Drekinn frá OZ

föstudagur, maí 31, 2002

Það var eins og ég hélt, geðsjúkt að gera í vinnunni. Bara tvennt í dag....Pétur Óli Einarsson sigraði og þetta var úr myndinni "The Saint".

Hitt sem ég geri í dag er að koma með aðra kvikmyndagetraun.

Kvikmyndagetraun dagsins: "Þetta er engin helvítis rúta, þetta er langferðabifreið" kannski hefur þessi komið áður en hún má það alveg ;-)


Sigurgeir 4:23:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, maí 30, 2002

Ójá ein saga sem ég get sagt. En fyrst þarf maður að biðjast afsökunar á því að senda ekki út póst og láta vita með bloggið og að blogga svona seint. En sagan sem ég ætlaði að segja er þannig að ég fór á fæðingardeildina í gær að skoða aðstæður og hver var þar jú það var æskuvinur minn Ólafur Arnar Jónsson var þar og konan með fullar hríðir. Þannig að hann er sennilega orðinn pabbi núna þannig að hann fær mínar hamingjuóskir!!!!


Sigurgeir 6:28:00 PM | 0 comments links to this post |
Airgert Airgert Airgert já hann Eggert Baldvinsson kom fyrstur með svarið og það var "Groundhog Day".

Ég verð ekki með mikið blogg í dag enda vitlaust að gera og sennilega verður það verra á morgun en ég mun samt blogga þá. Ég vil hins vegar koma því á framfæri að í dag voru ég og Björgvin vinur minn lokaðir inni í lítilli kompu, báðir með latex hanska á okkur.....ég veit hvað þið eruð að hugsa en það var ekkert vaselín á staðnum en hins vegar fullt af Etanóli og við skemmtum okkur vel í útfjólubláu ljósi. Fleira var það ekki í dag.

Speki dagsins: "Það er ekkert hommalegt við vísindatilraunir í blóðbankanum!"

1-10 dagsins: Old Icelandic = einn - tueir - þrír - fiórer - fimm - sex - siau - átta - nío - tío

Kvikmyndagetraun dagsins: "The worst part about being you is pretending to be so bad in bed."


Sigurgeir 5:11:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, maí 29, 2002

Og það eru sviptingar í toppsætunum. Signý Björg Sigurjónsdóttir hefur jafnað Sigga en er í fyrsta sæti á stafrófsröð. Svarið var að sjálfsögðu, "So I married an axemurderer" sem er ein besta mynd allra tíma.

Ég tók Berglindi "Icey" Ólafsdóttur í viðtal í gær og hún staðfesti grun minn um að hún hafi átt að tala með íslenskum hreim og þá vitum við það. Svo er það Icey ekki Icy eins og Gleðibankinn. Og svo var viðtalið búið. Flott það ha!!!! Ég mæli með að einhverjir stofni Icey fan club hér á landi og þá getur hún komið reglulega til landsins og haldið fyrirlestra á fjöldasamkomum sem klúbburinn mundi halda.

Nú ætla ég sko að nöldra og það ekki lítið. Ég hef lesið Andrés Önd síðan hann kom á íslensku og þar á undan þýddi pabbi hann fyrir mig úr dönsku og ég verð að segja að Andrésína er mesta helv... drusla sem ég hef kynnst á ævi minni! Hvernig væri að Drési dömpaði þessari belju? Hún er svo mikil tík að ég verð brjálaður í hvert sinn sem ég les sögu um aumingja Andrés og satanísku vampíruna hana Andrésínu. Þetta er alltaf eins, Andrés er einstæður þriggja unga faðir (reyndar frændi en gengur þeim í föðurstað) og stendur sig alveg hreint frábærlega í því verki. Það er leitun að Andrés sögu þar sem ungarnir Ripp, Rapp og Rupp koma ekki við sögu. Allir aðrir skilja ungana sína eftir hægri vinstri. Mikki er sjaldan með Mikk og Makk, Andrésína er sjaldan með stelpunum sínum og það sjaldan að ég man aldrei hvað þær heita. Guffi er nánast aldrei með litla frænda sínum (það á enginn afkvæmi þarna allir fá þau lánuð!!!) og svona er þetta. Andrés er sá eini sem er alltaf með ungunum. Og ekki nóg með það heldur er nánast alltaf hreint heima hjá honum, hann vinnur allan sólarhringinn, ýmist fyrir 10 kr. á klukkutíma hjá Jóakim Aðalönd eða í smjörlíkisgerðinni (undantekningar eru þegar Andrés verður snillingur í einhverju og mistekst að verða ríkur á því). Hver getur sagt það að hann geti alið upp 3 stráka, haldið húsinu hreinu og samt eytt miklum tíma með strákunum????? Þetta er rosalegt afrek. Svo kemur djöfladrottningin hún Andrésína alltaf með eitthvað röfl og vesen. Hún hótar Andrési nánast daglega að fara að deita Hábein frænda hans vitandi það að þeir eru svarnir óvinir.....hvaða helvíti er það? Væri maður búinn að dömpa beljunni. Svo bætir hún við hótanirnar að hann þurfi að vera rómantískur og láta hana líða eins og drottningu eins og vinnan, ungarnir og heimilisstörfin séu ekki nóg þarf hann að sjarmera tíkina. Nú hann þarf að kaupa gjafir og bjóða henni út að borða og ég veit ekki hvað, eitt kvöld með henni fer með 80% af mánaðarlaununum hans og henni er sama þó ungarnir éti ekki nema 4 daga í mánuði, því hún á að fíla sig sem drottningu grmbl"#$&&=)$#(! Nú og svo reynir Andrés eftir fremsta megni og alltaf klúðrast eitthvað enda ekki nema eðlilegt þar sem hann hefur engan tíma til þess að hugsa og plana og þá fer hún í fýlu og fer á deit með Hábeini sem aldrei gerir handtak, ekki einu sinni til að hjálpa litlu frændum sínum t.d. að fá að borða og hann fer með hana ég geðveikt rómantísk stefnumót og fær það alltaf frítt og allt er fullkomið...eða hvað. Hvort er rómantískara, gaur sem reynir og reynir þrátt fyrir að þurfa líka að halda heimili með 3 svanga frændur og það á lúsarlaunum eða gaur sem þarf ekki einu sinni að hugsa eða plana neitt og leggja 1 mínútu í vinnu fyrir deitið með þér?????? Ég held að mygluð samloka í ruslagámi með Andrési sé rómantískara en ferð til Karíbahafsins með Hábeini ef þið spyrjið mig stelpur því að Andrés er örugglega búinn að plana og plana en svo tókst það ekki betur en Hábeinn labbaði inn í búð og var milljónasti viðskiptavinurinn og vann ferðina og hafði ykkur ekki í huga þegar hann fékk ferðina....bara eftir á og það krefst einskis. Jæja nú er ég búinn að blása út og vil stofna klúbb þeirra sem hata Andrésínu og býð mig fram sem formann. Okkar markmið verður að setja pressu á Disney fyrirtækið að annað hvort láta Andrésínu "læknast" því hún er andsetin (hahaha fyndið) og láta hana giftast Andrési og verpa fyrir hann 8 egg og eiga frábæra ævi saman eða að hún stingi af með Hábeini og þau farist í flugslysi og Andrés erfi Jóakim frænda og vaði í sílikonöndum!

Pæling dagsins: Hvað er rómantík?

1-10 dagsins: Faroese = ein - tveir - tríggir - fy'ra - fimm - seks - sjey - átta - níggju - tíggju

Kvikmyndagetraun dagsins: "I was in the Virgin Islands once. I met a girl. We ate lobster and drank pina coladas. At sunset we made love like sea otters. *That* was a pretty good day. Why couldn't I get that day over and over and over..." ég vona að þessi hafi ekki komið áður.....well fuckit það er ekkert sem bannar það ;-)


Sigurgeir 10:33:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, maí 28, 2002

Ja hérna hér, alltaf harðnar baráttan og allir virðast geta unnið. Sigurvegari dagsins er Jóhann Þ. Hilmarsson og svarið var að sjálfsögðu "The Karate Kid". Ég er alveg ótrúlega hissa á því hversu margir giskuðu á vitlaust. Mér finnst besta mál að menn giski þó þeir viti ekki hvað svarið er enda bara gaman að því og allt í góðum fíling en eftir gamla japananum frá Okinawaeyju sem lét Karate Kid bóna bílinn sinn og mála grindverkið og húsið og ég veit ekki hvað og hvað og standa á staur í fjörunni með þetta hommalega spark!!!! Verst þykir mér að Sunna og Jonni giskuðu ekki einu sinni og það segir manni bara að þau kunna ekkert í karate enda eiga allir sem eitthvað geta í karate að kunna þessa mynd utanbókar (utanmyndar). Wax on, Wax off og þessi snilldarhreyfing sem ætlað var að verjast kýlingum. Já gömlu góðu dagarnir. En Jóhann a.k.a. Jói er kominn upp í 10. sæti í deildinni og það er stórt stökk.

Ég var að horfa á Off Centre í gær sem er nýr þáttur á stöð 2 og ansi skemmtilegur. Kærustunnar minnar til mikillar gleði var hún Berglind Ólafsdóttir í þættinum og skemmtum við okkur mjög vel að sjá Íslending í þessum hollywood þáttum. Hún var með svolítinn íslenskan hreim og spurning hvort hún sé að leika súpermódel sem er frá Evrópu eða hvort hún sé ekki alveg búin að þurrka út hreiminn. Ég held að það sé bæði en það er bara kúl, því þá fær hún hlutverk eins og ljóskan í Beverly Hills Cop....æi þessi sem var með Sylvester Stallone. Hún Begga verður að fá sér hlutverk sem austur-evrópskur hryðjuverkamaður og þá slær hún í gegn. En þessi frumraun hennar (ég held að þetta sé frumraun í svona þáttum) gekk bara stóráfallalaust og þegar maður venst því að sjá hana í þessu hlutverki verður hún örugglega mjög góð. Stúlkan er samt orðin alltof grönn og ætti að fá sér sviðakjamma og súrmeti. Hún heldur þó fast í ættjörðina því stage-nafnið hennar er Berglind Icy hehehehe Icy eins og Gleðibankinn. Ja mig minnir að það hafi verið skrifað Icy....kannski Icey. Frábært mál og fyndið, en ég óska henni alls hins besta í bransanum og vona að hún slái í gegn.

Lakers eru snillingar, svakaleg sigurkarfa hjá Robert Horry og serían 2-2. Lakers eru hins vegar alls ekki sannfærandi og hafa ekki verið það í úrslitakeppninni í ár. Þeir virðast ekki hafa sigurviljann og vera bara orðnir of vanir því að vera bestir. Vonandi lemur Phil Jackson þá rækilega fyrir kvöldið því ef þeir fara ekki að vakna þá eru þeir á leiðinni út úr keppninni og ná ekki 3-peat! Ef þeir vinna, þá ætla ég að verða pinnaður (Denni segður mér að hýr sé í merkingunni glaður)!

Pæling dagsins: The song "When Irish Eyes Are Smiling" was written by George Graff, who was German, and was never in Ireland in his life.

1-10 dagsins: Swedish = en - två - tre - fyra - fem - sex - sju - åtta - nio - tio

Kvikmyndagetraun dagsins: "Harriet! Har-ee-et. Hard-hearted harbinger of haggis" Þessi mynd er bara svo góð!!!!!!!!!!!!!!


Sigurgeir 9:32:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, maí 27, 2002

Jæja þá er maður mættur í vinnuna og orðin sæmilega frískur. Nú getur maður tekið bloggið alvarlega. Snorri Örn Arnaldsson er á gríðarlegri siglingu í kvikmyndagetrauninni og er kominn í 6. sætið eftir 3ja sigurinn á stuttum tíma. Svarið var að sjálfsögðu "Road Trip" sem er mynd sem er eiginlega ekki fyndin fyrr en í 3ja skiptið sem maður sér hana.

Ég ætlaði um daginn að rífa kjaft við Kalla vegna þess að hann stal PSII tölvunni minni frá Brynju en nú þori ég því ekki því hann er alræmdur stigamaður og ríður menn uppi ef þeir gera ekki það sem hann vill. Þessar aðfarir hans að saklausum hjólreiðamönnum hræða mig mjög. Ég var á leiðinni heim til mín um daginn frá foreldrum mínum og þá þurfti ég að nauðhemla því brjálaður hestur kom á stökki í veg fyrir bílinn minn og brunaði út í buskann. Hann var með hnakk og alles og því líklegt að hann hafi kastað knapanum af sér. Því datt mér í hug að Kalli væri með hausinn í flór við reiðstíginn og saklaus hjólreiðamaður á fleygiferð að flýja vettfang áður en Kalli næði í haglarann. Þessar hugsanir mínar hafi því fengið mig af því að bölva Kalla fyrir að stela tölvunni og hann sleppur því hér með.

Denni er eitthvað að gamnast í sjálfstæðismönnum og alltaf gaman að því þegar menn taka pólitík svona rosalega alvarlega og sérstaklega þeir sem eru alvarlegastir í þessu, hvað þeir kunna ekki að vinna. Maður sá það á viðtölum við flokksmenn að þeir gátu ekki hætt að tala um afhroð Sjálfstæðismanna og notuðu það orð eins oft og hægt væri. En jú þetta er ekki svo oft sem menn geta látið menn hafa það óþvegið að það er erfitt að halda aftur af sér. Ánægjulegt fannst mér þó að frjálslyndir kæmust inn í stað Helga Hjörvars. Ólafur er eitthvað dúbíus finnst mér en hann er helvíti góður í viðtölum. Sérstaklega fannst mér gaman þegar hann saltaði fréttamann stöðvar 2 og sagði að menn ættu að vera auðmjúkir í sigrinum (R-listamenn mættu læra það....D-listamenn örugglega líka því eitthvað segir mér að hefðu þeir unnið þá hefðu þeir verið jafnslæmir) og að hann liti engan veginn á þetta sem hefnd gagnvart D-listanum. Þetta fannst mér svalt, því oft eru menn að berjast um að láta kjósa sig því hinn er svo ömurlegur en hann var ekki með neitt skítkast út í neinn hvorki þegar hann hélt að hann hefði tapað eða eftir að í ljós kom að hann sigraði. Auðvitað gagnrýndi hann stefnu hinna flokkana en alltaf mjög málefnalega og án skítkasts og segi ég með orðum Ali G. RESPECT!!!!! En ég er Kópavogsbúi núna og þarf því ekki að hafa áhyggjur af þessum málum. Kópavogur er hins vegar í upplausn eða svo hef ég heyrt og þó meirihluti Kópavogsbúa hafi endurkjörið meirihlutann og lýst ánægju sinni þannig að þeir juku báðir fylgið sitt, virðist rödd fólksins enn og aftur verða kveðin í kútinn af framapoturum og er mér sagt að D-Listi sé að fara á bak við B-Lista og semja við S-Listann. Fólk eru svo miklar mellur. Mér finnst þetta kerfi ömurlegt og sérstaklega ríkisstjórnardæmið, þar sem meirihlutinn velur ráðherrana og rödd þeirra sem í minnihluta eru er algerlega kveðinn í kútinn jafnvel þó minnihlutinn sé 49%. Flokkar eiga bara að fá embætti eftir fjölda atkvæða og þá allir flokkar og vinna saman þannig að allar raddir heyrast, ekki þetta helvítis meirihluti minnihluti og allir að vinna gegn hverjum öðrum. Meirihlutinn fær alltaf að níðast á minnihlutanum og þannig verður það bara þar til ég verð einvaldur, það myndi porra landann múhahahahahaha!

Pæling dagsins: "The philosphers have only interpreted the world in various ways. The point, however, is to change it."

1-10 dagsins: Danish = én - to - tre - fire - fem - seks - syv - otte - ni - ti

Kvikmyndagetraun dagsins: "Wax on, wax off" Þessi er svo létt að það er nánast ósanngjarnt en svona er deildin spennandi, allir geta unnið :-D


Sigurgeir 2:40:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, maí 24, 2002

Karl Óskar Þráinsson er sigurvegari dagsins og tekur risastökk upp listann og geri aðrir betur. Svarið var auðvitað "The Fifth Element"

Ég er ennþá veikur og því verður bara talað um eitt hér og það er nýji bílinn hans Kalla. Ég vil líka þakka Dodda (einhver sem ég þekki ekkert) fyrir að nota sama template og ég og vera þolinmóðari en ég. Ég ætla að stela frá þér múhahahahahahahahaha!!!!!!!!!

Kvikmyndagetraun dagsins: "Woa, did you kill a cheetah!?!?" Þessi er lúmsk múhahahahaha


Sigurgeir 10:52:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, maí 23, 2002

Jæja krakkar, ég er ennþá veikur, fór í vinnuna í morgun og eftir klukkutíma var ég rekinn heim af vorkunarástæðum (og sennilega smithættuástæðum). Mér var sagt að koma ekki fyrr en á mánudag og ég held ég geri það bara enda get ég lítið verið við tölvuskjá eins og sést á blogginu mínu undanfarna daga sem er frekar stutt en ég vona að menn fyrirgefi það. Þannig að ég muna bara pípóla í dag og á morgun. Afsakið hvað bloggið kemur seint í dag en ég er veikur c'mon!

Kvikmyndagetraun dagsins verður á sínum stað og er það eina markmiðið mitt í þessu lífi....eða í þessum veikindum. Sigurvegarinn að þessu sinni er Pétur Óli Einarsson og er hann greinilega að stefna á fyrsta heimsmeistaratitil í kvikmyndagetraunardeild Sigurgeirs. Kvikmyndin er að sjálfsögðu "Back to the future" og það fyrsta myndin í seríunni sem er annars algjör snilld. Í dag verður setning sem ég er búinn að vera með á heilanum í allan dag og því grunar mig að ég hafi spurt hana áður en ef svo er þá hafa menn fullan rétt á að leita í archives en ég lofa engu því ég man það ekki sjálfur, en þið gætuð orðið plunkin. En eitt er víst að þvílíkir píkuskrækir hafa ekki heyrst í námunda við þá sem heyrast í þessari mynd og hananú.

Kvikmyndagetraun dagsins: "Welcome to Floston, Paradise!"


Sigurgeir 10:44:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, maí 22, 2002

Sælt veri fólkið. Theódór Narfason vann að þessu sinni og svarið var að sjálfsögðu "The Waterboy". Þessi var einum of létt og allir sem giskuðu voru með rétt svar. Þar með stekkur Teddi úr 12. sæti í það 6. og það er ekkert smá stökk og hann farinn að taka þátt í toppbaráttunni. Pétur Óli átti skot í stöng og hlýtur það að vera sárt því stigin eru nú virkilega farin að telja múhahahaha

Ég er ennþá veikur þannig að fastir liðir eru í einhverjum lamasessi en mér datt í hug pæling dagsins útfrá bonsai kettlingunum og kvikmyndagetraun dagsins er helvíti góð. Ég er samt búinn að uppfæra kvikmyndagetraunartöfluna og ættarskránna mína.

Pæling dagsins: "Ef kettir eru með 9 líf, er þá ekki 9 sinnum dýrara að svæfa þá heldur en t.d. hunda?"

Kvikmyndagetraun dagsins: "Roads!?!? Where we´re going we don´t need any roads." Þessi setning er soddan snilld!

p.s. Finnur frændi var að eignast dóttur sem var 13 merkur og 52 sentimetrar, bara kettlingur í samanburði við boltann sem Signý ætlar að gjóta!!!!!


Sigurgeir 11:44:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, maí 21, 2002

Úff ég er svo veikur, sjáiði bara.

Jamm Pétur Óli vann síðustu getraun og það er allt gott og blessað og taflan er komin með link hérna til hægri.

Ég ætla ekki að blogga neitt að viti enda er ég handónýtur. Ég fór ekki í vinnuna eða neitt.

Ég tek eftir því að síðan mín hefur verið niðri í allan dag þannig að það er spurning hvort nokkur nær að lesa þetta en what the fuck!!!!

Kvikmyndagetraunin verður hins vegar að koma og núna er það þessi....

Kvikmyndagetraun dagsins: "Water sucks, Gatorade is better!"


Sigurgeir 3:42:00 PM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, maí 19, 2002

Pétur Óli Einarsson var með rétt svar í þetta sinn. Svarið var "Born in East L.A." sem er geðveikt fyndin mynd!!! Taflan er komin upp og er linkur í hana undir áhugaverðar síður, hér til hægri. Tékk it!. Þetta er unofficial blogg og þar af leiðandi ekkert bla bla bla frá mér í dag. Mánudagsbloggið fellur niður vegna Hvítrar Sunnu!

Töfluna setti ég ekki beint á forsíðuna vegna þess að ég lenti í basli við að útbúa töflu í sama stíl og þær hér á síðunni, auk þess sem Íslenska stafi þarf að kóða sérstaklega í töflunum hér en ekki á síðunni sem ég setti töfluna á og þar af leiðandi auðveldara fyrir mig að uppfæra hana. En bara í þetta skipti ætla ég að birta hana hérna í blogginu sjálfu.

1. Sigurður Ingi Ævarsson 12
2. Signý Björg Sigurjónsdóttir 11
3. Hrafn Jóhannesson 7
4. Pétur Óli Einarsson 5
5. Bergþór Hauksson 3
6. Andrés Sighvatsson 2
7. Eggert Baldvinsson 2
8. Jóhann Ævar Grímsson 2
9. Snorri Örn Arnaldsson 2
10. Steingrímur Sævarr Ólafsson 2
11. Sunna Birgisdóttir 2
12. Theodór Narfason 2
13. Ásbjörg Kristinsdóttir 1
14. Benjamín Sigursteinsson 1
15. Birkir Björnsson 1
16. Guðmundur Andri Hjálmarsson 1
17. Hrafnkell Helgi Helgason 1
18. Jóhann Þ. Hilmarsson 1
19. Karl Óskar Þráinsson 1
20. Sigurður Grétar Ólafsson 1
21. Sólveig Ósk Óskarsdóttir 1
22. Sveinbjörn Bjarki Jónsson 1
23. Valgeir Ólafsson 1
24. Þór Hauksson 1

Ef þið sjáið augljósa villu í stigagjöfinni, þá megiði send mér þær upplýsingar. Dagsetningarnar sem þið hafið unnið, ég nenni ekki að leita betur. Þessari deild lýkur 30. júní og 1. júlí byrjar nýtt tímabil. Þannig að það eru fullt af stigum í pottinum.

Góða helgi.


Sigurgeir 1:22:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, maí 17, 2002

Löng helgi framundan mar! Það er grúví mar!


Back to back again, nýliðinn í kvikmyndagetraunardeildinni Snorri Örn Arnaldsson kemur sterkur inn með tvo sigra í röð. Svarið í þetta sinnið er "White men can´t jump" og eitthvað finnst mér skrítið hvað ég fékk rosalega mikið af svörum frá körfuboltagúrúum hmmmmmm ætli myndin fjalli um körfubolta? Ef þið vissuð þetta ekki er það vegna þess að mamma þín er geimfari!

Rock og ról, ég er í geðveiku stuði eftir geðveikt erfiða helgi. Ætla að njóta þess að chilla alla helgina. Stússast bara þetta litla sem ég ætla að gera og kannski stelast í smá Civilization III! Hitt Hebba Kóng áðan á leiðinni í skrepputúr. Hann er náttúrulega töffari töffarana í körfuboltanum og hann hreifst mjög af húsnæðinu enda glerkastali dauðans! Hebbi kóngur er by the way ekki Hebbi guð en það er Rokkarinn Herbert en ekki körfuboltagaurinn Herbert en báðir eru snillingar og töffarar......;-)

Ég sá vídeó í gær með myndum af konum að fæða börn á foreldranámskeiðinu sem við Signý erum að fara á og ég verð bara að segja það að liðið í friend eru fökking gungur!!!! Þetta er ekkert viðbjóðslegt þetta var drullukúl og ég er tilbúinn núna, Signý let´s go! Þetta var það svalasta í heimi og svo eru sumir með klígju fyrir svona, sjitt mar farið út að drullumalla smávegis og komist út úr þessu steríla umhverfi sem þið eruð vön. Ég veit reyndar að lyktin og allt það á eitthvað eftir að setja strik í reikninginn en ég er töffari og það líður ekki yfir mig þegar ég sé smá blóð, kúk og legvatn í polli á gólfinu múhahahahahaha, en Signý fær samt að sjá um kúkableyjurnar :-D

Pétur Óli var að benda mér á að fíkniefnasmyglari fékk 10 ára dóm meðan nauðgari, sem ruddist inn á heimili konunnar vitandi það að 8 ára barn hennar var heima og þvingaði hana til samræðis bæði í eldhúsinu og svefnherberginu, fékk 2 ár og einhverja fjársekt upp á tæpar 700 þúsund. Ég nenni samt ekki að röfla yfir þessu, það eru allir sammála að þetta gengur ekki og það eru allir tilbúnir að skrifa undir undirskriftalista en það gerir enginn kröfu á stjórnvöld eða stjórnmálaflokka í framboði að kippa þessu í liðinn. Það nennir enginn að mótmæla niðrí bæ og enginn nennir að gera neitt. Svo verður allt vitlaust aftur þegar þetta gerist og svo aftur og aftur og aftur.....ég nenni ekki að hlusta á þetta röfl. Þegar einhver (ekki ég frekar en næsti maður) nennir að leggja á sig baráttuna og hvetur alla landsmenn í næstu ríkiskosningum til að kjósa ekki neinn flokk sem er ekki með umbætur á þessu efni á sinni stjórnarskrá, þá skal ég fylgja honum! Hver ætlar að taka þetta að sér???? Pant ekki. Dæmið mig ef þið viljið en ég sé ykkur ekkert gera! En mitt álit er að gelding er sanngjörn refsing fyrir kynferðisafbrotamenn og barnaníðinga á að deyða á Ingólfstorgi með 1000 skurðum gerðum með ryðgaðri skeið!!!!! Þá verður pípulrás niður í bæ á aftökudögum og verslun blómstrar í miðbænum.

Pæling dagsins: "Er fullur tölvudiskur þyngri en tómur?"

1-10 dagsins: Norwegian = en (Ny. ein) - to - tre - fire - fem - seks - sju - åtte - ni - ti

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hey I knew you weren´t a natural redhead" vísbending latino bifvélavirki segir þetta við megabeib. Munið ég er að telja stigin og taflan kemur upp á mánudag.


Sigurgeir 1:15:00 PM | 0 comments links to this post |
Vá það fökkaðist allt upp. Ein setning sem var "löng helgi framundan!" fökkaði blogginu mínu upp þannig að ég hélt að allt ætlaði að hrynja. Ég skrifaði það allt með hástöfum og hvern staf svona 20 sinnum þannig að editorinn koxaði á þessu og maður verður bara að taka því. en hér eftir eru nokkrir pistlar sem meika ekkert sens enda var ég að reyna að laga bloggið og það tóks að lokum.


Sigurgeir 1:09:00 PM | 0 comments links to this post |
ssss


Sigurgeir 11:36:00 AM | 0 comments links to this post |
Gleðilega Hvítasunnu!!!!

frábært, nú fökkaðist síðan mín upp eins og hjá Pelle Sigurvegara!!!!!!!!!! Siggi hvernig lagaðirðu þetta?


Sigurgeir 11:11:00 AM | 0 comments links to this post |
q


Sigurgeir 11:06:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, maí 16, 2002

Jæja það er þá official.....nýr sigurvegari krýndur í dag. Snorri Örn Arnaldsson er mættur og kominn á lista. Hann kom með rétt svar við getraun gærdagsins. Svarið var "The English Patient". Ég eyddi gærdeginum....ja ég var rosalega busy í gær. Vinna til hálfsex, skóli til hálfátta og tónleikar til hálftíu og partý til hálf tólf. Þannig að mér tókst ekki að setja upp töfluna sem allir bíða svo spenntir eftir. Ég náði þó að telja stigin og mun pjalaka við að setja upp töflu um helgina með sigurvegurum í kvikmyndagetrauninni og stigum þeirra og reglum keppninnar. Stigagjöf verður til að byrja með 1 stig á hvern sigur, þar til deildarkeppninni lýkur en ég er ekki búinn að ákveða dagsetningu. Þetta geri ég því ég man ekkert hver var í öðru og þriðja sæti keppninnar hvert sinn. Svo þegar deildinni lýkur byrjar strax næsta "season" og þá geta menn tekið við sér sem voru í fallbaráttunni, ég er líka að spá í að hafa þá 1. og 2. deild og hafa baráttu í þessu enda 24 búnir að sigra a.m.k. einu sinni og sá sem oftast hefur unnið hefur unnið ansi oft...hehehehe segi ekkert fyrr en um helgina. Alla vega mánudagsmorgun verður fullur af nýjum fídusum hérna á blogginu mínu og keppnin orðin professional. Já ég gleymdi næstum einu.....þegar að deildarkeppnin "season 2" byrjar þá verður að líkum gefið 3 stig fyrir sigur, 2 fyrir annað sætið og 1 stig fyrir 3ja enda flestir á því að þetta eigi að vera svoleiðis og margir spenntir fyrir nýja fyrirkomulaginu sem er mjög skemmtilegt.

Tónleikarnir í gær. Fjóla Dögg Sverrisdóttir var að halda kennaraprófstónleika (held ég hafi þetta rétt núna) og stóð sig með prýði miðið við að þurfa að blása á fullu í málmstykki í 2 tíma í 300 gráðum á celsíus. Já það var fokking heitt í salnum í gær og fólk bara komið á nærfötin undir lokin. En þetta var grúví og ég er fullur af menningu í dag.

Þetta er orðið ágætt blogg hjá mér í dag, ég ætla að eyða deginum í að læra á Visio og svo ætla ég að læra javascript um helgina vúha!!!

Pæling dagsins: Hún er frá félaga mínum honum Snorra komin (sigurvegari dagsins mar) en hann sendi mér í gær nokkra góða sem ég var reyndar búinn að sjá einhvers staðar en týna því aftur og alltaf stóð til að birta þessar skemmtilegu pælingar hér á blogginu. Here goes! "Ef brauðsneið sem smurð er á annari hliðinni en ekki hinni lendir alltaf á smurðu hliðinni þegar henni er kastað upp í loftið og látin lenda á gólfinu og ef kettir lenda alltaf á fótunum ef þeim er grýtt í loftið og látnir lenda á gólfinu, hvað gerist þá ef brauðsneiðin er fest með smjörhliðina upp á bakið á kettinum og þeim kastað saman upp í loftið?" Áhugaverð pæling og fékk mig til að pæla í því hvað gerist ef ég smyr báðar hliðarnar á brauðinu????? Ég ætla að gera tilraunir um helgina og setja niðurstöður hérna á bloggið. Ég held að brauðið lendi upp á rönd.

1-10 dagsins: Old Norse = einn - tveir - thrír - fjórir - fimm - sex - sjau - átta - níu - tíu

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm going to my car, get my other gun and shoot everybodies ass!" Þessi setning er þvílík snilld að þessi mynd hefði getað verið hundleiðinleg sænsk/finnst þunglyndis og sjálfsmorðsíhugunarmynd og samt verið góð bara út af þessari setningu. En myndin var öll góð og alger snilld.


Sigurgeir 11:09:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, maí 15, 2002

Back to Back baby, nú þarf ég að fara að telja og setja upp töflu með stigahæstu einstaklingum í kvikmyndagetrauninni. Það kemur bráðum ásamt mynd af gaurnum sem getur sleikt á sér olnbogann. En það var back to back núna því Pétur Óli Einarsson stal sigrinum aftur með naumum yfirburðum upp á örfáar mínútur. Þetta segir manni að það er aldrei of seint að pósta því svörin fóru ekki að berast inn í gær fyrr en seint um kvöldið. Þannig að ef svarið virðist auðvelt er um að gera að vera með því ef allir hugsa: "Æi það er einhver búinn að svara þessu, þetta er svo létt" þá náttúrulega vinnur enginn ;-). Svarið var hins vegar stórmyndin "Blade".

Já ég er að pæla í því að setja upp töflu fyrir deildarkeppnina í kvikmyndagetraun dagsins. Hvað segja menn, á að gefa eitt stig fyrir að vinna eða á að gefa 3 fyrir að vinna, 2 fyrir að vera númer 2 og 1 fyrir að vera númer 3?

Svo ætla ég að fara að kíkja á pláneturnar í kvöld, er búinn að steingleyma því. Þær eru víst ansi margar í einni þyrpingu á himninum. Best að nota sjónaukana sem maður fékk í fermingargjöf.

Svo voru sólgleraugun mín myrt í gær og er ég að reyna að endurnýja þau með einhverju plotti.

Bjarki er með persónuárásir á mig!!!!! Linkurinn á mína síðu heitir Big Foot sem er ekki satt ég nota skó númer 45, bigfoot er örugglega yfir 50 ef ekki 60 ef ekki 70 etc. Svo er ég bara settur á bekkinn fyrir að missa af einni æfingu! Ég er brjálaður, er að spá í að rifta samningnum við KGB og taka tilboðinu frá Bocca Juniors! eða var það Boccia Juniors.....

Svo ætlaði ég að bæta við lyftupistilinn í gær, ég var á núlltu hæð og ýtti á takkann fyrir 5 hæð og svo leit ég beint upp (en þar er líka gler) og ímyndaði mér að ég væri að detta í slow motion og það var ýkt kúl múha!

Pæling dagsins: "Sigurgeir geðveikur eða snillingur?"

Nú fer stuðið að byrja í 1-10 dagsins því nú koma norðurlandamálin.
1-10 dagsins: Runic = æinn - tvæiR - þri:R - fiu:riR - fæ:m - sæx - siu: - a:tta - ni:u - ti:u

Kvikmyndagetraun dagsins: "In Italy, there's always chickens, but no eggs. In Africa there's eggs, but never chickens. Who separated them?" Þessi mynd er annað hvort góð eða hræðileg...ekkert þar á milli í almenningsálitinu. Mér finnst hún hins vegar góð enda held ég að það skipti miklu máli hvernig maður nálgast hana. Veit ekki hvort nokkur muni þessa setningu sem er helvíti fyndin í annars ófyndinni mynd en ég mun þá bara vera með vísbendingu í kvöld. Giskarar fá samkvæmt nýrri reglu smá aukahint byggt á svari þeirra....svona heitur kaldur dæmi.


Sigurgeir 10:32:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, maí 14, 2002

Sigurvegarinn í dag er Pétur Óli Einarsson og svarið var "Blast from the past" og er sú mynd alltaf fyndnari í hvert skipti sem maður horfir á hana. Til hamingju Pétur! Þú varst ekki að pjaskast með þetta.

Nú ég verð að segja það að lyfturnar hérna í vinnunni eru stórskemmtilegar. Þetta eru svona glerbúr og fara upp og niður eins og flestar lyftur gera. Þær eru tvær hérna og ég sem tölvugúru hef notað tækifærið og pælt í kerfinu sem þessar lyftur fylgja og það er stórsniðugt. Flestir myndu halda að lyfta kæmi bara þegar maður biður um hana og búið, ekkert fleira merkilegt í því. En nei ef maður hugsar aðeins sér maður að svo er ekki. T.d. er bara einn takki til að biðja um lyftu og gildir hann fyrir báðar lyfturnar og þá fattar maður strax fyrsta fídusinn. Sú lyfta sem nær er kemur en hin bíður. Óþarfi er að senda báðar lyfturnar t.d. niður á neðstu hæð og svo vill einhver fá lyftu á efstu hæð og þarf að bíða óralengi eftir lyftu. Svo er önnur snilld, sem mér finnst merkilegust, en það er að þegar einhver hefur tekið lyftu t.d. á 3ju hæð og ég bið um lyftu á neðstu hæð og fæ hina lyftuna. Svo ýti ég á takkann fyrir 3ju hæð þá fer ekki einungis mín lyfta upp á 3ju hæð heldur fer hin lyftan niður, til að þær séu ekki báðar á sömu hæð. Þetta styttir líka biðtímann eftir lyftu. Bara vildi deila þessu með ykkur.

Pæling dagsins: "Grunnhyggni er eitthvað sem stelpur ásaka stráka oft um. Skoðum aðeins dæmi.... Strákur horfir á eftir sexý stelpu, aðrar stelpur taka eftir því og skamma hann fyrir að vera grunnhygginn og segja að stelpan sé drusla, heimsk og ekkert nema útlitið (eins og það sé ekki það sem við erum að leita að). Við eigum semsagt ekki að taka eftir útlitinu heldur hinni innri manneskju. En svona veljum við maka og stelpur líka þó þær viðurkenni það ekki. En nú kemur að rúsínunni í pylsuendanum. Þegar strákur og stelpa eru búin að vera saman í svolítinn tíma og stelpan tekur t.d. upp á því að klippa sig öðruvísi eða kaupir nýja peysu og strákurinn tekur ekki eftir því. Þá er hann skammaður fyrir að taka ekki eftir öllu því sem hún gerir fyrir útlitið sitt. Hver er núna grunnhygginn??? Svarið mitt til ykkar stelpur....eftir að við erum búnir að vera með ykkur í einhvern tíma, þá hættir útlitið að skipta máli og við föllum fyrir persónunni, því svara ég.... ég sé bara þig og þú ert falleg. Ég sé ekki peysuna eða hárin ég sé þig....persónuna þína. Maður fellur ekki fyrir manneskju sem er með ljóta persónu, lærið þetta og lífið verður miklu dýpra og skemmtilegra."

1-10 dagsins: Old High German = ein - zwâ - drî - fior - fimf - sehs - sibun - ahto - niun - zehan

Kvikmyndagetraun dagsins: "You better wake up. The world you live in is nothing but a sugarcoated topping! There is another world beneath it. And if you want to survive it you better learn how to PULL THE TRIGGER!"


Sigurgeir 2:26:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, maí 13, 2002

Nýr sigurvegari takk fyrir svarið var að sjálfsögðu Highlander fyrsta myndin í seríu sem fór bara niður á við en þessi mynd er alger snilld. Sigurvegarinn er svo enginn annar en snillingurinn sjálfur, þúsundþjalasmiðurinn, tölvugúrúinn og sjálfstæði atvinnurekandinn Valgeir Ólafsson veiiiiiiiiiiiiiiii!!!! Klapp klapp klapp.

Ég hef ekki mikið að segja núna annað en að það er frábært að Kalli sé aftur byrjaður aftur (aftur er tvisvar sinnum þarna af ásetningi, því hann hefur áður tekið pásur frá bloggi) og þessi líka snilldarsaga hjá honum á föstudag. Ég verð busy þessa vikuna, fer í skólann á eftir og kem ekki heim fyrr en um átta og svo á morgun er það foreldranámskeið og svo á miðvikudag er skóli og burtfarartónleikar (eða útskriftartónleikar eða hvað þetta nú heitir) hjá Fjólu og svo aftur foreldranámskeið á fimmtudag. Svo er utandeildin að byrja í vikunni og ég ætla mér að vera Njáll Quinn deildarinnar takk fyrir. Eitt sem ég vil benda á og það er að flugvellir eru snilld í Civ III ég var að spila í gær og maður hefur verið að rembast við að nota transports til að færa hermenn heimsálfa á milli og það tekur óratíma, ég fór þá í að byggja flugvöll í landinu sem ég var að framleiða hermenn og annan flugvöll í landinu þar sem ég hafði náð fótfestu í einni borg og var í brjáluðum stríðsrekstri. Svo notar maður bara airlift og prestó herinn er mættur á staðinn og það í einni umferð í stað 12 ef maður er að fara hinum meginn á hnöttinn.

Signý að leggja bíl!
Fyrstu jól Sigurgeirs!
Sigurgeir í fjallaferð!
Signý í sólbaði!
Sigurgeir að æfa sig fyrir utandeildina!

Pirr????

Speki dagsins: "Love is an irresistible desire to be irresistibly desired."

1-10 dagsins: Middle High German = ein - zwe:ne - dri:e - vier - fünf - sëhs - siben - ahte - niun - zëhen

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hi, I'm sorry, but could you help me? I seem to have lost my congressional medal of honor here somewhere." Þetta er ein besta pickup lína ever!


Sigurgeir 10:43:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, maí 10, 2002

SIGNÝ BJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR skaut öðrum ref fyrir rass enda mjög foxý! Hún var með rétt svar en einungis nokkrum mínútum á undan næstu mönnum og því var keppnin mjög spennandi að þessu sinni. Svarið var að sjálfsögðu "Joe Dirt" sem er snilldarmynd.

Bloggið ennþá styttra í dag en síðast sökum föstudags. Nytjastefnan er hugtak dagsins. Ali G. lagði fyrir snobbhæsn þá spurningu hvort þeir myndu éta kjúkling ef hótað væri að drepa annan kjúkling er þeir gerðu það ekki. Svo var Ally McBeal með sömu spurningu en þar var spurningin um hvort væri í lagi að skera hjartað úr dæmdum morðingja til að græða það í líkama ungrar stúlku sem átti annars 6 vikur ólifaðar. Afar fróðlegt að fá þetta svona í tveimur þáttum á sama kvöldi. Þetta verður því efni í pælingu dagsins.

Pæling dagsins: Ef maður miðar byssu á höfuðið á barni og við hlið hans stendur maður með vélbyssu og miðar henni að 50 gamalmennum. Þú ert spurð/ur hvort á að hlífa barninu eða gamlingjunum? Hverju svararðu? Bara fyrir kjánana þá vil ég taka fram að í þessu dæmi er barnið 5 ára og fullkomnlega heilbrigt og ekki er hægt að svara ég vil hlífa bæði barninu og gamalmennunum. Hugleiðið þetta aðeins, þetta er erfiðara en margir halda....eða auðveldara ;-)

1-10 dagsins: Yiddish = eyns - tsvey - dray - fir - finef - zeks - zibn - akht - nayn - tsen

Kvikmyndagetraun dagsins: "My name is Connor MacLeod from the Clan MacLeod" auðveld fyrir helgina. Drekkið stíft og stútið heilasellum!


Sigurgeir 12:34:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, maí 08, 2002

O.K. það er fjör já það er fjör hjá mér. Eða þannig, fullt að gera en staðreyndin er sú að Pétur Óli Einarsson hinn mikli karlmaður og skeflir í skautum kvenna kom með rétt svar og það er Wayne's World 2. Mig langaði að vera með setninguna "If you book them, they will come" en það hefði verið dead give away!

Bloggið í gær var svo langt að ég ætla að hafa þetta stutt í dag og vera í fríi á morgun, ég ætla bara að vera með oggulítinn pistil fyrir utan fasta liði eins og venjulega. Þannig er að ég var eitt sinn að keyra úr Garðabæ eftir að hafa skutlað vini mínum heim eftir gott djamm. Ég var einn í bílnum og klukkan var orðin ansi margt en ég enn í stuði á heimleið, þannig að ég skemmti mér aðeins á nokkrum hringtorgum bæjarins og fór nokkra aukahringi á góðum farti. Helvíti gaman og ég mæli með því. Alla vega, þegar ég er kominn langleiðina í Kópavog verð ég var við blikkljós fyrir aftan mig og það er bara fokking lögga að stoppa mig....MIG!!!!! Alltaf eru þeir að níðast á mér. Ég sem geri aldrei neitt. Nema hvað löggan kemur labbandi með þessu "égermiklubetrienþúaumingi"-göngulagi og ég skrúfa niður rúðuna (fyrir tíma, gemsa og rafdrifinna rúða, alla vega hjá mér). Löggan segir svo af sinni alkunnu snilld "Heyrðu góði, varst þú með einhverja glennu á hringtorginu í Garðabænum núna rétt áðan?". Ég varð að hafa mig allan við að springa ekki úr hlátri því þetta var alhallærislegasta setning sem leðurtöffari gat út úr sér látið með þessum alkunna fyrirlitningartón sem löggan er þekkt fyrir. Ég vissi ekki hvort hann var að spyrja mig út í eitthvað par sem var að eðla sig á hringtorgi þar í bæ eða hvort hann var að meina aukahringina mína. En þar sem hann var einn og þetta varð orð á móti orði sagði ég, ekki í anda sörvævör, "Nei alls ekki herra lögregluþjónn" (o.k. ekki alveg orðrétt en þið hlóguð samt). Löggimann var ekki ánægður með að ég viðurkenndi ekki "glennuna" mína. Eftir smá riflildi og leiðindi, sleppti hann mér með enn einni helvítis áminningunni sem ég hef fengið um ævina. Fyndið hvað menn nenna að eltast við eitthvað rugl, klukkan fimm um nótt á aðfaranótt sunnudags eru engin börn á ferli og nánast ekkert fólk, og alls ekkert fólk sem þarf að stytta sér leið yfir hringtorg og var því einhverri hættu út af mér. Á meðan löggimann var að tuða í mér að það sé ekkert sniðugt að fara 5 aukahringi á hringtorgi, jafnvel þó að maður sé að blasta Metallica í græjunum, þá var örugglega verið að buffa einhvern gaur niðri í bæ og nauðga stelpu í partýi. En það er gott að löggan er að passa hringtorg um miðjar nætur, mér líður betur að vita það. Og orðaforðinn þeirra er æðislegur, ég vissi ekki hvað glenna þýddi fyrr en hún varð orð dagsins hjá Denna. Hélt að þetta þýddi lauslát stelpa?!?!?!? Gummi vinur minn hefur verið ásakaður um margt en eitt veit ég að hann er ekki lauslát stelpa.

Pæling dagsins: Klassík "Ef tré fellur í miðjum skógi og enginn er til að heyra það, verður þá samt til hljóð?"

1-10 dagsins: Swiss German = eis - zwei - drüü - vier - foif - sächs - siebë - acht - nüün - zäh

Kvikmyndagetraun dagsins: "I'm your sister, I'm your sister!" smá vísbending með þessu. Gaurinn er að negla gellu sem hann hélt að væri systir sín, svo þegar hann komst að því að hún væri ekki systir hans, þá náði hann honum ekki upp fyrr en hún fór að kalla þetta. Þetta er alltof auðvelt!


Sigurgeir 2:28:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, maí 07, 2002

Já eftir mikið fyllerí og þú vaknar við hliðina á naktri manneskju af hinu kyninu. Sú manneskja er svo ljót að þú vilt frekar naga af þér handlegginn sem manneskjan liggur á frekar en að reyna að draga handlegginn undan manneskjunni og hætta á að manneskjan vakni (sjitt hvað það er mikið vesen að vera kynlaus ;-). Svarið er "Coyote Ugly" og Signý Björg Sigurjónsdóttir svaraði þessu rétt. Ég skil hvers vegna fæstir svöruðu rétt án vísbendingar, en þegar vísbendingin kom, þá fóru réttu svörin að drullast inn. Mér finnst hins vegar sorglegt, hvað fækkað hefur í þátttakendum. En flestir eru það skólakrakkar sem eru á fullu í verkefnum og próflestri, þannig að ég fyrirgef þetta. Menn mega samt gefa sér tíma í þetta, slaka aðeins á heilanum í lágmenningarpælingum. En alla vega, þessi setning segir John Goodman við fúlan ökumann sem er að reyna að komast í gegnum veghlið, þar sem rukkað er fyrir að keyra á veginum (svipað og Hvalfjarðargöngin).

Nú langar mig aðeins að ræða um muninn á körlum og konum. Hafiði tekið eftir því strákar, hvað konur kunna ekki basic atriðin við að fara út úr húsi? Regla númer eitt tvö og þrjú, að fara í skóna og í yfirhöfn á alltaf ALLTAF að vera það síðasta sem gert er áður en farið er út úr húsi. Þegar maður fer í skóna og yfirhöfnina, á maður að vera búinn að öllu sem þarf að gera áður en farið er. Ég hef margoft orðið vitni af þessari villu hjá stelpum. Þær segjast vera tilbúnar og klæða sig í skóna og yfirhöfn en þá á eftir að finna lyklana, taka gemsan úr hleðslutækinu og setja hann í veskið sem finnst ekki, pússa skóna, finna trefilinn, setja í þvottavél, taka úr þvottavél, stilla videóið (eitthvað sem strákurinn fær oftast að gera), pakka inn gjöfinni, skrifa kortið, taka til vínið, finna vettlinga og eyrnaskjól, bursta hárið, mála sig, pissa(hvaða helvíti er það????), ná sér í vatnsflösku úr ísskápnum(hvaða helvítis helvíti er það????) og svo má lengi telja. Samt halda þær því fram að þær séu tilbúnar þegar þær eru að reima á sig skóna. Nú og svo þegar farið er út, þá þarf að ná í a.m.k. 12 hluti í bílinn þeirra áður en þær geta farið í bílinn okkar. Svo þarf að koma við hjá vinkonu eða mömmu þeirra til að sækja eitthvað nauðsynlegt eða skila einhverju af sér. Svo borgum við allt á deitinu og skilum þeim heim. Hvað gera þær við alla þessa hluti sem þær þurfa nauðsynlega að taka með sér???? og hvaða hlutir eru þetta???? og hvernig virkar tímaskyn þeirra???? Ég hef alltaf haldið því fram að kvenfólk sé svo áhugavert vegna þess að það er algerlega óskiljanlegt. Ef við skildum stelpur myndum við ekki hafa áhuga á þeim. Því held ég að þær viti þetta og geri alls kyns hluti eins og ég hef verið að telja upp hér að ofan (og elskurnar mínar, listinn er óendanlegur) bara til þess að rugla okkur í ríminu og til þess að láta okkur halda þessum skrítna áhuga á þeim. Nú eru kannski margir að brosa og hugsa með sér "oh Sigurgeir, er Signý að pirra þig?". En svarið er nei alls ekki, ég á það til að röfla um hluti upp úr þurru og ekki þarf neinn pirring til að koma mér af stað. Hins vegar er ég með góða sögu frá gærkvöldinu. Ég ætlaði að slappa af í gær og safna kröftum fyrir próflestur sem ég þarf að leggja á mig næstu daga. Nema hvað Signý gargar allt í einu á mig úr eldhúsinu og þar sem að þetta er ekki svo óalgengt þá er ég ekkert að flýta mér að athuga hvað sé í gangi en drullast samt fljótlega til hennar. Þá er eins og slökkviliðið hafi sprautað froðu á uppþvottavélina (eða að uppþvottavélin hafi bara gubbað út úr sér froðu, fannst hitt samt fyndnara). Eldhúsið var eins og fallegt freyðibað og gaman gaman. Signý hafði náð að slökkva á helvítis uppþvottavélinni og var að þurrka upp froðuna og ég náði í nokkur viska stykki í viðbót og fór að hjálpa til. Þá stóð þessi elska upp og hljóp fram og náði í handklæði og þá fór þetta að ganga. Nú þegar við vorum búin að þurrka upp freyðibaðið þá fór ég að skoða uppþvottavélina og finna eitthvað að henni, og skoðaði allar þéttingar og hvort hurðin væri skökk og gat með engu móti fundið neitt að vélinni. Ég náði þó að laga hana til hálfs, því hún hafði lekið báðum megin við hurðina en nú lak bara vinstra megin og aftur þurftum við að þurrka og þegar það var að vera búið, þá fór ég að pæla í hvað gæti verið að núna og þá heyrist í Signýju: "Ja þetta er ágætt, við þurftum að skúra. Sigurgeir, geturðu náð blettinum þarna?", ég er náttúrulega karlmaður og get bara hugsað um einn hlut í einu fór alveg í keng í hugsunum mínum um uppþvottavélina og hvað væri að að þegar hún fer að tala um skúringar veit ég ekki hvað snýr upp og hvað niður. Ég náði þó fljótlega áttum, en þarna sjáum við greinilega mun á körlum og konum. Við getum ekki tengt bilaða uppþvottavél við skúringar. En þetta er eðlileg ályktun hjá þeim á öllum fyrirliggjandi forsendum. Við hins vegar sjáum ekkert nema bilaða uppþvottavél og vitum að skúringar laga þær ekki. En ég náði áttum aftur og ákvað að hringja í pabba. Hann er menntaður rakari og auðvitað eðlilegt að hann viti allt um raka og afleiðingar hans. Pabbi skutlaðist bara til mín, strauk eftir einni þéttingunni og setti vélina af stað og þá var hún komin í lag????????? Greinilegt að rakari getur lagað allt sem lekur og er rakt. En nú virkar vélin og ég hef ekki hugmynd um afhverju. Við karlmenn þurfum samt einhverjar skýringar og þar sem þetta var að megninu til froða sem lak út var að sjálfsögðu rökrætt ályktun að þvottaduftspillan hafi verið gölluð og freytt alltof mikið. Ég setti nýja pillu í og setti á lengsta kerfið og allt gekk vel og allt er þurrt eftir að rakarinn fór.

Pæling dagsins: "Ef ég er alki og pabbi líka, er ég þá skárri, því hann er rakari?"

1-10 dagins: Luxembourgeois = eent - zwee - dräi - véier - fënnef - sechs - siwen - aacht - néng - zéng Tileinkað Þórunni og Agli Egilsbörnum!?!?!?

Kvikmyndagetraun dagsins: "The weird naked indian told me!"


Sigurgeir 11:40:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, maí 06, 2002

Vísbending, þessi mynd hefur eitthvað með það að gera að naga af sér handlegginn frekar en að vekja......


Sigurgeir 9:04:00 PM | 0 comments links to this post |
Sigurvegarinn í dag er engin önnur en Signý Björg Sigurjónsdóttir. Svarið var hin frábæra mynd "American Pie" ég er hissa á að fleiri hafi ekki vitað svarið en þeir fáu sem svöruðu. Þetta gerist í atriðinu þegar Nadia er að láta aðalhetjuna (hvað hann heitir aftur) strippa. Þá eru allir að horfa á á netinu og einn áhorfenda syngur þetta svo glæsilega. Sami gaur og segir "Hey, that guy is in my trig class".

Denni Denni Denni Denni....."...þeir sem ekki komast á listann mega ekki vera sárir, maður getur ekki talað um alla, ekki frekar en allir stjórnmálamenn komast í Áramótaskaupið." Við erum báðir gáfumenn og við vitum báðir að svona disclaimer er settur inn svo að lúðarnir geti ekki röflað þegar maður nennir ekki að röfla um þá. En ég ætla ekki að snópa í fortíðinni og ætla að fyrirgefa þér þetta enda er ég sannkristinn maður og elska óvin minn eins og KEA (úr gömlu skaupi).

Ég setti inn smá ættartal á síðuna, það er linkur hérna til hægri sem vísar á það, geriði svo vel að hnýsast ;-)

Lakers spiluðu herfilega í gær en unnu samt og verð ég að segja að það var ánægjulegt að þeir unnu en stressandi að sjá að bæði Shaq og Kobe meiddust í leiknum. Spurning hvort þeir komist í gegnum úrslitakeppnina heilir og nái að hala inn 3ja titlinum í röð. Lakers eru núna búnir að vinna 20 af síðustu 21 leikjum í úrslitakeppninni. Þetta er að sjálfsögðu met og þetta lið er best í heimi. Ég horfði á leikinn í gærkvöldi með Jóni Hamri og Jason Harden. Það var ágætt stuð.

Signý hélt upp á afmælið sitt á Föstudag og það mætti múgur og margmenni og þau átu allar kökurnar!!!! djö... helv... ansk.... allt búið, ekkert eftir fyrir mig til að kjamsa á.

OZ er flutt yfir í link og þá hlýtur að vera haldið teiti á næstunni og mér boðið, mér var reyndar boðið á föstudag en þá þurfti Signý að eiga afmæli, þannig að ég treysti á OZ að halda annað teiti handa mér. Guðjón var líka búinn að lofa mér því múha!!!!!

Eitthvað hefur verið kvartað undan klámfengnum bröndurum og viðbjóðslegum graftarsögum. Hvað get ég sagt, þetta er blogg þar sem allt er látið flakka. Lesið á eigin ábyrgð. Nefið mitt er orðið nokkuð gott núna og allar kreistingar hafa borið tilætlaðan árangur. Takk fyrir hjálpina Signý hjúkka!

Ég hef það fyrir reglu núna að kópera allan texta sem ég pikka hingaði inn, áður en ég ýti á Post & Publish takkann. Signý var búin að skrifa geðveikt langt blogg á laugardag þegar allt datt út þegar hún ýtti á Post & Publish. Ég hef sjálfur lent í þessu nokkrum sinnum. Maður nennir svo varla að pikka allt inn aftur. En núna er ég búinn að kópera allan textan áður en ég ýti á Post & Publish.

1-10 dagsins: Rheinfränkisch = ääns - zwei - drej - vir - fennef - sechs - siwe - acht - nin - zeen

Speki dagsins: "The tragedy of life doesn't lie in not reaching your goal. The tragedy lies in having no goal to reach."

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hey, do I come to your office and honk?" Þetta er úr mynd sem olli mér miklum vonbrigðum. Átti að vera sexý og flott en var frekar lítið sexý og alger stelpumynd í raun og veru.


Sigurgeir 11:28:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, maí 03, 2002

Jæja krakkar eruði ekki bara hress? Sigurvegarinn í dag er stúlka ein, fögur með afbrigðum og sexý en hún svaraði spurningunni rétt en svarið er "Shakespeare in Love" og það var hún "Pétur Óli Einarsson" sem kom með svarið á 9 nanósekúndum. Hún bað um nafnleynd og því verð ég við héðan í frá.

Ég er loksins búinn að fá einkunnirnar mínar úr prófunum sem ég tók fyrir nokkrum vikum. Í heildina litið er ég sáttur, fékk hærra en ég átti von á í tveimur fögum en mun lægra í einu en meðaltalið er ásættanlegt. Gef ekkert nánar upp.

Denni er enn ekki búinn að biðjast afsökunar og er ég mjög líklegur til að breyta linknum hans í Daníel Ískaríot ef ég man eftir því í lok þessa pistils.

Hrafn er ekki dáinn, hann mætti á fótboltaæfingu á þriðjudag en hann er sennilega sambandslaus við umheiminn, því hann bloggar ekkert. Hann er því dottinn út úr bloggfjölskyldunni og kemst ekki inn í hana fyrr en hann byrjar að blogga aftur.

Kalli fær geðveikt hrós fyrir að vakna og ég bíð spenntur eftir því að sjá hvort hann drullist til að blogga í dag. Annars skil ég hann vel, gaurinn býr með köttum og ríður....hestum og verslar með hreinlætisvörur. Hvað í ósköpunum getur hann bloggað um?????

Hallarbylting í OZ já segi það og skrifa það. Það er komin ný FunnyCommittee í OZ og það án þess að ég hafi haft nokkuð að segja um arftaka mína. Þeir eru allir yndælismenn en ég kalla þetta byltinu. Hasta la victoria siempre! Fór út að borða með þessu pakki og pakkinu sem ég var með í FC, s.s. gamla og nýja FC. Þokkalega fjörugur hópur en það vantaði mjög mikið að vín væru undir höndum. Í staðinn voru menn bara sveittir undir höndum enda geðsjúkt veður. Sólin ætlaði allt að drepa og er örugglega að hefna sín fyrir orð mín hérna um daginn. Ég skal bara segja þér Sól að það þarf meira en þetta til að ég breyti um skoðun. T.d. 25 stiga meðalhita 6 mánuði á ári frá maí til október að báðum mánuðum meðtöldum.

Nefið mitt verður í umræðunni í dag en fyrir nokkrum dögum lenti það í sýklahernaði og stækkaði vinstri helmingur þess tvöfalt. Þannig að ég var eins og fáviti í framan (ég veit hvað þú ert að hugsa Benni og ef þú segir það, þá set ég olnbogamyndina hérna á vefinn!). Nú ég þjáðist í nokkra daga þar til ástinni minni tókst með töfrafingrum sínum að sprengja sér leið að örveirunum og kreista þær út. Nú höfum við undanfarna 2-3 daga mjólkað á mér nefið á kvöldin og fengið nóg út á seríósið á morgnanna. Það er merkilegt hversu helvíti mikið getur leynst í einum nebba. En þetta er alveg að koma núna og verður sennilega komið í lag á sunnudag.

Ástin mín eina og mesta yndi sem til er í heiminum á afmæli í dag og í því tilefni syngjum við afmælissönginn. Og allir saman nú!
Hún á afmæl'í dag
Hún á afmæl'í dag
Hún á afmæl' 'ún Signý
Hún á afmæl'í dag
Hún er 23j'ár' í dag
Hún er 23j'ár' í dag
Hún er 23j'ár' 'ún Signý
Hún er 23j'ár' í dag
vei vei koss koss og knús knús frá Mýsla.

Ég gaf henni þvílíkt flottan leisíbojtýpustól í afmælisgjöf en til að fara ekki alveg á hausinn þá fékk ég tengdó og foreldra mína til að leggja í púkkið. Massastóll, nú er bara að plotta það, hvernig ég sannfæri hana um að sófinn sé betri og ég skuli "leggja það á mig" að sitja í leisíbojtýpustólnum.

Svo að lokum vil ég tala um matinn hérna í vinnunni, hann er yfirleitt ágætur en um daginn æ sei godamm! Það var fökking saltfiskur í matinn. Ég fann ólyktina alla leið niður til mín og það eru tvær hæðir, ég er á 3ju hæð og matsalurinn á 5tu. Ég gerði eins og allt ungt fólk myndi gera, skaust á bensínstöð og fékk mér pullara. Annað væri geðveiki. Svo var allt angandi í salti hérna um daginn....ja kannski smá ýkjur. En ef ég man rétt þá er saltneysla í óhófi alveg eins og að hengja skilti á eistun sem á stendur krabbi velkominn hér.

1-10 dagsins: Rimella = ais - zwai - drei - viére - venve - zhakshe - shìbne - achtwe - nine - zìne

Speki dagsins: Wrinkles should merely indicate where the smiles have been." Eitt væmið í tilefni dagsins.

Kvikmyndagetraun dagsins: "Go trigboy it´s your birthday it´s your birthday!" Létt getraun vegna þess að það er föstudagur og Signý á afmæli. Öllum er velkomið að bjalla í hana og senda kveðjur. Síminn er 567-1679 og hún er heim núna þessi elska. E-mailið er líka signybjorg@simnet.is



Sigurgeir 12:05:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, maí 02, 2002

Álfatún 13
Sigurgeir Skóli

Skyndiblogg mar!!!! Mikið að gera í vinnunni. Skoðið þessa flottu linka að ofan.

Ein hótun, Denni er ekki búinn að birta opinbera afsökunarbeiðni sína og því á hann á hættu að linkurinn hans breytist í Daníel Ískaríot!!!

Sigurvegarinn í dag er Signý Björg Sigurjónsdóttir back to back nær hún threepeat????? Svarið var að sjálfsögðu "Titanic" en þessi getraun var sérstaklega skemmtileg því ég fékk fullt af pósti frá gellum venjulega eru strákar í meirihluta múhahahahahaha!

1-10 dagsins: Cimbrian = òan - zbeen - drai - viar - vüf - sèks - siban - acht - naün - zègan

Speki dagsins: "We all must live our lives always feeling, always thinking the moment has arrived."

Kvikmyndagetraun dagsins: "You will never age for me, nor fade, nor die." Önnur fyrir stelpurnar. Ef þið getið þessa ekki þá eru þið aular. Strákar sem vilja vera með mega það en ættu að skammast sín múhahahahahahaha


Sigurgeir 3:11:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur