Drekinn frá OZ

sunnudagur, júní 30, 2002

Jæja ég er þá mættur aftur, hálfgerður sladdi en samt kominn til að vera. Úrslitaleikurinn á HM var að klárast og hann var defilli góður. Ég hélt á dentu minni á meðan leiknum stóð og hún var mjög stillt og góð. Þar sem ég er hættur að brugga vín til einkanota þá á ég svolítið af devikum eða divikum ef einhver hefur áhuga. Ég er sem betur fer að mestu laus við finnbólur en nokkrar litlar skutu upp kollinum þegar ég rakaði mig á föstudag en þá hafði ég ekki rakað mig í 3 vikur eða á meðan skilaverkefninu stóð. Ég lét það ekki vepjast fyrir mér þegar ponzan mín þurfti að láta skipta um kúkableyju í fyrsta skipti. Ég sjálfur er örverpi og margir höfðu veðjað að ég ætti eftir að gugna á þessu en þeir sem veðjuðu gegn mér töpuðu öllu sínu en hinir græddu svakalega enda voru líkurnar þeim í óhag. Ég vil bara láta það koma fram hér að pissiríið í Háskólanum í Reykjavík er til fyrirmyndar. Ég ætla nú ekki að porra ímyndunaraflið hjá ykkur heldur segja bara að það er mjög þrifalegt. Ég held að við Signý séum mjög heppin eins og er enda erum við nánast laus við prí í litlu ponzunni okkar. En hún hefur fengið smá pulu og það var mjög fræðandi að fylgjast með því í gær. Ég skipti þá prófors um bleyju og allt í fína með það. Já dagurinn í gær var ekki mjög præsinn. Við fórum í fyrsta alvöru leiðangurinn okkar með ponzuna okkar og það var ýkt gaman og hún svaf allan tímann og einu lætin frá henni voru einstaka prumpur. Og þá held ég að ég sé búinn að vinna upp þau orð dagsins sem ég hef misst af. Fyrir þá sem vilja skilja þennan texta skulu þið líta á þessa síðu.

Hérna eru nokkrar nýjar myndir:







Hér er eitthvað módel:



Hér er maður sem getur sleikt olnbogann.


Og svo má bæta við að Pétur Óli Einarsson vann síðustu kvikmyndagetraun og er því kominn í 3. sætið.

Ný keppni hefst á mánudag og þetta er því lokastaðan.

Þannig að í dag verður engin kvikmyndagetraun. Ég gef núverandi töflu nýjan link og set upp spánýja töflu og nú geta allir tekið þátt og átt möguleika á að vinna. Þetta tímabil verður frá 1. júlí og til 1. desember en 1. desember verður súkkulaðidagatalið aftur á dagskrá með sérstakri jólakvikmyndagetraunardeild (jess náði að lengja orðið).

Held að þetta sé ágætt í bili, þó ég hafi nú ekki sagt mikið merkilegt en það verður semsagt allt á fullu á morgun.



Sigurgeir 1:55:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, júní 28, 2002

ÉG var í prófi í dag, þess vegna hef ég klikkað í dag og í gær en á morgun ætla ég að koma með smá pistil og svo byrja fastir liðir eins og venjulega á mánudaginn.


Sigurgeir 7:28:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, júní 25, 2002

Betaprófunin gekk vel. Nú er allt í gúddí og við í bögghreinsunum. Skildi þetta einhver???? oh well hvað um það, það styttist í að ég eignist líf aftur.....eða þannig, nú á ég barn og lífið mitt verður aldrei eins og það var en ég er bara alveg sáttur við það. Á flotta gellu og fallegt, heilbrigt barn....hvað vill maður meira????

Bara minna menn á að L.A. Lakers eru meistarar og Gozar verða það líka....kannski ekki fyrr en á næsta ári en þetta er stefna klúbbsins.

múha ég er í geðveikum fíling núna, illa sofinn og hef ekki verið utandyra síðan í maí....man ekki hvenær ég rakaði mig síðast.

flippedíflopp og la la la

spurning ekki kvikmyndagetraun heldur venjuleg spurning.........hvað er gult og grátt og situr uppi í tré og er stórhættulegt?



svar....Kanarífugl með vélbyssu!


Sigurgeir 4:36:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, júní 24, 2002

Jamm það er bara kominn mánudagur og ég veit ekkert í hvað helgin fór. En ég er búinn að lofa sögunni um fyrstu kúkableyjuna í heimahúsum hjá fjölskyldunni Álfatúni 13. Þannig var að ég var með litlu stelpuna mína á skiptiborðinu, sem er inni í svefnherbergi við hliðina á rúminu. Ég er búinn að taka bleyjuna af stelpunni og er að þurrka á henni rassinn og þá bara kemur bunan út úr rassgatinu, ég rétt næ að víkja mér frá enda með viðbrögð kattarins en þá lenti gusan bara á rúminu okkar Signýjar. Ásbjörg vinkona Signýjar varð vitni að þessu og veltist um á gólfinu af hlátri og Signý skammaði mig fyrir að hafa ekki fórnað mér og fengið gusuna á mig (take the bullet for our bed, baby). Ég kláraði svo bara að skipta um bleyju, skipti svo um á rúminu og skellti rúmfötunum í þvottavél og allt var í gúddí. En þetta finnst sumum (Ásbjörgu) fyndið og það er svosem í lagi líka. Þið hin getið núna hlegið líka.

Jæja ekki meira í dag.


Sigurgeir 10:33:00 AM | 0 comments links to this post |

laugardagur, júní 22, 2002

Hógværa stund Sigurgeirs: Ég er bestur í heiminum í forritun!!! Takk fyrir.

Svo er bara ein tilkynning: Þeir sem ekki hafa þegar komið að skoða barnið, mega alveg koma en gott er að láta vita af sér áður. Best er að gera það með sms í 6967579 sem er sími Signýjar en ástæðan fyrir því að ég vil að þið sendið sms frekar en að hringja er að svefn er dýrmætur þessa dagana og sms vekur mann ekki eins og hringingar. Svo svörum við um leið og við getum. En það er að sjálfsögðu skilda að koma með gjafir múhahahahaha.

Svo kemur að því að ég reddi kvikmyndagetrauninni. Ég á að skila verkefninu 25. júní og þá redda ég þessu, ef ég er ekki þegar búinn að því. Denni ég mun þá líka nota öll orð dagsins sem ég á eftir að nota. Svo fer ég í munnlegt próf þann 28. júní þar sem hópurinn minn verður spurður spjörunum úr en það er allt í lagi, því við erum besti hópurinn.



Sigurgeir 12:06:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, júní 21, 2002

Já enn og aftur er ég voða busy, ég er samt með tilbúið efni, sem ég kem kannski á netið núna um helgina, en þar á meðal er fyrsta kúkableyjan sem litla dóttir mín þurfti að láta taka af sér en það er sko sprenghlæileg saga.

adios í bili


Sigurgeir 2:37:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, júní 20, 2002

gat ekki bloggað í gær og get það ekki í dag.

er á fullu í verkefnavinnu í skólanum og er líka á námskeiði í gær og í dag fyrir vinnuna. múha fjör!


Sigurgeir 11:42:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, júní 18, 2002

úff fyrsta nóttin liðin með allri fjölskyldunni í heimahúsi. Maður svaf svona sæmilega, samt svolítið þreyttur, dóttir mín vaknaði nokkrum sinnum og heimtaði brjóst. Ég slapp þó betur en Signý því ekki er ég með brjóst og því lendir þetta allt á aumingja gellunni minni. Maður verður svo að koma sér af stað með kvikmyndadeildina aftur, við verðum bara að líta á þetta sem landsliðspásu.

Dóttir mín var semsagt útskrifuð af spítalanum í gær ásamt móðurinni. Þær eru báðar við góða heilsu og það er auðvitað frábært. Litla stelpan var slæm af gulu (ekki sjúkdómnum ægilega) en það er þegar ákveðin efni ná ekki að brotna niður í líkamanum og veldur því að húðin fær gulan tón. Sólarljós og fæða hjálpa til við að brjóta þessi efni niður og það tók smá tíma að koma mjólk í brjóstin og fá allt af stað og því varð hún svoldið gul en þetta gerist víst fyrir öll börn en bara mismikið og er ekkert hættulegt, verstu tilfellin eru löguð með ljósum í hitakassa en það er svipað og að leggjast í ljósabekk....samt ekki alveg jafnsterkt. En hún er nú orðin góð og búin að þyngjast yfir fæðingarþyngd á innan við viku og það er mjög gott. Nýfædd börn missa c.a. 10% af þyngd sinni áður en þau byrja að þyngjast aftur og það er bara eðlilegt. Litla stelpan léttist aðeins til að byrja með en þyngist núna á fullu.

Sem sagt allt gott að frétta af fjölskyldunni í Álfatúni 13 ;-)


Sigurgeir 11:04:00 AM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, júní 16, 2002

jæja ég er orðinn svo ruglaður, ég hélt að ég væri að bregðast blogginu með að blogga svona stutt og illa en þá fatta ég að í gær var laugardagur og í dag er sunnudagur og morgundagurinn er 17. júní og þess vegna frí og ég er bara eiginlega alltof duglegur.....ef þið eruð að velta því fyrir ykkur, hvers vegna ég er í betra skapi í dag en í gær er það vegna þess að Signý kemur heim á morgun með litlu dúlluna okkar. úff hvað ég hlakka til!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Maður er bara að spá í að setja rokklingana á fóninn og koma sér í stuð....jibbí jei, jibbí jíbbí jibbí jei!


Sigurgeir 10:54:00 PM | 0 comments links to this post |

laugardagur, júní 15, 2002

Já ég er lélegur bloggari þessa dagana en Signý kemur vonandi heim á mánudag og þá kemst kannski meiri regla á hlutina. Það er mikið púl hjá mér þessa dagana. Ég vakna um sjöleitið pissa og fer í sturtu, fæ mér morgunmat, bursta í mér tennurnar og fer svo í skólann. Þar vinn ég í hópverkefni allan daginn til c.a. sjö á kvöldin og þá fer ég upp á spítala þar sem ég reyni að vera til tíu eða ellefu. Svo kem ég heim og pissa og bursta í mér tennurnar og fer að sofa. Svona verður þetta út mánuðinnn því við eigum að skila 26. júní og munnlegt próf verður 28. júní. Signý fær sennilega að koma heim á mánudag og þá get ég farið beint heim eftir skóla og hugsanlega fengið smá hvíld því ég er alveg búinn á því núna. Eitt sem ég er alltaf að reka mig á og það er þetta kvennathing í sambandi við fæðingar. Þær hafa gjörsamlega enga og ég meina alls enga samúð með manninum. Þær koma allar fram við Signýju eins og hún hafi lent í ægilegu bílslysi og sé gjörsamlega örkumla og svo líta þær á mig og ef ég er ekki að þjóna henni hverja einustu sekúndu þá er maður skammaður. Þær ættu bara að vita hvernig dagurinn minn er til að byrja með. Þessi hugsanagangur er svo fáránlegur, ég átti von á þessu að hluta til en ekki alveg svona. Ef Signý hefði lent í bílslysi og lægi fyrir dauðanum eins og mætti halda, þá væri mikil samúð með mér og maður fengi einhverja aðstoð við að gera hitt og þetta fyrir Signýju, jafnvel væri sagt við mann "slakaðu á væni, við sjáum um þetta, hvíldu þig frekar" en nei, þetta er eitthvað eins og þetta sé mér að kenna....eins og ég hafi verið undir stýri blindfullur! Vitið þetta: Það tekur á að sjá ástvin sinn þjást, það tekur á að sjá ástvin sinn skorinn og rifinn í sundur, það tekur á að vinna fullan vinnudag og koma svo á stað sem er ekkert líkur heimili manns og hvergi er hægt að setjast niður og slaka á eina einustu sekúndu (allir stólar á spítulum eru hannaðir til að brjóta rófubein). Annað sem tekur á að allan daginn sem ég er að vinna í verkefninu, finnst mér ég vera að vanrækja Signýju og nýfædda dóttur mína og allan tímann sem ég er hjá Signýju og dóttur minni, finnst ég vera að vanrækja hópinn minn og námið mitt. ÉG FÆ EKKI EINA SEKÚNDU Í HVÍLD!!!!!!! Ég er þreyttur og hundleiður á öllu böggi og dómum og heimskulegum spurningum. Ég er að gera það besta sem er í boði núna og það eru ekki fleiri klukkustundir í sólarhringnum. Þó ég sé ekki líkamlega hjá Signýju og barninu öllum stundum er ég þar andlega, ég hef samskipti við hana í síma og með sms allan daginn. Aðstæður geta ekki annað en lagast en til þess þarf hún að komast heim og ég að klára verkefnið mitt.

úffff gott að blása aðeins út



Sigurgeir 11:24:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, júní 14, 2002

Jæja, ég var að fatta það að það er föstudagur, ég er alveg kolruglaður í dögunum. Fastir liðir eru í stórhættu hjá mér en ég held ég hafi tíma í kvöld til að laga þá eða einhvern tímann um helgina. Uppfæra stöðuna í kvikmyndagetraunardeildinni ofl.

Signýju og dóttur minni heilsast vel og við vonum að þær fái að koma heim um helgina.


Sigurgeir 11:34:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, júní 13, 2002

p.s. ég er mjög ánægður með að L.A. Lakers eru meistarar 3ja árið í röð. Ég hef því miður misst af flestum leikjunum vegna anna buhuhuhu. En ég fékk miklu flottari verðlaun.


Sigurgeir 5:57:00 PM | 0 comments links to this post |
Enn og aftur er ekkert að gerast á blogginu. Fastir liðir eru alveg í hassi. Ég er á fullu í skilaverkefni í forritunarnáminu mínu, svo er ég líka á fullu að vera pabbi.

Fleiri fréttir síðar.


Sigurgeir 4:38:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, júní 12, 2002

Kvikmyndagetraunin er í einhverju messi núna, því ég hef bara ekki tíma til að sinna henni. Síðustu tveir sigurvegarar verða tilkynntir fljótlega en keppni frestað um óákveðinn tíma.

Ég er orðinn pabbi. 11. júní 2002 kl. 18:33 fæddist yndisleg stelpa. 18 merkur og 54 cm og ummál höfuðsins góðir 38cm. Signý stóð sig eins og hetja og ég er að springa úr stolti. Signý náði fullri útvíkkun á glaðloftinu einu saman. Var sett af stað klukkan 10 um morguninn eftir að hafa haft hríðir frá því snemma á sunnudegi. En því miður þegar Signý var búin að rembast í klukkutíma, fann ljósmóðirin fyrir öðru eyranu á barninu og því var höfuðið ekki að koma rétt niður. Læknir ákvað að fá hana inn á skurðstofu, þar sem hún skildi vera mænudeyfð og gerð tilbúin undir keisaraskurð. Fyrst vildi hann þó reyna að ná barninu út með sogklukku. Þegar við vorum komin yfir á skurðdeildina, fór allt í panik á spítalanum, tvíburafæðing fór af stað og kona sem var að blæða út úr sárinu eftir fylgjuna fór á undan okkur inn. Við biðum samt róleg og Signý hin besta, enda algjör meistari!!!! Þar sem að barni og móður heilsaðist vel vorum við bömpuð þar til róaðist og þá var Signý mænudeyfð og þá fékk ég að koma inn og hitta hana eftir klukkutíma aðskilnað. En þá hafði Signý verið búin að rembast allan þennan biðtíma og barnið alveg að koma út. Læknirinn hætti því við sogklukkuna og reyndi að beyta töngum á barnið en allt kom fyrir ekki og keisari var niðurstaðan. Ég var inni allan tímann. Svo var ég rekinn út með barnið þegar verið var að sauma Signýju. Hún missti tvo lítra af blóði og þurfti því að vera í gjörgæslu í tvo tíma meðan ég beið með barninu. Hún var samt aldrei í hættu og alltaf með rænu. Eftir smá blóðgjöf var hún hin hressasta. Ég fékk að gista hjá þeim mæðgum í nótt og í morgun voru þær báðar eldhressar og litla að f´á sér mjólkursopa úr brjóstinu hennar mömmu sinnar.

Hér eru nokkrar myndir:














Sigurgeir 12:10:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, júní 10, 2002

Ég er voða busy í dag, er ekki með það á mér hver vann föstudagsgetraunina.

Verð með fréttir á morgun so stay tuned.

kvikmyndagetraun dagsins:"Epidural, asshole!" úr hvaða grínmynd er þessi setning múhahahha


Sigurgeir 11:50:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, júní 07, 2002

Back to back baby!!! Theodór "Teddi" Narfason er aftur sigurvegari dagsins og svarið var "The Goonies". Sú mynd er svo mikil snilld og þetta umrædda atriði eitt það fyndnasta í kvikmyndasögunni.

Eitthvað vesen er með póstlistann hjá mér, þeir sem eru á honum eru ekki allir að fá mail. Þeir sem hafa lent í því eru allir að fá bloggtilkynninguna senda á hotmailið sitt. Ég vil benda fólki á að hotmail geta mjög auðveldlega fyllst og þegar það gerist þá skilar póstur sér ekki í það, hann bíður ekki eftir því að eytt sé úr mailboxinu og kemur þá inn í það heldur eyðist hann bara. Þannig að ef menn eru með fullt hotmail þá getur verið að póstur sem þeir eiga að fá sé að tapast í hrönnum. Einnig er spamvörn í hotmail, ég veit ekki nákvæmlega hvernig hún er stillt en mér dettur í hug að ein stillingin sé þannig að ef fleiri en X margir eru í To fieldinu þá fer pósturinn beint í ruslið. En alla vega ef menn vilja þá get ég breytt hotmailinu þeirra í einhverja aðra addressu í póstlistanum mínum.

Ég er kominn á fullt í hópavinnu. Ég er að gera verkefni með 4 ágætum manneskjum og það virðist ganga vel þrátt fyrir að ég er einn um það að vera ekki laus úr vinnu. Signý fer að eiga hvað úr hverju og þá kemst ég í barneignarfrí.....ég vona að hún fari ekki 2 vikur framúr áætlun. En alla vega okkur var mikið ágengt í gær og þetta verður þrælskemmtilegt. Við eigum að forrita kerfi fyrir bílaleigur og fyrst hljómaði það eins og leiðinlegt vídeóleigudæmi......en þegar maður rýnir nánar í það þá er bílaleigan fljótt miklu flóknari en vídeóleiga.

Það er föstudagur í dag og venjulega hlakkar maður til þess að chilla um helgar eða gera eitthvað grúví en ég verð víst að læra næstu 3 helgar, þannig að maður er ekki í eins geðveiku stuði og venjulega. En það má kannski koma inn í prógrammið leik L.A. Lakers og N.J. Nets í kvöld og svo boxið annaðkvöld. Nú jæja, þetta er orðið ágætt í bili, er eitthvað voða þurr í dag og dettur lítið í hug.

Pæling dagsins: "Ef Jón Sigurðsson hefði fæðst 6. Ágúst þá hefði Verslunarmannahelgin rokkað feitt þetta árið"

1-10 dagsins: Umbrian = uns - tuf - trif - petur- - pumpe- - sehs- - - - - *nuvim - *desem. Svo virðis sem tölurnar sjö og átta hafi tapast úr þessu útdauða tungumáli.

Kvikmyndagetraun dagsins: nöfnum hefur verið breytt til að vernda hina saklausu....

Bob: You said you only had sex with three different guys; you never mentioned him!
Lucy: Because I never HAD sex with him.
Bob: You sucked his dick!
Lucy: We went out a few times. We never had sex but we fooled around.
Bob: Oh my God, WHY did you tell me you only had sex with three different guys?
Lucy: Because I DID only have sex with three different guys; that doesn't mean I didn't just go with people.
Bob: Oh my God, I feel so nauseous!
Lucy: I'm sorry, Bob, I thought you understood!
Bob: I did understand! I understood that you had sex with three different guys and that's all you said!
Lucy: Please calm down.
Bob: How many?
Lucy: Bob...
Bob: How many dicks have you sucked?
Lucy: Let it go!
Bob: How many?
Lucy: All right, shut up a second and I'll tell you! Jesus! I didn't freak out like this when you told me how many girls you fucked!
Bob: This is different, this is important. How many?
[long pause as customer buys something]
Bob: Well?
Lucy: Something like... 36.
Bob: What? Something like 36?
Lucy: Lower your voice.
Bob: Wait a minute, what is that anyway, something like 36? Does that INCLUDE me?
Lucy: Ummm...37.
Bob: I'm 37?!

--------------------------------------------------------------------------------
Bob: My girlfriend's sucked 37 dicks!
Customer: In a row?

--------------------------------------------------------------------------------
Bob: Hey, try not to suck any dick on the way through the parking lot!


p.s. RaggaLó hrósaði mér á síðunni sinni og það reddar mér í gegnum þennan dag....eins og ég hef oft sagt eru stelpuhrós betri en strákahrós en ég er svo mikill egóisti að ég þigg öll hrós múhahahahaha! En ekki nóg með að RaggaLó hafi hrósað mér þá tók heilt kvennfélag sig til og dásamaði mig og þar með reddaðist öll helgin hjá mér.


Sigurgeir 8:57:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, júní 06, 2002

Theodór Narfason er sigurvegari dagsins. Svarið var að sjálfsögðu hin stórkostlega mynd "Sódóma Reykjavík" og hananú!

Maður gæti purdað á dómarann sem við fengum í utandeildinni í gær en hann var jafnlélegur og jafnheimskur þannig að það jafnaðist út á liðin, en það er samt pirrandi að lenda í svona. Þessi dómari var svo mikill prumpur að það var ekki hægt að rökræða við hann en svona er nú boltinn. Eitt er þó á hreinu að Benni er ekkert núll!!!!

Sónar í dag.... niðurstöður voru þær að barnið er tæpar 16 merkur (3900 grömm en skekkjumörkin eru 10-15% til eða frá), þannig að barnið er þokkalegur bolti og ekki enn búið að fæðast, þannig að það stækkar enn.

Kalli talar um mig á blogginu sínu og er vissulega heiðursmaður fyrir það enda þrífst ég á hrósi!

Guðný ljósmyndari, systir Björgvins líffræðings sendi mér þessa sögu....mætti jafnvel vera pæling dagsins en ég er með ákveðna pælingu þannig að þetta verður bara aukapæling. EVA VAR EKKI FYRSTA KONA ADAMS!!! Guðný er ad lesa stórsniðuga bók núna um kynlíf og allt sem því fylgir og þar er fjallað um Adam og hans feril... Flestir halda að Eva hafi verið hans fyrsta kona, en Guðný er nú hrædd um að það sé hin mesta endemis vitleysa.... Hún hét nefnilega Lilith (ætli það hafi verið konan hans Fraisier úr staupastein og auðvitað Fraisier?) og hún dömpaði Adam. Málið er að þegar þau ætluðu að njóta ásta (á líkamlegan hátt) í fyrsta skipti þá setti hann sig beint í kristnibodastellinguna típísku, og það var hún ekki alveg að fíla og mótmælti. Af hverju þurfti hún að vera undir honum, en hann ekki undir henni? Það endaði með ósköpum og hún yfirgaf hann og hvarf. Þrír englar voru sendir að leita að henni og fannst hún við rauðahafsbakkann. Þar hafði hún sest að og bar í heiminn á hverjum degi yfir 100 börn, getin af djöflum sem hún var byrjuð að umgangast (greinilegt að karlmaður skrifaði þessa sögu enda hefur hann ekkert vit á hvað það tekur langan tíma að eignast börn). Englarnir bera henni þau skilaboð að hún verði að snúa aftur til Adams, ella muni hún deyja. Hún harðneitar að snúa til baka, og Guð refsar henni þá í staðinn með því að láta hana missa 100 börn á dag (100 mínus 100 er jafnt og núll fyrir þá sem eru lélegir í reikningi). Í dag er eingöngu minnst á Lilith í Gyðingdóm og þar er hún djöfladrottningin. En ástædan fyrir því að Lilith hvarf úr sögunni er líklega sú að lengi vel voru það eingöngu karlmenn sem skrifuðu niður söguna og það hentaði náttúrulega ekki að vera með svona dæmi um "óþekka" konu (hérna er ég ekki sammála, karlarnir vildu bara ekki upplýsa það að Adam var svo hugmyndasnauður í kynlífinu að hann hélt að það væri bara hægt að gera það í einni stellingu. Það er skömm af því fyrir alla karlmenn ef konurnar eru uppátækjasamari í bólinu en þeir og þess vegna var þetta kveðið í kútinn), þannig að þá kom Eva til sögunnar, til að búa til "rétta ímynd"... kona þæg, góð og hlýðin sínum manni...(samkvæmt minni kenningu væri Eva þá hrein mey með engar hugmyndir í kynlífinu og veit ekki betur en að þetta eigi bara að vera svona eins og Adam segir! En annars var þetta fín saga hjá Guðnýju, ég setti nokkur komment inn í sviga þarna og þau eru bara fíflalæti í mér enda er þetta mitt blogg og enginn getur bannað mér það.


Eitt hérna, þegar ég bjó til bloggtilkynningargrúppuna sem ég sendi bloggtilkynningu á þegar ég er búinn að blogga á vefinn, notaðist ég við MSN contact listann minn og því eru ansi margir að fá þetta í hotmailið sitt. Þeir sem vilja fá póst áfram en bara ekki á hotmailið geta sent mér beiðni um það og ég breyti því á nóinu. Þeir sem vilja hætta að fá þennan leiðindapóst (ég lofa því að þið særið ekki tilfinningar mínar) geta beðið mig um það og ég redda því líka á nóinu. Þeir sem ekki fá tilkynningu um að ég hafi verið að uppfæra vefinn geta líka sent mér beiðni og ég redda því einnig á nóinu. Smellið hér til að senda beiðni!

1-10 dagsins: Oscan = uinus - dus - tris - petora - pompe- - *sehs - *seften - *uhto - *nuven - *deken

Pæling dagsins: Ég kom þreyttur heim í gær eftir að hafa keppt í utandeildinni og náði mér í nýmjólkurfernu og settist niður hjá Signýju, Rósu frænku Signýjar og Söru litlu systur Signýjar. Þá fóru þær að tala um það að þetta væri týpískt stráka dæmi að setjast niður með glas og líter af mjólk. Þetta var eitthvað sem stelpa myndi aldrei gera. Ég að sjálfsögðu kláraði líterinn enda mjög þyrstur og mjólkin kominn einn dag yfir síðasta neysludag. En hvað um það mér finnst þetta merkileg pæling.....afhverju ætti stelpa ekki að setjast niður með líter af mjólk???? Hvers vegna þarf alltaf að vera súkkulaðieitthvað með mjólk? Þær vildu meina að það yrði að vera súkkulaði kaka eða eitthvað með mjólkinni til að stelpa myndi gera þetta???? Er mjólkin ekki nógu feit? Eru stelpur ekki alltaf að tala um það hversu mikil fita er í hinu og þessu en samt er þetta eitthvað möst. Við strákarnir spáum sjaldnast í okkur og erum ekkert feitari en þið....so who's right????

Kvikmyndagetraun dagsins: nöfnum hefur verið breytt til að vernda þá saklausu
Bob: Tell us everything! Everything!
Fatso: Everything. OK! I'll talk! In third grade, I cheated on my history exam. In fourth grade, I stole my uncle Max's toupee and I glued it on my face when I was Moses in my Hebrew School play. In fifth grade, I knocked my sister Edie down the stairs and I blamed it on the dog...When my mom sent me to the summer camp for fat kids and then they served lunch I got nuts and I pigged out and they kicked me out...But the worst thing I ever done -- I mixed a pot of fake puke at home and then I went to this movie theater, hid the puke in my jacket, climbed up to the balcony and then, t-t-then, I made a noise like this: hua-hua-hua-huaaaaaaa -- and then I dumped it over the side, all over the people in the audience. And then, this was horrible, all the people started getting sick and throwing up all over each other. I never felt so bad in my entire life.
Billy: I'm beginning to like this kid, Ma!"


Sigurgeir 3:43:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, júní 05, 2002

Jæja krakkar nú er spennan í hámarki......og sigurvegari dagsins er...........................Steingrímur Sævarr "Denni" Ólafsson, gefum honum eitt gott klapp. K L A P P !
Hann svaraði "Life of Brian" sem er vitaskuld rétt og var fyrstur samkvæmt reglum kvikmyndagetraunarinnar og hvernig á að svara kvikmyndagetrauninni og því er þetta fullkomlega löglegt og verða aðrir að bíta í það súra epli að hafa verið á eftir honum eins og hann hefur svo oft þurft að gera (eða klikkað á svarreglunum). Að launum fær hann linknum sínum breytt úr Daníel Ískaríot og í Fréttir Denna og hann veit líkt og alþjóð að þetta er mikill heiður og viðurkenning á hæfileikum hans.

Í dag ætla ég að tala um bloggbræður mína og systur. Byrjum á Snorra....drengur, c'mon síðasta blogg þitt er eitthvað um Lakers í vandræðum en núna eru þeir komnir í úrslit....á ekkert að segja um það????? Næstur er það Hrafn en hann hefur ekki bloggað síðan Ingólfur Arnarson keypti sér síðast laptop enda er síðan hans horfin...kíkið sjálf! Strákurinn er að missa allt töffarareppið og verður seldur úr Gozum með þessu áframhaldi. Bippi, brjálaði Írinn í Gozum er úlnliðsbrotinn.....hvaða fokking afsökun er það, það er alveg hægt að blogga einhentur...sjáðu þennan texta pikkaði ég með vinstri og þennan með hægri! Siggi er einn af bloggurunum sem ég sakna mest, hann er svo klikkaður, en hann er hættur að blogga. Mig grunar helst að sms grínið hjá mér um daginn hafi bundið svo um hnútana að eina kynlífið sem hann fær er hægri og vinstri og sinaskeiðarbólga hamli honum blogg! Jonni, bloggar álíka oft og kærastan mín sem segir mér að Jonni sé ófrískur....eðlileg ályktun er það ekki? Svona foli á lausu ætti að vera með góðar hözzl sögur á hverjum mánudegi!!!! Ég er samt sérstaklega ánægður með að Kalli er vaknaður til lífsins, ríðusögur hans og lífið með hestunum er mikil upplyfting í skammdeginu....eða eitthvað. En hann er snillingur og inn á milli koma snilldarpunktar. Hann er veikur núna og fær "Láttu þér batna" kveðjur frá mér. En nú er komið að egó kaflanum í þessum pistli. Bloggfélagar mínir hafa eytt síðustu dögum í að dásama mig og ég sem egóisti dýrka hrós. Allir mega senda mér póst og dásama mig og pistla mína. En Jovi hefur tekið upp á því að vera mánudagsbloggari sem er alveg kúl, bara ef hann væri með hözzlsögur enda á lausu. Hann minnist á mig í síðasta pistli og e-mail addressuna mína sigurgeir@perri.is ég held að þetta sé addressa sem ég á....Jovi þarf bara að segja mér hvernig ég get sótt póst úr þessu því ég man það ekki sjálfur. Ég á örugglega 3 e-mail hjá Tali. En það að hann minntist á mig dugði fyrir mig í nokkrar mínútur og á síðunni hans kom hugmynd af getraun gærdagsins tíhíhíhíh. En svo kom þetta......Miðvikudagsblogg Bjarka þar sem ég fæ þúsund þakkir. Það tók mig nokkrar mínútur að taka við þeim öllum en að þeim loknum leið mér ofsalega vel. Hann Bjarki er náttúrulega snillingur, þó hann hafi ekki enn skorað fyrir Goza en það gæti breyst í kvöld klukkan 21:30 að Ásvöllum þar sem allir sem þekkja mig ætla að koma og sjá markið hans Bjarka. Nú svo er náttúrulega stelpuhrós en þau eru alltaf langbest og maður roðnar niður í tær enda rosalega feiminn innan um stelpur. En Sunna segir að ég sé frábær, ég veit ekki alveg fyrir hvað ég er frábær en ef það er eitthvað sem hún frétti á djamminu, þá er það allt satt múhahahahahaha! En að öllu gamni slepptu þá er ógeðslega gaman að hún sé farin að blogga enda sjaldgæft að stelpur geti bullað eitthvað að viti....þær bulla venjulega bara bulli! Svo er það Denni karlinn sem seint verður kallaður Pútlingur enda mikill heiðursmaður og höfðingi. Hann tileinkar mér bara hrós dagsins (í gær) og það er alls ekki ónýtt. Önnur blogg sem vert er að minnast á er Stálfélagið og Raggaló en þessi blogg hafa ekki fengið náð hér á síðunni, þ.e.a.s. link hérna til hægri, vegna þess eins að ekkert hefur verið talað um mig á þessum síðum og er af nógu að taka. Heilu pistlana mætti rita um fegurð mína og kímni, svo mætti segja skrípasögur af mér, spá fyrir mér, rökræða um hinn fullkomna mann ergó mig og svona mætti endalaust telja. En stelpurnar sleppa ef þær yrkja falleg ljóð um mig....það er það minnsta sem má gera.

Jæja svo er ein tilkynning hér. Signý þarf mikla hvíld þessa daga og þess vegna er óþarfi að hringja til þess eins að spyrja um líðan hennar og hvort hún sé búin að eiga. Þið gætuð verið að vekja hana. Betra er að senda sms eða tölvupóst ef erindið er ekki brýnna en það. Okkur finnst að sjálfsögðu vænt um alla umhyggju en fæðingin sjálf krefst mikils úthalds og þó að símtalið ykkar sé stutt á máltækið góða við hér "Margt smátt gerir eitt stórt". Ég sjálfur get alveg svarað flestum spurningum. Svo verður að sjálfsögðu tilkynnt hér á blogginu þegar barnið kemur og myndir og fleira, þannig að ekki óttast að frétta ekki af þessu ;-)

Pæling dagsins: Afhverju var það synd og brottrekstrarsök úr aldingarðinum að bíta í eplið???? Hvað svaka freisting var það. Adam og Eva voru þarna hálfnakin og aðalfreistingin var EPLI!?!?!?!?! Annað hvort voru þau bæði forljót eða sá sem skrifaði þennan kafla í bókina góðu eitthvað að misskilja eðli mannsins.

1-10 dagsins: Crimean = ene - tua - tria - fyder - fyuf - seis - sevene - athe - nyne - thiine

Kvikmyndagetraun dagsins: "Þetta var óþarfi!" ég ætla ekki að gefa vísbendingar í þessu aðrar en þessa að þó þetta hafi sennilega komið fram í þónokkrum myndum, þá eigiði að vita hvaða mynd ég er að meina!


Sigurgeir 10:22:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, júní 04, 2002

Auka aukablogg


Afmælistilkynning Berglind "Icey" Ólafsdóttir er 25 ára í dag og fær hamingjukveðjur frá mér og spúsu minni. Það er hægt að tékka á henni í þáttunum "Off Centre" á stöð 2.

Fæðingartilkynning Viðar á stofunni hans Pabba eignaðist stelpu í morgun hún var tekin með keisara. Stúlkan er 54cm og 15 merkur fyrir þá sem hafa áhuga á því ;-)


Sigurgeir 5:20:00 PM | 0 comments links to this post |
Aukablogg í dag, ég gleymdi að senda út bloggtilkynningu og vegna kvartana þarf ég að bæta við reglu. Svara má kvikmyndagetraun dagsins um leið og hún birtist á vefnum og bloggtilkynningin getur klikkað og verður ekkert viðmit eða rásmark eða neitt þvíumlíkt. En það er ekki búið að svara getraun dagsins í dag nota bene.

Svo að auki var ég spurður fyrir svolitlu síðan, hvað það hafi verið langt síðan ég sá dúfu í Reykjavík. Denni félagi minn úr OZ þóttist vita að einhverjir snillingar í borgarstjórn höfðu eitrað fyrir þeim öllum og drepið þær. Þegar ég fór að hugsa út í þetta þá er þetta sennilega rétt því maður sér enga dúfu í bænum og ekkert í námunda við það sem maður sá fyrir nokkrum árum. En gleðifréttir, ég sá dúfu á Klapparstígnum áðan, mér sýndist hún skjóta sér inn undir þakskegg og þykist ég vita að þar sé hreiður. Þetta sá ég á leiðinni frá tannsa en tannsi fann enga skemmd og er ég því snillingur í óskemmdum tönnum eins og öllu öðru. Tannsi sagði mér að Óli hefði eignast dóttur og heilsast móður og dóttur vel. Þetta var það eina sem ég spurði um því mér er skítsama hvað krakkar fæðast þungir og langir. (Ég ætla hins vegar að svara í mörkum öllum spurningum um þyngd míns barns fram til 5 ára aldurs bara til að mótmæla mörkum, enda ættu það að vera Evrur núna). Kéllingar virðast hafa gaman af þessum upplýsingum eins og það skipti einhverju andskotans máli í fæðingu og erfiðleikastigi þess. Nú ætla ég að leggja líf mitt í hættu og líkja þessu við að kúka, ef maður er með harðlífi og er að rembast og rembast við að koma kúknum út, þá er það bara að koma "hausnum" út og svo skiptir lengdin engu máli því það rennur ljúflega út. Nú eru margar konur að hlaða haglarann en þetta er satt. Auðvitað er ég ekki að taka tillit til sársauka og hef ekki og mun aldrei hafa hugmynd um hvernig það er að fæða en ég veit það að ummál höfuðs barnsins er það sem skiptir máli, það er það sem er að teygja ykkur í sundur, það er það sem er að rífa ykkur og það er það sem er að valda þjáningunum. Þegar hausinn er kominn rennur restin venjulega út ljúflega eða í næstu hríð en nánast aldrei þarf fleiri en eina hríð í búkinn. Lengdin skiptir því engu máli. Þyngdin ef eitthvað er ætti að hjálpa því konur sem fæða í standandi stellingu eða þannig að þyngdaraflið hjálpar fæða miklu hraðar og allt gengur betur. Því ætti meiri þyngd að nýtast betur í fæðingunni. Ég vorkenni hins vegar konu sem þarf að þrýsta út úr sér haus sem er yfir 37 cm að ummáli.

Takk fyrir í dag ég er farinn niður á fæðingardeild með konuna í skoðun.


Sigurgeir 11:02:00 AM | 0 comments links to this post |
Sigurvegarinn í dag er engin önnur en tölvudrottningin Sólveig Ósk Óskarsdóttir! Og svarið var Broken Arrow. Mér fannst þessi gáta svolítið lúmsk hjá mér en það var greinilega ekki, því sjaldan hefur verið barist jafn hart um sigurlaunin eins og að þessu sinni.

Enn og aftur um fótboltann (vegna þess að ég er að keppa í utandeildinni en ekki vegna þess að HM er í gangi....hverjum er ekki sama um það helvíti?!?!?), ég er búinn að komast að því hvers vegna ég er að drepast í framanverðum lærunum á báðum löppum...en það er vegna þess að ég er ekki vanur að sparka og hef ekki gert það í langan tíma. Nú það var æfing í gær og meiðslin tóku sig upp þannig að ég færði mig í markið í stöðunni 2-4 fyrir hinum. Svo varði ég bara eins og berserkur (voru þeir ekki þekktir markmenn?!?!?!) og þetta gaf auðvitað tóninn og mínir menn jöfnuðu leikinn áður en æfingunni lauk. Hrafn má fara að vara sig ef hann ætlar að halda markmannsstöðunni. Nei annars ég er svo gráðugur að ég ætla að lauma mér fram eins oft og ég get en það er strax erfiðara ef maður er markmaður.

Jæja en svo eru það veðurfréttir. Geðveikt veður með áframhaldandi geðveiku veðri. Sól úti, stækja inni, afhverju er gefið frí þegar óveður og ófærð gerir manni ókleyft að komast til vinnu, en ekki gefið frí þegar veðrið gerir mann ófærann um vinnu (sökum dagdrauma). Ef þið veljið mig sem einræðisherra, þá ætla ég að breyta frídaga dæminu öllu saman. Engir frídagar þegar það er blautt og kalt úti, allir þeir dagar geymdir þar til veðrið er eins og í dag og þá er bara útvarpað á öllum stöðvum, frí í dag, þeir sem mæta til vinnu verða skotnir og allar gellur sem eru í sundbolum í stað bikini í laugunum eiga á hættu að sundbolurinn verði gerður upptækur á staðnum!

Svo vil ég bæta við að ég varð steinhissa á frænku minni henni Ernu. Hún var ekki búin að segja mér að hún hefði setið nakin fyrir á myndum. Hérna er slóði á myndirnar og myndböndin, en það tekur svolítinn tíma fyrir síðuna að hlaðast inn. Fyrir þá sem eru þreyttir á að bíða má ýta á alt+F4 til að flýta fyrir en ekki er mælt með því.

Pæling dagsins: Mun mjúki maðurinn deyja út af því að hann fær aldrei að ríða? Benni fær heiðurinn af þessari pælingu enda sendi hann mér hana í pósti. Þar sem hann er mjög mjúkur maður þá getur maður ekki annað en velt því fyrir sér hvort þessi pæling sé sprottin úr einhverri gremju hjá honum??? Auk þess óskaði hann nafnleyndar við þessa ábendingu og verð ég við því hér eftir. En bara svo þið vitið það, þá er bara einn Óskar Nafnleyndar á kjörskrá!

1-10 dagsins: Gothic = ains - twai - þreis - fidwor - fimf - saíhs - sibun - ahtau - niun - taíhun

Kvikmyndagetraun dagsins: "Don't you 'shhhh' me. Eighteen years of total silence, and you 'shhhh' me!" þessi mynd er geðbiluð snilld.


Sigurgeir 9:30:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, júní 03, 2002

Karl Óskar Þráinsson var manna fyrstur til að svara síðustu spurningu og það var sérlega gaman núna því ég fékk svo rosalega mörg svör. Það er greinilegt að maður þarf að vera með léttar getraunir svona við og við. En svarið var að sjálfsögðu "Með allt á hreinu"

Orð dagsins hefur eitthvað setið á hakanum hjá mér og ætla ég að redda því hér. Ég mun púsa mig næsta sumar og geri það ekki með pekri enda hef ég fórnað papagaujum mínum fyrir snótina mína. Hjónaband okkar verður ekki allt í pali. Og þá er það komið ;-) Fyrir þá sem skilja þetta ekki skoðið orð dagsins hjá Denna.

Nú er það mont dagsins en ég verð að monta mig aðeins. Ég hef orðið skólameistari í skák * 3, skólameistari í blaki *1.5 (Verkfallið á lokaári mínu í Verzló kom í veg fyrir Back to Back hjá mér), Reykjavíkurmeistari í körfubolta * 2, Íslandsmeistari í körfubolta * 2 og ég veit ekki hvað og hvað. Nýjasta nýtt er að ég er að spila fótbolta með Gozum í utandeildinni í sumar og viti menn, eina markið sem mitt lið skoraði í rétt mark skoraði ég og hvað er þá eftir???? Ég hef ekkert meira að sanna. Ég er bestur og því verður ekki breytt! Takk fyrir mig.

Ég ætla að vera með smá röfl líka og það er....afhverju er Conan O'Brien ekki sýndur hér á landi???? Jay Leno er góður, David Letterman er ágætur en Conan er snillingur og hér er sönnun á því 1 og 2 og 3. Ég vil fá Conan í sjónvarpið strax og það ekki seinna en núna.

Kærastan mín er ekki enn búin að eiga, en hún á að eiga 13. júní, þrátt fyrir að ég sé búinn að spjalla vel og lengi við barnið mitt þá vill það ekki koma út og við bara bíðum og bíðum. Signýju líður samt ágætlega og ég hugsa ýkt vel um hana ;-) enda er hún sætust!

Ó já ég massaði prófið mitt á laugardaginn og fór beint eftir það til þess að skora mark í utandeildinni eins og áður hefur komið fram en eins og skáldið sagði aldrei verður góð saga of oft sögð. Nú þá nótt hafði ég einnig bara sofið í 3 tíma og það rokkar alltaf feitt. Svo var líka gaman að sofa lítið í nótt enda leikur LA og Kings ekki búinn fyrr en klukkan þrjú. Hreinlega stórkostlegur leikur. Aldrei fyrr hefur LA unnið 7. leik á útivelli, aldrei fyrr hefur 7. leikur í úrslitum vesturstrandarinnar farið í framlengingu og heimsmet var sett í að naga neglur en 7 tonn af þeim voru innbyrtar meðan á leiknum stóð. Sauðurinn hann frændi minn Grímur ætlaði svoleiðis að horfa á leikinn en sofnaði undir lok hans enda í jöfnum leikjum mikið um leikhlé og stöff. Ætli hann hefði ekki haldist vakandi ef maður fengi einu sinni close up af klappstýrunum í hléum. En svo fór sem fór og Lakers vann mér til mikillar skemmtunar og fara í úrslitarimmuna gegn Nets en Austurströndin er talin talsvert lélegri og því Lakers sigurstranglegri. Ég spái hins vegar að þetta fari 4-2 fyrir LA því að Jason Kidd er snillingur og það á eftir að skila sér í þessari rimmu. Bibby sem spilar hjá Sacramento og fær RESPECT frá mér því gaurinn var geðveikur í nótt. Ef Sacramento hefði unnið, þá hefði ég haldið með þeim í úrslitunum enda mjög skemmtilegt lið. Leikirnir voru allir spennandi og hrein heppni í bland við gríðarlega reynslu er eina ástæðan fyrir því að þeir unnu og ég held að Sacramento sé ekkert síðra lið. Ef þeir halda sínum mönnum fyrir næsta tímabil, þá held ég að þeir fari alla leið. Mínir menn eru eitthvað að verða leiðir á sigrunum, eða þannig lítur þetta út, þeir gera aldrei meira en þeir þurfa að gera og það er ekki gott og það hlýtur að fara að klikka ef þeir laga ekki hugarfarið (sem ég vona að þeir geri).

Pæling dagsins: Lögmál Murphy's hann sagði að það sem getur farið úrskeiðis fer úrskeiðis. Þetta vitum við öll, ef það er einhver leið á að eitthvað klúðrist, þá gerist nákvæmlega það. En þá er spurningin hvort kettir séu ekki undantekningin sem sannar regluna. Þeir lenda alltaf á fótunum sem ætti að vera jákvætt fyrir köttinn. Þetta með smurt brauð sem lendir alltaf á smjörinu þegar maður missir brauðið er eitthvað sem sannar regluna, en þá erum við í vandræðum með það þegar brauðsneiðin er bundin við bakið á kettinum..... ef við gerum það og hendum kettinum upp í loftið, þá verður hann að lenda á bakinu, annars er Lögmál Murphy's endalega ónýtt og hugsanleg keðjuverkun gæti leitt til kjarnorkustríðs milli Pakistan og Indlands, sem myndi draga Kína snögglega inn í átökin og svo alla hina og allir myndu deyja.....well þá skulum við ekki binda brauðsneið við kött og henda honum upp í loftið.


1-10 dagsins: Icelandic = einn - tveir - þrír - fjórir - fimm - sex - sjö - átta - níu - tíu (það hlaut að koma að því)

Kvikmyndagetraun dagsins: "Yeah ain´t it cool" vísbending.....myndin hefur eitthvað að gera með kjarnorkusprengjur.


Sigurgeir 1:49:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur