Drekinn frá OZ

föstudagur, nóvember 29, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Men at work". Geðveik mynd með tveimur fyndnum bræðrum í aðalhlutverki.

Í vinnunni var boðið upp á jólahlaðborð núna rétt áðan. Ég borðaði geðveikt góðan mat og drakk fínt vín. Ég er hins vegar búinn að vera með fokking höfuðverk í allt kvöld og varð að flýja heim ásamt allri tölvudeildinni :-( já lélegt djamm það en ansi skemmtilegt það sem ég varð vitni að. T.d. dönsuðum við konga um allan glerkastalann í Borgartúni 21 og dönsuðum í kringum jólatréið með öllum hreyfingum sem fylgja lögum eins og "Adam átti syni sjö".

Munið að í desember verður bloggað á hverjum degi, byrjar núna á sunnudag.

Pæling dagsins: "Hvað læknar höfuðverk ef það er ekki 3 parkódín og nokkur glös af rauðvíni?"

1-10 dagsins: Saka = s's'au - duva - drai - tcahora - pamjsa - ksäta' - hauda - hasta - nau - dasau

Kvikmyndagetraun dagsins: "Oh, yes sir. Bit me right in the buttocks. They said it was a million dollar wound, but the army must keep that money 'cause I still haven't seen a nickel of that million dollars".
Senda svar!


Sigurgeir 11:51:00 PM | 0 comments links to this post |
Föstudagsbloggið kemur á morgun ég er upptekinn við fyllerí!!!!


Sigurgeir 7:01:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, nóvember 28, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Big Lebowski".

Ég fór í bíltúr í dag með dóttur mína. Við fórum alla leið í Hafnarfjörð og skoðuðum lækinn, hann er voðaflottur. Fullt af gæsum og öndum og svönum. Mér finnst eitt samt svolítið óhugnanlegt en enginn virðist hafa áhuga á að fjalla um það. Það er blöndun á aligæsum og villtum gæsum. Allt verður vitlaust ef eldislax veiðist í einhverri á en svo mega hvítar gæsir riðlast á grágæsum og heiðargæsum eins og þeim lystir. Ég sá bæði á læknum í Hafnarfirði og í Húsdýragarðinum, hvítar gæsir með gráa flekki hér og þar sem segir mér að þarna hafi blöndun átt sér stað. Er þetta kannski ekkert hættulegt fyrir íslenska náttúru?

Pæling dagsins: "Hvort er kynlífið betra hjá eldislaxi eða aligæs?"

1-10 dagsins: Bactrian = io:go - - - sofaro - - - - - -

Kvikmyndagetraun dagsins: "It allows me to aggravate the situation without actually changing the course of history. It also stings like a bitch".
Senda svar!


Sigurgeir 4:55:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, nóvember 27, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "George of the Jungle".

Engir súrir draumar í dag :-( En ég var að skipta um kúkableyju í morgun (ég ætla að koma að þessu síðar í blogginu í tengslum við Guðinn sem gaf okkur tungumálið og að hann var fullur þegar hann gerði það) þá sagði Salný Kaja "Babba" sem allir vita að þýðir Pabbi! Þá er það á hreinu, hún kann að segja pabbi bara 5 og hálfsmánaðar gömul.

En snúum okkur að Guðinum sem gaf dauðlegum mönnum tungumálið og þá staðreynd að hann var fullur. Í málsgreininni hér að ofan sagði ég "ég var að skipta um kúkableyju í morgun" sem allir skilja sem að ég hafi tekið bleyju af barninu mínu sem það hafði kúkað í og sett hreina bleyju í staðinn. En ef við rýnum í textann sjáum við að ég er í raun að segja að ég tók bleyju sem kúkað hafði verið í og setti aðra bleyju með kúk í í staðinn. Skipti um kúkableyju! Þetta er eitt af mörgum góðum dæmum en ég ætla ekki að eyða fleirum orðum í þetta í bili. En pælið í þessu fyrir helgina svo enginn misskilji ykkur ;-)

Loksins er komin mynd um raunverulega draum allra táningsdrengja!

Pæling dagsins: "Ætli það sé svona 'Skiptinemaprógramm' fyrir geimverur og þær koma hingað til jarðar til að dveljast í eitt ár eða svo sem 'skiptinemar'?"

1-10 dagsins: Yaghnobi = i: - du - siráu - tafó:r - panch - uxsh - avd - asht - naw - das

Kvikmyndagetraun dagsins: "What the fuck are you talking about? The chinaman is not the issue here, dude. I'm talking about drawing a line in the sand, dude. Across this line, you DO NOT...Also, dude, chinaman is not the preferred nomenclature. Asian-American, please".
Senda svar!


Sigurgeir 3:01:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, nóvember 26, 2002

Sigurvegari dagsins er "Theodór Narfason" með "The Out-of-Towners".

Mig dreymdi einn súrasta draum sem mig hefur dreymt í nótt. Einhverra hluta vegna voru ég, Björgvin og Elli (strákur sem ég þekkti úr Árbæjarskóla í denn en við vorum aldrei neinir vinir) á leiðinni á útihátíð sem átti að vera haldin rétt hjá Stykkishólmi. Málið var að við vorum að keyra á innkaupakerru....ekki þessum stóru eins og í Hagkaupum Smáralind heldur þessum gömlu litlu, silfurlituðu með rauðu plastsætunum fyrir litlu börnin. Elli var að keyra og hann var að slá öll hraðamet. Við vorum tæpa tvo tíma til Grundarfjarðar (já ekki stysta leiðin til Stykkishólms en eins og ég segi þá var þetta súr draumur) en þar kemst ég að því að annar kubburinn sem ég á fyrir digital cameruna mína gleymdist heima og ég varð að fara og sækja hann. Þannig að ég húkkaði far til baka og man bara að ég er kominn heim í Kleifarás og þar fyrir utan er gamli Izuzu Gemini (hvernig sem það er nú skrifað) bíllinn minn og inni í bílskúr er núverandi bíllinn minn. Eitt furðulegt við það er að Golfinn minn var í hægri bílskúrnum en ekki vinstri eins og hann var alltaf, en Gemini-inn var fyrir utan vinstri skúrinn. Nú svo fór ég inn og byrjaði að hlaða dóti sem hafði gleymst í annan hvorn bílinn ég man ekki hvorn og ég man ekki hvað ég náði í en það voru nokkrir hlutir, þar á meðal svona bekkur eins og er alltaf í leikfimi og maður er látinn hoppa yfir og sitja á og allan andskotann. Ég veit ekki hvað ég ætlaði að gera við hann eða hvernig hann átti að komast fyrir í öðrum hvorum bílnum en ég vaknaði upp úr þessu. Þar með er það komið, getur einhver ráðið í þennan draum?

Ég er búinn í prófum og það er bara jibbí!

Bíllinn minn er ennþá á verkstæði og enn finna þeir ekki hvað er að honum. Ætli það sé bara ekki búið að reka alla á verkstæðinu og enginn er að gera neitt við bílinn minn. Hekla rúlar!!!

Speki dagsins: "Tré kúka ekki!"

1-10 dagsins: Sogdian = 'yw - - dhry - chtf'r - panch - wghwshw - 'Bt - 'sht - - nw'

Kvikmyndagetraun dagsins: "Madam, I knew Jane Goodall and you are no Jane Goodall".
Senda svar!


Sigurgeir 9:16:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, nóvember 25, 2002

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Scream".

Ég fer í seinna prófið mitt á morgun og svo er maður bara búinn í prófum takk fyrir. Bíllinn minn er ennþá á verkstæði en ég fæ hann á morgun sagði gaurinn í símanum þegar ég hringdi í Heklu. En svo veit maður ekki fyrst það er verið að reka alla í Heklu. Kannski týnist bíllinn minn. Ég vona að ég komist alla leið í Kópavoginn í þetta skipti áður en það drepst á honum. En spurningin er hvort ég verði rukkaður fyrir viðgerðina.

Ég er búinn að læra í allan dag og skrópaði á æfingu í kvöld til að ná að læra meira, svona er maður duglegur. Vonandi fyrirgefa strákarnir mér :-D

Fríið er búið að vera ágætt en það byrjar loksins fyrir alvöru eftir prófið á morgun. Þá getur maður farið í bíltúr með dóttur sína, þ.e.a.s. ef ég verð á bíl sem virkar.

Djöfull er eitthvað skrítið að reyna að blogga þegar maður er ekki í neinu sambandi við umheiminn, ég get röflað um námsefnið og síðan ekki söguna meir. Ég lofa að bloggið verði skárra strax á morgun en ég mun blogga seint á morgun eins og í dag. Ég fór reyndar í mat til mömmu í gær og það var mjög gott. Reykt svínakjöt er drullugott.

Jæja þetta er nóg í bili en fylgist með í desember þegar súkkulaðidagatalið byrjar. Þá neyðist ég til að blogga á hverjum degi en helgarbloggin verða þá einungis með súkkulaði dagsins.

Speki dagsins: "Það er fíll í herberginu og enginn virðist vilja tala um það!"

1-10 dagsins: Khwarezmian = 'yw - dhw - shy - cf'r - pnc - 'x - 'bhd - 'sht - sh'dh - dhs

Kvikmyndagetraun dagsins: "Honey, we are from Ohio, we don´t talk about sex. It´s kinda the state's motto!".
Senda svar!


Sigurgeir 9:47:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, nóvember 22, 2002

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Spaceballs".

Bíllinn minn er bilaður bilaður bilaður ekki bílaður! Hekla getur ekki gert við hann ég er með lánsbíl frá þeim og þeir leita að biluninni, vonandi þarf ég ekki að borga 100% af andverði bílsins í viðgerðarkostnað.

Góða helgi elskurnar mínar. Ég vona að menn skemmti sér vel því ég þarf að læra alla helgina og óþarfi að fleiri þjáist en ég.

Ég er kominn með gestabók, endilega skrifið í hana og segið mér hvað ég er frábær.

Pæling dagsins: "Til hvers er maður látinn kaupa rándýra bók fyrir skólann þegar ekki er svo kennt eftir henni?"

1-10 dagsins: Avestan = ae:uua- - duua - thra:iio: - chathBa:ro: - pancha - xshuuash - hapta - ashta - nauua - dasa

Kvikmyndagetraun dagsins:
A: "Why do you wanna know my name?"
B: "Because I wanna know who I'm looking at!".

Þessi er alltof létt!

Senda svar!


Sigurgeir 7:11:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, nóvember 21, 2002

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Idle hands". Mynd með Jessica Alba (Jessicu Ölbu) sem er bara nokkuð nett.

Lærdómur byrjaður á fullu. Næsta próf á þriðjudag og það er í hundleiðinlegu fagi. Það gengur hægt að lesa en hratt að skilja....segir hversu leiðinlegt þetta er.

Subway er góður matur....ég er með það á hreinu eftir að ég borðaði BMT með beikoni, káli, papriku, jalapenos, sterku sinnepi, majonesi og pipar í parmesan brauði.

Ég hef nú ekki mikið að segja í dag þar sem ég hef ekkert gert annað en að hanga inni og lesa. Ég er reyndar að fara á leikrit í kvöld...generalprufu þar sem mágkona mín á eftir að slá í gegn. Eftir það fer ég ásamt konu minni til Leifsstöðvar að sækja svilkonu mína sem kemur um miðnættið frá Amsterdam með fulla tösku af dópi.....eða dóti man ekki hvort. Ég vil benda öllum, sem ætla að kaupa eitthvað handa Salnýju Kaju í útlöndum, að uppáhaldsdótið hennar eru DVD myndir og PC tölvuleikir. Einnig er hún hrifin af alls kyns fylgihlutum með tölvum.

Að auki legg ég til að líf kynferðisafbrotamanna verði lagt í rúst (Cato gamli).

Pæling dagsins: "Hvað getur 8 kg krakki kúkað mikið á sólarhring?"

1-10 dagsins: Digor = ieu - duuæ - ærtæ - cuppar - fondz - æxsæz - avd - ast - farast - dæs

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hahahaha my Swartch is bigger than yours!". Þessi er alltof létt!
Senda svar!


Sigurgeir 7:21:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, nóvember 20, 2002

Sigurvegari dagsins er "Signý Björg Sigurjónsdóttir" með "Pitch Black". Mynd með honum Vin Diesel eða hvað hann nú heitir. Menn voru í erfiðleikum með þetta.

Ég vil votta James Coburn virðingu mína. Hann hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðan ég sá hann fyrst í Prúðuleikurunum. Hann kom fram í einum þætti sem ég hélt mikið uppá og þar lamdi hann fullt af prúðuleikurum í klessu og mér fannst það voða fyndið. James Coburn fær RESPECT hérna og eina auða línu í virðingarskyni.



Ég var að horfa á fréttir og sá þar kynferðisglæpamann og að venju var dómurinn yfir honum svo lélegur að það er varla hægt að segja að hann hafi verið brandari því svo svartur húmor fær engann til að brosa. En maður er orðinn vanur því að löggjöf landsins virði lýðinn lítils og virðing og líf einstaklingsins er hænsnaskítur í þeirra augum. Hins vegar varð ég hneikslaður yfir fréttinni því eitt kom mér á óvart. Maðurinn var kærður fyrir að misnota 3 ungar stelpur en dæmdur fyrir glæpi gegn tveimur þeirra þrátt fyrir að sannað þætti að hann hafi framið glæp gagnvart þeim öllum. En elsta málið taldist fyrnt......!!!!!!?????? Hvað er málið, ef maður nauðgar einhverjum þá getur maður andað léttað 7 árum síðar eða eitthvað svoleiðis því þá er málið fyrnt???? Eru menn geðbilaðir???? Fyrnast morð líka? Er gríðarlegur munur á að myrða sál og bæði líkama og sál? Hafa menn sem vinna sem lögfræðingar og dómarar í þessum málum enga samvisku? Ég myndi neita að dæma eða sækja slíkt mál ef ég væri í þeirri aðstöðu á þeim grundvelli að mér þætti lagaramminn ekki sanngjarn fyrir fólkið sem brotið var á. ÉG skora á alla sem eru í þessari aðstöðu að neita að vinna í þessum málum, Láta löggjafarvaldið neyðast til að taka á þessu. Nú eru kosningar á næsta leiti, verkfall er málið lögfræðingar og dómarar góðir. Verkfall fyrir minnimáttar og sál ykkar!!!

Ég fór í Gripið og greitt áðan og það er svo yndislegt að versla þar. Svo er fólkið sem vinnur þarna yndislegt. Það mega allir versla þarna, maður kemur bara og biður um kort hjá þeim sem kostar ekkert og svo byrjar maður. Ekkert mál og verðið alveg frábært.

Nú fer að styttast í að maður má éta fyrsta súkkulaðið í súkkulaðidagatalinu sínu. Ég verð með mína árlegu gagnrýni á súkkulöðin. Auk þess er möguleiki að ég muni gagnrýna konfektkassa en það kemur fljótlega í ljós. Látið alla vita af þessu svo menn geti fylgst með, sérstaklega þá sem þið þekkið í útlöndum sem sakna súkkulaðidagatalanna, en þau eru bara ekki í öllum löndum. 1. des. verður fyrsta opnað og ég mun hafa ákveðna reglu á þessari smökkun, skola öllu niður með mjólk. ég er að spá í að prófa í leiðinni hvaða mjólk passar best með. Mig grunar að Dreytill sé bestur en það kemur bara í ljós.

Er einhvers staðar hægt að fá 56k modem innhringitengingu ókeypis?

Pæling dagsins: "Er helvíti til? Ég a.m.k. vona það því kynferðisglæpamenn fá enga refsingu í þessu lífi!"

1-10 dagsins: Ossetian Iron = iu - dIuuæ - ærtæ - tsIppar - fondz - æxsæz - avd - ast - farast - dæs

Kvikmyndagetraun dagsins: "XXXX XXXXX are the Devil's playground". Fyrstu tvö orðin eru nafn myndarinnar....jamm góð vísbending ;-)
Senda svar!


Sigurgeir 7:25:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, nóvember 19, 2002

Aukablogg:

Ég hef bloggað yfir mánudagsbloggið mitt.......snillingur er ég. úffff well það var hvort eð er bara bull :-D

En það var eitthvað á þá vegu að Hrafnkell Helgi Helgason var sigurvegari dagsins með History of the world part I

svo var bara eitthvað bull bull bull og fastir liðir. Og svo þetta!


Sigurgeir 9:38:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, nóvember 18, 2002

Sigurvegari dagsins er "Theodór Narfason" með "Shanghai Noon". Loksins vann Teddi en hann hefur verið manna duglegastur að giska en hefur ekki haft heppnina oft með sér.

Denni er í fríi í dag og á morgun og því verð ég að tala um fyndnar fyrirsagnir og svoleiðis dót. Ein fyrirsögn fékk mig til að brosa en hún var á mbl.is í morgun en það er "Skýjahula skyggir á mesta leonítaregn aldarinnar" ekki það að það sé eitthvað að henni þannig séð en menn gleyma að öldin er bara c.a. 2-3 ára gömul og því er ekkert merkilegt að eitthvað sé eitthvað aldarinnar.

Dagur tvö í fríi byrjaði vel, fór með bílinn á verkstæði og er búinn að passa dóttur mína í allan morgun (vera með henni innsk. fyrir Denna) og hún svaf í tvo tíma í morgun og var hreint dásamleg. Ég mæli með því að passa þessa stelpu því hún er svo góð.

DON ROSA saga í Andrésblaðinu sem kom í dag. Frábært, reyndar ekki ein af betri sögum hans en mjög heimspekileg samt sem áður. Eitt brjálæðislega fyndið atriði sem tengist herskipafallbyssu á hjólabát....jamm verðið að lesa þetta sjálf. Vantar samt svolítið af húmor í bakgrunninum. Það sem er heimspekilegt í þessu er að þetta gerist í draumum Jóakims og þar sem þeir gerast í huga hans þá kemur allt fram þar sem hann hugsar, þ.a.l. ætla Bjarnabófar að komast að talnaröðinni að "peningaskápnum" í peningageyminum hans Jóakims. Þeir þurfa bara að spyrja hann og þar sem hann fer þá að hugsa um að segja þeim ekki talnaröðina, þá verður hann að segja hana upphátt í draumnum. Snilld ekki satt :-D

Ég keypti kassa af mandarínum í gær í Hagkaupum. Steinalausar og ómyglaðar í kassavís og ógeðslega góðar. Ég er ánægður með framtak þeirra en stóru gaurarnir eru búnir að haga sér eins og Danir í grænmeti og ávöxtum. Baugur er að selja okkur myglað grænmeti með skorkvikyndum sem Guð má vita hvaðan þau koma og Ávextirnir eru brúnir og myglaðir. Þetta er mjög gott framtak hjá þeim en eru örugglega úr sömu sendingu og þeir munu selja á aðfangadag en þá verður þetta myglað og ógeðslegt. Gripið og greitt er hins vegar ekki svona, þeir eru alltaf með ferska ávexti og grænmeti og það er alltaf til nóg handa manni þegar maður kemur þangað. Það er gott að versla í gripið og greitt.

Eitt skemmtilegt sem ég sá í BYKO í gær. Þar var auglýsing sem ég man nú ekki alveg hvað hún gekk út á (ekki góð auglýsing fyrst ég man ekki hvað verið var að auglýsa) en alla vega þetta var eitthvað í sambandi við kennsluefni um skordýr og myndin var af könguló. Hvað er að því????? Ekkert nema að köngulær eru ekki skordýr heldur áttfætlur og þetta hefðu þeir að vita sem stóða að þessari auglýsingu......hvernig væri að skoða kennsluefnið sem á að selja áður en maður gerir svona vitleysu. Skordýr eru ef ég man rétt bara með 6 fætur og ef þau eru með aukalimapar þá eru það vængir sbr. flugur. Þess vegna eru margfætlur, þúsundfætlur og áttfætlur ekki skordýr og hananú.

Pæling dagsins: "Hvað rímar við Tungl?"

1-10 dagsins: Proto-Indo-Iranian = *aiwas - *dva: - *trayas - *k'atwa:ras - *pank'a - *(k)swacsh - *sapta - *ashta: - *nawa - *daca

Kvikmyndagetraun dagsins: "or maybe he'll come back and scullfuck you in your sleep". Hluti af setningu úr mynd sem er svona frekar mikil formúla en ég skemmti mér samt ágætlega yfir henni. Held að þessu sé suddalega erfið og því fylgja nokkrar vísbendingar. Fólk er strandaglópar á plánetu sem tilheyrir vægast sagt óvenjulegu sólkerfi.
Senda svar!


Sigurgeir 10:57:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, nóvember 15, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Austin Powers: International man of mystery". Pétur Óli er búinn að slá öll met í að vinna oft í röð. Aðrir eru aumingjar og geta ekki neitt. Ég er að fara í barnseignarfrí og veit ekki hvernig mér gengur að uppfæra kvikmyndagetraunina mína en það reddast örugglega.

Jamm ég er að fara í barnseignarfrí og það stendur yfir í 2 vikur. Fyrri vikuna nota ég í lærdóm og að taka próf en síðari vikuna mun ég eyða með dóttur minni meðan Signý lærir undir próf. Ég hlakka geðveikt mikið til. Ég er eins og gnaddur, ég er svo spenntur.

Ég er enn ekki búinn að fá margar góðar hugmyndir að hrekkjum sem ég get notað á vinnufélaga minn sem gabbaði mig nú í vikunni. Ég veit að þið getið betur. Benni takk fyrir þín ráð!

Ég las síðuna hans Retro í dag. Hann gerir hana vel eins og allt sem hann tekur sér fyrir hendur. Mjög gott lesefni á þessari síðu og menn ættu að gefa sér tíma til að lesa hana. Fyndin saga með domainið hans. Ég sagði honum að ég hefði séð að það ætti að opna búð í kringlunni sem ætti að heita Retro, Retro a.k.a. Björgvin var ekki par hrifinn af því og ákvað að tryggja sér domainið strax þann dag. Viti menn það var laust og hann fékk það. Pælið í hálfvitum sem eru að stofna fyrirtæki í dag að tryggja sér ekki domainið strax?!?!?!?

Athugið að bloggtilkynningar verða ekki sendar út næstu tvær vikur.

Speki dagsins: "Brækur eru ekki kækur!"

1-10 dagsins: Luwian = *a- - duwa- - *tarri- - *mawi- - *panku - - - *haktau - *nu- - (Þetta eru 6,7 og 10 aðrar tölur gleymdar)

Kvikmyndagetraun dagsins: "The only thing we Romans don't have a god for is premature ejaculation. But I hear that's coming quickly!".
Senda svar!


Sigurgeir 4:09:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, nóvember 14, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Man With Two Brains". Andskotinn hafi það krakkar, ætliði að láta hann bursta ykkur? Hann er kominn með 10 stiga forystu!!!! Jæja hann á svosem skilið að vinna ef þið hin eruð bara aular.

Myndbandið sem ég talaði um í gær er hér! Þið gætuð þurft nýjasta quicktime til að skoða það.

Andrésarhornið: Ég er með geðveika tilgátu! Það er ekkert til sem heitir að vera heppinn í ástum. Ef svo væri þá væri Habeinn löngu búinn að ná í Andrésínu Krakkhóru. Nema það styðji grunsemdir mínar um meingalla hennar. Ef hún er krakkhóra og eins vond og illa innrætt eins og ég held þá er Hábeinn kannski svo heppinn að Andrés heldur henni upptekinni. Svo fær Hábeinn sér sprett á henni þegar hún er í átaki og ekki að nota krakk. Annað sem styður röksemdir mínar er það að krakk á víst að valda svo miklum skaða að tannholdið drepst og menn missa tennur. Andrésína er einmitt tannlaus. Jú einstaka sinnum sést glitta í tennur en þær eru þá svo hvítar að ég kaupi það ekki að þær séu alvöru. Og hvað er Andrésína gömul....er hún nógu ung til að geta labbað um með bleika slaufu á höfðinu?? Er það merki eins og rautt ljós í glugga? Ég er búinn að labba um allan bæinn í dag og ekki séð eina konu með bleika slaufu á höfðinu, sem segir mér að þetta er eitthvað "underground thing" og sennilega merki krakkhóra þannig að þær séu ekki of margar á hverju götuhorni.

Jamm ég var blekktur heavy mikið hérna í vinnunni og ég sendi ákall á alla vini mína, hvernig á ég að jafna metin????? Ekki góka við þetta, sendið mér hugmyndir.

Búið í bili

Speki dagsins: "Sælir eru fátækir sem klóra sér í gegnum götin á fötunum sínum!"

1-10 dagsins: Hittite = *a:nt- - da:- - tri- - meiu- - - - shipta- - - - (Þetta eru 1,2,3,4 og 7 aðrar tölur gleymdar)

Kvikmyndagetraun dagsins: "My name is Richie Cunningham, and this is my lovely wife, Oprah".
Senda svar!


Sigurgeir 2:12:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, nóvember 13, 2002

Aukablogg: Hérna er myndbandið! Gæti þurft nýjasta quicktime til að skoða það.


Sigurgeir 4:52:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Star Wars Episode I: The Phantom Menace".

Já ég horfði á ömurlega mynd í gær. Beneath the Planet of the Apes sem er framhaldið af upprunalegu Planet of the Apes. Ég segi það hér að ég mun ekki vera með tilvitnun úr þeirri mynd því hún var skelfilega léleg.

Ég er viðskiptavinur mánaðarins! (Skrunið neðst á síðuna)
Hnuss það er búið að taka mig út....ég náði samt að vista síðuna. Sjáið hér.

Einhver er að gera grín að mér því þetta sést bara innanhúss hjá mér í vinnunni.

O.k. frábært ég er búinn að fatta hvað þetta er. Einn gaurinn í vinnunni plataði mig upp úr skónum. Hann breytti skrá á báðum vélunum mínum þannig að hann stjórnaði því sem ég sá þegar ég fór á þessa frábæru síðu sem sýnir hvað er í matinn. Svo var hann alltaf að breyta matseðlinum þannig að ég vissi aldrei hvað var í matinn. Ég var farinn að spá í hvað í andskotanum væri að gerast og var farinn að gruna einhverja svona vitleysu og búinn að prófa að logga mig út og inn sem annar notandi og prófa á báðum tölvunum mínum. En nei hann hafði séð við því og alltaf lenti ég á tilbúnu síðunni hans. I've been X-ed og þarf nú að hefna mín. Ég er gorbora að fatta þetta ekki fyrr!

Annars gerði ég ekkert merkilegt í gær og er eitthvað rólegur í dag. Ég held bara áfram að pirra barnlaust fólk með fregnum af dóttur minni. Hún sofnaði meðan ég var að gefa henni graut í gær. Ég náði því á vídeó en skráin er 11 MB þannig að ég vildi ekki setja hana hér á vefinn en þeir sem vilja fá hana í tölvupósti mega senda mér beiðni í tölvupósti en hér eru alla vega myndir:

Salný Kaja að sofna mynd 2.

Salný Kaja að sofna mynd 3.

Salný Kaja að sofna mynd 4.

Salný Kaja að sofna mynd 5.

Salný Kaja að sofna mynd 6.

Salný Kaja að sofna mynd 7.


Speki dagsins: "Ef ég hunsa vandamálið, þá magnast það upp og lendir utan ábyrgðarsviðs míns!"

1-10 dagsins: Slovene = ena - dva - tri - shtiri - pet - shest - sedem - osem - devet - deset

Kvikmyndagetraun dagsins: "Ladies and gentlemen, I can envision a day when the brains of brilliant men can be kept alive in the bodies of dumb people!".
Senda svar!


Sigurgeir 10:42:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, nóvember 12, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Beetlejuice".

Bílar keyra áhyggjulausir fram og aftur fyrir utan gluggann minn. Sjórinn er úfinn og reynir að snerta þá. En hann nær ekki þó að vindurinn hjálpi honum. Rauð ljós bílanna hlæja að sjónum er þeir fjarlægjast hann. Sjórinn grætur en enginn sér það því hann er þegar blautur. En sjórinn snertir gangandi vegfaranda en sá er ekki hrifinn og bölvar sjónum. Sjórinn á enga vini.

Salný Kaja lét engan kinnalög frá sér í sundi í gær. Hún skemmti sér rosalega vel og skvetti á pabba sinn alveg á fullu. Þetta var ægilega gaman. Mamma hennar setur ævintýrið örugglega á heimasíðu Salnýjar Kaju og þá getiði lesið um það þar.

Gott er að Sunna er lifandi, annars eru margir hættir að blogga og það er dapurt.

Speki dagsins: "Ég er skáld"

1-10 dagsins: Serbo-Croat = jèdan - dvâ - trî - chètiri - pêt - shêst - sëdam - ösam - dëve:t - dëse:t

Kvikmyndagetraun dagsins: "Viceroy, I don't want to see this stunted slime in my sight again".
Senda svar!


Sigurgeir 12:11:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, nóvember 11, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "The Adventures of Ford Fairlane".

Ég hef ekki tíma til að blogga ég er að fara með Signýju og Salnýju Kaju í ungbarnasund. En ég er svolítið stobbaralegur.

Speki dagsins: "Karlmenn eru minnihlutahópur"

1-10 dagsins: Macedonian = eden - dva - tri - chetiri - pet - shest - sedum - osum - devet - deset

Kvikmyndagetraun dagsins: "Go ahead make my millenium!".
Senda svar!


Sigurgeir 3:54:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, nóvember 08, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Real Genious".

Ég var að fá mér sexfaldan ADSL hraða (miðað við lægsta hraða sem Síminn Internet býður uppá) en það er tilboð í gangi hjá Símanum Internet. Nú verður maður öll jólin við tölvuna múhahahahahaha! Svo lækkar maður hraðann aftur eftir 3 mánuði með góðri samvisku :-Þ

Jæja er ekki kominn tími á einhverja kjánalega pælingu? Hmmmmmm ljósastaurar...o.k. Hafiði tekið eftir því hversu algengt það er að það slökknar á ljósastaurum þegar þið keyrið undir þá? En svo sér maður ekki oft slökkna þegar bíllinn á undan keyrir undir hvern ljósastaurinn á fætur öðrum. En án gríns þá er ég alltaf að lenda í þessu. Ætli víbringurinn frá bílnum geri útslagið eða er ég svona þrælrafmagnaður?

Signý er riðla!

Speki dagsins: "Hvað er kjölturakki ef maður pælir í orðinu?"

1-10 dagsins: Bulgarian = edín - dva - tri - chétiri - pet - shest - sédem - ósem - dévet - déset

Kvikmyndagetraun dagsins: "You're 10 seconds away from the most embarrassing moment in your life!".
Senda svar!


Sigurgeir 1:25:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, nóvember 07, 2002

Sigurvegari dagsins er "Dagmar Þórðardóttir" með "The Nutty Professor".
Sigurvegari gærdagsins var "Theodór Narfason" með "Sódóma Reykjavík".

Ég er samagóður!
Signý er BEST!!!!!

Nú er ég búinn með skilaverkefnin og ætla að sofa um leið og ég er búinn að þrífa sameignina á eftir. Ég hata námið mitt!!!! Ekki misskilja mig, því ef ég hefði ekki áhuga á þessu þá myndi ég bara hætta, en ég þoli ekki þetta fyrirkomulag. Afhverju þurfa skólar alltaf að vera með einhvern metnað til að útskrifa nemendur á öllum brautum? Ég var að vona að þessi "háskólanám með vinnu" braut, væri þannig að maður væri bara látinn í friði og sagt hvar maður fær námsefnið og hvað maður á að læra og svo hvenær prófið yrði. Jú og svo einstaka stærra verkefni en ekki í þessum stíl sem maður er að fá þau. Ég vil fá námsbraut þar sem maður skráir sig í skólanna og fær bara lista yfir bækur, hvað á að lesa í þeim og hvað er til prófs og hvenær er prófið. Svo getur maður sent inn fyrirspurnir á spjallsvæði sem einungis er opið skráðum nemendum og kennurum. Já hananú ég vil ég vil ég vil.

Ég fæ engar einingar metnar úr náminu mínu í Háskóla Íslands :-( ég er hundfúll út af því!!!! Ég skal rökræða við hvern sem vill um það að heimspekinn er miklu nær tölvunarfræði en Líffræði og Hjúkrunarfræði en tvær skólasystur mínar fengu það nám metið takk fyrir. En ég læt ekki bugast og hefni mín með miklu röfli um þetta nám.

Á léttari nótum þá er sólsetrið fallegt og sjórinn fangar andgift manns og mann langar til að yrkja ljóð....en ég ætla ekki að gera það. Ég ætla hins vegar að segja ykkur að BlackAdder er fyndnastur í heimi. Dæmi: "What is your first name? I don´t know! What do you mean you don´t know? Well it might be sod off! What??? Yes, when I was young and went out to play with the other kids I'd always say 'Hi, my name is Baldrick' and the kids would say 'Yes we know, sod off!' O.k. so I'll put down S. Baldrick!"

Speki dagsins: "Sá er talinn heimskur sem opnar sína sál. Ef hann kann ekki að ljúga, hvað verður um hann þá?"

1-10 dagsins: Old Church Slavonic = jedinu - diva - trije - chetyre - pe,ti - shesti - sedmi - osmi - deve,ti - dese,ti

Kvikmyndagetraun dagsins: "is it the one where you find yourself standing on top of a pyramid and naked Amazonian women are throwing pikkles at you?". Ekki 100% orðrétt en geðveikt fyndið. Það gæti hugsast að ég hafi spurt um þetta áður.
Senda svar!


Sigurgeir 4:15:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, nóvember 06, 2002

Sigurvegari dagsins verður tilkynntur á morgun vegna þess að það eru bara 24 tímar í sólarhringnum.

Vinnan geðveik, skilaverkefni geðveik, kemst ekki á æfingu í kvöld, verð að sofa en þarf að gera verkefni, ég hef ekki sofið síðan Talíbanar voru við völd.

Engin bloggtilkynning vegna þess að ég er að blogga í tíma í skólanum og er sybbinn

sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn sybbinn

En Keli og félagar eru komnir með blogg tékkit!

Signý er trippatróða! VEL MEINT FÍFLIN YKKAR!

Speki dagsins: "Svefn er betri en kynlíf"

1-10 dagsins: Fellur niður vegna þess að það eru bara 24 tímar í sólarhringnum.

Kvikmyndagetraun dagsins: "I don't know weather to smile at you or kick a field goal!".
Senda svar!


Sigurgeir 5:30:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, nóvember 05, 2002

Sigurvegari dagsins er "Pétur Óli Einarsson" með "Planet of the Apes".

Djöfull var gaman á æfingu í gær. Ég hef aldrei áður lent í því á æfingu sem spilað er allan tímann að það lið sem byrjar inná heldur velli alla æfinguna. Samkvæmt reglunni um að sigurliðið haldi velli. Í gær vorum við 15 og það er ákkúrat í 3 lið. Svo byrjaði mitt lið á fyrsta leik gegn öðru af hinum liðunum tveimur. Vann og vann og vann og vann etc. Við héldum velli alla æfinguna. Venjulega ef lið er sterkara en hin liðin þá fer úthaldið að segja til sín og hin liðin vinna á endanum en þetta var sem betur fer bara 70 mínútna æfing þannig að við gátum haldið velli. Það var oft tæpt og þeim mun sætara að vinna þannig leiki. Vildi bara gonsa aðeins múha.

Ég var að skoða myndir á djamm.is og ég verð að segja God damn!

Dóttir mín velti sér af maganum og á bakið í morgun, hingað til hefur hún haldið sig við að velta sér af bakinu á magann. Þetta er því gríðarleg framför og hún er algjör hetja. Um daginn lét ég hana standa uppi í sófa og halda sér í bakið á sófanum. Hún stóð þannig óstudd í rúmlega mínútu sem er vel af sér vikið fyrir 4 og hálfs mánaða barn.

Speki dagsins: "Don´t gain the world and lose your soul. Wisdom is better than silver and gold."

1-10 dagsins: Lower Sorbian = jaden - dwa - ts'o - styrjo - pês' - sêsc' - sedym - wosym - z'ewjes' - z'ases'

Kvikmyndagetraun dagsins: "Við erum að tala um Spur hérna!".
Senda svar!


Sigurgeir 2:35:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, nóvember 04, 2002

Sigurvegari dagsins er "Sigurður Ingi Ævarsson" með "Ice Age".

Snorri vildi að ég birti yfirlýsingu en að sjálfsögðu geri ég það ekki því eini egóistinn á þessum vef er ég og enginn annar verður dásamaður nema ég fái borgað sérstaklega. (By the way Gripið og Greitt rokkar feitt!!!)

Retro er orðinn frægur!

Æi fyrirgefiði krakkar en ég er voðalega busy í dag og hef ekki mikið að segja annað en að fólk má reykja undir stýri en ekki tala í gemsann. Ég er þrapur manneskja.

Svo sá ég morgunsjónvarpið nú í morgun. Þar var einhver karlasni að tala um þetta gsm mál. Persónulega finnst mér þetta bara fáránleg lög en þau fara ekkert í pirrurnar á mér þar sem ég hef enga sérstaka þörf fyrir að keyra og tala í símann. En hins vegar þoli ég ekki hálfvita. Þessi gaur var að tala um að það færi í taugarnar á honum hvernig fólk bregst við nýjum lögum hér á landi. Hann sagði að fólk spyrji aldrei hvernig það geti fylgt lögum heldur hvernig það kemst í kringum þau. Hann nefndi sem dæmi að fólk spurði hann hvort lögin ættu við kyrrstæðan bíl. Hvað er að manninum, hann sagði að lögin væru til þess gerð að fólk væri ekki að gera tvo hluti í einu heldur einbeita sér að einum hlut sem er að keyra. Þarf fólk þá að einbeita sér að því að vera í kyrrstæðum bíl???? Og er það að fara í kringum lögin að leggja bílnum og svara í símann eða hringja? Ef ég villist, og ætla að hringja eftir leiðbeiningum t.d. í partý. Verð ég að leggja bílnum og fara út úr honum? Hvernig er það að fara í kringum lögin þegar maður vill vita nákvæmlega yfir hvað lögin ná? Ég skil þetta ekki betur en svo að fólk vilji fara eftir lögunum og leggja bílum sínum ef þeir þurfa að nota símann? Er gaurinn á prósentum hjá símafyrirtækjum? Handfrjálsbúnaður my ass!!!! Er maður ekki að gera tvo hluti í einu þegar maður er að tala í síma með handfrjálsum búnaði? Er ekki málið að menn eru utan við sig við aksturinn þegar þeir tala í símann en ekki það að þeir voru ekki með báðar hendur á stýri þegar það þurfti að bremsa!?!?!?!?! Ég þoli ekki fólk sem keyrir á 40 þar sem má keyra á 70 bara af því það er að tala í gemsann og ég tel það engu skipta hvort þetta fólk er með handfrjálsan búnað eða ekki. Það ætti bara að banna þetta alveg eða láta fólk taka próf í að keyra bíl og tala í gemsa.

Speki dagsins: "Life ain't nothin' but bitches and money!"

1-10 dagsins: Upper Sorbian = jedyn - dwaj - tr^i - shtyri - pjec' - shêsc' - sydom - wosom - dz'ewjec' - dz'esac'

Kvikmyndagetraun dagsins: "Get your filthy paws of me you damn dirty ape". Ætti að vera nokkuð létt.
Senda svar!


Sigurgeir 1:46:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, nóvember 01, 2002

Sigurvegari dagsins er "Snorri Örn Arnaldsson" með "Stellu í orlofi".
Þá er það ljóst að Snorri er sigurvegari þessa tímabils og er vel að sigrinum kominn. Glæsilegt hjá honum. Nýtt tímabil hefst auðvitað strax og allir eru jafnir og sömu reglur og áður gilda.
Hrafnkell Helgi Helgason vinnur aftur Ameríkuriðilinn með yfirburðum.

Ein pikkupp lín sem ég samdi í gær:
1. Þjóðsagan hermir að strútar grafi höfuð sitt í sandi þegar þeir verða hræddir. Eigum við að koma heim og hræða strútinn minn?

Nú er helgi og allir í djammstuði. Ég er hins vegar fastur í verkefnavinnu enn og aftur. Svo er bara hálfur mánuður í lokaprófin svona sirka. Jæja ég fæ þá langt jólafrí....frá skóla ekki vinnu. Ég er hundleiður á þessum verkefnum. Svo voga kennararnir sér að spurja hvort maður hafi gert dæmin heima fyrir dæmatímana?!?!?! Nei heimski kennari ég er alltaf að gera skilaverkefni, ég veit ekki hvað er að gerast í tímum út af skilaverkefnum. Nú er maður í vanda....ef ég tek próf upp á 10 þá halda þeir kannski að þetta virki svo vel að þeir breyta engu en ef ég tek upp á 5 þá breyta þeir kannski en ég fæ þá lélega einkunn.....uss uss uss hvað á maður að gera.

Ég er kominn á nagladekk jamm og jæja og þau voru rándýr. Ég borgaði uppihald á dekkjaverkstæðinu fram í Apríl en þá borga ég sennilega aftur uppihald til október. Ég er að spá í að vera með svakka út af því.

Til hamingju með Steinunni Denni minn ;-)

Speki dagsins: "Jakki er ekki frakki nema síður sé."

1-10 dagsins: East = jeden - dva - tri - shtyri - pejc - shesc - shedzem - osem - dzevec - dzeshec

Kvikmyndagetraun dagsins: "so you have 3 melons." Geðveikt diss á eina dýrategund.
Senda svar!


Sigurgeir 3:42:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur