Drekinn frá OZ

fimmtudagur, febrúar 28, 2002

Ég var að flýta mér svo mikið í mat áðan að ég gleymdi princippinu og það var að segja svarið við spurningu gærdagsins. Mynd gærdagsins er "Back To The Future".


Sigurgeir 12:29:00 PM | 0 comments links to this post |
Jamm ég hlakka til helgarinnar en ég ætla þá að horfa á "Flashpoint" í umóma en ég er með heimabíó. Hrafn Jóhannesson lánaði mér myndina en hann svaraði spurningu dagsins í gær fyrstur manna og því kemur nafn hans fyrir hér enn og aftur. Unnustan mín Signý Björg Sigurjónsdóttir var ekki par hrifin þegar ég sagði henni að hún hafi verið næst fyrst að svara, þetta segir aðdáendum mínum að það er ekki nóg að sofa hjá mér til að vinna þessa merku keppni. Ekkert svindl hér takk!

Skrýtin Peysa
Skrítin Peisa
Skrýtin Peisa
Skrítin Peysa

allt þetta er löglegt og allt gott um það að segja, sá þetta í gömlum gettu betur þætti um daginn og fannst að þetta þyrfti að koma fram.

Kalli sagði að minningargrein minni hefði verið frestað um óákveðin tíma, en þetta er prívathúmor og beðist afsökunar á honum.

Kvikmyndagetraun dagsins: "Hæ rass, nei Lars!" það var eitthvað svona en þið eigið að fatta þetta ;-)


Sigurgeir 11:57:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 27, 2002

Alltaf fjölgar í bloggfjölskyldunni, nú er Raven kominn með blogg! Hann er að reyna við litlu systur kærustunnar minnar og það er í lagi. Bæði ég og Brandur bróðir hennar erum búnir að veita honum veiðileyfi. Hann ætlar samt að taka sinn tíma í þetta. Alex sem vinnur með mér fékk ummæli um hljómsveitina sína Kimono á síðunni hennar Chloe. Bróðir hennar er víst í grúppunni.

Jæja svarið við getraun gærdagsins.....ég bjóst ekki við að neinn vissi þetta og það var niðurstaðan. Enginn vann. Viljiði vita svarið? Þetta er úr hinni geðveiku mynd "Summer school"!!!!!

Pæling dagsins: Ég var að lesa svolítið af archives dótinu mínu og það er engin regla á því hvort ég er með pælingu eða speki dagsins. Ég er að hugsa um að halda því svoleiðis því ég er alfarið á móti reglum sem flækja málið fyrir manni. Auk þess legg ég til að Karþagó verði lögð í rúst.

Hrafn lánaði mér stórmyndina "Flashpoint", ég ætla að horfa á hana með Mýslu um helgina!

Hann er reyndar ekki búinn að staðfesta það að ég fái hana lánaða, greyið á ekki kærustu og það getur verið að þetta hafi átt að vera kærastan hans um helgina.

Kalli er farinn að blogga og það er glæsilegt, en hann þarf að vera duglegur. Ég verð að hætta núna, annars þarf ég að fara að nota andhöndina.

Kvikmyndagetraun dagsins: "You built a timemachine out of a DeLorean?" Þessi er létt, bara afsökunarbeiðni fyrir þessa í gær.


Sigurgeir 11:59:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 26, 2002

Jæja þessi setning var að sjálfsögðu úr American Pie og réttum svörum rigndi yfir mig en það var Hrafn sem átti kollgátuna.

Ég var að spila í skemmtilegum leik og gekk ágætlega.

Enginn vill páfagaukana mína og það er hrikalega slæmt.

Denni segir að Bjarki sé meiri fósi en ég og ég er svolítið sár yfir því, en það er í lagi ég er með þykkan skráp.

speki dagsins: GangBang eða BangGang í því liggur efinn!

Kvikmyndagetraun dagsins: "Think about it, if you knew then what you know now, well I do!". "God, I hate that kid!"


Sigurgeir 1:31:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 25, 2002

Ég er kominn með teljara og archives er komið í lag, bara að láta vita.


Þeir sem hafa áhuga á að fá sér páfagauka mega senda mér mail. Ég þarf að losa mig við 4 stykki, tvö búr og eitthvað drasl. Viljum ekki hafa fiður útum allt þegar barnið kemur vííííííííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Sigurgeir 1:42:00 PM | 0 comments links to this post |
Hrafn Jóhannesson átti kollgátuna!!! Svarið kemur á morgun.


Sigurgeir 11:38:00 AM | 0 comments links to this post |
Jæja detta af mér allar dauðar lýs. Ég hef sett ykkur öll í epju. Það var enginn sem gat svarað kvikmyndagetraun helgarinnar. Ég sem valdi þetta vegna þess að þetta var svo auðvelt!!!! Þetta er að sjálfsögðu Monty Python hópurinn góði í myndinni "The Holy Grail". Farið nú á videóleigu og leigið allt sem til er með Monty Python hópnum og allt með Rowan Atkinson. Ég var einmitt að horfa á mynd í fyrradag sem heitir "Rat Race" og það er bara alger snilld. Aulahúmor nákvæmlega eins og ég vil hafa hann. Ég gjörsamlega valt um í krampakasti og Signý horfði forviða á mig og sá greinilega eftir því að hafa játast mér.

Helgin var ágæt, held ég sé loksins orðinn góður af flensunni. Það var bara chillað og horft á vídeó.

Jæja nú er bumban á Signýju orðin risastór og barnið alltaf að sparka. Hún er alltaf að drepast í bakinu og kennir sófanum okkar um, þannig að ef einhver á Laz-Z-Boy þá má hann lána/gefa okkur hann, sérstaklega ef hann er með innbyggðan ísskáp og baknudd. Stelpan mín er samt að standa sig eins og hetja og er að byrja í prófum í dag klukkan 10:00 og ég sendi henni stuðningskveðjur. Músí mús!

Bumban á mér er ekkert að láta sjá sig, þrátt fyrir hreyfingarleysi mitt. Ég ætla nú að fara af stað fljótlega eftir veikindi og próf og vesen, ekki búinn að fara í Körfu í 2-3 vikur og ég er kominn með hrikaleg fráhvarfseinkenni. Ég var á föstudagskvöldið á bakinu í sófanum að kasta körfubolta upp í loftið og grípa hann aftur, þetta ferli var að gera Mýslu mína alveg geðveika en hún sagði ekkert.....ég veit samt að hún var ekki hrifin tíhíhíhí minn prakkari tíhíhíhí!

Pæling dagsins: Afhverju eru ekki allir gemsar sem framleiddir eru með titrara í.....vatnsþéttir?

Kvikmyndagetraun dagsins: Ja þið eruð svo miklir aular að ég ætla að hafa hana súperlétta í dag....sendið mér spam múha! "Vicky, it's not a space shuttle launch, it's sex. So did you do the physics write-up?" Þessi mynd er svo góð að allir hafa séð hana og ef þeir hafa ekki séð hana þá eru þeir blindir.


Sigurgeir 10:09:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 22, 2002

Sigurður Ingi Ævarsson átti kollgátuna. Myndin heitir "History of the world part II" og er algjör snilld.

Mýsla mín er loksins farin að blogga. (sjá Mouse link). Ég er umkringdur geðsjúklingum í vinnunni, en það er bara kúl. Merkilegt hvað það getur verið gott að stíga aðeins frá verkefni og koma svo aftur að því. Vandamál sem ég hef verið að reyna að leysa í viku áður en ég veiktist, leysti ég á klukkutíma í morgun, bara þegar ég leit á þetta aðeins öðruvísi, ég var reyndar kominn á sporið áður en ég veiktist. Ég er ennþá slappur og býst við að taka því rólega um helgina, Mýsla er að byrja í prófaviku núna og ég sit uppi með sameignina og þarf að þrífa hana.

Nú er kominn tími á helgarpælingu.....hvað á hún að vera hmmmm.... o.k. ein áhugaverð. Ef stelpur mega kaupa sér líkama, þ.e.a.s. sílikon og fitusog og allan pakkann. Hvernig getur þá verið rangt að kaupa líkama þeirra til afnota? pæling!

Daníel er ekki kominn með orð dagsins, þannig að ég verð að geyma það aðeins. Kalli er ekki byrjaður að blogga og er það ver og miður. Sunna er alltaf dugleg að blogga en ég fæ aldrei neitt hrós frá henni, en hún fær þakkir fyrir hamingjuóskirnar. Erna frænka er að kvarta yfir því að blogg dagsins sé ekki komið þannig að ég verð að slútta þessu.

Kvikmyndagetraun dagsins: "It´s just a flesh wound! A flesh wound, your whole arm is missing!!!!!" þessi er auðveld enda óþarfi að íþyngja mönnum of mikið um helgar.


Sigurgeir 12:59:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 21, 2002

Jæja mér gengur ekki nógu vel þessa dagana og neyðist örugglega til að teiga úr einum hnalli eða svo. Nei segi svona, ég er kominn niður fyrir 38 gráðurnar í hita og stefni á að mæta í vinnuna á morgun. Guðmundur ANDRI Hjálmarsson eða DON ANDRI eins og hann er kallaður var fyrstur til að svara kvikmyndagetrauninni en þetta var að sjálfsögðu "The Wedding Singer" í tilefni trúlofunnar minnar.

Það er allt að verða vitlaust, stelpur eru svo miklir vitleysingar þegar kemur að trúlofun, allar vinkonur verða að sjá hringinn og hamingjuóskum rignir yfir okkur. En það er bara kúl. Ég ætla að slútta þessu núna, ég veit að ég er að bregðast aðdáendum mínum en c´mon ég er veikur!

Kvikmyndagetraun dagsins: ".... shortly followed by the first gay wedding". Þessi mynd er svo mikil snilld.


Sigurgeir 7:35:00 PM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 20, 2002

Ég er farinn að skilja vælið í Bjarka hér um daginn. Þessi flensa er ekkert skemmtileg. Ég drullaðist á lappir í dag og leið illa, mér líður enn illa. En svarið við spurningu gærdagsins er "Twins".

Ég var eins og seyra í dag. Mjög drullugur í sturtunni. En skolaði skítinn af mér.

Ég ætla ekki að blogga mikið í dag enda sjúkur maður og um það bil að fara að leggja mig. Mig langaði bara að koma með eina tilkynningu en hún er sú að Sigurgeir Sigurpálsson fór á skeljarnar fyrr í kvöld, nánar tiltekið klukkan 20:02 þann 20.02.2002 og bað sinnar heittelskuðu Signýjar Bjargar Sigurjónsdóttur. Ég hafði planað þessa dagsetningu núna í hálft ár a.m.k. og var ekki u.þ.b. að láta veikindi stoppa mig. Ég fékk Signýju til að sættast á það að borða okkar fyrsta málsverð í borðstofunni okkar og kveiktum á kertaljósum og stúlkuna grunaði ekki neitt. Svo klukkan tvær mínútur yfir átta skellti ég mér á hnén fyrir framan hana og vippaði út þessum glæsilega demantshring og bað hennar. Ég ákvað að fara amerísku leiðina að þessu því mér leiðist þetta trúlofunarhringjaparkjatfæði, við kaupum saman giftingarhringa þegar þar að kemur. Við ætlum ekki að festa okkur í að "VERÐA" að giftast innan árs en endilega sleppið að spyrja mig því hún mun fá að ráða þessu héðan í frá.

Kvikmyndagetraun dagsins: "That information would have been very useful YESTERDAY!!!"

p.s. hún sagði JÁ!


Sigurgeir 10:58:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 19, 2002

ooooooooooooggggggggggggg þþþþþþþþþaaaaaaaaaaaaððððððððððððððð vvvvvvvvvvvvaaaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrrrrr rrrrrrrrrrrrrééééééééééééttttttttttttttttttttt!!!!!!

Eggert Baldvinsson snillingur svaraði kvikmyndagetraun dagsins rétt, en svarið kemur ekki fyrr en á morgun.


Sigurgeir 12:58:00 PM | 0 comments links to this post |
Já það voru alveg hellingur með kvikmyndagetraunina á hreinu en þetta er að sjálfsögðu "Fight Club". Hrafn var bara fyrstur að taka við sér svo hann vann jibbí.

Ég verð að monta mig aðeins en ég og Snorri félagi minn höfum tekið að okkur að skrifa körfuboltagreinar á sportid.is og við vorum að fá hrós. Þá vitiði það. Önnur gleðitíðindi eru þau að ég fékk góð ummæli (ekki gefin einkunn) fyrir C++ verkefnið mitt og líka ágæt ummæli um verkefni sem ég og Alli unnum saman í viðmótshönnun en henni fannst Siglingaritið svo flott að hún vill sýna það sem dæmi um hvernig á að gera hlutina. Hafðu þetta Kalli ég get alveg forritað alvöru forrit ulla á þig!

Ég verð að segja að á tilverunni um daginn voru myndir af fyrirsætum og þær voru viðbjóðslegar, bjáurnar voru grindhoraðar og viðbjóðslegar. Ég segi að smá hold til að klípa í er ekkert annað en skemmtilegt.

speki dagsins: Eitt sinn verður allt fyrst, nema upphafið á endinum???!!!?

Kvikmyndagetraun dagsins: "Tonight, tonight is your night bro!" Þetta lag raular lítill frægur leikari við stórann frægann leikara í stórskemmtilegri mynd.


Sigurgeir 9:20:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 18, 2002

Hrafn Jóhannesson, sá er við Söru er kenndur svaraði rétt og á hann heiður skilinn. Svarið kemur samt ekki fyrr en á morgun fyrir þá sem vilja halda áfram að reyna.


Sigurgeir 11:20:00 AM | 0 comments links to this post |
Menn eru eitthvað að kvarta yfir getrauninni á fimmtudag. Þessi mynd er bara svo geðveikt fyndin að ég varð að koma henni að. Svarið við spurningu föstudagsins hélt ég að væri Wayne´s World 1 en svo heldur frændi minn því fram að þetta sé Wayne´s World 2 en hvort sem það er þá er það close enough og hann vinnur. Jóhann ÆVAR Grímsson, til hamingju með titilinn.

Ég lenti fyrir aftan gamla kerlingu í umferðinni í morgun og ég verð að segja ég get ekki setið á mér. Gamalt fólk er flest mjög indælt og gott og ekkert yfir því að kvarta enda ætla ég ekki að rakka það fólk alveg í svaðið. Þessi góða kona keyrði afspyrnu hægt og gaf ekkert færi á framúrakstri enda held ég að ég hafi ekki verið til í hennar heimi þegar ég var í rassgatinu á henni að reyna að komast framúr. En hvað um það. Ég ætla að rifja upp atriði úr stærðfræði kennslu hjá Úlfari í Verzló. Hvernig hægt er að blekkja fólk með statistík. Miklu fleira fólk á aldrinu 17-20 en 60-65 ára deyr í umferðinni á ári hverju. Staðreynd....o.k. hvað segir þetta okkur....fullt af fólki segir ja þetta þýðir að við þurfum að seinka bílprófsaldri til 25 ára eða eitthvað jafnfáránlegt. Nú ætla ég að sýna ykkur skissuna. Í fyrsta lagi eru árin 17-20 tveimur færri en 60-65 og það er skekkja þó hún sé gamla fólkinu í vil, ég vildi benda á þetta til að fólk vissi að ég gerði mér fyllilega grein fyrir þessu. Málið er hins vegar að 17-20 ára hópurinn er miklu stærri en 60-65 og ennþá meiri munur kemur upp þegar við tökum bara þá sem eru með bílpróf í þessum flokkum. 17-20 ára eru margfalt fleiri, en ekki stoppa hér því við ætlum líka að taka inn í myndina að 17-20 ára eyða margfalt meiri tíma undir stýri á viku hverri en gamla fólkið og tekur á sig miklu oftar ferðalög út á land etc. Þannig að munurinn í klukkutímum milli 17-20 ára og 60-65 ára er núna eins og munurinn á amöbu og Hólmfríði Karlsdóttur. En við erum ekki ennþá hætt, það er erfitt að drepa sig þegar maður keyrir aldrei hraðar en 40 og þar liggur hnífurinn grafinn í kúnni. Gamalt fólk keyrir bíla sem eru stilltir þannig að ef fóturinn á manni sofnar og trampar bensíngjöfina í botn þá fer hann ekki hraðar en 40 og ef maður gleymir að ýta á bensíngjöfina þá fer maður líka á 40. Svo er "dauðaslagið" í stýrinu þannig að bíllinn sikk sakkar á veginum ákkúrat þannig að enginn þorir að taka framúr þeim. Niðurstaðan er semsagt sú að gamalt fólk sem deyr í umferðinni deyr af náttúrulegum sökum en ekki vegna árekstra en unglingar deyja af því þeir eru heimskir. Samanburður því ósanngjarn.

Speki dagsins: Betra er að vera kvintur en kvæntur!

Kvikmyndagetraun dagsins: "I make and sell soap" Þessi er létt krakkar, allir að spama á mig mail takk.


Sigurgeir 9:39:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 15, 2002

Enn og aftur gat enginn upp á því hvaða mynd ég var að spyrja um. Kannski engin furða því þó að myndin sé brilliant þá hafa ekki margir séð hana. En myndin heitir Hot Paint og er ekkert hátt skrifuð í kvikmyndaheiminum. Snilldarmynd samt.

Valentínusardagurinn var í gær og þó ég sé á móti svona leiðindardögum þá keypti ég bleikar rósir handa ástinni minni. Hún á það skilið hún er með svo stóran bumbulíus og hann sparkar á fullu. Hún fær eitthvað meira og betra á konudaginn.

Skemmtileg dagsetning framundan 20.02.2002 og klukkan 20:02 á þeim degi spái ég heimsendi. Það var gaman að þekkja ykkur öll. En svona í alvöru, afhverju er ekki einhver söfnuðurinn búinn að spá heimsendi, það var nóg af þeim vitleysingum fyrir árið 2000. Hvar eru Vottarnir þegar maður þarf á þeim að halda. Hvar ætlar þú að vera á þessari stundu? Ég er svo svekktur út í trúarofstækismenn um allan heim, ég er búinn að sitja á mér lengi og bíða eftir því að einhver röflaði um þessa dagsetningu en ekkert gerist. Ég ætla því að taka af skarið enda eru aðdáendur mínir einnig trúarbræður mínir og ég er frelsarinn þeirra (fæddur á kúl degi). 20.02.2002 klukkan 20:02 munu Pakistanar senda kjarnorkusprengju á Bombai og Nýju Delhi. Þessu verður svarað með öllu sem Indverjar eiga og Pakistanar fá múslimaheiminn til að hjálpa sér. Kínverjar munu ekki þola mengunina og riðjast yfir landamærin og slást í leikinn. Bandaríkjamenn og Rússar geta þá ekki setið hjá og allt fer í bál og brand. Allur heimurinn verður lagður í rúst og ekkert mun lifa af. Við munum öll hittast við hásæti Guðs þar sem hann mun dæma menn og einungis fylgismenn mínir fá inngöngu í himnaríki og allar sætarstelpur líka enda eru þær aldrei vondar (je ræt). Ef þetta rætist ekki þá er ég samt með betra record en Vottarnir ;-)

En ég er að drukkna í aðdáendapósti og allir vilja vita hver er Sigurgeir, hver er maðurinn á bak við snilldina, hver er maðurinn á bak við fegurðina og hvað get ég gert til að vera eins og hann eða fá að vera í návist hans? Ja til að skilja mig verðiði að læra frá grunni. Anno Domine (á því herrans ári) 1975, síðdegis á aðfangadegi, nánar tiltekið klukkan 16:05 24. desember, fæddist lítill hnokki. Hann var með eindæmum fagur (sama hvað systir hans sagði) og geislaði af honum gleði og hamingja og skammdegið varð bærilegra fyrir Íslendinga heima og heiman. Eftir 9 mánuði lærði drengurinn að labba og eiginlega hlaupa líka því honum líkaði ekki að slappa af. 4. ára fluttist hann í Árbæinn og fór í 5 ára bekk í Skóla Ísaks Jónssonar. 9 og 10 ára gamall sótti hann nám í árbæjarskóla og var mjög ósáttur með að fá ekki að hoppa um einn bekk því hann þurfti að læra margt af námsefninu aftur og kennaraherfan strokaði út svörin í reikningsbókinni hans ef hann vogaði sér að fara á undan bekknum. Svo lá leiðin í Selásskóla í 2 ár og þar lagði kennarinn hann í einelti vegna þess að hann gat ekki lært að skrifa fallega og lét hann endurskrifa stíla og ritgerðir aftur og aftur. Enginn vissi að drengurinn var bara framsýnn og sá ekki tilgang í að kunna að rita þegar maður á bara eftir að pikka í framtíðinni (á tölvur), enda eru einu skiptin sem hann snertir penna er þegar hann er að kvitta undir visanótur eða merkja geisladiska. Nú eftir þessar fangabúðir lá leiðin aftur í árbæjarskóla til að sækja gagnfræðaskólann þar. Í 3 ár var hann lagður í einelti af geðsjúklingum sem allir eru þekktir í eiturlyfja heiminum í dag. Eftir gaggó sprakk hann út og minnir það mjög á þegar Jesú heillaði prestana 12 ára gamall en Sigurgeir var reyndar 15 ára gamall. Hann fór að djamma og skemmta sér og áður en hann vissi af var hann megatöffari og allir dáðu hann nema þeir sem öfunduðu hann. Hæfileikarnir leyndu sér ekki og hann kláraði Verzló án þess að reyna of mikið á sig. Svo skellti hann sér í Háskóla Íslands í heimspeki og klára það að sjálfsögðu án þess að reyna of mikið á sig. Sigurgeir er núna með B.A. próf í heimspeki. Hann fór svo að finna sig í tölvum og skellti sér í Auglýsingahönnun í NTV en það var ekki alveg fyrir hann enda listrænir hæfileikar allir í systur hans og móður. En forritunin var við hans hæfi og hann sótti slíkt nám í sama skóla og útskrifaðist með súpereinkunn án þess að reyna of mikið á sig. Hann fór svo að vinna hjá OZ og gerir það enn. Á því tímabili sem hann sótti heimspekinám og tölvunám og til vorra daga hefur hann verið bálskotinn í megabeib sem heitir Signý Björg Sigurjónsdóttir. Hún er kafli í heila bók ef ekki heil bók útaf fyrir sig, en þið vitið þá að það má ekki snerta hana, hún er mín og hananú.

speki dagsins: "Betra er að drippla körfuboltum en handboltum" If you know what I mean, nudge nudge!

Kvikmyndagetraun dagsins er auðveld því það er föstudagur. "Heather be thy name" þetta geta allir nema eitthvað sé að.


Sigurgeir 9:06:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 14, 2002

Ég vil byrja á því að vara alla við MSN vírus sem er að ganga, þetta er ormur sem sendir link á alla contactana þína. Ekki smella á whitepowah.com no matter what!

Denni skaut á mig aftur en það er bara fair því ég skaut á hann, samt notaði ég orðið hans. Ég fer nú ekki að kalla hann krúð því hann er stór og sterkur. (Denni, það væri gott að hafa sagnorðamyndir eða fallbeygingar eða eitthvað til að styðjast við mar!)

Enginn gat spurningu gærdagsins og ég er alveg gáttaður, skársta ágiskunin var frá Hrafnkatli Helga Helgasyni en hann giskaði á Jón Odd og Jón Bjarna. Það er því miður vitlaust, þetta er að sjálfsögðu þegar Siggi Sigurjóns var nýbúinn að selja dulbúnu kjúklingana í myndinni "Löggulíf".

Ég hef ekki farið í pílu í 3 daga og strákarnir eru hættir að spyrja mig hvort ég vilji fara í pílu, mér sárnar við það og langar í pílu núna. En það er bara svo mikið að gera í vinnunni.

Misskilningur kom upp í gær en ég talaði um son minn. Ég veit ekki hvaða kyn barn mitt verður, þetta sem er á leiðinni og er kallað bumbulíus núna. En þannig er að í körfunni hjá Blikunum hefur verið hefð hjá tveimur strákum að kalla mig pabba, þeir eru ekki bræður en eru báðir Sigurgeirssynir. Þeir eru því synir mínir þar til annað kemur í ljós. Þetta eru Pálmi Freyr og Jón Emil og þeir eru snillingar.

Pælingar dagsins eru mjög almennar, þær eru ekki um kúk þar sem ég ákvað að geyma þær aðeins til að gera ekki útaf við aðdáendur mína, heldur um deepthroating. Hvílík list og hvílík gleði. Stelpur sem geta þetta eru snillingar og eiga heiður skilinn. Enginn er fremri en stúlkukindin á www.ideepthroat.com en hún er gift en deilir manninum sínum með öðrum körlum (ég hlustaði á viðtalið á síðunni). Þessi stúlka er slípaður demantur og ekkert sem hún gerir hér eftir hryndir henni af stalli sem snillingur og ég vil setja hana á stall með Einstein og Bismark.

Getraun dagsins: "May Buddha blow a cool breeze up your skirt in hot weather"


Sigurgeir 10:50:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 13, 2002

Allt að verða vitlaust í vinnunni minni. Ég bara get ekki bloggað mikið í dag.

Verð að koma nokkrum punktum að:
Denni, þú átt ekki bíl og rekur ekki fyrirtæki í miðbænum þannig að sjónarmið okkar verða aldrei eins. En þú ert enginn sladdi!
Sonur minn Pálmi Freyr Sigurgeirsson er duglegur giskari en aðeins of seinn.

Ég fór í bíó með kærustunni minni í bíóborgina á föstudag. Bíóið var fullt af dreifbýlispakki sem alltaf var að láta hringja í sig og svara í símann og tala í símann og gaurinn við hliðina á mér hringdi sjálfur tvisvar og tvisvar var hringt í hann. Mig langaði að drepa hann. Ég beið bara eftir hrópum og látum þegar eitthvað gerðist í myndinni. Ein gella var hlekkjuð í rúm við innganginn og tvær gellur suddalega klæddar gáfu mér fullt af blue pig. Ég hef farið í Smárabíó og eftir það get ég ekki farið neitt annað nema lúxussalinn í Álfabakka. Ég er of stór fyrir aðra sali, samt var tíðin einu sinni svo að manni fannst salurinn í bíóborginni rúmgóður og kúl.

getraun dagsins: "Ég hitti einhvern þjóðverja, hann hélt því fram að þetta væru fálkaungar".


Sigurgeir 4:10:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 12, 2002

Jæja en það var Steingrímur Ólafsson betur þekktur sem Daníel sem svaraði spurningu dagsins rétt og hér með er nafnið hans komið á vefinn!


DENNI


Sigurgeir 11:53:00 AM | 0 comments links to this post |
Jæja Daníel! Ég er sorry, svekktur, sár....eiginlega of sár til að djóka svona. Ef ég skil þig rétt (og ég vona innilega að ég sé að misskilja þig því annars þarf ég marga daga til að fyrirgefa þér) þá varstu að segja að ég hafi verið með fordóma vegna þess að ég líkti miðbænum við gyðingagettó. Sko ef þú ert að halda því fram að ég sé fylgjandi antísemítisma þá tala ég ekki við þig í nokkrar vikur. Ef þú ert sár vegna þess að ég hafi verið að líkja R listanum við nasista, þá skal ég bæta við að ég hef tilhneigingu til að ýkja hlutina eins mikið og hægt er til að reyna að sýna fram á óréttlætið. T.d. ef einhver kýlir einhvern í klessu niðri í miðbæ og sleppur með það þá segi ég oft en hvað ef hann hefði tekið upp vélbyssu og baunað á hann. Sýni fram á fáránleikann til að fólk sjái alvarleikann. En ef þú hafir verið að skjóta á mig fyrir Antísemítisma þá vil ég bara segja það að þegar og þar sem Hitler var við völd var gyðingum, sem ekki var búið að murka lífið úr eða senda í fangabúðir, skipað að halda sig í afmörkuðum hverfum og þau hverfi voru kölluð gettó eða gyðingagettó og orðið fengið þýðinguna rónahverfi eða ræsishverfi eftir það enda var aðbúnaður viðbjóðslegur í þessum gettóum. Ég hef fulla samúð með þessu fólki og ekki vottur af hatri til þess. Þannig að ég er eins og ég segi mjög sár. Ég vona að þú sért ekki að beita ömurlegasta vopni rökræðunnar og stjórnmála sem er kjósið mig ekki af mínum eigin verðleikum heldur vegna þess að hinn er svo slæmur. Því það er fyrsta tákn örvæntingar. Ég veit að þú ert meiri maður en svo og því ætla ég að taka þessu sem svo að misskilningur hafi orðið hjá okkur og við séum ennþá á málefnalegum og hnyttnum nótum ;-)

Alla vega gleðitíðindi nýtt nafn sem vann getraunina mína og það var minn ástkæri frændi Ævar!!!!! Skoðið bara bloggið sem póstað var fyrr í morgun.

Ég lenti í því í gær að ég var í rólegheitunum að rölta niður laugaveginn og gekk í flassið á tveimur strákum sem stoppuðu mig og ég varð steinhissa því ég kannaðist ekkert við þá en þeir gerðust svo djarfir að bjóða mér í kirkju!!! Ég sagði nei takk en það var ekki tekið gott og gilt og vildu þeir endilega rökræða við mig. Ég var nú alveg til í það því það er alltaf gaman að salta eða vera saltaður í rökræðu. Þeir vildu vita hvað ég teldi Jesú vera, hvort hann væri sonur Guðs eða hvort hann væri bara maður. Ég sagðist ekki hafa hugmynd um það, því ég hefði aldrei hitt hann og þekkti engann sem hefði hitt hann. Þeir voru ekki alveg sáttir við þetta svar og fóru að röfla um að það væri nú svolítið mikið ef hann væri sonur Guðs. Já sagði ég það væri stórmerkilegt og þá héldu þeir áfram og gerðu sín fyrstu mistök í rökræðunni því þeir sögðu það hefur enginn haldið því fram að hann væri sonur Guðs og ég greip frammí fyrir þeim og sagði það er hellingur af fólki sem hefur haldið því fram að það væri börn Guðs og halda því enn fram. og nú var ég kominn með yfirhöndina. Þeir reyndu að halda áfram með að röfla um að það fólk hefði ekki náð slíkum árangri en þeir hafa semsagt ekki heyrt um Islam en sú trú breiddist út á ógnarhraða og miklu hraðar en kristin trú og ef múslimar hefðu ekki frosið í tíma og ef kristnar evrópu þjóðir hefðu ekki verið á undan þeim í nýlendugræðginni væri kristin trú ekki jafnútbreidd og hún er í dag. Svo kom að því að tala um biblíuna og jú biblían góða Helmingurinn er gamla testamentið og skrifað löngu fyrir kristsburð og ekki gagn í því til að komast að því hvort Jesú sé sonur Guðs. Hinn helmingurinn eða Nýja testamentið er misgamalt eins og gamla testamentið en elsti hluti þess er skrifað 70 árum eftir kristsburð (ég hafði heyrt 100 árum eftir dauða krists en ég gaf honum þetta eftir) miðað við aldur fólks á þessum tíma var sjaldgæft að fólk yrði eldra en 50 ára og það þýðir að þeir sem hefðu eitthvað þekkt krist voru ýmist dauðir eða að deyja eða of ungir þegar hann var að predika. Hversu mikið af upplýsingum týnist milli ættliða? Ég vildi ekki fara út í það að Jesú hefði aldrei talað um kirkjur og að menn þyrftu að sækja kirkju og biðja hans í kirkjum. Hann sjálfur kom aldrei í kirkju. Hugtakið kirkja varð til hjá Páli postula sem er þekktur kvenhatari og varð frægastur fyrir setninguna "Þegi konan í kirkjunni" en kirkja var líka þing og fundarstaður og þýddi þetta að konan mætti aldrei taka til máls við ákvarðanatökur. Og við eigum að hylla fyrirbæri byggt á slíkum stoðum, ja kaþólska kirkjan leyfir enn ekki kvenkyns presta en ýmsar kristnar trúarhreyfingar hafa aðeins slakað á í þessu. Jæja ætla ekki að röfla um þetta meira, þetta endaði á því að þeir gáfust upp á mér og ég forðaði mér áður en þeir brenndu mig á báli fyrir galdra.

getraun dagsins: "That sound pretty bad over there, how about a courtesy flush?" Þetta er erfitt fyrir suma en aðrir eins og ég kveikja strax á perunni, en ég ætla að láta vísbendingu fylgja Tom Arnold segir þetta í klikkaðri gamanmynd.

p.s. ég er ekki trúleysingi. Ég bara tel að ég þurfi ekki leiðbeinanda eða húsnæði til að iðka mína trú. Maður á að biðja og iðka trú sína þegar maður þarf á henni að halda en ekki til að sýnast eða skapa einhverja hreina ímynd af manni. Biblían er ekki sönnunargagn og Kirkjan er ekki eini staðurinn sem Guð hlustar. Takk fyrir


Sigurgeir 11:40:00 AM | 0 comments links to this post |
Og það var minn ástkæri frændi sem gat svarið við spurningu gærdagsins. Þetta var úr hinum gríðarlega vinsælu og skemmtilegustu og fyndnustu þáttum í heimi. "BLACKADDER" og frændi minn góður heitir Jóhann ÆVAR Grímsson og er snillingur eins og stóri frændi. Frændi minn fær líka link að launum því þetta var svo flott hjá frænda mínum. Er ég nokkuð hlutdrægur í þessu með frænda minn? Hann er nú einu sinni frændi minn. Var ég búinn að segja að hann væri frændi minn og frændi minn fær link?


Sigurgeir 10:06:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 11, 2002

Ég er hneykslaður á öllum hér á landi. Öllum aðdáendum mínum til lands og sveita. Veit enginn úr hvaða mynd þessi setning er?
En setningar eins og "Would you like a gummy bear, it´s warm and soft, it´s been in my pocket?", "The game is up, your ass is mine!", "No, besides being the only cheerleader with a husband, why not?" og "Cameron is so uptight, if you stuck a lump of coal up his ass, in two weeks you´d have a diamond!"

Þetta er...........
Besta mynd allra tíma (enn ein) "Ferris Bueler´s day off"

Denni verðlaunar mig fyrir að setja link á síðuna hans með því að skjóta föstum skotum á mig og því breytist linkurninn hans úr Denni í Daníel og hananú. Annars ætla ég ekki að vera með bull og vitleysu í hefnd minni (fyrir utan linkadæmið) og svara honum svona:

Einhver vitur maður og ég man ekki hver sagði eitthvað á þessa leið (ég veit að það er flottara en hafa þetta allt á hreinu en það er ekki punkturinn):
"Ég gef ekki mikið fyrir skoðanir þínar en ég myndi fórna lífi mínu til að varðveita rétt þinn á að láta þær í ljós". og hananú.

Eitt sem ég vil hafa á hreinu og hefur pirrað mig svolítið. Ég er ekki mikið fyrir að gefa upp það sem ég kýs og hef tekið ákvörðun um að láta ekki uppi hvað ég kýs framvegis en það er vegna þess að maður fær stimpil. Ég hef gaman af því að rökræða mál og tek oft upp hanskann fyrir þá sem fara halloka í umræðunum. En einhvern veginn hef ég fengið stimpilinn að ég sé sjálfstæðismaður. Ég var að horfa á úrslitaleik bikarkeppninnar í körfu á laugardaginn og þar hélt ég með KR af þeirri einföldu ástæðu að ég vil fá sem flesta bikara í bæinn og eitthvað annað en suðurnesin, ef suðurnesin væru ekki búin að vinna svona mikið þá myndi ég halda með þeim. Nú vil ég ekki að einhver fari að telja mig KR-ing því ég var bara að velja mér einn kost af tvennum illum. Þannig mætti líta á borgarstjórnarkosningarnar ekki að kostirnir séu báðir illi heldur að þarna er bikarúrslitaleikur milli tveggja liða og maður verður að velja einhvern til að halda með ef maður hefur á annað borð einhvern áhuga á þessu. En ég er kominn langt út fyrir efnið, málið er að ég ætla ekki að gefa upp það sem ég kýs hér eftir því það er bara mitt mál og kannski kýs ég vitlaust og kannski rétt en það kemur ykkur ekkert við!!!

En nóg með pólitík, nú ætla ég að útvíkka þetta með kvikmyndirnar, ekki vegna þess að ég er uppiskroppa með setningar, því fer fjarri lagi, heldur vegna þess að ég vil endilega koma að einni setningu sem ég elska út af lífinu. Allir sem þekkja mig eitthvað ættu að hafa heyrt mig segja þetta a.m.k. einu sinni og nú er spurning hvort þeir viti hvaðan þetta kemur.

Þetta tengist samt sjónvarp- eða breiðtjaldsefni

Gáta dagsins: Úr hverju er þessi setning "You will be sent to Germany to an all girl school, where you will spend the rest of the war teaching the young girls the home economics. The humiliation will be unbearable!" Þetta er ekki alveg 100% rétt og á að lesast með þýskum hreim en þetta á að fattast fyrir snillinga eins og mig.

Pæling dagsins. "Ef geimverur eru til og ferðast um á fljúgandi diskum er ég þá tryggður fyrir því ef einhver þeirra hrapar á disknum sínum á bílinn minn?"

Munið líka xD fyrir Daníel


Sigurgeir 1:01:00 PM | 0 comments links to this post |

laugardagur, febrúar 09, 2002

Denni kominn með blogg. Smellið á linkinn hans.


Sigurgeir 5:24:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 08, 2002

"Sigurður Ingi Ævarsson" sigurvegari. Hvað er þetta? Á ég enga vini buhuhuhuhuhu snökt :-(

Myndin var auðvitað "Ace Ventura pet detective" myndin sem allir hafa séð!!!!!

Jæja hér og nú verður getraun sem allir eiga að svara og ég læt ekki vita að svarið sé komið. Vil fá mail frá öllum!

kvikmyndagetraunin er svo hljóðandi: "Are you Abe Froman, the sausage king of chicago?". Þetta er enn ein besta mynd í heimi að mínu mati.

Enginn kúkur í dag enda ekki gott að hugsa um kúk yfir helgina.

Djammpæling: Ef hún er 18 ára, lítur út fyrir að vera 20 ára, segist vera 22 ára og allar konur vilja vera yngri en þær eru eftir tvítugt....hvað er hún þá gömul?

Speki dagsins: If it´s so good to be wrong, I don´t wanna be right!

Helgin hjá mér verður hins vegar læra læra læra no fun. En ég fer í Sambíóin í kvöld og það verður stuð, snittur og drasl í forveislu og læti. Takk Sara mín fyrir miðana.


Sigurgeir 2:50:00 PM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, febrúar 07, 2002

Svarið var "Ski School" þessi mynd er bara fyndin.

Oh desert speak to my heart
Oh woman of the earth
Maker of children who weep for love
Maker of this birth
'Til your deepest secrets are known to me
I will not be moved
I will not be moved

Taki þeir þetta til sín sem ....

Kúkapæling dagsins er meira svona skilgreining eins og venjulega. En það er frussukúkur. Orðið frussukúkur var mér ekki kunnugt fyrr en nýlega enda er sá sem kynnti mig fyrir því kolbrjálaður Íri með rautt hár og áhuga á pulsum. Þessi tegund kúks er eins og nafnið gefur til kynna subbulegur og veldur því oft að skálin er þakin í þunnu lagi af saur. Ég ætla ekki í nánari lýsingar enda hádegismatur eftir tvo tíma. En þetta orð er skemmtilegt og má nota þegar maður er með í mallanum....eitthvað slæmt en ekki barn eins og kærastan mín.

Kvikmyndagetraun dagsins: Hún er aðeins léttari en undanfarið því ég verð linur þegar helgin nálgast. "Can I get you an ashtray?" "No thank you, I don´t smoke. It´s a disgusting habit!"

og getiði nú.

Ég verð að lýsa ánægju minni með Sunnu og Bjarka en þau eru nú officially nördar eins og ég. Krakkar velkomin í hópinn! Skál!!!!!

Pæling dagsins: Foreldrar nú til dags eru alltaf að röfla um og jafnvel berjast fyrir að geta verið meira með börnunum sínum. Samt er undantekning þegar maður er á íþróttamóti að sjá foreldra þar? Foreldrar vilja ekkert vera með börnunum og vilja bara fá frí frá þeim líka. Ef maður tekur ekki þátt í áhugamáli barnsins þá hefur maður ekkert um að tala þegar maður vill spjalla við það og það treystir manni ekki og velur einhvern annan sem trúnaðarmann og oft er dómgreind barnsins ekki nógu góð þegar trúnaðarmaður er valinn og leiðin í dóp og vitleysu er oft í gegnum vingjarnlegt andlit. Ég stunda körfubolta og reglurnar eru flóknari heldur en svo að það megi ekki nota fætur og boltinni á að fara ofan í körfuna. Foreldrar barna í þeirri íþrótt þurfa að horfa á 100 leiki með barninu sínu til að skilja reglurnar og geta talað við barnið þannig að barnið hugsi ekki "Æi Mamma/Pabbi skilur ekki neitt". Ég er 26 ára gamall og pabbi er farinn að horfa á þónokkra leiki hjá mér og hann er ekki ennþá með reglurnar á hreinu en ég skynja alltaf framför hjá honum í skilningi á leiknum. Það verður því meira gaman að tala við hann um körfubolta eftir hvern leik sem hann sér. Þegar ég var að alast upp þótti bjánalegt að mamma og pabbi kæmu á leiki. Eftir að ég óx úr grasi fattaði ég það að það var bara vegna þess að þá varð maður öðruvísi, það komu engir foreldrar á leiki. En núna finnst mér gaman að hafa einhverja nákomna að horfa á þegar ég keppi. Við megum ekki láta það vera undantekninguna að foreldrar mæti. Þetta er eitt af því fáu sem við getum lært af lélegum amerískum myndum að barninu á að finnast það slæmt að mamma og pabbi komast ekki á leiki frekar en að þau komi. Tökum þátt í áhugamálum barna okkar af 100% áhuga og það er mikil vinna en ég efast ekki um það að einstaklingurinn verður 100% betri og getur talað við okkur en leitar ekki til ókunnugra til að fá ráð.

p.s. þetta var ekki pólitík heldur nöldur....bara hafa það á hreinu.

Speki dagsins: Skrítin tík þessi pólitík!


Sigurgeir 9:56:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, febrúar 06, 2002

Getiði hvað! Sigurður Ingi Ævarsson enn og aftur með rétt svar og ólík gærdagnum þurfti hann ekki vísbendingu. Hann á heiður skilinn því þetta er ein mesta snilldarmynd kvikmyndasögunnar. Svarið verður birt á morgun ásamt nýrri getraun. Múha!


Sigurgeir 3:57:00 PM | 0 comments links to this post |
Enginn kom með rétt svar við spurningunni í gær en Sigurður Ingi Ævarsson svaraði henni rétt með nokkrum vísbendingum en þær voru: Myndin kom út árið 1984, a.m.k. tveir karlleikarar og tveir kvenleikarar mjög frægir í dag, aðalleikarinn leikur í mynd sem nýbúið er að frumsýna í bíó og er nýskilinn við konu sína sem almennt er talin gullfalleg en er bara mellójelló á mínum skala. Svarið kemur neðst í bloggi dagsins.

Kúkapæling dagsins er..... ein tegund kúks kallast kafari og er mjög góður gegn vandamálinu að það skvettist á rassinn á manni. Hann er þannig að kúkurinn snertir yfirborð vatnsins áður en þú klippir á hann og því fer hann ljúft oní án buslugangs, sumir vilja kalla þetta dýfingamanninn en mér finnst það óviðeigandi um þá fögru íþrótt. Kafari getur breitt um nafn ef hann snertir botn en þá kallast hann touchdown en getur þá valdið buslugangi ef hann rennur ekki vel niður og kubbast í sundur í fallinu eða skellur á hliðina. Fleira var það ekki í dag um kúk.

Ég ætla að ræða aðeins um borgarpólitík en ég er ekki lengur Reykjavíkurbúi heldur Kópavogsbúi og hef því nýtt sjónarhorn á þessa pólitík sem ég hafði ekki áður. En það er í sambandi við þessa skoðanakönnun sem tröllreið fjölmiðlum um daginn. Bolli í 17 er brjálaður út í borgarstjórn því borgarstjórn virðist einbeitt í áætlun sinni um að útrýma verslun í miðbænum, þetta er eins og gyðingagettó þar sem bara er beðið eftir því að síðustu gyðingunum verði hrúgað á trukka og keyrðir út í sveit í útrýmingarbúðir...ef þetta eru þá ekki útrýmingarbúðirnar. Nú getur maður hvergi lagt í korter án þess að vera að borga hundrað karl fyrir. Sumum finnst þetta bara fyndið og fólk geti nú alveg borgað þetta. En ég fór í banka um daginn og setti hundrað karl í og fór svo í bankann. Þegar alveg var að koma að mér þá var tíminn á stöðumælinum að renna út, ég mátti velja um það að fara og borga í stöðumælinn og koma aftur og bíða aftur í hálftíma eða segja fuck it og borga 1000 kr. í stöðumæla sekt. Sumir segja þá, hvað með bílastæðahúsin, ja o.k. ég get það en hvað með gamalt fólk sem getur ekki labbað kílómeter fram og til baka til að kaupa eitthvað smádrasl? Á meðan eru bílastæði ókeypis við verslunarmiðstöðvar og í göngufæri frá öllu. Hentugra jú en er það ekki nægir yfirburðir í samkeppninni að ekki þurfi að taka bílastæðin hálstaki? Og svo vilja menn með miklum yfirburðum kjósa þetta aftur yfir sig? Annað mál sem ég þekki líka vel og það er sjónarmið íþróttafélagana. Reynsla mín af borgarstjórn undanfarinna ára er að íþróttir eru böl og ætti að banna enda er ekki hægt að sjá Ingibjörgu Sólrúnu í íþróttum....alla vega hryllir mig við tilhugsunina. Ég er hlutdrægur í þessum skoðunum mínum ég skal viðurkenna það en faðir minn rekur fyrirtæki í miðbænum og ég hef verið viðloðandi íþróttir í fjöldamörg ár og þekki þessi mál vel af eigin reynslu. En þið megið kjósa hvað sem þið viljið, ég bið bara um eitt að þið kjósið af sannfæringu og vitið af þessari stefnu Ingibjargar, ef þetta er vilji fóksins þá það. Vonandi breytist stefnan hjá kerlingunni ef hún vinnur aftur. Ég þakka bara fyrir að vera að kjósa í Kópavogi þar sem ég veit ekkert um hvað málin snúast og get sest niður og skoðað málefnin án fyrirfram ákveðinni skoðun.

Ég lofa svona næstum því að pólitík verður aldrei aftur á þessari síðu. En ég er nöldrari og verð að finna eitthvað á hverjum degi c´mon give me a break. Málefnin þynnast og ég verð að finna upp á nýjum....ég er að tala um kúk for crying outloud!!!!

Pæling dagsins: Ingibjörg = Hitler? Hefur einhver séð þau tvö í sama herbergi á sama tíma? Tilviljun?

Kvikmyndagetraun dagsins: "What should we fill the hot tub with?". "Women!?". "I like the way you think".

Svar gærdagsins: "Top Gun"


Sigurgeir 9:49:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, febrúar 05, 2002

Svarið við spurningu gærdagsins er "So I married an axe murderer".

Kúkapæling dagsins er þannig að þegar maður er bara með eitt blað eftir á klósettrúllunni, þá má grípa til ráðs sem mikið var notað í kreppunni. Þið takið blaðið og brjótið það tvisvar til helminga. Rífið síðan hornið sem er ekki með stökum blöðum heldur samanbrotið samanbrot if you know what I mean. Geymið afrifuna. Opnið blaðið og þá er gat í miðjunni. Stingið löngutöng í gatið og troðið puttanum upp í rassgatið (þegar þið eruð búin að skíta) og þrífið vel og vandlega með puttanum. Svo takiði puttann úr rassgatinu og þrífið hann vel með pappírnum s.s. kremjið pappírinn utan um puttann og dragið puttann út. Nú kemur afrifan (hornið) sér vel til að skafa undan nöglinni. Verði ykkur að góðu.

Kvikmyndagetraun dagsins: "It´s classified. Like Hollywood says, I could tell you, but then I´d have to kill you".


Sigurgeir 4:21:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, febrúar 04, 2002

fyrst að svarið er komið við kvikmyndagetrauninni þá ætla ég að koma með vísbendingu fyrir lúðana. en hún er svona!


"We´ve got a piper down" en þessi setning kemur fljótlega á eftir hinni.


Sigurgeir 2:12:00 PM | 0 comments links to this post |
Ég gleymdi að koma með meiri kúkapælingar. Þannig að ég ætla að koma með eina. Skilgreiningar á tegundum af kúk eru alltaf skemmtilegar. Bombur eru heldur leiðinlegur kúkur en hann kemur í meðalstórum kúlum úr endaþarminum og skvettir mikið upp þannig að þú getur blotnað á rassinum. Þess vegna er mjög gott að setja eitt hreinlætiseyðublað (skeinipappírsörk) í botninn á klósettinu til að koma í veg fyrir skvettur.


Sigurgeir 2:00:00 PM | 0 comments links to this post |
"Sigurður Ingi Ævarsson" svaraði kvikmyndagetrauninni rétt.


Sigurgeir 1:57:00 PM | 0 comments links to this post |
Jæja krakkar. Þið sem föttuðu ekki að kvikmyndin var Matrix þá ættu þið að fara að sjá hana. Þið eruð að missa af miklu.

Helgin var ekki skemmtileg. Eyddi henni í að læra. En það er gott að læra ... hóst hóst!

Heimabankinn minn er niðri....dæmigert, gerist alltaf þegar maður þarf að nota hann? Eru þeir ekki að fatta patternið? ÞAÐ ER MIKIÐ ÁLAG FYRSTU DAGA HVERS MÁNAÐAR VEGNA ÞESS AÐ FÓLK ER AÐ FÁ ÚTBORGAÐ OG ER AÐ BORGA REIKNINGA FÍFLIN YKKAR. Þeir ættu að laga þetta þannig að kerfið standist þetta álag.

pæling dagsins: hafiði farið á almennings klósett og verið að fá ykkur vatnssopa þegar einhver labbar inn að pissuskálunum og inn í skynjara sem lætur þær allar sturta niður. Þá minnkar krafturinn á vatninu sem þú ert að drekka. Finnst ykkur þetta ekki svolítið ógeðslegt?

kvikmyndagetraun dagsins: Þessi er í uppáhaldi hjá mér og ein besta mynd allra tíma. "Angus, solo!" þið fáið ekki meira. Sá/sú sem getur þetta er manneskja að mínu skapi.



Sigurgeir 1:38:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, febrúar 01, 2002

Sigurvegari dagsins og fyrsti sigurvegari yfir heila helgi er "Ásbjörg Kristinsdótttir"!!!!!!

Svarið kemur á mánudaginn fyrir lúðana sem ekki vita hvaðan þetta kemur.


Sigurgeir 3:17:00 PM | 0 comments links to this post |
Svarið við kvikmyndagetrauninni er "Dumb and Dumber".

Stutt blogg í dag enda að koma helgi. Vona að öllum gangi vel í hözzlinu um helgina. Ég sjálfur þarf að læra eins og motherfucker og get því ekki hlakkað til helgarinnar. Engin ráð frá mér í dag því nú þurfiði að reyna ykkar eigin brögð og brellur, sjálfstraust er lykillinn og því fyrr sem maður lærir að spinna á staðnum því betur gengur manni að hözzla. Engin(n) er of góð(ur) fyrir ykkur.

Helgarpælingin: Ef ég finn góðan brandara. Sest svo við hliðina á dömu og býð eftir því að hún fái sér gúlsopa úr glasinu sínu. Ákkúrat á því augnabliki segi ég brandarann (mjög stuttur og geðveikt fyndinn), hún springur úr hlátri og frussar áfenginu yfir mig. Mun hún þá sofa hjá mér seinna um kvöldið eða flýja af vettvangi?

Kvikmyndagetraun dagsins: Er létt eins og ég lofaði.

"Have you ever stood and stared at it, marveled at
it's beauty, it's genius? Billions of people just
living out their lives, oblivious. Did you know that
the first Matrix was designed to be a perfect human
world. Where none suffered. Where everyone would be
happy. It was a disaster. No one would accept the
program. Entire crops were lost. Some believed that
we lacked the programming language to describe your
perfect world. But I believe that as a species, human
beings define their reality through misery and
suffering. The perfect world would dream that your
primitive cerebrum kept trying to wake up from. Which
is why the Matrix was redesigned to this, the peak of
your civilization. I say your civilization because as
soon as we started thinking for you it really became
our civilization which is of course what this is all
about. Evolution, Morpheus, evolution, like the
dinosaur. Look out that window. You had your time.
The future is our world, Morpheus. The future is our
time."


Sigurgeir 3:10:00 PM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur