Drekinn frá OZ

þriðjudagur, desember 25, 2001

Jæja súkkulaðidagatalið búið. Nú verða margir sárir :-(

Ég fékk fullt af drasli í afmælisgjöf og helling í jólagjöf. Ég fékk Civilization 3 í afmælisgjöf frá Signýju..... það finnst mér mjög skrítið. Hún er kannski að kaupa sér frið frá mér en venjulega kvartar hún yfir því að ég sé of mikið í tölvunni. Ég fékk hamingjuóskir allt frá Noregi og Englandi og til Kaliforníu. Þannig að maður á greinilega vini út um allt. Skemmtilegasta jólagjöfin var frá Signýju en hún gaf mér þessa dýrindis digital cameru (sem ég náði að díla út á heildsöluprís) en þetta var mjög óvænt gjöf múhahahaha.

Ég fékk gettu betur spilið (ásamt Signýju) og svo fékk ég skyrtu (í afmælisgjöf), Wolfenstein 3, osta og vínkörfu, bók, peysu, taflborð með babúskupeðum, fóstbræðraspólurnar, skálar og kaffistell (sem við Signý fengum saman), baðvigt og svo fengum við fullt af öðru dóti sem við erum voða þakklát fyrir.

Signý vann svo í happdrætti í vinnunni og það voru engin smá verðlaun, stereógræjur með öllu (nema MD og MP3 og plötuspilara;-)

Speki dagsins: Et, drekk og ver glaðr.


Sigurgeir 1:18:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 24, 2001

ó já ég gleymdi tilkynningu dagsins. Þannig er að ég er að verða pabbi!!!!! Signý er kasólétt og ég er nokkuð viss um að það sé mitt ;-)

Hún er sett á 13. Júní. hvað sem það þýðir????


Gleðileg Jól öll sömul ta ta!


Sigurgeir 2:30:00 PM | 0 comments links to this post |
Engla template-ið aftur upp því það er svo jólalegt.


Sigurgeir 12:35:00 PM | 0 comments links to this post |
24. desember Jólatré var það og það er bara fínasta mál. Ég á afmæli í dag og það er líka hið besta mál. Nei það er ekki slæmt að eiga afmæli á þessum degi og nei ég fæ ekki bara einn pakka frá hverjum. Þeir sem gefa mér einn pakka vita að þeir eru ekki vinir mínir lengur. En eitt finnst mér glatað og það er það að í þessari tegund af súkkulaði dagatali sem ég hef keypt síðan ég var lítill er hætt að hafa súkkulaðið fyrir 24. des stærra en hin og í þessu var enginn jólasveinn!!!! What´s up with that?

speki dagsins: Get ég borðað meira?


Sigurgeir 12:30:00 PM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 23, 2001

hmmm var bambi ekki dádýr....? well hverjum er ekki sama?


Sigurgeir 3:05:00 PM | 0 comments links to this post |
22. des. súkkulaðið í formi trumbu. Jólatrumba það er bara helv... svalt. Ég fékk mail frá einhverju skítafyrirtæki sem vildi setja síðuna mína á leitarvélar útum allan heim og rukka mig fyrir það. Ég veit að það eru ekki margir úti í hinum stóra heimi sem tala og íslensku þannig að ég sagði nei takk.

Speki gærdagsins: Ef þú ætlar að negla nagla í vegg vertu viss um að hitta naglann eða láta einhvern annan halda honum.

23. des. Bambi já Bambi. Ekkert er jólalegra en hreindýr. Hafiði pælt í því hversu fáránlegir hlutir eru jólalegir???? Hreindýr!!!!!

Þolllákur eða Þorlákur er í dag og ég að taka til. Allir sem vilja hjálpa mega kíkja í heimsókn í hreinsunargallanum. Vúha.

Speki dagsins: Hafiði séð AtómJón og Jón Hamar á sama stað á sama tíma???? Tilviljun? Held ekki. Alla vega pæling.



Sigurgeir 3:04:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 21, 2001

21. desember. Loksins er eitthvað vit í jólasúkkulaðidagatalinu mínu. Jólakrans var það heillin!

Í dag eru litlu jólin í OZ og ég er leynivinurinn hans Bigga múhahahahahahahaha!

Þeir sem ekki skildu þetta áttu ekkert að gera það. Nú ætti Jason að fara að koma. Hann er þeldökkur ameríkani sem kemur oft til mín um jólin. Hann kemur í dag eða á morgun.

Speki dagsins: Ef ég er einn á eyðieyju og enginn veit af því er ég þá til?


Sigurgeir 11:48:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, desember 20, 2001

Jamm ég er í jólafríi og gleymdi að blogga í gær. 19. desember í jólasúkkulaðidagatalinu var líka furðulegur. Einhverjar tvær keilur og tvær kúlur við þær. Ég hef ekki hugmynd hvað þetta á að vera. 20. desember var samt fínn hann er með svona fjallakofa með snjó og grenitrjám og kósý. Það er bara brill.

Speki gærdagsins: Betra seint en aldrei.

Speki dagsins: Afhverju er ekki til ofurhetja sem heitir AtómJón?

Leiðrétting: Ég las á www.jolahusid.com að popp þrætt á streng til að skreyta um jólin er gamall siður en ekki nýr eins og ég hélt. Ég er nógu mikill maður til að viðurkenna að ég sé ekki fullkominn eins fáránlegt og mér finnst sú tilhugsun en þá er ég ekki 100% fullkominn en ansi nálægt því.

p.s. ég hef heyrt því fleygt að einhver ætli að fá sér súkkulaðiást um jólin múha!


Sigurgeir 5:10:00 PM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 18, 2001

18. desember og hvað haldiði???? Súkkulaði dagsins er Sveppur???? Hvað er jólalegt við brosandi svepp? Þetta er svona eitt af því sem ég var að pæla í um daginn. Það sem er jólalegt fyrir eina þjóð er það ekki í augum annarar. Ég veit ekki hvaða sjúka þjóð finnst sveppir jólalegir en það er örugglega lið í Kristjaníu eða eitthvað svoleiðis. Poppkorn á streng hengt á jólatré....ekki jólalegt en þetta er farið að sjást hérna, enn eitt dæmið.... kannski er allt jólalegt.

Visaröflið í mér um dagið fær núna update. Pabbi minn sem á og rekur RAKARASTOFUNA KLAPPARSTÍG og þangað fara allir í jólaklippinguna sína RIGHT!!!!!, hann sagði mér hvernig hann leysti málið. Í fyrsta lagi þá eru ekki öll fyrirtæki með svokallað breytilegt tímabil, sum miða bara við mánaðamótin. Þess vegna getur maður ekki vitað þetta án þess að spyrja á staðnum eða sjá "Nýtt kortatímabil" í glugganum. Þannig að það eru ekki öll fyrirtæki með þetta fyrirkomulag. En pabbi er í þessum hópi, en hann er svo helvíti sniðugur. Hann er líka með straujara svona eins og kortin voru tekin í gegn í gamla daga. Ef fólk vill fá þetta á núverandi kortatímabil þá getur hann tekið kortið á gamlamátann og voilà ekkert mál.

Eitt sem ég var að pæla í.... nú var Jólahlaðborð hjá OZ um daginn og vegna dyggrar aðstoðar Benna þá tókst okkur að halda staðsetningunni leyndri (ég er í skemmtinefnd) og allir héldu að við værum á leið í bláa lónið en við vorum á leiðinni til Stokkseyrar. Nú hafði einn vinnufélaginn minn Jonni sent sér SMS með staðsetningunni sem hann svo sýndi okkur þegar við vorum að vera komnir á staðinn. Hann þóttis voða sniðugur að hafa fundið þetta út, en þá fór ég að pæla, gat hann ekki hafa sent sjálfum sér SMS eitt fyrir hvern stað á landinu í svona klukkutíma akstursradíus og svo sýnt okkur það rétta þegar við vorum að koma á staðinn???? Þetta er spurning, ég skoðaði aldrei inboxið hvort það innihéldi fleiri skilaboð.

Speki dagsins: Spík tú al ðe tsjildren! Spík tú evrítíng ðat livet end múvet on ðí örþ. jano kos mí is a man mí soffa inna dí gettó jono and ða last pleis æ lif a gústán ontil ðe govament púss it dán. eða með orðum Bill and Ted "Be excellent to each other"


Sigurgeir 10:41:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 17, 2001

17. desember, vika í afmælið mitt, systurdóttir mín 5 ára í dag og súkkulaði dagsins er Engill. Englar eru mjög jólalegir finnst mér. Þeir svifu yfir vitringunum og sögðu þeim að heimsækja Jésu (Ésú).

Pæling: Verpa englar eggjum? Ef svo er gera þeir hreiður? Hvergi í Biblíunni segir að englar hafi verið menn í lifanda lífi á jörðunni og svo dáið og risið upp til himna og orðið að englum. Þetta eru sér lífverur (sjá Dogma). Er eitthvað óeðlilegt við það að þeir búi til hreiður og verpi eggjum þegar þeir fjölga sér?

Speki dagsins: Það er engin furða að Kirkjan hafi talið kynlíf af hinu illa í allan þennan tíma. Kynlíf innan kirkjunnar er milli presta og kórdrengja og það ber með réttu að banna.


Sigurgeir 11:36:00 AM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 16, 2001

16. desember hálfmáni er súkkulaði dagsins og Mamma á afmæli.


Sigurgeir 8:37:00 PM | 0 comments links to this post |

laugardagur, desember 15, 2001

15. desember og súkkulaðið í var í formi jólaskós. Sennilega svona skór sem maður setur út í glugga. Jæja gaman að þessu.

ekkert bull í dag enda blogga ég ekki um helgar.


speki dagsins: sá hana á www.kkdi.is

Ef steinn dettur á krukku - þá brotnar krukkan.
Ef krukka dettur á stein - þá brotnar krukkan.
Það er alltaf vont fyrir krukkuna. -- Talmud

gaman að finna speki á óvenjulegum stöðum.





Sigurgeir 9:07:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 14, 2001

Eitt skemmtilegt sem barst mér til eyrna í gær. Vinir mínir í útlöndum hafa haft mjög gaman af súkkulaðidagatalinu mínu og telja mig hafa bjargað jólunum þeirra. Tveir eru á heimleið en það eru Keli sem kemur á morgun eldsnemma og Begga Ó. kemur á mánudag. Þannig að við endurheimtum þau fyrir jólin. En bara láta alla úti vita að ég mun halda þessu til streitu og gera mitt besta til að gera jólin hjá Íslendingum erlendis bærileg.


Sigurgeir 2:56:00 PM | 0 comments links to this post |
14. desember og í súkkulaðidagatalinu mínu leyndist jólabjalla úr súkkulaði bak við dyr númer 14. Já þetta kallar maður sko ruttma og melódíu!

Nöldur: Af hverju í andskotanum er alltaf lengt helvítis kortatímabilið yfir jólin???? Ég las í upphafi mánaðarins að kortafyrirtækin hafi samið við verslunareigendur að nýtt kortatímabil byrji 8. des. (minnir mig) í stað hins hefðbundna 18. des. Hvaða hálfvitar eru þetta???? Ég þoli ekki þessi rök að þá hafi menn fleiri helgar fyrir jól á nýju kortatímabili! Þetta þýðir fyrir mig að í stað þess að hafa jólareikningana tvískipta, helming 5. janúar og helming 5. febrúar, þá þarf ég að greiða allt draslið á einu bretti 5. febrúar og ef ég vil tvískipta reikningnum þá kostar seinni helmingurinn mig 20% vexti!!!! Hverjum er greiði gerður með þessu? Hef ég sem notandi kortsins ekkert að segja í þessum málum?

Pæling: Á Lotus salernispappírsumbúðunum stendur Lotus Professional. Hvernig verður maður Lotus Professional???? Er það þegar maður er búinn að skeina sjálfum sér í ákveðinn fjölda ára að þá öðlist maður þennan heiðurstitil? eða er það fólk eins og t.d. fóstrur sem hafa atvinnu af því að skeina litlum börnum? Er hægt að fá klósettpappír fyrir amatör?

Speki: Ef ég segi "Ég lýg alltaf" er ég þá að segja satt eða ljúga? Ef ég er að segja satt, þá er ég að ljúga en þá er ég að segja satt sem þýðir að ég sé að ljúga....


Sigurgeir 11:20:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, desember 13, 2001

Innskot: Væri ekki sniðugt að opna pulsustað við hliðina á American Style og kalla hann Doggy Style?????


Sigurgeir 2:00:00 PM | 0 comments links to this post |
13. desember og súkkulaðið í lagi kertaljóss á grein. Það er mjög jólalegt og ég í jólaskapi í nýju táslusokkunum mínum.

Vildi benda á þessa síðu þar sem frændi minn (nefni engin nöfn) rökræðir sjálfsfróun.

Brandari.... Hænan liggur á hliðinni með bros á vör og steinsofandi í rúminu með henni er egg sem er andvaka, frústrerað og með fýlusvip.



Speki dagsins: Pulsa eða Pylsa.....(ef þið pælið í því þá er jafnmikil speki í þessu og hvort kom á undan eggið eða hænan?)


þar með svöruðum við aldagamalli spurningu um hvort kom á undan eggið eða hænan.


Sigurgeir 11:39:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, desember 12, 2001

12. desember súkkulaðið var hvorki meira né minna en jólakúla (svona eins og sett er á jólatré).

Lítið um bull í dag en skemmtileg speki sem hægt er að rökræða fram og aftur eða inn og út!

Speki dagsins: "Framtíðin er í þínum höndum" hvergi sannara en á veggnum fyrir ofan hlandskálar!?!?!?


Sigurgeir 10:23:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 11, 2001

Eitt tilraunablogg hérna, lofa að gera þetta ekki oft.

takk fyrir mig!


Sigurgeir 9:51:00 PM | 0 comments links to this post |
Verð að koma einu að. Ég er að vinna hjá hinu stórfenglega fyrirtæki OZ og mér datt svolítið í hug áðan þegar mér var litið til skrifstofu Jóns L.(eða segir maður Ls.) Árnasonar. Hún er staðsett við hliðina á klósettunum á efri hæð Osts byggingarinnar (local húmor). Tilviljun???? held ekki, sko maður fer inn um einar dyr og teflir við Jón L. en um aðrar til að tefla við Páfann.


pæling!


Sigurgeir 4:24:00 PM | 0 comments links to this post |
11. desember. Tengdapabbi á afmæli í dag og hvað haldiði!!!? Súkkulaði dagsins er bangsi. Tilviljun? ég held ekki.

Vinnufélagi minn sendi mér kveðju í gær og var hún mjög skemmtileg og gott að heyra að maður er metinn að verðleikum. En honum fannst óþarfi að taka fram hvernig súkkulaðið bragðaðist í hvert sinn. Þannig að til að verða við óskum aðdáenda minna þá segi ég í eitt skipti fyrir öll. Ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum með súkkulaðið í súkkulaði dagatalinu mínu og mun því ekki taka fram hvernig það bragðaðist nema að eitthvað óvenjulegt gerist.

Pæling í dag. Pælingin er þessi, maður sem ákveður að eyða ævinni standandi á höndum.....hvernig fer hann á klósettið?

Speki dagsins: Munur á vinum og kærustum er sá að maður ríður kærustum en ekki vinum. Vinkonur falla báðum megin því maður getur verið vinur stelpu en samt riðið henni.


Sigurgeir 1:33:00 PM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 10, 2001

10. desember. Sérstaklega skemmtileg mynd. Sleði með jólagjöfum. Súkkulaðið æðislegt. Síðan leit ég út og snjórinn er farinn. Þetta er ótrúlegt. Veturinn á Íslandi er þannig að það er snjór frá 15. nóvember til 15. desember (circa) og svo snjóar aftur í janúar og fram að páskum. einu sinni var það svo að það voru hvít jól ár eftir ár en núna eru það endalaust rauð jól og svo hefur veðurguðunum fundist sérstaklega fyndið að hafa áramótin snjólaus líka bara svo að flugeldarnir geti kveikt í einhverju sem annars brynni ekki.

Speki dagsins: Jólasnjór = Gerfisnjór ???? nýyrði


Sigurgeir 11:42:00 AM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 09, 2001

8. desember var smákaka
9. desember var gamaldags lukt.

Súkkulaðið bragðaðist vel.

Sorry en helgarblogg is not my thing.


Sigurgeir 10:25:00 PM | 0 comments links to this post |

föstudagur, desember 07, 2001

7. desember í súkkulaðidagatalinu mínu var snjókarl. Mér finnst snjókarl voða jólalegur, en ég spyr mig, er þetta sama súkkulaðidag selt í Ástralíu? Nú eru jólin á sumrin þar. Þannig að Snjókarl er kannski ekki svo jólalegur og þá er þetta svoldið ósmekklegt. En kannski skipta þeir út myndinni fyrir jólakengúru eða eitthvað. Þannig að þetta eyðilagði ekki jólaskapið hjá mér sem er að fara af stað.

Speki dagsins: Þetta er þekkt speki og tilvalin fyrir helgina og hátíðarnar. Spurningin um hvernig menn telja Guð vera. Maður heyrir oft að Guð sé alvitur, algóður og almáttugur. Ef maður pælir í þessu þá gengur þetta ekki upp. Almáttugur er hugtak sem er í eðli sínu gallað, sbr. getur Guð gert svo stóran stein að hann gefur ekki loftað honum sjálfur? Alvitur og algóður gengur ekki saman í heiminum eins og við þekkjum hann. Við vitum að það er til illt í heiminum, við teljum þjáningar, sjúkdóma, stríð og hungursneyð til illra hluta. Þannig að það er til illt í heiminum. Ef Guð er algóður hvers vegna er þá til illt í heiminum? Ef illt er til í heiminum og Guð er algóður þá getur hann ekki verið bæði almáttugur og alvitur. Ef hann væri almáttugur þá myndi hann eyða öllu illu nema hann vissi ekki af hinu illa, en þá er hann ekki alvitur. Ef hann er alvitur og almáttugur þá getur hann ekki verið algóður því við vitum að illt er til í heiminum og hann lætur það viðgangast. Það er hægt að leika sér með þetta endalaust og ég ætla ekki að fara lengra með þessa speki núna en þið megið rökræða þetta í partýum helgarinnar.

Pæling helgarinnar: "Hvort myndirðu vilja dansa við geðveikt flotta gellu heilt kvöld á balli og hún er ýkt sexý klædd og dansar utan í þér nánast eins og hún sé að hafa mök við þig á gólfinu og allir sjá til ykkar eða sofa hjá þessari gellu en enginn væru vitnin og enginn mundi trúa því og hún yrti ekki á þig aftur?"

Léleg pickup lína sem mér var að detta í hug. It´s the presence of the artist that makes the difference between naked and nude. Would you go to my place and get nude with me. I´m an artist and you are a work of art and I´d like to do you!


Sigurgeir 11:30:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, desember 06, 2001

Eitthvað virðist vera að því það sem ég skrifa er ekki að birtast....hmmm testing one two three!


Sigurgeir 10:39:00 AM | 0 comments links to this post |
Ég er svo aldeilis hlessa! Súkkulaðið í dag var jólasveinn. Þetta kom mér á óvart. Í gamla daga þegar maður fékk sér súkkulaðidagatal þá var það alltaf með stóran jólasvein þann 24. desember, undantekningin var Jólastjarnan fræga sem vísaði vitringunum leiðina. En þetta var aldeilis ánægjulegt og súkkulaðið er ennþá mjög gott.

Ég rakaði mig í morgun og er því sætari en venjulega, en stelpur ekki fá neinar glóríur því þessi foli er frátekinn!

O.k. ég ætla að nota þetta sem kvörtunardag. Ég er í mjög góðu skapi en ég ætla að kvarta undan einu sem ég þoli ekki bara vegna þess að ég man eftir því í augnablikinu. Það sem ég þoli ekki er fólk sem er að beygja og drullast ekki af stað og út á gatnamótin. Í fyrsta lagi þoli ég ekki fólk sem drullast ekki af stað á beygjuljósum sem yfirleitt eru stutt og það komast bara tveir til þrír bílar yfir í stað sjö til átta vegna þess að þetta lið getur ekki skellt í gír og ýtt á bensíngjöfina. Það þarf ekkert að negla af stað en það þarf að fara ákveðið yfir ég meina það er grænt ljós!!!! En svo er það fólk sem er að beygja þar til vinstri þar sem þarf að fara yfir akgreinina sem er með gagnstæða akstursátt. Ég meina það er í lagi að fara vel út á gatnamótin....bara ekki fyrir bílana sem koma á móti. Oftast á slíkum gatnamótum er ekki hægt að komast yfir fyrr en ljósið er orðið gult eða jafnvel rautt (því íslendingar líta á "gult ljós" sem "gefa í ljós") og því skiptir máli hversu margir bílar komast inn á gatnamótin til að geta með góðu komist yfir á þessum ljósum. Sumir hálfvitar bíða bara við ljósin að því þeir sjá ekki tilganginn að fara inn á gatnamótin þegar svona mikil umferð er og svo gefa þeir í þegar það er orðið rautt og skilja alla hina bílana fyrir aftan sig eftir á ljósunum. Þetta eru "Palli var einn í heiminum" bílstjórar og á að taka af lífi þegar þeir nást. Nú að lokum og aðalástæðan fyrir þessu röfli mínu eru asnar á stórum jeppum, það er svo margt sem hægt er að röfla útaf en ég ætla bara að tala um eitt sem ég þoli ekki við þá sem eru á jeppum. Það er þegar maður kemur að ljósum þar sem ekki eru beygjuljós og maður ætlar að beygja til vinstri. Svo er Jeppafífl beint á móti manni að fara að beygja líka, nema hann drullast ekki almennilega út á gatnamótin, hvað þýðir þetta???? Jú ég sé ekki hvort það er að koma bíll á móti mér. Ég þarf því a) að bíða þar til jeppaasninn getur beygt og séð svo til hvort mér er óhætt. b) Farið aðeins inn í akbrautina sem kemur á móti í von um að sjá framhjá jeppanum og vona að enginn bíll sé ákkúrat að koma á móti því það þýðir að hann smassar framan á mig eða reynir að forða árekstri með því að sveigja frá og það þýðir í svona hálku að hann lendir inni í næsta strætóskýli og drepur 15 krakka á leið í leikfimi. c) neglt yfir og treyst á lukkuna. Enginn af þessum kostum eru góðir.

Jæja þá er ég búinn að punkta þetta niður. Nú af því ég er í góðu skapi þá ætla ég ekki að birta pistilinn sem ætti að fylgja þessu um hversu miklir fæðingarhálfvitar þetta eru.

Speki dagsins: "Ákveðni er dygð og dyggð"


Sigurgeir 10:22:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, desember 05, 2001

Eitt enn! Á ekki að fara að stofna aðdáendaklúbb fyrir aðdáendur mína? Ég á fullt af myndum og er ekki yfir það hafinn að krota nafn mitt á nokkrar myndir.


Sigurgeir 4:09:00 PM | 0 comments links to this post |
Vill einhver láta mig vita næst þegar fyndnasti maður Íslands keppnin er? Ég held ég geti unnið.

Ég ætla að taka þátt í jólaskákmóti OZ á föstudaginn og svo vonandi keppa með 1. flokki Breiðabliks á móti unglingaflokki Stjörnunar um kvöldið.

Sigurgeir, viltu muna að kaupa drasl í bílskúrinn eins og ruslafötu, einhvers konar þerripappír, græjur til að þvo bílinn ofl.

Gott að nota þetta sem minnisbók.



Sigurgeir 3:55:00 PM | 0 comments links to this post |
5. desember, mundi eftir að opna súkkulaði dagatalið í morgun og viti menn ég var margverðlaunaður fyrir vikið. Súkkulaðið í dag var mynd af íkorna með akarnið sitt. Mjög sæt mynd og bragðaðist mjög vel. Nú erum við komin á skrið með þetta eftir byrjunarörðugleika.

Ég ætla að birta eina pikk-up línu sem ég samdi þegar ég var í heimspeki. Ég er í góðu sambandi með fallegustu stúlku veraldar og mun ekki þurfa á þessari línu að halda. Hún er ný mynd af heimspekikenningu einhvers sem ég man ekki hvað heitir en hann er að sýna fram á að hreyfilögmálið sé gallað. Ég er ekki að ábyrgjast árangur en þetta er þokkalega fyndið og við réttar kringumstæður og rétt magn af áfengi er þetta ávísun á drátt hvort sem þetta er bara ísbrjótur eða leiðin að vörum fórnarlambsins. Snilldin við þessa pikk-up línu er að hún virkar jafnt fyrir stelpur og stráka (þ.e.a.s. ef stelpur mundu þora að nota svona línur næðu þær miklu betri árangri en við strákarnir....það er loforð).

Svona er línan....eða öllu heldur er þetta samtal. Pikk-upparinn: "Vissir þú að þú getur aldrei kysst mig?". Sá/Sú sem verið er að pikka upp: "Nei"/"Hvað meinarðu?" eða eitthvað í þessa átt. Ef þú færð hins vegar svar á þessa leið "Láttu mig vera viðbjóðurinn þinn", þá ertu sennilega of full(ur) eða ljót(ur) til að pikka upp þessa manneskju....a.m.k. þetta kvöldið. Ef þú færð eitthvað af hinum svörunum skaltu vera fljót(ur) að svara "Jú sjáðu til, til þess að geta kysst mig þurfa varir þínar fyrst að ferðast hálfa leiðina að vörum mínum. Svo þurfa þær að ferðast hálfa leiðina af vegalengdinni sem er eftir og svo hálfa vegalengdina af því sem er eftir og svo hálfa vegalengdina af því sem er eftir og svo framvegis og svo framvegis. Það verður því alltaf eitthvað eftir á milli okkar og varir okkar munu aldrei snertast." Nú er hin manneskjan að reyna að melta þessar upplýsingar og finnst þetta voða sniðugt og heldur að þú sért ýkt gáfaður/gáfuð. Þá segir þú "Eigum við að reyna að afsanna þessa kenningu?". Nú áttu annað hvort von á kossi eða fallegu brosi sem lesa má úr, ja ég vil ekki vera of auðveld(ur), ég kyssi hann/hana ekki núna en ég væri til í deit og sjá svo til. Þegar þarna er komið er málið einfalt. Kossinn er ávísun á eitthvað meira og spilaðu úr því eins og þér finnst henta hverju sinni, brosið er miklu betra. Það býður upp á endalausa möguleika. Nú ertu búin(n) að brjóta ísinn og ættir að geta spilað úr þessu á þinn máta. Ekki vera of ákafur/áköf, þetta er leikur og hann er þrælskemmtilegur. Ef einhver neitar þér þá er bara að hugsa að þetta sé missir hins aðilans en ekki að þú sért lúser.

Takk fyrir

Speki dagsins: "Lásinn hjá honum var inn, út, inn, inn, út". O.k. kannski ekki mikil speki í þessu en alltof fleyg setning til að sleppa henni. Þeir sem fatta þetta ekki ættu að spyrja út í "Winter" hjólin og skyggnigáfuna hans Eggerts Þorleifssonar í "Með allt á hreinu".


Þeim sem finnst þau svikin með speki dagsins ættu að lesa pikk-up línuna aftur og pæla aðeins betur í þessu....ég held að þið hafið ekki fatað plottið.


Sigurgeir 11:03:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, desember 04, 2001

4. desember var fjögra laufa smári og hann var ógeðslega góður á bragðið og ég held ég verði heppinn í kvöld.

Hvað skildi ég fá á morgun???


Sigurgeir 6:15:00 PM | 0 comments links to this post |
Well ég gleymdi að opna súkkulaðidagatalið í morgun en ég er með upplýsingar.

1. desember var mynd af eimreið og súkkulaðið var mjög gott.
2. desember var mynd af jólastjörnu (eða blómi sem líktist þeirri ágætu plöntu) og súkkulaðið var mjög gott.
3. desember var mynd af jólapakka og súkkulaðið var mjög gott.

Ég ætla að setja inn 4. desember eftir vinnu sem verður þá komið á netið um sjö leitið í kvöld.

Eitt sem ég komst að í gær. Þannig var að Sara systir Signýjar var í heimsókn hjá okkur og var mjög dugleg. Hún lagaði til hjá okkur og hjálpaði mikið til. Ég komst að því að það er greinilegt að karlmanni var ætlað að eiga tvær konur. Þær voru hvorri annarri félagsskapur og ég fékk á meðan að vera í friði í tölvunni minni og fór á æfingu og þeim leiddist ekkert. Svo kemur maður heim og allt er orðið hreint og fínt og þær í góðu skapi. Með eina konu þá kemur maður heim af æfingu og hún dauðuppgefin og jafnvel bitur yfir því að maður stakk af á æfingu. Eina ráðið er að veita henni fótanudd eða gera eitthvað skemmtilegt fyrir hana. Þetta þarf ekki með tvær konur því þær eru búnar að kjafta svo mikið á meðan þær voru að taka til að þær söknuðu mín ekkert og tóku í raun ekkert eftir mér þegar ég kom þannig að ég var ekkert truflaður við það sem ég vildi vera í friði með, eins og að vera í tölvunni. Eini gallinn við þetta hins vegar er að þær gætu fattað að ég er óþarfur í þessu. En það er pæling út af fyrir sig.

Sunna, kærastan hans Bjarka, er þrælskemmtileg stelpa og hann reynda ágætur sjálfur. Hún bað mig um að nefna hana ekki hérna og ræða ekkert um hana. En sú fásinna að halda það að ég nefni ekki á nafn, hér, fólk sem biður mig um að vera ekki nefnt á nafn. So here goes. Sunna er prýðisstúlka, ljóska í húð og hár en virðist eyðileggja stereótýpuna því hún var símavinur einhvers í "Viltu vinna milljón" og það var hringt í hana og hún svaraði rétt. Þannig að þar fór það. Þau skötuhjúin búa saman og eru í skemmtilegri íbúð í kjallara foreldra Bjarka (eitthvað sem ég kannast við). Æi ég veit ekkert hvað ég á að segja ég er bara að skrifa eitthvað bull hérna um hana af því að hún bað mig um að gera það ekki. Sorry Bjarki, gott á þig Sunna múhahahahaha.

Speki dagsins: Er fengin að láni frá Chevy Chase úr myndinni Caddyshack: "Stysta leiðin milli tveggja punkta er bein lína, í gagnstæða átt."..... pæling


Sigurgeir 10:22:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, desember 03, 2001

Aukafærsla í dag.

á mbl.is stendur að George Harrison hafi dáið úr Brabbameini....er þetta ekki ósmekklegt? Hvað næst stumputogari eða uppstrumpari? Við verðum að sýna hinum látnu virðingu. Ég ætla nú ekki að rakka menn niður fyrir stafsetningar og/eða innsláttarvillur (því þær finnast örugglega á þessari síðu) en fyndnast finnst mér þegar ég sá grein á mbl.is þar sem þeir voru að skammast út af einhverju skilti sem vegavinnumenn höfðu sett upp til bráðabirgða en á því var stafsetningarvilla. En í greininni sem var að rakka niður aumingja skiltagerðamanninn var ein stafsetningarvilla. Ég segi bara "Kom vel á vondan".

Að lokum í dag vil ég benda mönnum á gott gengi L.A. Lakers en það hefur eitthvað horfið í fjölmiðlum á bakvið greinar eins og "Jordan tapaði aftur" eða "Jordan átti slæman leik".

p.s. það gæti komið einn smá pistill í dag með súkkulaðimyndunum sem ég fékk fyrir 1.-3. des. í súkkulaðidagatalinu mínu. Ég lofa að standa mig í þessu fyrir ykkur sem eigið ekki dagatal og þið getið komið hingað á síðuna mína og komist að því hvernig súkkulaði dagsins lítur út og svo ímyndað ykkur hvernig það var að éta það.
Og svo eitt enn. Ef ykkur leiðist farið þá í starthnappinn og veljið Run og skrifið cmd og ýtið á enter og skrifið svo telnet towel.blinkenlights.nl og ýtið á Enter. Góða skemmtun og Gleðileg Jól.


Sigurgeir 2:38:00 PM | 0 comments links to this post |
Færslan í dag.....

Helgin var snilld. Fór að keppa með 1. flokki í körfu og það var bara gaman, þrátt fyrir lélegan leik af minni hálfu og dómaranna, þá unnum við hehehe Ingi þjálfari KR-inga er þá búinn að tapa 3 leikjum í röð (2 sem þjálfari). Nú svo á laugardag var chillað og borðað eins og ég veit ekki hvað hjá mömmu. mmmmm lambasteikin hennar mömmu yummie! Nú og þá setti ég upp bráðabirgðaljós fyrir ofan eldhúsborðið og það kom sér vel að notum í morgun þegar ég las Fréttablaðið með morgunmatnum. En á Sunnudaginn kom Grímur frændi í heimsókn með tonn af myndum sem við svo skrifuðum og ég mun eiga Gleðileg jól í sófanum. Andsk... ég gleymdi að opna dag 3 á súkkulaðidagatalinu mínu en ég mun segja hvað ég fæ hverju sinni. Kem með alla fjóra dagana á morgun. Ég er svo byrjaður að færa alla tónlistardiskana mína á mp3 form og flokka þá og svoleiðis, því núna verður bara mp3 í partýum hjá mér. Jólin verða líka á mp3, þarf að fá það að vísu "lánað" því ég á enga svoleiðis diska....nema kannski eitt og eitt lag með Boney M eða Elvis. Jæja það besta af öllu er að ég kláraði bílskúrinn heima og nú var bíllinn minn í fyrsta skipti í hlýjunni í nýja heimilinu hans. ahhhh hvað það var gott að skella sér í hann heitann í morgun. Ég var líka algjört krútt og keyrði bíl kærustunnar minnar inn í bílskúr, en hún á ekki að fara í próf fyrr en klukkan eitt þannig að hún fær hlýjan bíl líka. Bíllinn hennar hefur ekki verið hreyfður í nokkra daga þannig að ég bakkaði skafli inn í bílskúr og bíllinn er einhvers staðar þar undir. Ég tók svo kúst og sópaði tonni af snjó af bílnum og ég er ekki að grínast það voru 30 cm háir skaflar allt í kringum bílinn. Guði sé lof að það er ræsi í bílskúrnum.

Eitt sem ég hata og það er fólk sem kann ekki að keyra. ÉG var vakinn í morgun við það að eitt fíflið var að reyna að keyra upp brekkuna hjá heimili mínu og Signýjar. En fíflið kann ekki að rugga bíl og hélt að ef hann ruggaði aftur á bak smávegis og botnaði svo bílinn að eitthvað myndi gerast. Hann bjó bara til nýja og nýja holu. Fyrir þá sem eru svona miklir klaufar, takið speki dagsins til ykkar.

Speki dagsins: "Less is more"


Sigurgeir 10:06:00 AM | 0 comments links to this post |
Þetta átti að vera föstudagsfærslan en í önnum mínum í vinnunni gleymdi ég að ýta á Post & Publish!! ;-) hehehe sorry

Eggert (Airgert) vinur minn á lausu og Ásbjörg vinkona mín er líka á lausu! Tilviljun? Ég held ekki. Hann er 4 sætasti karlmaður landsins 1997 og hún næst sætust á landinu fyrir stuttu, tilviljun? Ég held ekki. Hvernig væru börnin þeirra....ja strákarnir hávaxnir körfuboltaloftfimleikamenn og stelpurnar ballerínur af guðs náð....og að sjálfsögðu ýkt sæt öll.

Ég er að fara á bjórkvöld lifið heil og hafið gaman!

speki dagsins: Í dag er hún fengin að láni "Cogito Ergo Sum", ég hugsa þess vegna er ég og þess vegna hugsa ég að ég fari á bjórkvöld!


Sigurgeir 9:55:00 AM | 0 comments links to this post |

sunnudagur, desember 02, 2001

eitthvað hefur gerst því föstudagspistillinn minn er horfinn og hann var bara ágætur þó ég segi sjálfur frá. Ég ætla að reyna að finna hann í vinnunni á mánudaginn.


Sigurgeir 1:00:00 AM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur