Drekinn frá OZ

mánudagur, september 30, 2002

Vinna og próf og því komst ég ekki í bloggið í dag sorry krakkar.


Sigurgeir 4:15:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, september 27, 2002

Sigurvegari dagsins er Fjóla Dögg Sverrisdóttir og svarið var auðvitað "Stella í orlofi".

Síðasti dagur í riflildi við Denna. Það er búið að vera gaman að rífast í Denna. Ég missti reyndar af deginum í gær og útskýri það hér fyrir neðan. Hann lýsir hins vegar yfir sigri, sinna manna í leiknum á morgun og sínum í riflildi okkar. Það sýnir bara hversu veruleikafirrtur hann er. Ég var ekki viss hvort hann byggi í Grafarvogi eða Grafarholti og þess vegna mælti ég með að hann héldi með Fjölni en hann má alveg halda með Fylki ef hann vill. Það væri bara skynsamlegt af honum. Mér finnst hann vera eins og strækni í síðasta pistli þar sem hann sýnir mér ekki einu sinni þá virðingu að linka á mig í beinu skoti á mig. Ég er ekki eins slæmur og Denni ha!!!! Á morgun kemur í ljós hvor okkar er fallegri, gáfaðari, skemmtilegri og fyndnari. Það fer eftir því hvort liðið vinnur, þetta vita allir. Og þar sem Fylkir vinnur örugglega þá verð ég betri maðurinn.

Ég get svo sem uppljóstrað um það hvað ég var að gera í gær sem gerði það að verkum að ég gat ekki bloggað. Ég var nefnilega að taka þátt í "Viltu vinna milljón". Ég ætla ekki að segja frá árangri mínum en ég get sagt það að ég er ekki að fara að kaupa mér jeppa strax. Þetta var rosalega gaman og spennan svo mögnuð að ég hnóhnikaði allan tímann. Við fengum að prófa allt og þetta var voða gaman. En samkvæmt nýrri reglu sem ég las á síðu keppninnar á mbl.is þá má ég aldrei taka aftur þá og því eru möguleikar mínir á því að lifa á þessu horfnir út um gluggann. Ég vona þó að þeir breyti þessari reglu því þetta var svo gaman.

Helgi komin og ég vona að allir skemmti sér. Ég mun hins vegar ekki skemmta mér fyrr en á mánudag eftir viku en þá er törnin búin í skólanum. Ég er nefnilega að fara í próf á mánudag, skilaverkefni á miðvikudag og einnig á föstudag. Svo er próf á mánudag eftir viku og þá er törnin búin í bili.....vonandi. En þetta eru verkefni og próf sem öll gilda 5-10% af lokaeinkunn. Jibbíkóla.

Ég fékk Andrés í fyrradag og ennþá ekki búinn að lesa hann þannig að Andrésarhornið verður örugglega á mánudag. Maður getur örugglega lesið einn Drésa með lærdóminum.

Svo vil ég óska Pétri Óla Einarssyni og Eydísi til hamingju með strákinn!
Happy Family!


Pæling dagsins: "Ef ég fengi eina ósk og óskaði mér að allt sem ég óska mér það sem ég á eftirlifað rætist ætti það þá ekki að ganga eftir?"

1-10 dagsins: Greek = éna - dhío - tría - téssera - pénde - éksi - eftá - oxtó - ennéa - dhéka

Kvikmyndagetraun dagsins: "Svo sá ég líka hina myndina!" Þetta verða menn að geta uss og svei ef þið standið á gati.
Senda svar!


Sigurgeir 3:50:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, september 26, 2002

Sigurvegari dagsins er Snorri Örn Arnaldsson og svarið var auðvitað "Wayne's World".

Blogg í dag fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum. Ég mun ekki senda bloggtilkynningu heldur í dag. Sorry krakkar!

Pæling dagsins: "Er hamingjan fólgin í fjármunum?"

1-10 dagsins: Classical Greek = hei:s - dúo: - trei:s - téttares - pénte - héx - heptá - októ: - ennéa - déka

Kvikmyndagetraun dagsins: "Salomon Gustavsson"
Senda svar!


Sigurgeir 11:48:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, september 25, 2002

Sigurvegari dagsins er Signý Björg Sigurjónsdóttir og svarið var auðvitað "Remember the Titans".

Denni er eins og hin versta vargatítla. Hann heldur greinilega að persónuárás hans sannfæri fólk um að Fram muni vinna um helgina. Það veit hvert heilvita barn að Fylkir er miklu betra lið og hefðin hefur ekki hjálpað Fram undanfarin ár nema hefðin að falla ekki sem vissulega hefur verið þeirra megin. Fylkir vann bikarinn í fyrra og vinnur hann aftur í ár og þá er það orðin hefð....einhvern veginn byrja hefðir og þá falla aðrar í gleymsku. Hversu margir í Framliðinu í dag þekkja tilfinninguna að vinna titil með meistaraflokki? Jamm pabbi minn er stærri og sterkari en pabbi þinn úff og úff úff ég var ekki var við þau rök hjá mér enda sótti ég heimildir á heimasíðu KSÍ og var mjög málefnalegur í tilsvörum. Þau rök hafa greinilega verið mjög góð því Denni sér enga leið út úr klípunni sem hann er í aðra en þá að segja að ég sé smákrakki. Þetta þekkir maður úr pólitíkinni þar sem menn vilja láta kjósa sig vegna þess að hinn gerði þetta og þetta bla bla bla. Ég meina hvernig væri að benda á verðleika eigins liðs og þá er ég ekki að meina karlana á elliheimilinu sem lyftu síðasta bikar heldur börnin sem eru að spila með liðinu í dag? Fylkismenn spila af stakri snilld í bikarkeppnum og eiga eftir að vinna þennan leik 4-1 í mjög fjörugum leik. Rómverjar eru víst til en ég verð að viðurkenna að ég er ekki viss með Spartverja en málið var að stórveldi koma og fara og Fram er farið og Fylkir komið! Hvað er Denni að draga pabba minn í þetta mál???? Á ég að biðja hann um að snyrta þig elskan svo þú farir ekki að líta út eins og George Michael þegar hann var í Wham.....þarna í Wake me up before you go go myndbandinu jukk! Denni Denni Denni hvað ertu að reykja þarna í Grafarvogi eða holti eða hvar sem þú býrð núna? Haltu bara með Fjölni þeir eru álíka líklegir til að vinna titla í fússaranum og eru gulir, það er auðveldara að sjá þá fyrir gamla karla sem lifa í fortíðinni.

Afsakið lesendur góðir en þessir pistlar um Denna og leikinn um helgina verða bara út þessa viku, svo finn ég eitthvað annað til að skemmta mér yfir. Mér svíður samt sárast að Denni geti ekki linkað á Signýju ástina mína þar sem hann er alltaf að reyna við hana á blogginu sínu.

Kalli hringdi í mig í gær!!!! Hann baðst formlega afsökunar á leti sinni í blogginu og þakkaði mér fyrir að senda hann ekki niður um flokk. Það vill enginn vera í flokknum latir bloggarar ha SNORRI! Hann var að rembast við að setja upp netþjón og mundi að ég var að fikta við það fyrir nokkrum mánuðum. Ég komst aldrei langt með það því alltaf kom eitthvað uppá sem þurfti að gera fyrst og bla bla bla og ég er með þetta í biðstöðu núna. En ég gat samt veitt honum einhverjar upplýsingar eins og t.d. að hringja í ANDRÉS!!! En þetta var kúl og gaman að heyra í gömlum félaga og minna hann á að "Drekinn frá OZ" er skrásett vörumerki.

Bjarki er ágætur strákur en bloggar of sjaldan. Hann ætti að drekka oftar og fara á djammið og hözzla og segja frá því. Það þýðir ekkert að vera alltaf að leika sér í Playstation 2. Hann mætti vera með 80's getraun sem ég get eins og Kiss um daginn. Ég hef ekki hugmynd um hvað hann er að tala í þessum getraunum hjá honum. Enda eru þær ekki eins vandaðar og kvikmyndagetraunin mín :-Þ

Raggaló er eitthvað að gefa eftir í blogginu en kemur með góða spretti inn á milli. Herða sig stelpa, drekka meira!

Hvað get ég sagt um Sunnu annað en að hún er snillingur og er dugleg að blogga og drepfyndin sbr. stupid pistillinn hennar um daginn.

Stálfélagið er alltaf duglegt að blogga þrátt fyrir ofsóknir og persónuárásir. Þær eru alltof klikkaðar og mig grunar að þær éti maka sína t.d. hefur Shaft ekkert sést síðan þær slefuðu yfir honum hérna um árið!

Sko Jovi er borderline case, mig grunar að hann sé alvörunni geðveikur. Hann virkar voða normal en svo er hann sjúklega klikkaður á milli en samt heldur sig við að vera skemmtilega ruglaður en maður er skíthræddur við hann því hann er svo klikkaður en samt ekki.....hann eiginlega gerir aðra klikkaða því maður veit ekki hvað maður á að segja. En bloggið hans er eitthvað að floppa núna, hann má fara að vara sig að fara ekki latir bloggarar flokkinn en hann hangir uppi vegna þess að hann er að telja niður í 1. afmæli Salnýjar Kaju.

Ég náði Bergþóri úti á götu um daginn og skammaði hann fyrir að ræna mann textabrotum en hann hefur auðgað daginn hjá manni með þeim en er nú bara hættur og er í þvílíkri fallhættu. Skammastín Bergþór!

Don Andri er sama case og Jovi alveg að gera útaf við mann. Ég veit að gaurinn er bilaður en hann er með mest normal síðu sem ég hef séð og það hræðir mig rosalega mikið. Á alltaf von á einhverjum svæsnum fylleríssögum hjá honum en þá kemur bókagagnrýni hjá honum....sjitt hvað hann er bilaður!

Bippi er alveg að falla um flokk enda Bloggið hans offline í tíma og ótíma. Hann kann karate og ég segi ekki meira um hann.

Tala ekki um fleiri í dag þeir eru ýmist latir eða hafa fengið aðra umfjöllun hér fyrir ofan. Ef einhver er sár út af þessu þá meinti ég þetta ekki, en annars er þetta allt satt.

Pæling dagsins: "Blogg er töff, right?"

1-10 dagsins: Mycenean Greek = e-me (*hemei) - du-wo (*dwo) - ti-ri- (*tri-) - qe-to-ro (*quetro-) - - we- (*wex-) - - - e-ne-wo (*ennewo-) -

Kvikmyndagetraun dagsins: "AAHHH! TURN IT OFF MAN, TURN IT OFF! IT'S SUCKING MY WILL TO LIVE! OH THE HUMANITY!"
Senda svar!


Sigurgeir 12:36:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, september 24, 2002

Aukablogg:

Retro er upp á rasshöndina og skammast sín ekkert fyrir það.

Jess mér tókst að æsa Denna upp í smá riflildi sem stendur fram að bikarúrslitaleiknum jibbí.

Denni segir að Fylkir sé silfurlið en ekki gulllið (Jonni ertu með þetta orð í safninu?) og segir að Fram hafi unnið og unnið og unnið og ég veit ekki hvað. Jamm KR-ingar lifðu á fornri frægði í 31 ár ef ég man rétt og svo unnu þeir loksins eitthvað og hafa síðan þá unnið nokkrum sinnum. Ég vona að Fram ætli ekki að vinna um helgina á fornri frægð!!! Ég meina er einhver hræddur við Rómverja í dag? Eða Spartverja? Það er einn leikur um helgina og það er ekki keppni í sögu eða hver á flottasta eða flesta bikara. Það er leikur upp á hvort liðið skorar fleiri mörk og það verður auðvitað Fylkir. Frammarar spila með hjartanu en Fylkir með veskinu segir Denni og ég svara því bara HA HA HA HA fótboltamenn eru allir fégráðugir hommar og þetta skot eins og versta prump. Hann Denni segir að ég sé barnalegur og það er allt í lagi hann er líka miklu eldri en ég. Kókdósirnar sem stuðningsmenn Fylkis gáfu KR-ingum voru náttúrulega bara styrkur til að þeir gætu borgað laun og bara lofsvert hjá góðu fólki. Heimasíðudæmið var fast og gott skot hjá Denna og ég verð að játa mig sigraðan þar enda hef ég lengi rifist yfir þeirri ömurlegu síðu. Þar má bæta margt en ég hef aldrei séð heimasíðu skora mark þannig að ég óttast ekki það skot hans Denna.

lau. 15. jún. 2002 - 14:00 Keflavík U23 - Fram Keflavíkurvöllur 0-2 , 0-0, 0-2
Fram drullast áfram á móti krökkum.
þri. 02. júl. 2002 - 19:15 KR - Fram KR-völlur 0-1 , 0-0, 0-1
KR ekki komið í gang og Fram kemst áfram á heppni.
mán. 22. júl. 2002 - 20:00 Fram - Keflavík Laugardalsvöllur 3-1 , 2-0, 1-1
Ágætur sigur á falliði jibbí!
66 þri. 10. sep. 2002 - 19:30 ÍBV - Fram Laugardalsvöllur 1-2 , 0-0, 1-2
Rétt grísuðu þennan leik.

Sést hversu auðvelt þetta var hjá Fram á leið í úrslitin.

fös. 14. jún. 2002 - 20:00 Haukar - Fylkir Ásvellir 1-2 , 1-1, 0-1
Fylkir með menn meidda og ná sigri eftir hörku baráttu Haukamann sem eru mjög öflugt lið
mið. 03. júl. 2002 - 19:15 Fylkir - FH Fylkisvöllur 4-1 , 1-1, 3-0
Bursta aumingjana í Hafnarfirði
sun. 21. júl. 2002 - 19:15 Fylkir - ÍA Fylkisvöllur 4-1 , 2-1, 2-0
ÍA tekið í görnina og það ósmurt!
mið. 11. sep. 2002 - 19:30 KA - Fylkir Laugardalsvöllur 2-3 , 0-3, 2-0
KA tekið í nefið og svo bara lagst til svefns í seinni hálfleik því þetta var búið.

Sést hvað þetta var miklu erfiðari leið hjá Fylki en þeir fara samt létt með alla sína andstæðinga.


Sigurgeir 4:07:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er Signý Björg Sigurjónsdóttir og svarið var auðvitað "The Hurricane".

Nú er allt blogg á blogspot niðri og ég get ekki séð orð dagsins hjá Denna, ég verð þá bara að nota það á morgun ásamt orði morgundagsins.

Rigning rigning rigning hvurslags er þetta eiginlega????? Á maður að vera holdvotur í dag? Ég er að þráast við að fara í lokuðu skóna mína því opnu skórnir mínir eru svo þægilegir. Svo kemur þessi rigning og ég fór út til að fá mér að éta í hádeginu (já Denni ég veit, dýr éta, menn eta eða borða). Nú eru sokkarnir mínir bara blautir takk fyrir. Uss og svei. Æi ég er samt ekki í skapi til að röfla yfir rigningunni því hún er ekki svo slæm. Verst er helvítis rok og rigning og skítakuldi í bland það þoli ég ekki. Smá væta eins og núna og hlýindi er bara rómó eða eitthvað. Mjög róandi og loftið eitthvað svo ferskt.

Minnstu munaði að ég væri tekinn af löggunni í morgun en ég var að bruna í vinnuna og þá sá ég blá ljós fyrir aftan mig en löggan tók einhvern annan "hehehehe sucker!" nei maður á að vorkenna fólki sem er tekið af löggunni "ahhhh við karlinn sem var tekinn í staðinn fyrir mig". Annars var ég að keyra á umferðarhraðan en umferðin var að fara aðeins hraðar en hámarkshraði þannig að maður skilur ekki hvernig þeir geta pikkað einn úr og refsað honum fyrir alla.

Jæja vinnan kallar en ekki óbygðirnar!

Pæling dagsins: "Ef tímaferðalög eru möguleg, er þá ekki mögulegt að Ésú sé útvarpsmaður á árinu 3025?"

1-10 dagsins: Manx = nane - jees - tree - kiore - queig - shey - shiaght - hoght - nuy - jeih

Kvikmyndagetraun dagsins: "I just gave your mother a piggy back ride and she weighs twice as much as I do!" Þessi er svolítið erfið og sennilega ekki alveg orðrétt. Þetta var samt sæmilega fyndið atriði í annars slappri hollywood formúlumynd.
Senda svar!


Sigurgeir 2:09:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, september 23, 2002

Sigurvegari dagsins er Pétur Óli Einarsson og svarið var auðvitað "The Goonies".

Það ganga sögur hér í vinnunni að einn gaurinn sé vendvær og maður verði bara að taka því. Ég ætla ekki að fara að baktala vinnufélaga opinberlega en ég held þó að þessi orðrómur sé sannur.

Mánudagar eru alls ekki svo slæmir, ég kom ekki miklu í verk um helgina enda gott að chilla um helgar. Sumarbústaðurinn er kominn með heitt vatn og allt að verða grúví þar. Salný Kaja er algjör prinsessa og leyfir manni ekki að sofa út um helgar og ég þurfti að vakna fyrir níu í gærmorgun en það er rosalega slæmt. En maður sest þá bara niður og les blöðin og nýtir daginn í enn meira chill. Birna Júlía frænka mín er búin að vera veik og er búin að gera mömmu sína (systur mína) alveg tjúllaða, hún Birna er nefnilega með svolítið skap. Þetta segir manni að maður á von á einhverju hjá Salnýju Kaju en hún hefur trompast nokkrum sinnum á þessum 3 mánuðum og einhverjum dögum sem hún hefur verið í okkar lífi.

Ég vil óska Denna til hamingju með ekki-fallið og öllum Frömmurum. Ég er hins vegar alveg brjál út í mína menn sem skitu á sig. Reyndar finnst mér Kristján Finnbogason vera maður mótsins því hann reddaði titlinum til KR að mínu mati. Ég er ennþá sár yfir því broti og áskil mér rétt til að líka ekki við þann mann, dómarann í leiknum og alla KR-inga þar til Fylkir vinnur sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Bikarleikurinn verður stuð um næstu helgi og spurning um að fara með Denna á leikinn og vera einn appelsínugulur í bláum hópi manna, því ekki fer Denni að sitja með mínum mönnum :-D

Jæja, ég held að þetta sé ágætt í bili. Fólk má alveg svara kvikmyndagetrauninni og koma með hugmyndir um nýtt efni í leiðinni. Ég verð svo að taka mig á og hætta þessari jákvæðni og koma með öflugt nöldur í þessi blogg mín. Held að fólki finnist þau skemmtilegust. Kannski væri sniðugt að koma af stað einhverju riflildi...t.d. við Denna, hann hefur alltaf gaman af svoleiðis löguðu. T.d. ef ég segi að Fram eigi eftir að kúka á sig um helgina.....hvernig ætli hann svari því. Jamm þetta verður gott lesefni út þessa viku, hvaða skít ég hendi í Denna og hann í Fylki. Alltaf húmor í því. Svo get ég rifist í Bjarka og sagt að hann sé kélling að þora ekki að bjóða ákveðinni gellu á deit. Svo getur maður sagt að Kalli sé ekkert fyndinn og hann reynt að svara því á hnyttinn hátt. Nú og Jovi er handónýtur í blogginu og Bergþór líka. Benni er með lítinn olnboga (local húmor múhahahaha). Svona nú eru nokkrir orðnir fúlir og þá er stuð hehehehe!

Pæling dagsins: "Hvaða bíó er besta do do bíóið?"

1-10 dagsins: Scots Gaelic = aon - dà - trì - ceithir - cóig - sia - seachd - ochd - naoi - deich

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm fifty years old!" Vísbending, mjög sorgleg saga. Ágæt mynd.
Senda svar!


Sigurgeir 2:00:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, september 20, 2002

Aukablogg: Ésús mar ég nærri gleymdi Andrésarhorninu mínu. Ég las Andrés Önd í gær og þar sá ég að börnum var kennt að blóð er þykkara en vatn. Andrés græðir hellings pening en fattar það ekki og gefur ungunum þá. Þeir fara að sjálfsögðu með peninginn í Grænjaxlana frekar en að láta Andrés fá þá aftur eftir að í ljós kemur hversu mikils virði þeir eru. Þeir voru sko úgglenskir. Gott að ungar viti vel að matur og önnur útgjöld eru ekki eitthvað sem skiptir máli. En þetta er ekki aðalatriðið, ég vildi benda á að uppáhaldsteiknarinn minn er með sögu í nýjasta blaðinu....ég veit ekki hvað hann heitir eða hvort þeir eru margir en það er ákveðinn stíll yfir sögunum. Allar persónur eru teiknaðar grófar og ekki ávalar eins og venjulega. Aðal skemmtunin er samt alltaf í bakgrunninum. Það var t.d. ein mynd þar sem Jóakim og Theodore bandaríkjaforseti voru að labba frá gufuknúinni skurðgröfu og Teddi segist hafa falið hana með því að leggja henni bak við tré....tréið er hins vegar aumingjalegt pálmatré og hylur gröfuna engan veginn. Ég sprakk úr hlátri yfir þessari mynd og sá að það var api í tréinu og hann var með svona talblöðru með upphrópunarmerki í. Ég sá þá að eitthvað yrði skemmtilegt við þennan apa. Seinna í sögunni byrjar hann að grýta kókoshnetum í panamíska hermenn og bjargar þannig Tedda og Jóakim en þetta er samt í bakgrunninum. Svo mokar Jóakim hermönnunum upp á fjall og þá sést apinn vera að reyna að grýta kókoshnetu í þá þarna lengst uppi en hann drífur ekki og er ekki sáttur. Skemmtileg viðbót við góða sögu. Endilega kíkið á blaðið.


Sigurgeir 4:16:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegari dagsins er Pétur Óli Einarsson og svarið var auðvitað "Die Hard".

Sætar stelpur eru betri en ambindryllur.

Föstudagur í dag og óþarfi að vera með eitthvað rugl. Ætla bara setja hér brandara sem Sunna sendi mér og einn sem Denni sendi mér

Æi það er svo tsjíp að vera með stutt blogg þannig að ég ætla að bulla smávegis. Krakkar ég hvet ykkur til að drekka vel í kvöld. Það er komið haust og tími til kominn að finna einhvern til að liggja í bólinu með manni. Það er svo kalt á veturna og betra að hafa einhvern til að hlýja sér upp við. Já svona er lífið og svona er tilveran....er þetta orðið langt blogg....nei það er samt ekki stutt maður gæti sagt að það sé mitt á milli en sá texti sem fer í að útskýra það nánar gerir þetta að löngu bloggi. Maður er bara að segja eitthvað til að vera með skiljiði. Já þú þarna aftast, sem réttir upp höndina...varstu með spurningu?.....já þú mátt fara á klósettið. Well þetta er nóg í dag ég er bara ekki með neitt að segja sem er rosalega fyndið því venjulega hef ég eitthvað að segja en bara eitthvað stopp hjá mér í dag ég veit ekki hvað það er......búið!

Pæling dagsins: "Betra er að brjóta brauð en blað eða hvað?"

1-10 dagsins: Irish = aon - dó - trí - ceathair - cúig - sé - seacht - ocht - naoi - deich

Kvikmyndagetraun dagsins: "More amazing than the time Michael Jackson come over to your house to use the bathroom?"
Senda svar!


Sigurgeir 3:33:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, september 19, 2002

Sigurvegari dagsins er Sigurður Ingi Ævarsson og svarið var auðvitað "Dumb and Dumber".

Það verður eitthvað um gnadd í dag hjá mér. Ég er ekki sáttur við að Kalli skuli bara setja inn svakalegustu ferðasögu í heimi og ekki segja neitt fyndið svo mánuðum skiptir. Hann er bara heillum horfinn drengurinn. Ég veit að hann getur gert betur. Svo plataði Snorri mig til að taka sig af letingjalistanum og er svo aftur hættur að blogga. Þetta gengur ekki. En ég er í góðu skapi. Ég ætla að segja frá gærkvöldinu.

Ég fékk leyfi til að fara á æfingu með 1. flokki í Breiðabliki og það voru 15 manns á æfingu. Það stefnir i metþáttöku í vetur. Þarna voru nokkrir gamlir refir og það gleður mig mikið. Strákarnir tóku vel á móti mér og svo var byrjað að spila og menn tóku mikið á og rifust og skömmuðust og þetta var hin mesta skemmtan. Ég hlakka til að mæta á mánudag og vona að Ísak mæti líka :-)

Signý er að gera verkefni þessa dagana og Salný Kaja hefur eitthvað verið að trufla hana og ég alltaf á æfingum uss og svei ég er ekki að standa mig. Nú í kvöld ætla ég að fara með dóttur mína á flakk svo Signý geti lært og kem bara heim með hana í áfyllingu þegar þess þarf. Þannig að vinir mínir geta átt von á óvæntri heimsókn í kvöld.

Ég hef verið að pæla svolítið í því þegar kennarinn minn sagði í tíma að endurkvæmni væri voðalega erfitt að útskýra því það væri ekki til í raunveruleikanum eða engin myndlíking nógu góð. Mér datt ein rosalega góðu í hug í gær en fattaði svo að hún væri ekki til í raun og veru. Þarna held ég að heimspekin hjálpi mér mikið í forritun því ég er þjálfaður í að hugsa svolítið út fyrir rammann. Myndlíkingin sem mér datt í hug er þannig að maður kemur að herbergi sem er í laginu eins og ferningur. Inn í þetta herbergi eru einar dyr. Ef þú labbar inn um þær dyr sérðu annað slíkt herbergi og það er líka með einar dyr. Ef þú labbar inn um þær dyr getur þú ekki labbað út um fyrstu dyrnar án þess að labba aftur út um dyrnar sem þú labbaðir inn um síðast. Í hvert sinn sem þú labbar inn um dyr þá sérðu alltaf alveg eins herbergi með einum dyrum. O.k. nú eru flestir búnir að tapa þræðinum. En nú kemur það sem gerir útslagið, dyrnar sem þú sérð í hvert skipti sem þú labbar inn um einar dyr eru í raun sömu dyrnar og þú ert að labba inn um og herbergið inni í hverju herbergi fyrir sig er jafn stórt og það sem þú varst að labba inn um og er í raun sama herbergið. Þarna fórum við út fyrir mögulegan raunveruleika. Þetta er semsagt sára einfalt. Endurkvæmt fall er fall sem kallar á sjálft sig X mörgum sinnum og þarf að fara út um jafn margar dyr og það fer í gegnum tíhíhíhí.

Pæling dagsins: "Ef ég segist vera lygari. Er ég þá að segja satt eða ljúga? Pælið í þessu, þetta er ekki svo einfalt :-)"

1-10 dagsins: Old Irish = oín - dal - tri - cethir - cóic - sé - sechtn - ochtn - noín - deichn

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hey, we're flexible. Pearl Harbor didn't work out so we got you with tape decks."
Senda svar!


Sigurgeir 3:57:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, september 18, 2002

Sigurvegari dagsins er Signý Björg Sigurjónsdóttir og svarið var auðvitað "Cool Runnings".

Brikk er ekki fallegt að segja um konur.

Nýjustu fréttir herma að Sigurgeir hafi tekið skynsama ákvörðun! Já loksins loksins!!!!! Sigurgeir hefur ákveðið að 5 æfingar í viku plús leikir ofl. séu of mikið fyrir mann í fullri vinnu, háskólanámi og með 3ja mánaða barn. Sigurgeir verður því með 1. flokki Breiðabliks í vetur og stefnir á að verða bestur þar að sjálfsögðu. Svo sér maður til næsta tímabil hvort maður verði ekki að leggja úrvalsdeildina undir sig. Óstaðfestar fregnir herma að Jason Harden sé á leiðinni í Þór Þorlákshöfn en það ætti að koma í ljós í næstu vikul.

Nú er skóli hjá mér í dag en ég er svo þreyttur að strax eftir skólann ætla ég að borða og svo bara beint í háttinn ahhhhhhhhh mig dagdreymir um næturdrauma mmmmmm.

Pæling dagsins: "Er eitthvað skemmtilegra en leikfangabanani?"

1-10 dagsins: Devonian = un - deu - tri - peduar - pemp - hueh - seith - eith - nau - dek

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'll bet you twenty dollars I can get you gambling before the day is out!"
Senda svar!


Sigurgeir 11:07:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, september 17, 2002

Sigurvegari dagsins er Snorri Örn Arnaldsson og svarið var auðvitað "Spaceballs". Nú er Snorri kominn með 10 stiga forystu í deildinni og tími til kominn fyrir menn að slá honum við áður en hann stingur alveg af.

Ég get ekki setið á mér lengur. Ég var að vonast til þess að einhver fjölmiðlana myndu rakka Kristján Finnbogason niður fyrir líkamsárásina í leiknum gegn Fylki en enginn ætlar að gera það. Ég er hræddur um að ef staðan hefði verið 1-0 fyrir KR og Kjartan Sturluson hefði dúndrað einhvern KR-ing niður eins og þarna gerðist þá hefðu fjölmiðlar verið yfirfullir af þessu og sérstaklega ef dómarinn hefði dæmt eins í því tilviki og hann gerði þarna. Mér er sama þó boltinn hafi ekki verið í leik (raunar finndist mér atvikið hefði verið verra ef Kristján hefði vitað að boltinn var ekki í leik) málið er bara það að menn gera ekki svona hvort sem boltinn er nálægt eða ekki. Þjálfara Fylkismanna var vísað úr varamannaskýlinu og ekki var hann að gera neitt nálægt boltanum. Mér finnst að fyrsta markmið dómara sé að vernda leikmenn sem eru að spila, það er þeirra að sjá til þess að leikurinn leysist ekki upp í vitleysu og fólskubrot. Þessi dómgæsla hjá honum segir manni að ef boltinn er ekki í leik þá er í lagi að kýla og sparka menn niður. Ef menn líta á þetta atvik þá þurfa menn að hafa nokkra hluti í huga. 5 mínútur eftir af leiknum og eins og staðan var, þá var KR að missa af Íslandsmeistaratitlinum. Leikmenn og áhorfendur héldu að Fylkir ætti innkastið og leikmaður Fylkis í dauðafæri og markmaður KR stekkur með fæturna á undan sér og keyrir Fylkismanninn niður. Það skal enginn segja mér það að Kristján hafi ekki haft það í huga að ef Fylkir skoraði þá, þá væri deildin búin. Það skal enginn segja mér að Kristján hafi ekki verið að hugsa um það eitt að stöðva Fylkismanninn með öllum tiltækum ráðum. 3 mínútum síðar jafna KR-ingar leikinn og eygja enn möguleika á titlinum. Dómarinn er bleyða og þorði ekki að klára leikinn þarna á staðnum. Ég vona að aganefnd taki þetta fyrir og refsi Kristjáni. Það skiptir svo sem engu máli þó hann fari í bann því hann er meiddur og spilaði þennan leik meiddur. Ég vona að Fylkir vinni á skaganum um næstu helgi og réttlætinu verði fullnægt. Svo skulum við hugsa um að fara með Denna á völlinn og hvetja sitthvort liðið :-)

Roppugoðið mitt fékk sprautu núna áðan. Hún var svakalega duglega enda voru mamma og pabbi þarna til að passa hana á þessari örlagastundu.

Ég fór á æfingu hjá Val í gær og það var ágætt, ég var þvílíkt þreyttur eftir æfinguna og þarf greinilega nokkrar svona æfingar til að komast í form. En þetta verður áhugavert tímabil því ég byrjaði ferilinn hjá Val í drengjaflokki og vann Reykjavíkurmeistaratitil með þeim. Maður mun sakna Breiðabliks en svona er þetta bara í boltanum.

Pæling dagsins: "Pulsa eða pylsa?"

1-10 dagsins: Modern = on - deaw - try - pager - pemp - whee - sith - eath - nawe - deeg

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm feeling very Olympic today."
Senda svar!


Sigurgeir 2:48:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, september 16, 2002

Sigurvegari dagsins er Snorri Örn Arnaldsson og svarið var auðvitað "Bring it on".

Stutt blogg í dag.

Dagur eitt í Notes hjá FMR og fólk er hundfúlt. Ég er feginn því að maður fær ekki afgreiddar skammbyssur ódýr í mötuneytinu hérna uppi. Bæði ég og fólkið hér væri vel vopnað og til í einvígi. Vonandi fer fólk að skilja það að þó ég sé nýr og eigi að sjá um Lotus Notes hjá FMR þá hef ég ekki það vald að biðja framleiðendur Lotus Notes að láta það líta út alveg eins og Outlook Express. Auk þess er ég ekki með það vald að hætta við innleiðingu Lotus Notes. Þetta virðist vefjast fyrir mönnum og segir það kannski meira um það en mig....held ég????!!!!

Ég fer heim á eftir og ætla að passa dóttur mína meðan Signý fer að gera skólaverkefni. Ég mun jaðraka með hana ef hún grætur.

Pæling dagsins: "Hvað ætli verði í fréttum á morgun?"

1-10 dagsins: Common = onan - dew - tri - peswar - pymp - hwegh - seyth - eth - naw - deg

Kvikmyndagetraun dagsins: "I always drink coffee when I watch radar!"
Senda svar!


Sigurgeir 3:48:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, september 13, 2002

Sigurvegari dagsins er Þorsteinn Yngvi Guðmundsson og svarið var auðvitað "Uncle Buck".

Denni er með óþarfa nadd í dag eða það er óþarft að mínu mati. Ég hef nú heyrt þetta nadd áður en það er á þá leið að faðir (eða foreldri) passar ekki barnið sitt heldur er með því. Ég er alls ekki sammála þessu. Ég segi oft við fólk, ef barnið er að gera eitthvað sem er mér ekki að skapi eða er hættulegt: "Viltu passa barnið þitt!". Það fer greinilega í taugarnar á sumum að ég noti þetta orð (sögnin að passa) en fyrst þetta er svona hitamál hjá mörgum ætla ég að segja mína hlið á málinu. Ef foreldri má ekki passa barnið sitt í nútímaþjóðfélagi, þá skil ég alveg hvers vegna börn eru aftur og aftur full niðri í bæ allt niður í 13 ára ef ekki yngra. Foreldrar passa nefnilega ekki börnin sín. Hjá mér þýðir orðið að passa ekki "það að koma börnunum í umsjón og ábyrgð annara til að fá frí frá þeim, hvort sem um er að ræða stuttan eða langan tíma". Hjá mér þýðir sögnin "að passa" það að vernda, hugsa um eða gæta. Barnið mitt er ennþá óviti og ósjálfbjarga enda nýorðin 3ja mánaða. Ég þarf því að passa að hún drukkni ekki í sinni eigin ælu, að hún kafni ekki í sænginni sinni og að hún fái næringu ofl. Hún er algjörlega háð mér og ég er því að gæta hennar, hugsa um hana og vernda hana. Ég er að passa hana. Sögnin að passa hefur enga tengingu hjá mér við skyldleika eða aldur. Ég gæti því passað afa minn. Ég er sammála Denna um að mæður hafi ekki forgang sem uppalendur og feður séu ekki áhorfendur eða utanaðkomandi, en ég mig ekki vera að gefa slíkt í skyn með því að segjast vera að passa dóttur mína. Signý er t.d. núna heima að passa dóttur okkar. Ég lít á mig sem fullan jafningja Signýjar sem fyrirmynd og uppalanda dóttur minnar og gef mig ekkert í rökræðum um það.

Pæling dagsins: "Mér er boðið í tvö innflutningspartý annaðkvöld. Hvernig reddar maður því?"

1-10 dagsins: Unified Cornish = un - deu - try - peswar - pymp - whegh - seyth - eath - naw - dek

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm sexy! / I'm cute! / I'm popular to boot! / I'm bitchin'! / Great hair! / The boys all love to stare! / I'm wanted! / I'm hot! / I'm everything you're not! / I'm pretty! / I'm cool! / I dominate the school! / Who are we! / Just guess! / Guys wanna touch my chest!"
Senda svar!


Sigurgeir 12:13:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, september 12, 2002

Sigurvegari dagsins er Signý Björg Sigurjónsdóttir og svarið var auðvitað "51st state".

Ég var að passa í gær meðan Signý skellti sér í bíó. Ég verð að segja það að ég var ýkt duglegur. Salný svaf nánast ekki neitt og grenjaði og grenjaði meiri hlutan af tímanum. En ég sýndi það og sannaði að ég get passað dóttur mína einn og óstuddur ef svo ber undir. Takk fyrir takk takk þið megið hætta að klappa.

Svo er það skólinn, sjitt hvað fögin byrja illa, einn kennarinn minn er ekki að ráða við beyglurnar í tímanum. Þessar sem skilja ekki neitt og vilja fara aftur og aftur yfir eitthvað sem við áttum að lesa fyrir 3 vikum. Þetta þýðir að restin af bekknum verður hundfúll og enginn fær gott í prófunum. Gaurinn verður bara að hætta að láta vaða yfir sig. En þetta er grúví og ég skil þetta enn sem komið er.

Fylkir getur unnið tvöfalt í boltanum. Það eru alltaf gleðifréttir að Fylkismönnum gangi vel.

Svo er spurning hvort Lúlli Laukur eigi kærustu sem heitir Unnur Unjan?

Pæling dagsins: "Hvenær er tímabært að detta í það eftir að maður verður faðir?"

1-10 dagsins: Vannetais = unan - deu - tri - pear - pemp - huéh - seih - eih - naù - dek

Kvikmyndagetraun dagsins: "But I know a good kid when I see one. Because they're all good kids until dried-out braindead scags like you drag them down and convince them they're no good. You so much as scowl at my niece or any other kid in this school and I hear about it, I'm comin' lookin' for you. Take this quarter, go downtown, and have a rat knaw that thing off your face. Good day to you madam"
Senda svar!


Sigurgeir 4:42:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, september 10, 2002

Sigurvegari dagsins er Signý Björg Sigurjónsdóttir og svarið var auðvitað "Goldmember".

Eitt ár frá WTC og Pentagon árásunum. Í virðingaskyni við hina látnu ætla ég að hafa eina auða línu.



Nú og svo er Salný Kaja 3 mánaða í dag. Gott hjá henni! Hún er orðin svakalega stór og sæt stelpa jibbí!

Ég fékk blóðnasir í gær bara upp úr þurru og þær ætluðu aldrei að stoppa. Ég áætla að ég hafi misst 33 cl af blóði í gær. Það fossaði úr nefinu mínu og það blæddi svo ofarlega að ég gat ekki komið þrýstingi á sárið. Signý hjúkraði mér og kom með klaka til að kæla nebbann á mér og bjargaði mér frá því að blæða út. Þetta hefur gerst einu sinni áður fyrir mig.....ætli þetta tengist dofanum í hægra eyranu mínu????

Jæja vikan hálfnuð og brjálaða tímabilið í vinnunni minni er að ljúka. Nú fer maður í næstu viku að vinna upp, djók og klámskammt síðastliðinna tveggja vikna.

Ég var farinn að hafa áhyggjur af Denna og var tilbúinn að segja frá leik hans manna en þarf þess ekki en það gleður mig að hans menn og mínir menn munu spila til úrslita í bikarnum. Fylkir vinnur auðvitað í kvöld. Mennirnir hans Denna eru engir skaular enda held ég alltaf með þeim þegar Fylkir er ekki í sömu deild og þeir.

Pæling dagsins: "Verð ég með sixpack um jólin?"

1-10 dagsins: Breton = unan - daou - tri - pewar - pemp - c'hwec'h - seizh - eizh - nav - dek

Kvikmyndagetraun dagsins: "Usually the people who get blown up have the curtesy to stay blown up" Er ekki viss hvort þetta sé alveg rétt hjá mér en það var einhvern veginn svona. Snilldarmynd samt.
Senda svar!


Sigurgeir 1:39:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, september 09, 2002

Sigurvegari dagsins er Snorri Örn Arnaldsson og svarið var auðvitað "Real Genious".

Júgóslavar eru heimsmeistarar í körfubolta. Ég var að lesa grein á visi.is áðan en henni hafði verið stolið orðrétt frá mér af sportinu. Hér er önnur eftir mig visir og sportið. Ég nenni ekki að leita að fleirum. En hvað segir Denni, eiga þeir ekki að gefa upp heimildina eða á ég að rukka þá um laun? Denni er ekki búinn að blogga í dag og ég vona að hann sé ekki í fýlu út í mig....en ef svo er þá biðst ég afsökunar á að hafa rangtúlkað vin minn svona rosalega.

Ég er kominn með raðgreiðslueyðublöðin. Þannig að nú geta menn bara komið til mín í vinnuna FMR borgartúni 21 og gengið frá kaupunum á æfingakortunum.

Hrafnhildur frænka í djúpu lauginni lenti á deiti með Benna, gömlum kunningja úr árbænum. Strákurinn er náttúrulega snillingur en sennilega ekki nógu góður fyrir frænku mína. Hann er svolítil karlremba og í tónlist og við vitum öll að tónlistarfólk er bilað :-) hehehehe

Paintball á 1990 kr. er einhver til í vikunni?

Ingibjörg Sólrún í alþingiskosningar???? Afhverju eru allir að röfla um þetta, annað hvort fer hún eða ekki og hún getur alveg ákveðið það. Það skiptir engu hvað hún sagði, heldur fólk að það sé eitthvað að marka það sem stjórnmálamaður lofar? Hún varð að segjast ætla að vera í borginni til að halda henni....hvað átti hún að gera????? Jamm mér er skítsama en vildi koma þessu á framfæri.

Helgin var góð og það er aðalatriðið. Salný Kaja leyfir mér aldrei að sofa út en hún er samt algjör dúlla og pabbi er ýkt stoltur af henni. Signý og ég vorum ýkt dugleg og tókum til en þetta er vikuverkefni hjá okkur og er alls ekki lokið. Við þrifum sameignina á mettíma og það er frá. En nágranninn minn er að gera mig geðveikan, Salný getur ekki sofið í þessum helvítis látum í honum og það gengur ekki, við þurftum að flýja heimilið svo hún gæti sofið. Hún er vön að sofa í hávaða og maður þarf ekkert að læðast í kringum hana en hamarshögg, borvélar og slípirokkar eru ekki á óskalistanum þegar hún ætlar að sofa.....reyndar ekki hjá neinum. Ég ætla að safna fólki í paintball, fara með græjurnar og banka uppá hjá gaurnum og skjóta hann í spað. Hver er til í tuskið?

Pæling dagsins: "Eru Ingibjörg Sólrún og Ólafur Ragnar með sama endaþarmssjúkdóminn sem veldur annars vegar því að fólk talar í gegnum tennurnar og hins vegar að fólk pírir augun mikið?"

1-10 dagsins: Cardiganshire = în - tô - târ - câr - cw^i - sich - soch - nîch - noch - dê

Kvikmyndagetraun dagsins: "Oh for goodness sakes, get down off that crucifix, someone needs the wood!"
Senda svar!


Sigurgeir 1:52:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, september 06, 2002

Sigurvegari dagsins er Snorri Örn Arnaldsson og svarið var auðvitað "The Blues Brothers".

Gaupi hunsaði HM í körfu í morgunsjónvarpinu. Hann er fífl og spurning hvort vinur minn Denni geti auglýst körfuboltann upp svo að hann fái þann tíma sem hann á skilið í sjónvarpi. Ég sá að Bandaríska landsliðið í körfu féll út á HM í fyrsta skipti í háa herrans tíð. Töpuðu í fyrsta skipti í 58 leikjum minnir mig og ekki nóg með það heldur töpuðu tveimur leikjum í röð og í fyrsta skipti síðan NBA leikmenn máttu vera með. Þetta þótti ekki merkilegra en að einhver þjóðverji vilji kaupa sýningarréttinn á HM í fótbolta og Ragnar handboltamaður er með slitin krossbönd ennþá eftir 3 daga. Gaupi er fífl og veit ekki að körfubolti er stundaður af miklu fleiri en þeim sem stunda handbolta.

Ég er feitur og ekki lengur í mfl. Breiðabliks. Það sagði þjálfarinn við mig í gær...reyndar orðaði hann það aðeins fallegar en whatever, ég er semsagt að leita mér að liði til að sprikkla með í vetur. Anyone? Drekinn frá OZ (registered trademark) er líka Drekinn frá Breiðablik.

Ég er kominn með raðgreiðslueyðublöðin. Þannig að nú geta menn bara komið til mín í vinnuna FMR borgartúni 21 og gengið frá kaupunum á æfingakortunum.

Hrafnhildur frænka í djúpu lauginni í kvöld. Hún er enginn slefudaði og því verður stuð múhahahahaha!

Paintball á 1990 kr. er einhver til um helgina?

Pæling dagsins: "Warcraft III er fyrir töffara. Satt eða logið?"

1-10 dagsins: Welsh = un - dau - tri - pedwar - pump - chwech - saith - wyth - naw - deg

Kvikmyndagetraun dagsins: Samtal úr mynd og nöfnum hefur verið breytt til að vernda hina saklausu.
"Mrs. Johnson: Dr. Fredrick, I saw your show the other night on radioactive isotopes and I've got a question for you.
Dr. Fredrick: Yes?
Mrs. Johnson: Is that your real hair?"
Senda svar!


Sigurgeir 1:30:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, september 05, 2002

Sigurvegari dagsins er Pétur Óli Einarsson og svarið var auðvitað "Dude, where´s my car".

Jamm það er svakaleg deild að byrja núna og um að gera að giska á allar kvikmyndaspurningar sem ég hendi hér fram á bloggið! Það er mikið talað um klíkuskap og að þetta sé skandall að Signý nái alltaf að vinna og að hún sofi hjá til að komast á toppinn. Ég segi bara "I have no comment except one....I AM A MAN!!!!!"

notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes notes það er verið að setja upp Notes í FMR og ég er að sjá um það. Ég er búinn að heyra 345.567.456.243.456 sinnum að einhver þekki einhvern sem hatar Notes og það er eins gott vegna þess að annars vissi ég ekki að einhver þekkti einhvern sem hatar notes. Kannski Denni vinur minn geti útbúið fréttatilkynningu fyrir mig og jafnvel auglýsingaherferð í sjónvarpinu sem gengur út að það að einhver þekkir einhvern sem hatar notes. Denni er engin hunka þó hann væni mig um mútuþægni!

Ég skil recursive takk fyrir og það er helst að frétta af skólanum hjá mér.

Pæling dagsins: "Er bannað að gera grín að fólki sem kann ekki á tölvur?"

1-10 dagsins: Gaulish = *ônos - *duô - treis - petor - *pempe - suex - sextan - *oxtû - *navan - decam

Kvikmyndagetraun dagsins: "I hate Illinois Nazis".
Senda svar!


Sigurgeir 5:13:00 PM | 0 comments links to this post |
Aukablogg: Jamm leyndarmálið er það að kvikmyndadeildin endaði með getrauninni síðasta föstudag. Þetta þýðir að Signý Björg Sigurjónsdóttir hefur aftur unnið. Þriðja tímabilið er semsagt hafið og hafa Snorri og Benni komist á nýja listann með sínum glæstu sigrum. Þetta tímabil verður 2 mánuðir og mikil spenna í þessu. Ný regla verður í hávegum höfð og hún er að allir sem giska á spurningu áður en ég blogga aftur fá eitt stig en þeir sem sigra fá 3 stig og þess vegna meiri barátta, engu máli skiptir hvort giskið sé rétt eða vitlaust. Eina reglan er sú að aðeins er hægt að fá eitt stig fyrir hverja spurningu í giski og 3 fyrir að vera fyrstur með rétt svar, ekki má giska 1000 sinnum og fá 1000 stig.

Hér er hægt að sjá stöðuna eins og hún er í dag:
Kvikmyndagetraunardeildin

Hér er fyrsta tímabilið:
1st Season of Kvikmyndagetraunardeildin

Hér er annað tímabilið:
2nd Season of Kvikmyndagetraunardeildin


Sigurgeir 12:01:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, september 04, 2002

Sigurvegarinn í dag er Snorri Örn Arnaldsson og svarið var "48 hours"

Ég er í skólanum og mér hundleiðist. Brjálað að gera í vinnunni og svo beint í skólann. En maður lætur sig hafa þetta. Ég get því miður ekki bloggað mikið í dag en það er mikil tilkynning sem kemur á morgun eða seinna í kvöld. Stigataflan verður ekki uppfærð fyrr en í kvöld eða á morgun vegna tæknilegra örðugleika en ekki vegna þess að ég er ekki naskari.

Pæling dagsins: "Er námið þess virði? ;-)"

1-10 dagsins: fellur niður í dag vegna tæknilegra örðugleika

Kvikmyndagetraun dagsins: "Sweet!" og þetta er auðvelt ef menn pæla aðeins í því. Já hefur verið í fullt af myndum en myndin sem ég er að fiska eftir nauðgaði þessu orði.
Senda svar!


Sigurgeir 5:54:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, september 03, 2002

Sigurvegari dagsins er Benjamín Sigursteinsson a.k.a. Olnboginn og svarið var auðvitað "The Great Outdoors"

Ég spurði í gær um tilganginn með kvefveirum og fékk ekki afdrifaríkt svar en mail kom frá Retro og hér er útdráttur:"Sko...kvefveiran er nokkuð sérstakt fyrirbæri. Við erum alltaf með
kvefveiruna
í okkur en þegar við fáum kvefið sjálft, þá eru veirurnar að halda
nokkurskonar hátið eða partý eins og við köllum það yfirleitt. Þessar
veirur
eru mikið fyrir áfengi og þessvegna er best að losna við kvef með því að
fara
á fyllerí. Því trikkið er að kvefveirurnar þola miklu minna en við
og "drepast" þvi miklu fyrr og lengur en við, eða þar til við fáum
aftur
kvef. En meðan kvefveirurnar eru "dauðar" þá vita þær ekki af sér frekar
en
við og muna ekki eftir neinu þegar þær vakna. Þegar þær hafa hresst
sig
við, fara þær aftur að djamma og eru búnar að læra að það sem við kunnum
best...er að drekka mikið og bíða því bara eftir að við færum þeim áfengi
í
massavís. Sumir þykjast skynsamir og taka bara mixtúrur en eins og við
vitum
þá er alkóhól í mixtúrum og allt fer a sama veg. Ég held að eina lækningin
við kvefi sé að fara reglulega á fyllerí og leyfa kvefveirunum aldrei að
vakna
almennilega. Semsagt drekk og ver kátr!!

Þar hefurðu líffræðilegu skýringuna á kvefi karlinn minn."

Nú veit ég að ég þarf að drekka oftar til að losna við að kvefast.....veit einhver líkurnar á því að Signý samþykki þessa afsökun fyrir fylleríi?

Svo er rétt að benda á að uppáhaldsbloggarinn minn tók sig til og bloggaði í fyrradag. Tékk itt át!

Jæja er þetta ekki nóg í bili? Menn nenna ekki að lesa of mikið og ég hef fátt til að röfla um annað en kvefið mitt og fólk sem kann ekki að keyra. Ég verð bara að læra í kvöld og svo horfir maður kannski á "Lord of the rings: the fellowship of the ring" í kvöld og aukaefnið á DVD, það er bara kúl. Verst að karfan er að fökkast upp hjá mér. Fyrst meiðist maður og svo veikur, þetta lítur ekki vel út.

Pæling dagsins: "Tölva sem er ekki ný en ekki gömul, fær glænýja og geðveikt öfluga tölvu við hliðina á sér í vinnunni. Það verður henni þá og þegar ljóst að hún er að úreldast (eða er það úreltast?). Verður hún fyrir mikilli tilvistarkreppu? Er uppfærsla hennar von eins og sílikon fyrir sumar konur?"

1-10 dagsins: Proto-Celtic = oinos - dvai - treis - qetveres - qenqe - svex - septn - octô - nevn - decn

Kvikmyndagetraun dagsins: "I've been in prison for three years. My dick gets hard if the wind blows"
Senda svar!


Sigurgeir 2:19:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, september 02, 2002

Sigurvegari dagsins er Snorri Örn Arnaldsson með svarið "Flatliners"

Getur einhver sagt mér hver er tilgangurinn með kvefveirunni? Þjónar hún einhverjum tilgangi í alheiminum?

Haukur vinnufélagi minn eignaðist strák í gær og ég sem spáði að hann fæddist 1. september en gleymdi að veðja....demmit! Hann er þá í 2 vikna fæðingarorlofi til að byrja með, eins og ég fór í nema ég þurfti að vinna að skólaverkefni allan tímann. Ég hlakka geðveikt til að komast í næstu 2 vikur hjá mér sem verða í nóvember.

Drekinn frá OZ er skrásett vörumerki og félagar mínir mega ekki nota það nema með því að setja link á mig. En strákarnir mega sækja um hjá FMR en ég lofa engu, ég væri til í að fá þá hingað en ég er nokkuð viss um að ekki verða fleiri ráðnir :-(

Erna frænka og Björn fengu íbúðina sína afhenta um helgina og við fjölskyldan fórum í heimsókn. Þetta er voðaflott hjá þeim og ég óska þeim góðs gengis við að koma sér fyrir.

Ég er búinn að redda mér laptop og fæ hann afhentan 11. september....skuggalegt er það ekki????

Pæling dagsins: "Ég er til vegna þess að ég fæ kvef?"

1-10 dagsins: Sardinian = unu - duos - tres - báttor - chimbe - ses - sette - otto - nove - deghe

Kvikmyndagetraun dagsins: "The baldheaded bear of Claire county!"
Senda svar!


Sigurgeir 2:04:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur