!!!!

Pæling dagsins: "Verpa englar?"

1-10 dagsins: Wakhi = i: - bu - tru - cybyr - pa:nzj - sha:d - yb - at - na:w - dhas

Kvikmyndagetraun dagsins: "She's quite cute, you know. Young, supple breasts, a tight, firm ass and an uncharted pootie. Be her Captain Picard, Valmont. Boldly go where no man has gone before".
Senda svar!


Sigurgeir 9:01:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 02, 2002

Aukablogg handa Denna! Láttu þetta þér að kenningu verða að vera ekki að næpast annars verður þú veikur. Gott að þú ert byrjaður að blogga aftur!


Sigurgeir 1:50:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Forrest Gump".

Súkkulaði dagsins í dag í boði Gripið og greitt var einn af þessum hlutum sem ég hef ekki hugmynd um hvað er. Þetta voru einhverjir tveir staurar svolítið líkir bowling keilum og tvær kúlur á milli þeirra. Þetta er örugglega eitthvað útlenskt jólaskraut. Jóladagatalið mitt er samt mjög skemmtilegt og súkkulaðið var æðislega gott, braðgaðist sérstaklega vel með Nýmjólk. Merkilegt nokk að þá var sama mynd í Rauða og Bláa dagatalinu mínu. Ætli það haldi áfram???? Það er stóra spurningin, stay tuned!

Jólagjafaóskalistinn minn og afmælisgjafa óskalistinn minn því ég á afmæli 24. desember. En ekki gefa mér jóla- og afmælisgjöf í einum pakka því þá lem ég ykkur!:
1. Höggborvél
2. Bláar sexý gallabuxur
3. 4 DVD diska sett af lord of the ring (4 diskar ekki tveir eins og ég er búinn að fá tvisvar. Tveir tveggja diska pakkar gera ekki einn 4ra diska sorry!)
4. Attack of the clones dvd
5. Samúel eftir Mikael Torfason
6. Headphones einhverja góða sem ég get tengt við tölvuna mína í vinnunni.

fleira í þessum dúr er vel þegið.

Pæling dagsins: "Hver er ip-talan mín?"

1-10 dagsins: Pashto = yaw - dwa - dre - tsalór - pindzé - shpag - owé - até - ne - les

Kvikmyndagetraun dagsins: "Dude, you've got to tell her. Seriously. You can pass off two dates without a kiss as being old fashioned - you go three and you're a homo".
Senda svar!


Sigurgeir 10:54:00 AM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 01, 2002

Jólablogg!

Nú er fyrsti dagurinn í desember runninn upp og þá er kominn tími á að opna reit númer eitt í súkkulaðidagatalinu. Súkkulaðidagatalið er í boðið Gripið og greitt!

Úr bláa súkkulaðidagatalinu mínu fæ ég trumbu jibbí!!!! Mmmmmmm súkkulaðið er æðislega gott og með mildan eftirkeim. Nú þá er komið að rauða súkkulaðidagatalinu mínu.....ja hérna hér ég fékk líka trumbu úr því mmmmmm súkkulaðið er svo gott. Trumbur eru mjög jólalegar og þarf bara að hugsa um Boney M og little drummerboy og þá er það komið. Nammi namm þetta súkkulaði er voða gott. Þetta fæst auðvitað í Gripið og greitt!

Athugið að ég mun birta myndir af dagatölunum hérna .... sennilega á morgun ..... þarf smá tíma í myndvinnsluna. Svo verður Signý með konfektsmökkun í boðið Gripið og greitt...en ég mun birta pistlana hennar hérna.


Denni!!!! mig langar svo að fallbeygja Gripið og greitt, hvernig geri ég það? Er það:
Hér er Gripið og greitt
um Gripið og greitt
frá Gripnu og greiddu
til Gripiðs og greitts

En alla vega þá er súkkulaði dagsins trumba úr báðum dagatölunum mínum.


Sigurgeir 2:56:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur