fimmtudagur, nóvember 29, 2001
Jæja krakkar. Fékk fullt af myndum hjá Pésa vini mínum, gott nesti fyrir helgina. Vídeó og afslöppun verður það. Annars ætla ég að koma bílskúrnum í lag því það er svo drullukalt þessa dagana. En fyrst er það stóra ákvörðunin. Ég ætla að mæta á æfingu í kvöld hjá 1. flokki Breiðabliks í körfu og sprikkla með mönnum í góðum fíling. Ég hef ekki haft gaman af körfubolta í nokkra mánuði og ég held þetta ekki lengur út. Ég er alla vega á því að ef manni finnst ekki gaman af einhverju þá á maður ekki að gera það. Þannig að ég ætla að reyna að finna þetta "eitthvað" sem hefur haldið mér í greipum körfuboltans síðan ég var 16 ára. Svo styrkir maður hnéið með þessu og allt næsta sumar og kem kannski með "comeback" (hljóma eins og Magic Johnson) á næsta tímabili. En að skemmtilegri hlutum, Erna frænka á afmæli í dag og Don Andri sem er snillingur í húð og hár og ég óska þeim hjartanlega til hamingju með daginn. MMM og djöfull eru laufabrauð góð. Ég fékk smá af laufabrauðunum hennar mömmu (gerð daginn sem ég var með Londonflensuna síðast). Og þetta er svo gott að maður fær aldrei nóg, mamma er snillingur. Svo var vinur minn Airgert að verða fyrir áfalli fyrir stuttu og ég ætla bara að láta hann vita að Sara systir kærustunnar minnar er á lausu og Sara....Eggert á líka tölvu! Nú hvað meira.....já Grímur frændi minn er snillingur og ætlar að redda mér fullt af myndum um helgina þannig að það verður endalaust fjör og stuð hjá mér. Þeir sem voga sér að trufla það eiga ekki von á góðu og ég deili ekki laufabrauðinu mínu svo það komist á hreint. Svo ætla ég að mæla með ellefuellefubúðinni í Kópavogi, þarna rétt fyrir ofan Grænatún. Ég fór þangað um daginn og keypti kippu af tveggja lítra kók og með því áttu að fylgja 3 kókglös. En þar sem ég þurfti að hinkra meðan að afgreiðslukéllingin fór á bakvið og náði í þau gaf hún mér 6 stykki. Fyrir þá sem þekkja ekki svona góðmennsku þá er þetta plúsinn við að vera fallegur. Ég er svo helvíti fallegur að ég kemst upp með hluti sem ljótir karlmenn gera ekki. En það er nóg komið af bulli í dag, engin rökræða í dag heldur bara tilkynningar og gamanmál.
Speki dagsins: Þetta passar eins og böllur í feita vinnukonu!

miðvikudagur, nóvember 28, 2001
jamm og jæja, setti inn tvær færslur á mánudag til að geta tekið mér frí í gær enda ekki í stuði fyrir margt. En nú er spurning um að rökræða hluti aðeins. Kvikmyndir um tímaferðalög, úff hvað ég hef gaman af svona myndum og þá sérstaklega að röfla um það dögum saman hvernig eitt og eitt atriði gekk ekki upp. Við skulum setja upp dæmi sem ég sá í mynd fyrir ekki svo mjög löngu síðan. Ég man ekkert hvað myndin heitir en staðan er þannig að geimskip með fjölskyldu og nokkrum aukaaðilum um borð hrapar á óþekkta plánetu. Nú þau kíkja í kringum sig og komast að því að plánetan er óbyggð og er um það bil að springa í loft upp. Þau gera við skipið eins og þau geta og að lokum er það eina sem er að er að það er "bensínlaust" eða vantar eitthvað kjarnaefni. Með skynjara að vopni fara þau að leita að kjarnaefni og finna merki frá nægilegu magni rétt hjá. Hluti þeirra fer af stað en hinn hlutinn verður eftir. Og nú byrjar skemmtilegi kaflinn. Þeir sem eru að leita að efninu labba inn í einhverja risastóra loftbólu sem í raun er hlið í gegnum tíma og fara þarna nokkuð mörg ár fram í tímann (sniðugt þar sem plánetan var við það að springa að hún væri til 20 árum seinna), eftir smá átök við furðuverur komast þau að því að þetta er geimskipið þeirra í framtíðinni og alskeggjaður maður er litli strákurinn í fjölskyldunni og einhver viðbjóður er maður sem var með þeim en hann stökkbreitist vegna köngulóarbits (en frumlegt sjá spiderman). Svo man ég ekki alveg hvað gerðist en sá hluti fjölskyldunnar sem varð eftir í fortíðinni taldi sig knúna til að reyna flótta og flaug af stað og varð fyrir fljúgandi, logandi grjóti og sprakk í loft upp. Þá er spurning hvernig í anskotanum gat geimskipið ennþá verið til í framtíðarkúlunni? Það er endalaust gaman að velta svona fyrir sér og hægt að rökræða þetta árum saman án þess að fá botn í þetta. En það er einmitt þetta sem gerir þetta svo spennandi. Skemmtilegt dæmi, ég finn tímavél, ferðast aftur í tíma og drep uppfinningarmann tímavélarinnar áður en hann finnur hana upp....hvað gerist þá? Ef ég hef drepið hann áður en hann fann upp tímavélina þá hefði ég ekki getað ferðast aftur í tímann og ætti að skjótast aftur á minn tíma....en þá hefði ég ekki getað drepið hann í fortíðinni og ætti því að vera við tímavélina aftur.....er ég þá fastur í endalausri hringrás þar sem ekki er víst hvort ég muni atvikin þar sem þau þurrka hvort annað út aftur og aftur.
pæling.
speki dagsins í gær: Ef leti er rangt þá vil ég ekki gera rétt!
speki dagsins: Ef tímaferðalög verða einhvern tímann möguleg þá væri búið að ræna öllum sætu stelpunum.

mánudagur, nóvember 26, 2001
Ég hef verið spurður hvað "Londonflensa" sé. Ja ég verð þá að segja ykkur sögu. Ég fór einu sinni ungur að árum með foreldrum mínum til London. Þar hitti ég nokkra kunningja fyrir tilviljun og við ákváðum að hittast um kvöldið. Daginn eftir átti ég að fara með mömmu og pabba á hárgreiðslusýningu á Wembley. Það var sukkað um kvöldið og allt í góðu með það nema hvað ég hlýt að hafa smitast af flensu þetta kvöld því ég ældi þessi heljarinnar ósköp þegar ég kom heim á hótel af þessu fylleríi mínu. Nú svo daginn eftir lýsti flensan sér þannig að ég var að drepast í höfðinu og bumbult og mjög slappur, en við ætluðum á hárgreiðslusýningu og því dreif ég mig af stað, fárveikur. Nú til að komast á Wembley þurfti að ferðast c.a. klukkutíma með lest og hálftíma af því neðanjarðar og loftið þar er svo rosalega frískandi, sérstaklega fyrir menn með slæma "Londonflensu". Nú ég kemst á staðinn án þess að æla en er orðinn vel grænn í framan og ekki sérstaklega aðlaðandi. Við förum inn og hvað haldiði....jú andrúmsloftið á hárgreiðslusýningunni var mettað af alls kyns hárspreyi og djöfulsins viðbjóði þannig að "Londonflensan" magnaðist upp. Ég náði þó að setja í mig nokkra bita og lifa þetta af án þess að æla....ferðin til baka var alveg jafnslæm, neðanjarðarloftið mettað svitalykt allt frá stríðsárunum. En svona er þessi saga og í gær fékk ég vott af þessari flensu en ekki nándar nærri því eins slæma og þessi martröð.
Punkturinn með þessari sögu: Ekki vera þunnur þegar þú ætlar á hárgreiðslusýningu, sérstaklega þegar þú þarft að taka neðanjarðarlest til að komast þangað.
:-)

Úff helgin var rosaleg. Jón vinur minn gifti sig og fór aldrei að gráta meðan á athöfninni stóð og leið nánast aldrei yfir hann. Hann gerði þónokkrar flóttatilraunir en svona í heildina gekk þetta mjög vel hjá honum. Ég held að ég fari með rétt mál þegar ég segi að presturinn sem sá um athöfnina sé prestur nýbúa hér á Íslandi. Hann gerði heiðarlegar tilraunir við íslenskuna og líka enskuna. Ég skildi hvorugt hjá honum, ja o.k. kannski einn þriðja en það var bara vegna þess að maður vissi hvað hann var að segja þegar hann var að segja það. En nú eru tveir bestu vinir mínir giftir og ég undir meiri pressu en nokkru sinni fyrr. Svo klúðraði ég laufabrauðssunnudeginum fyrir mömmu og allri fjölskyldunni. Ég var með hina alræmdu "Londonflensu" allan gærdaginn. Ekkert er svo skemmtilegra en að fá ömmu og afa kærustunnar sinnar í heimsókn þegar maður er með "Londonflensu". Þau komu, skoðuðu og skildu mig vel að halda mig til hlés og hafi þau þökk fyrir.
Kærastan mín var ekkert par hrifin af þessu slysi sem gerðist á laugardaginn og veikindum mínum á sunnudag en hún var mjög skilningsrík og fær hér með hjartanlegar þakkir fyrir það. Litla systir kærustunnar minnar er hins vegar ill!!! Hún notar okkur bara, kemur bara í heimsókn til að nota internetið hjá okkur og talar ekkert við okkur. Hún vildi líka að Signý gæfi mér rostbeef samloku með miklu remúlaði þegar ég var að farast úr "Londonflensu". Ég sagði við litlu tíkina að hún skildi koma reglulega og þrífa hjá okkur annars myndi ég læsa tölvunni. Ég bíð ennþá eftir afsökunarbeiðninni SARA!
Jæja nóg í dag.....ég blogga ekki um helgar nema að sérstakt tilefni sé til takk fyrir.
Speki dagsins: Londonflensa læknast ekki með rostbeef!

föstudagur, nóvember 23, 2001
Well, Norrænn Guð var það. Æi mér er svo nákvæmlega sama.
Flöskudagur í dag og ég í biluðum fíling. Umræða dagsins verður á þessa leið.....Ef ég hefði töframátt sem gerði mér kleyft að stoppa tímann og setja hann af stað aftur þegar mig langaði. Jú ég færi alltaf seint að sofa stoppaði svo tímann þegar vekjarinn hringdi og svæfi út, tæki mér góðan tíma í að fara á fætur og lesa blöðin og svo drullaði ég mér í vinnuna útsofinn og góður. Möguleikarnir eru reyndar endalausir ég er með þessu að meina að allt frýs nema ég og ég ferðast um á þessu sekúndubroti ein langt og lengi og ég vil. Þannig gæti maður stoppað tímann þegar maður kæmi inn í próf og leitað að svörunum í öllum bókum sem maður hefði meðferðis og fengi alltaf 10. Svo gæti maður verið bestur í öllum íþróttum og fengið borgað milljónir á viku fyrir eitthvað bull t.d. fótbolta þar sem maður stoppar bara tímann á réttu augnabliki og stelur boltanum og svo setur maður tímann í gang aftur og það virkar eins og maður sé ýkt fljótur að hlaupa, svo tekur maður skot að marki og stoppar tímann og setur af stað í hvelli aftur og þá virkar þetta sem þrumufleygur. Skorar nokkur mörk í hverjum leik það bara gefur manni nokkrar millur í vasan. Nú svo gæti maður hreinlega skoðað boddíið á hvaða stelpu sem er hehehehehe grrrrr. Jamm þetta er eiginleiki sem hægt væri að nýta sér hvar sem er ahhhh hvað það er gott að dreyma.
Kennsluefni vikunnar er: Smelltu hér farðu þarna inn og fáðu þér passport eða smelltu hér og fáðu þér hotmail addressu, þ.e.a.s. ef þú ert ekki þegar með eina. Farðu svo á þennan link og náðu í MSN. Þegar þú ert búinn að installa því farðu í add contact og veldu "By e-mail address or sign-in name" og ýttu á next og sláðu svo inn sigurgeirs@islandia.is (ekki gleyma essinu sigurgeir essssssss @ islandia.is) og þá getum við spjallað um daginn og veginn. Ef þú ert fífl þá skaltu bara sleppa þessu.
Speki dagsins er: Er glasið hálf fullt, hálf tómt eða ertu ekki maður í þér til að klára það?
p.s. MSN er ekkert æðislegt forrit en það er nothæft.

fimmtudagur, nóvember 22, 2001
Jæja pæling dagsins:
Stelpuklám.....skrokkasýning á körlum. Herra Ísland!!! Ætli maður verði ekki að horfa á þetta og sjá hvernig strákar eiga að líta út? Ég get ekki sagt að ég sé á móti þessu því að sýningar af öllu tagi á flottum kvenlíkömum er mér að skapi og því mega stelpur alveg fá sitt. Mér finnst bara eitt fyndið við þetta. Þessir gaurar sem eru að vinna þetta eru minni en stelpurnar sem krýna þá. Þær eru reyndar á háum hælum en samt. Hvernig væri að hafa alvöru karlmann yfir 1.90 cm og 100 kg vöðvabúnt í þessu. Ég þekki nokkra sem falla inn í þessa kategóríu og a.m.k. tveir þeirra hafa tekið þátt í þessu en ekki komist upp á pall. Sennilega vegna þess að ef þeir lentu í 3ja sæti þá væru þeir samt hærri en gaurinn í efsta palli (ólympíupallurinn er bakgrunnur þessa gríns). Æi ég veit ekki fegurðardrottningar eiga að vera hávaxnar Amazónur og bla bla bla en strákarnir eiga að vera litlir kögglar, ljósabrúnir, tattóveraðir, svarthærðir og bla bla bla. Ég vil fá ljósku sem herra Ísland hefur það gerst síðan Þór Jósefs. tók þetta með glæsibrag? Hvar er sá foli í dag? Hann hlýtur að hafa fengið farsælan feril eftir þennan mikla heiður, ætli hann sé ekki að vinna í fjárfestingarbanka atvinnulífsins eða eitthvað svoleiðis! En hann var bara einn og hálfur á hæð þannig að nú vil ég norrænt tröll með blá augu, ljóst hár og vöðva frá Jötnaheimum! Ég vil hafa hann skjannahvítan svo að það speglist af honum sviðsljósið og hann verður varla festur á filmu. Baldur hinn hvíti hvar ertu????????? Jæja nú ætla ég að takast á við homophóbíuna mína og glápa á þetta.
Speki dagsins: Typpi eða sokkur?

Sorry krakkar, það var brjálað að gera hjá mér í gær. Ég lofa tveimur hugsunum í dag.
Fyrsta hugsun. Myndin "Chasing Amy" var á stöð tvö í gær. Þessi mynd er í myndaseríu sem inniheldur myndir eins og "Clerks", "Mallrats", "Dogma", "Jay and Silent Bob strike back" og svo koma Jay og Silent Bob fyrir í myndinni "Scream 3". Ég verð að segja það að þessar myndir eru ein mesta snilld sem til er. Það er hægt að horfa á þær endalaust. Spekin sem þessar myndir innihalda jafnast á við "Ríkið" eftir Platón. Ég mæli eindregið með því að þið farið á góða leigu og takið allar myndirnar og takið ekki pásu fyrr en þið eruð búin að horfa á þær allar í þeirri röð sem ég taldi þær upp. Nú svo er það Kjörísbikarinn um helgina en því miður vantar Breiðablik í þá keppni. Þeir duttu út í slökum leik á móti Keflavík. Ég verð á staðnum að hvetja dómarana eða einhverja því ég er í fýlu út af þessu. Nú svo er það Brúðkaupið hjá Jóni Hamri!!! Jamm stelpur gaurinn er genginn út. Það verður því stuð á laugardagskvöldið þegar ég syrgi fallinn félaga en nú verður hann bara helmingurinn af henni uss og svei. Jón er hins vegar 150 kg. Það munar ekki nema tæpum 60 kílóum á honum og mér þannig að ég tek hann auðveldlega í hryggspennu og þumalglímu. En nú fer helgin að ganga í garð og tími til kominn að hlusta á Snap og snilldarlög eins og "Rythm is a dancer" og "Exterminate" ef það kemur manni ekki í fílinginn þá veit ég ekki hvað. Jæja nóg í bili seinni hugsun kemur eftir vinnudaginn.
Speki gærdagsins: Er meira trukk í lessum en trukkalessum?

þriðjudagur, nóvember 20, 2001
Kæri lesandi,
Heimspekileg íhugun í dag. Þessi íhugun er tekin úr hinni stórfenglegu mynd "Real Genius". Hvernig get ég komið í veg fyrir það að klinkið í vösunum mínum detti ekki úr þeim ef þyngdaraflið snérist við? Niðurstaða gáfnaljósins var að hann yrði að ganga nakinn. Ekki gerði hann það, því miður fyrir flestar stelpur með einhvern vott af kynhvöt. Nú alla vega ég ætla að pæla aðeins í þessu. Við skulum gefa okkur það að þyngdaraflið snérist við en maður gæti samt labbað á jörðunni án þess að detta út í geiminn. Nú erum við komin með vandamálið með klinkið og lyklana og allt það sem er í vösunum. Rennilás á vasana gæti verið lausnin en þegar maður þarf að seilast í vasan til að ná í eitthvað t.d. borga fyrir tyggjó þá á maður á hættu að verða blankur í hvelli. við þurfum því rennilás neðst á vasanum (bara ef aðdráttaraflið rétti sig svo af). Þá rennir maður neðst á vasanum og seilist upp í hann og nær í klinkið til að borga fyrir tyggjóið. Nú þarf afgreiðslumaðurinn að leggja fram hönd yfir krepptan lófann okkar þannig að hans lófi er opinn og snýr niður. Svo myndum við sleppa klinkinu upp í lófann hans. Nú væri búðarkassinn sérsniðinn þannig að skúffan væri á hvolfi og afgreiðslumaðurinn þarf að sleppa klinkinu upp í kassann í rétt hólf. og gefa okkur tilbaka og láta okkur fá tyggjóið. Allt myndi sem sagt reddast nema við þyrftum að festa hús vel niður og finna aðferð til að halda bílunum okkar á jörðinni. En nú fyrst byrjar hryllingurinn. Þú blæst þína fyrstu tyggjóblöðru (tyggjókúlu eða hvað fólk kallar þetta) og hún springur....en í staðinn fyrir að springa yfir hökuna eins og venjulega springur hún fyrir augun á þér og fer í hárið og allt er í steik. Ímyndið ykkur alla með tyggjó í hárinu og hvílík skelfing myndi grípa um sig. Þetta er hrikaleg tilhugsun. Nei kæru vinir ég vona að þetta gerist aldrei. Ágæt tilbreyting en ég er ekki tilbúinn til að fórna þessum skemmtilega hluta þess að tyggja tyggjó.
speki dagsins: "Oft eru dauð hjón lík" gamall en svo djöfulli fyndinn!

mánudagur, nóvember 19, 2001
Ahhhh stóðs ekki mátið að prófa þetta betur. ætli maður geti gert eitthvað af viti með þessu tóli???? get ég t.d. auglýst kærustuna mína??? hmmm sniðugt. HTML ég kann það vúha.
Bið fólk afsökunar á þessum fæðingarerfiðleikum en ég lofa að það verður mikið um heimspeki, daglegt bull og að sjálfsögðu pervertisma á þessari síðu. Svo lengi sem hún helst uppi.
en nú er fyrsta og annað skeytið komið og fyrsti linkurinn minn. nú get ég farið að bulla.
Mitt fyrsta málefni (þetta verður svona pirringssíða) verður........ FÆREYJAR!!!!
Jamm frændur okkar Færeyingar (eru Færeyjar ekki hluti af Vestmannaeyjum???) eru búnir að finna olíu....ég segi gott!!! frábært!!
Þá losna þeir vonandi við Danina og verða ríkir því það er ekkert verra en að vera kúgaður af Dönum (var neyddur til að læra dönsku í grunnskóla og framhaldsskóla og hef aldrei beðið þess bætur). Vonandi gefa þeir skít í Dani og kaupa sjáland eða eitthvað af þeim til að bögga þá. Helst samt Grænland svo þeir hætti að drepa sig í hrönnum. Gera þá ríka líka (hey rímar). Danir eru löngu búnir með "frændskapskvótan" þeir tóku af okkur Kolbeinsey (við hefðum átt að ráðast á þá með varðskipunum okkar, við sigruðum jú Breta) og svo helv... Norsararnir að reyna að stela honum Leifi okkar Heppna en mesta heppni hans var að vera ekki fæddur í Noregi! Ég segi bara slítum stjórnmálasambandi við þessi frændlönd okkar og sleikjum Færeyinga upp (í stað þess að hlæja að þeim) og verðum ríkir á að selja þeim eitthvað drasl. Menn sem skíta peningum eyða alltaf í eitthvað drasl....þetta hlýtur að virka. Svo finnum við vonandi okkar eigin olíu (yeah right) og þá lækkar bensínverðið (yeah right) og Ísland verður draumaríki með litlu vini sína í Færeyjum. Annað sem verður kúl er að ef Færeyingar dömpa Dönum hætta Færeyingarnir ekki að tala bjagaða Íslensku? Er það ekki bundið í lög í Færeyjum að tala dönsku og fyrir þjóð sem talar bara Íslensku kemur út Færeyska.....jæja þar fór ég út fyrir strikið.
Lokaorðin í dag. Vissuð þið að nafnið "Sandur" er í bókinni Nöfn Íslendinga?
sendið mail á glætanaðégsvari@youareblocked.com

Jæja nú get ég farið að tjá mig. En ekki í vinnunni, það er einfaldlega of mikið að gera. Ég ætla mér að ræða um daginn og veginn hérna og láta mig engu skipta hvað aðrir segja.
Speki dagsins er:
"Líkamsvessar eða ekki líkamsvessar?".
Jamm varð að byrja á þessum nótum. Hvað get ég sagt ég er *****!
;-)