fimmtudagur, janúar 31, 2002
Sunna Birgisdóttir er sigurvegari dagsins en svarið kemur ekki fyrr en á morgun. Ég er farinn að halda að ég eigi bara tvo aðdáendur og þeir eiga báðir upphafsstafinn S eins og ég enda er hann flottastur.
Ég er svo hrærður núna. Ég er með tárin í augunum. Nafn mitt hefur komið fram á einum mesta töffaravef allra tíma ef ekki sá flottasti í mannkynssögunni (góð bók). Jonni hefur heiðrað mig. Ég er auðmjúkur í návist sensei Jonna.
Jæja ég er ekki hættur með kreditkortin. Finnst ykkur ekki óþolandi að þetta gríðarlega langa kortatímabil sem þessi fífl heimta að hafa yfir mesta útgjaldamánuðinn sem nær ekki einungis yfir jólainnkaupin og flugeldainnkaupin, heldur líka yfir janúarútsölurnar???? Vilja þeir ekki bara hafa árið sem eitt kortatímabil? Þá getur maður t.d. í janúar hvers árs fengið reikning fyrir öllum útgjöldum liðins árs og skotið sig í hausinn í skammdeginu! Æi fuck ég er hættur núna. Núna er þetta mál afgreitt. Þeir skjálfa núna því þeir vita að Sigurgeir er ekki ánægður með þá og Sigurgeir .... hann þekkir Jonna!
Siggi var snillingur gærdagsins og kom með svarið eftir nokkrar mínútur. En svarið er "Nýtt Líf", já elskurnar mínar þetta er fyndnasta mynd sem Íslendingar eiga. Ég vil benda á það að í kvikmyndagetrauninni geta komið setningar úr sömu mynd og hefur komið áður, þannig að ekki útiloka neitt í þessum heitasta leik almúgans á Íslandi og þótt víðar væri leitað.
Ég ætla að skella einni kúkapælingu hérna fyrir ykkur og þið getið sannreynt þetta um helgina yfir þynnkuskitunni. En pælingin er þessi....öllu heldur ráðleggingin. Þegar þið setjist á klósettið til að hafa hægðir, setjist þá með aðra rasskinnina á setuna fyrst og vel utarlega. Glennið því næst upp á ykkur rassgatið og skellið hinni rasskinninni á setuna eins utarlega (hinum megin) og þið getið. Nú er fyrirstaðan í lágmarki. Hafið góðar hægðir og njótið þeirra því þær eru oft mjög skemmtilegar. Þegar skemmtuninni er lokið er komið að hinu raunverulega skítverki en það er að skeina sér. Nú kom sér vel að hafa notað skálartæknina en vegna þess að rassinn var þetta mikið útglenntur er ekki mikið til að skeina. Nokkrar strokur og allur skítur er horfinn eins og dögg fyrir sólu. Verði ykkur að góðu og ég vona að ferðir á klósettið verði skemmtilegri en áður. Svo vil ég koma í gegn skemmtilegu slangi sem ég held mikið upp á en hefur aldrei náð vinsældum, en það er postulín. Jú jú við vitum öll hvað postulín er en það er bara aldrei notað nógu oft í sambandi við salerni. "Má ég nota postulínið hjá þér?" er mjög kurteis spurning sem þýðir "Má ég nota klósettið þitt" Þetta er alls ekki klúrt og í raun mjög siðmenntað og fólk ætti að nota þetta oftar.
Pæling dagsins: Ef allar lífverur eru eins og þær eru sökum þróunar. Eru bananar eins og þeir eru sökum fróunar?
Kvikmyndagetraun dagsins: "Samsonite, hah I was way off!"
Verðlaun eins og oft áður eru nafn sigurvegarans hér á þennan frábæra vef og það er ennþá flottara núna því nú er linkur frá Blogginu hans Jonna og hingað sem gerir það að verkum að þúsundir nýrra aðdáenda sjá nöfnin ykkar. Á morgun ætla ég að hafa létta getraun því þá er flöskudagur en þar til þá......

miðvikudagur, janúar 30, 2002
Ég fann þetta á vísi.is
Láttu í þér heyra
Ef þú vilt koma á framfæri athugasemdum við Evrópska handknattleikssambandið, þá geturðu sent skrifstofu þess tölvupóst.
Netfangið er office@eurohandball.com og þú getur t.a.m. notað þennan enska texta hér að neðan.
Dear Sirs.
I want to make my voice heard in the matter of the performance of the Swiss referees in yesterdays' match of Iceland vs. France.
It was outrageous.
It was loaded with inconsistencies and outright blunders.
If you want to be taken seriously in the future, you will apologize for their performance.
Since this is the second time officials screw up at the end of Iceland's games, costing them victory, one asks if this is a coincidence.
Lastly, I would like to make the Icelandic coach's words mine, when he spoke of the referees on Icelandic following yesterday's match: "They are geeks."
[Undirskrift]
Finnst einhverjum þetta vera vel saminn texti fyrir almúgamann að nota? Þetta er það allra lélegasta sem ég hef séð. Í þessum annars stutta texta er ekkert nema ásakanir, menn uppnefndir og dónaleg orð notuð. Ekkert fer fyrir rökum eða kurteisi eða nokkru sem mætti kalla þroska. ég varð að láta þetta flakka. En ég er annars sammála því að dómgæslan hefur vægast sagt verið léleg á þessu móti og alls ekki okkur í hag.

Rétt svar er komið: Sigurður Grétar Ólafsson svaraði rétt.
svarið kemur á morgun en svarið í gær var
"Sódóma Reykjavík"

O.k. ég gleymdi kúkadæminu sem ég lofaði fyrir löngu þannig að ég geymi það bara aðeins lengur. En ég er með eina kvörtun til kreditkortafyrirtækjana í viðbót við gömlu pistlana. Visa eða Euro eða bæði eru að auglýsa núna að það sé ekkert mál að fá greiðsludreifingu á þessa risareikninga sem jólatímabilið skelfilega langa skildi eftir sig. Já ekkert mál eða hittó. Það leggjast 20% vextir á upphæðina sem maður skilur eftir. Það er bara miklu hærra en yfirdráttarheimild. Það er líka ekkert mál að Kaupa Land Cruiser jeppa með öllum græjum, það þarf bara að eiga peninga til þess. Ef maður á peninginn þá er hægt að ganga frá kaupunum á jeppanum á einum degi, ekkert mál.
Pæling dagsins: "Ef ég set teiknibólu í stól einhvers og hann sest niður en teiknibólan skoppar á gólfið og stingur hann ekki. Er ég samt vondur?"
Kvikmyndagetraun dagsins: "Hvað er þetta, hafiði ekki séð sjónvarpsherbergi áður?" "Jú jú, en bara ekki svona flottar línur maður"
Sá/sú sem getur þetta fær nafnið sitt hérna á vefinn minn og plús í kladdan minn en það jafngildir boðskorti í næsta partý sem ég held.

þriðjudagur, janúar 29, 2002
Sunna Birgisdóttir er búin að svara rétt og nafnið hennar fær því að fara hérna á síðuna en svarið kemur ekki fyrr en á morgun.
Enginn gat svarað gátunni minn. Þetta var að sjálfsögðu stórmyndin "The Great Outdoors". Það sem er að frétta af mér í dag er að ég var að keppa í pílu við strákana hérna í OZ gryfjunni. Ég tók við af félaga mínum þegar hann var með mínus 120 í leik sem kallaður er "Cricket" og til að gera langa sögu stutta vann ég að sjálfsögðu með glæsilegum endaspretti. Ég skaut 3 pílum í röð í einfalt bullseye og skoraði svo tvisvar í það seinna meir og tryggði mér glæsilegan sigur. Þeir eru aular allir saman.
Annars hef ég bara verið að chilla, gærdagurinn fór í að horfa á survivor og ég verð að segja að ég varð mjög ánægður með að Lex og gamla beljan unnu ekki. Svo finnst mér undeclared þátturinn vera snilld.
speki dagsins: "Ef ég hnerra í Reykjavík, deyr þá fiðrildi í Kyoto?"
Kvikmyndagetraun dagsins: "M.Í.!!!! Hvað þýðir M.Í.?" "Mafía Íslands maður!"

mánudagur, janúar 28, 2002
Jæja nú verður sett fjör í þetta. Ég ætla að hafa getraun hérna og í verðlaun er nafn vinningshafans á síðuna!!!!!! Formið á þessu verður þannig að ég kem með setningu úr einhverri af uppáhaldsmyndunum mínum og sá sem sendir mér mail og giskar á rétta mynd fyrstur vinnur.
Setning(ar) dagsins er: "You bastard!". "What´s he saying?". "Go faster I think".
Sá/Sú sem getur þetta er snillingur.
Ekkert markvert gerðist um helgina þannig að ég hef í raun ekkert að segja. Ég ætla þó að koma með speki dagsins.
Speki dagsins: Ef nornir fljóta og endur fljóta líka þá er augljóst að endur eru nornir!

föstudagur, janúar 25, 2002
Það er komin helgi og Jonni er að yfirgefa mig. Ég er ekki sáttur því núna er enginn karatetöffari milli mín og inngangsins inn í Ost OZ. Þannig að leigumorðingi getur auðveldlega ráðist á mig. En ég er búinn að kom mér upp öryggiskerfi ég er með jólatré með ljósum á til að fela mig bakvið þegar skothríðin byrjar. Og í OZ er Benni orðinn trúnaðarmaður....hann getur ekki tekið neitt alvarlega......djöfull líst mér vel á það kjör....enda kaus ég Kónginn! Jæja en nóg af vinnustaðahúmor. Förum núna út í helgarfylleríshúmor. Um hvað getum við talað? Jú hvernig pikka á upp dömu. Ég hef áður komið inn á þetta umræðuefni og ætla nú að einfalda þetta oní ykkur sem ekki kunnið þetta. Málið er að þú verður að nota það sem þú hefur. Ef þú ert ekki fallegur (eins og ég) þá verður þú að nota aðra hæfileika t.d. húmor (en ég er líka geðveikt fyndinn) eða fáránlega hæfileika eins og töfrabragð eða eitthvað. Passaðu þig bara að vera innan velsæmismarka. T.d. sjarmerar það ekki stelpu að geta pissað í bjórglas af 3 metra færi ef bjórglasið er á borðinu hennar og hún bað þig ekki um að sýna sér þetta. Setjum upp dæmi. Það er stelpa á barnum og hún virðist vera ein og þú ert búinn að gefa þér tíma í að fylgjast með henni og fullvissa þig um að hún er ekki með kærastanum sínum eða eitthvað svoleiðis. Þú sest við hliðina á henni og tekur klaka úr glasinu þínu og mölvar hann á barborðinu. Hún væntanlega lítur á þig með "viltu útskýra fyrir mér hvað þetta var svipnum" og þá segirðu "Ég var bara að brjóta ísinn" og heldur áfram út frá því t.d. "Ég sá þig þegar þú komst inn enda ertu langfallegust hérna inni, mér langar til að kynnast þér og ef þú ert einungis með helming ytri fegurðar þinnar innan í þér ertu samt fallegasta persónan hérna inni". Ef þetta kemur þér ekki í brækurnar hennar þá er eitthvað að þér.
pæling helgarinnar: Sæt stelpa á bar, lamb eða úlfur?

fimmtudagur, janúar 24, 2002
Ég fór í bíó í gær. Brandur "mágur" minn gaf mér og Signýju miða á Bandits. Við kíktum í moggann og sáum að hún var klukkan 22:30 í Regnboganum. Þegar við komum á staðinn var myndin löngu byrjuð og tíminn hafði breyst einhvern tímann um daginn. Við fengum sem betur fer að fara á aðra mynd sem byrjaði 22:30 en hún heitir Shallow Hal. Sennilega vegna þess hvernig hlutirnir æxluðust og ég hafði ekki gert mér neinar vonir um þessa mynd að þá fannst mér hún nokkuð góð og hlutir sem venjulega fara í taugarnar á mér í svona myndum gerðu það ekki eins mikið í þetta skiptið. Eitt verð ég samt að minnast á en það var lykilatriði í myndinni. Hal er dáleiddur þannig að hann sér ytra útlit fólks eftir innri fegurð t.d. feit stelpa með rosalega fallega persónu fær útlit súpermódels í hans augum en ekki annara. Eitt (reyndar margt) skildi ég ekki. Hal átti vin sem var þannig líkamlega fatlaður að hann gekk á fjórum fótum. Vinurinn virkaði með mjög fallega persónu. Var alla vega með mjög jákvæða sýn á lífið þrátt fyrir alvarlega fötlun. Útlit hans breyttist ekkert í gegnum alla myndina? Hefði hann ekki átt að virka sem karlkyns súpermódel? Hal sjálfur breyttist ekkert og annar vinur hans ekki heldur. Það var bara fólk sem hann þekkti ekkert sem breyttist. Kannski var það í dáleiðslunni en það kom ekki nógu vel fram.
Speki dagsins: Ætli Valtýr Björn sé hræddur við Þorgrím Þráinsson? Þorgrímur hefur drepið í ansi mörgum stubbum og Valtýr Björn er yfirstubbur!
Skot dagsins: Benni! Áttu kóng?

miðvikudagur, janúar 23, 2002
Sorry ég var veikur í gær og var ekki til í blogg. Fékk þó góða hugmynd meðan ég var á postulíninu að koma fyrir netsnúru þar. En er það kannski ekki fulllangt gengið? Ég er ekki fullur af speki í dag enda ekki 100% hress. En eitt er þó víst að það er djöfulli kalt úti.
Pæling dagsins: Er orðið "Vandræðagemsi" með nýja merkingu í dag?

mánudagur, janúar 21, 2002
Ég er með einn punkt sem ég man ekki hvort hafi komist til skila. Vinnufélagi minn sensei Jonni kom með lausn á vandamálinu með að ef maður hefur fleiri en eina eiginkonu þá eiga þær til að samstilla tíðarhringinn sinn. En þessu er að sjálfsögðu hægt að stjórna með pillunni. Snilld Jonni og hafðu þökk fyrir. p.s. this is pulsa.....what´s up man? prívat húmor!
ÉG var að horfa á 8. seríu af friends í gær fyrstu 3 þættina og ég verð að segja að þetta er snilld og Joey er alltaf fyndnastur. Monika er bara orðin geðveik og farin yfir strikið líkt og Ally McBeal. Hætt að vera fyndin, bara geðveikt. Aðrar persónur halda þættinum/þáttunum uppi.
Tengdamamma reyndi í gær að fá mig til að giftast dóttur hennar út af bollastelli!!! Hvað er málið. Mamma hennar tengdó er að útbúa eitthvað bollastell og vildi fá dagsetningu til að setja á það eitthvað einfalt eins og giftingardaginn okkar Signýjar. Sko ég get ekki einu sinni hlegið að þessu. Kærastan mín er ófrísk og það hefur ekki enn komið mér á hnéin og ég á að giftast henni til að amman geti sett dagsetningu á bollastell og við drekkum hvorugt kaffi!!!! Hvað á ég að segja við barnið??? Já ástæðan fyrir því að við giftum okkur, jú sjáðu til við vorum búin að komast að því að þú værir á leiðinni en það fannst okkur ekki nógu merkilegt til að gifta okkur en þegar við fréttum af bollastellinu hennar langömmu þinnar þá slógum við til. Hvað er rómantískara en að ef ég hefði brugðist þannig við að segja "Heyrðu þú segir nokkuð. Signý mín eigum við ekki að gifta okkur? Ég er ekki með hring og bara að gera þetta fyrir kaffibolla en þetta er samt rómó er það ekki?" Æi en hvað um það það mátti reyna. Hún tengdó er alveg ágæt og var örugglega bara að grínast þó að mér finnist oft ansi mikil alvara á ferð í þessum málum.
Pæling dagsins: Hversu margir hefðu drepið mig ef ég hefði laumaði inn í textann hér að ofan hver sé ólétt og hver sé pabbinn í nýjustu friends seríunni múha!

föstudagur, janúar 18, 2002
Alex, kolruglaður Kanadabúi sem vinnur með mér, kom með góðan brandara í gær. Hann er gamall en að heyra Kanadabúa segja hann á íslensku gerði hann ennþá fyndnari. Ef ég er ég og þú ert þú hvor er þá hálfviti? Þetta er heimspekilegt og kemur einmitt inn á tungumáladæmið í gær. Ef þú spyrð þessarar spurningar og færð svarið "þú" þá svarar maður voða fyndinn "já gott því þú ert þú og ég er ég". Ef svarið er hins vegar "Ég" þá segir maður, "Hvar er sjálfsálitið maður" og aftur voða fyndinn. Alex hef ég grunaðann um að plana heimsyfirráð því hann virkar ja svona eins og gæjinn í Office Space "I could burn this place down" gaurinn. Hann virkar á mörkum geðveikinnar og því til alls líklegur. En það er einmitt þetta sem gerir hann svo þrælskemmtilegan....eða eins og við Íslendingar segjum, hann er skemmtilega ruglaður.
Pælingar mínar um þann verknað sem oftast er kallaður að "Kúka" verða hér sennilega í næstu viku en þar eru um auðugan garð að grysja. En endum þessa viku á góðri helgarpælingu. Hún tilheyrir þessum tungumálapælingum en þær skipta mig miklu. Þið munið kannski eftir pikk-up línunni minni með varirnar sem aldrei geta snertst. Eða setningin "Ég lýg alltaf" ef ég lýg alltaf þá er hún ósönn en þá er hún sönn og bla bla bla. Hér kemur ein gömul og góð en ný hér á þessari síðu.
Speki dagsins: Hún er frummyndakenning Platóns. "Hugsaðu um hest" o.k. nú loka allir augunum og hugsa um hest. Eru allir að hugsa um sama hlutinn? Eru allir hestarnir eins? Ef allir hestarnir eru mismunandi, hvernig vitum við að allir séu að hugsa um hest? Hver er frummyndin af hesti sem allar hugsanir tengjast og gerir okkur öllum kleyft að skilja hvað er verið að tala um þó enginn sé að tala um nákvæmlega sama hestinn? Er þá einhver furða að þegar menn eru með fullt herbergi af fólki og það er allt að rífast um hvort Guð sé til og hver Guð sé og hvort hann sé kona etc. að það sé enginn sammála um neitt? Það er enginn að tala um sama Guðinn!

fimmtudagur, janúar 17, 2002
4 dagurinn í röð þar sem ég næ að vakna fyrir átta. Þetta er met síðan ég fór í jólafríið mitt. Enda er því lokið. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað fólk hefur mismunandi skoðanir á öllu og hvað tungumálið er meingallað. Ég lærði í heimspekinni að einhver af grísku snillingunum hafði sagt að Guðinn sem gaf mönnunum tungumálið var fullur. Þ.e.a.s. við höfum þetta tól en það er meingallað. Dæmi um þetta er þegar einhver gella segir við kærastan sinn "Ég elska þig" og hann svarar "ég líka"?!?!? hvað er hann að meina? Elskar hann líka sjálfan sig eða elskar hann hana líka til baka? Ekki nógu gott dæmi? o.k. hér er annað... Viltu hitta mig á kaffibarnum klukkan fimm? hvað þýðir þetta? þýðir þetta klukkan 05:00 eða klukkan 17:00. Hefð og venja hjálpar okkur að skilja og við skiljum þetta flest sem að hann vilji hitta mann klukkan 17:00. Þetta er eins og með að eitthvað sé helmingi dýrara en áður. Í stærðfræðilegum skilningi þýðir þetta 50% verðhækkun en flestir túlka þetta sem 100% verðhækkun. Ruglingurinn kemur af því að ef eitthvað var helmingi ódýrara þá er það núna tvöfalt dýrara en ekki helmingi, nema þá helmingnum af því sem það kostar núna. Það má segja að ef eitthvað kostaði 50 kr og kostar núna 100 kr þá sé það helmingi af 100 kr. dýrara en jafnframt tvöfaldar 50 kr. dýrara. Svo eru hugtök eins og það sem ég hef verið að pæla í. One-night stand eða einnar nætur gaman. Er það þegar maður pikkar upp stelpu sem maður hefur aldrei séð áður, ríður henni og talar svo aldrei aftur við hana? Hvenær hættir þetta að vera einnar nætur gaman....er það við önnur mök? Ef maður ríður henni aftur mánuðum seinna og talar ekki við hana aftur???? voru það tvö einnar nætur gamön (hvernig er gaman í fleirtölu?) eða tveggja nótta gamön? Ef maður er með gellu á föstu í marga mánuði og kelar við hana og gerir hitt og þetta en ríður henni bara einu sinni....er hún þá einnar nætur gaman? Ef maður hefði viljað fleiri nætur en hún ekki.....etc. hvar eru mörkin? Jæja ég gat ekki haft þennan pistil svona langan án þess að koma kynlífi inn í hann. Heimspekin er svo skemmtilega að maður getur nýtt hana í hözzlinu. En ég hef ekki verið á markaðinum í 6 ár þannig að ég er bara að miðla þekkingu og gefa hugmyndir....það er ekkert bannað er það?
Speki dagsins: Kleinuhringur með engu gati er ekki kleinuhringur heldur vínarbrauð???

miðvikudagur, janúar 16, 2002
Mikið að gera í vinnunni þessa dagana. Má ekki segja hvaða hlutir það eru en þeir eru ýmist skemmtilegir, leiðinlegir, áhugaverðir eða pirrandi. En hvað um það. fann góða speki á tilverunni og ætla að láta það vera speki dagsins:
Life's Reflections
1. I'm not into working out. My philosophy is no pain,
no pain.
2. I'm in shape. Round is a shape.
3. Ever notice when you blow in a dog's face he gets
mad at you, but when you take him in a car he sticks
his head out the window?
4. Ever notice that anyone driving slower than you is
an idiot, but anyone going faster is a maniac?
5. You have to stay in shape. My mother started walking
five miles a day when she was 60. She's 97 now and we
have no idea where she is.
6. I have six locks on my door, all in a row. When I go
out, I lock every other one. I figure no matter how
long somebody stands there picking the locks, they are
always locking three of them.
7. Ask people why they have deer heads on their walls
and they tell you it's because they're such beautiful
animals. I think my wife is beautiful, but I only have
photographs of her on the wall.
8. I've always wanted to be somebody, but I should have
been more specific.

þriðjudagur, janúar 15, 2002
jæja þetta blogg kemur seint. Maður var nú að flytja sig í vinnunni. Flutti af efstu hæð í OZ niður á neðstu hæð.....alltaf að flytja gaman gaman. Gerði mitt fyrsta C++ forrit í dag. Skannaði inn myndir af barninu mínu (tilvonandi) áhugasamir geta sent mér póst og beðið um þær.
speki dagsins: Þegar sleikja á einhvern upp er best að vera einlægur....eða ríkur.
ein pæling: Ef nauðgun er ofbeldi en ekki kynlíf.....er nauðgun þá framhjáhald?

mánudagur, janúar 14, 2002
Jamm nú er ég kominn úr fríi og get farið að blogga aftur. Mér dettur ekki til hugar að blogga þegar ég er í fríinu. Það er leiðinlegt í vinnunni en ekki í fríinu :-)
Civilization 3 hélt mér vel frá blogginu.
Ég er að fara með Signýju í sónar á eftir. Svokallaðan 19. vikna sónar. Nei ég ætla ekki að vita kynið, mér finnst slíkt fáránlegt. En maður fær þá loksins að sjá krílið.
speki dagsins: We´ve gotta work our work!
ein pæling samt: Grunnhyggni karla er í útlitinu en kvenna í gáfunum....satt eða logið?