Drekinn frá OZ

þriðjudagur, nóvember 10, 2009

Ég var að keppa í gær. Það er skemmst frá því að segja að það var nokkuð greinilegt hvort liðið er í úrvalsdeild og hvort í 2. deild :-D

Ég var ekki sérlega sáttur við hvernig ég spilaði þannig að ég hef ekkert efni á því að drulla yfir félaga mína. Held að fáir séu sáttir við sinn leik. Hugsanlega get ég dregið Sibba út og sagt að hann hafi skilað sínu. En ég er að vona að menn læri sína lexíu af þessum leik. Við getum ekki spilað á móti sterkum liðum eins og við höfum verið að gera hingað til. Lausar sendingar, stíga ekki út, skokka í vörn, tölta í sókn.....þetta er bara drullulélegt þó það dugi á móti slökum liðum. Ef þetta verður ekki komið í lag fyrir úrslitakeppnina þá verða það ekki við sem stöndum uppi sem sigurvegarar.


Sigurgeir 9:56:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, nóvember 09, 2009

Jæja helgin var alveg ágæt. Mest svekktur yfir því að ég neyddist til að dæma í yngri flokkamóti í gær og það hafði ekkert verið rætt um það áður en ég borgaði æfingagjöldin. Nokkrir sem skrópuðu og ég alls ekki sáttur við það því að ég mætti og dæmdi aukaleik út af skrópi annarra og missti af fyrstu skrefum sonar míns. Já hann tók tvö skref óstuddur í gær og ég hefði verið heima en nei ég var að dæma :-( Hann tók svo önnur tvö skref fyrir mig í gærkvöldi þannig að ég er búinn að sjá hann taka skref óstuddur en þetta er samt mjög svekkjandi.

Tengdamamma á afmæli í dag og fær hamingjuóskir frá mér :-)

Annars byrjaði dagurinn í dag á því að raða upp vinnurýminu hjá okkur í CLARA. Gólfið var lakkað um helgina og er afraksturinn áhugaverður í það minnsta :-) en mest er ég ánægður með að gólfið er þá orðið hreint og vinnurýmið mun hreinna en það var.


Sigurgeir 11:02:00 AM | 0 comments links to this post |

föstudagur, nóvember 06, 2009

Já Sólný Inga var svakalega dugleg í nótt. Hún vaknaði eitthvað upp úr þrjú og kom upp og bað mig um að fara með sér að pissa. Svo fór hún bara sjálf niður og ég elti hana og breiddi yfir hana og hún sofnaði bara í rólegheitunum. Mikil framför. En svo kom hún klukkan sex í morgun aftur og þá svolítið skelkuð. Ég hrósaði henni þá fyrir að hafa verið dugleg og sagði að í verðlaun mætti hún lúlla síðasta klukkutímann hjá mér. Hún var voðalega glöð og sofnaði strax. Þannig að ég var vakinn tvisvar í nótt í stað einu sinni :-) sem er kannski ekki það besta en mikilvægast er að hún er að sigrast á óttanum sínum. Hún hefði aldrei þorað að fara aftur niður áður en ég talaði vel og lengi við hana í gær.


Sigurgeir 9:10:00 AM | 0 comments links to this post |

fimmtudagur, nóvember 05, 2009

Jæja nú er ein uppeldistilraunin farin í gang. Sólný Inga er alltaf að koma upp um miðja nótt og skríða upp í rúm og ég hef þar af leiðandi ekki upplifað órofinn svefn í langan tíma. Í gær fór ég aftur með hana niður og sat hjá henni þar til hún sofnaði. Það tók mjög langan tíma en að lokum sofnaði hún aftur. Ég talaði mikið við hana á meðan og útskýrði fyrir henni að hugurinn er mjög magnaður og það er miklu skemmtilegra að hugsa fallega hluti en ljóta. Ég sagði að hún gæti t.d. hugsað sér að hún sé að búa til snjókarl og þá sagðu hún ekki kunna að búa til snjókarl. Þá sagði ég að í huganum kunni hún og geti allt. Hún geti verið álfadís, töfrakona, hún geti flogið og búið til snjókarl. Það var magnað hvað hún róaðist við þetta. Hún er mikill pælari og fór voðalega mikið að hugsa. Sennilega var hún að prófa hvað hún gæti gert í huganum þ.e.a.s. farið vel út fyrir það sem henni hafði dottið í hug áður. Svo sofnaði hún mjög róleg og góð. Svaf síðan alla nóttina í rúminu sínu. Í morgun var hún svolítið montin af því að hafa sofið í sínu rúmi alla nóttina...ja fyrir utan þegar hún kom upp og ég þurfti að fara með hana aftur niður :-)

En ég er spenntur að sjá hvernig næsta nótt verður. Kannski var þetta nóg en samt efa ég það því ótti skilur ekki rök. En oft er ótti byggður á þekkingarleysi og því möguleiki á að nú verði hún ekki eins hrædd og áður.


Sigurgeir 9:50:00 AM | 0 comments links to this post |

miðvikudagur, nóvember 04, 2009

Lögfræðingurinn minn á afmæli í dag og fær hann hamingjuóskir frá mér. Þ.e.a.s. lögfræðingurinn sem hefur gengt því embætti tjaaaa í raun alveg frá því í Verzló ;-)

Í dag fæ ég skirteini sem vottar það að ég er búinn að ná C stigi IPMA í verkefnastjórnun. Þetta er alþjóðleg vottun og mun hjálpa mér að fá vinnu í útlöndum ef landið fer á hausinn.

Annars er ég bara hress sem fress og verð sennilega í næsta innlit/útlit þætti líka múhahahahaha.


Sigurgeir 8:49:00 AM | 0 comments links to this post |

þriðjudagur, nóvember 03, 2009

Mér er margt til lista lagt og meðal þess er að fá geðveikar hugmyndir upp úr gjörsamlega þurru. Sem dæmi get ég sagt ykkur frá tölvuleiknum mínum sem gengur út á þorskastríðið og að stýra landhelgisgæsluskipi og klippa aftan úr breskum togurum. Svo áttu náttúrulega að forðast bresku freigáturnar sem reyna að sigla á þig. Þú þarft að fara í slipp ef báturinn þinn skemmist og þarft að nýta lipurleikann þar sem freigáturnar hafa hraðann yfir þig.

En hins vegar gerði ég sálfræðilega uppgötvun í Blómavali um daginn. Mér varð hugsað einhverra hluta vegna til Stokkhólmsheilkennisins. Í gegnum söguna langt aftur í aldir og árþúsundir hafa menn þurft að þola mikla misnotkun. Konur voru seldar í hjónabönd eða jafnvel rænt t.d. af víkingum. Karlmenn stálu konum frá öðrum ættbálkum og gerðu þær að konum sínum. Þær gátu þar með valið um að deyja úr eymd eða læra að elska manninn og lifa af. Sama má segja um þrælahald og fólk af báðum kynjum sem var hneppt í þrældóm. Það varð að lifa af og því held ég í gegnum árþúsundin hafi mannkyninu lærst að breyta um hugarfar í skelfilegum aðstæðum til að lifa af og geta orðið hamingjusöm. Þess vegna tekur þetta ótrúlega stuttan tíma að heilaþvo fólk. Mannræningi getur á mjög stuttum tíma fengið fórnarlamb sitt til að gangast sér á hönd og elska sig. Þetta er innbyggður varnarháttur sálarinnar sem gerir okkur fær um að lifa af ótrúlega harðneskjulegar aðstæður.

Hugsanlega hefur einhver sagt þetta áður en ég las þetta hvergi, sá engan þátt eða kvikmynd um þetta og heyrði þetta hvergi. Ergó mín uppgötvun. Ef enginn annar hefur hugsað þetta þá mæli ég með að rannsaka þetta og borga mér svo 5% af öllum hagnaði sem hugsanlega verður af þessu ;-)


Sigurgeir 11:49:00 AM | 0 comments links to this post |

mánudagur, nóvember 02, 2009

Já þessi helgi var alveg hreint ágæt. Tókum laugardaginn í það að fara í þvílíkan verslunartúr. Korputorg, Blómaval/Húsasmiðjan og svo IKEA. Það var ýmislegt sem var strikað af verkefnalistanum þann daginn. Svo í gær fór ég með dætur mínar, dætur systur minnar og pabba mínum í Reynisvatn. Ég átti þar ennþá 2 fiska af kvótanum mínum síðan í sumar. Veðrið var snilld og vatnið fullt af lífi...eiginlega of miklu lífi því það var gróður á önglinum í hverju kasti. En þegar stelpurnar fóru inn að fá sér kakó stalst ég í að kasta nokkrum sinnum og viti menn ég setti í þennan fína regnbogasilung. Tveggja punda skratti sem fór svo á grillið um kvöldið og var borðaður með bestu lyst.

Svo missti Salný Kaja fimmtu tönnina sína og er heldur betur tannlaus. Báðar framtennurnar í efri gómi eru farnar og ofboðslega fyndið að sjá hana. Spurning hvernig jólamyndirnar verða. :-)


Sigurgeir 9:24:00 AM | 0 comments links to this post |

Fallegt fólk

Ég heiti Sigurgeir og þetta er bloggið mitt. Hér kem ég skoðunum mínum á framfæri auk þess að bulla um hitt og þetta. Það sem kemur hér fram hefur ekkert með skoðanir þeirra sem tengjast mér á einn eða annan hátt að gera. Bætið mér á MSN-ið ykkar með sigurgeirs@islandia.is

Ljósmyndin mín
Name: Sigurgeir
Location: Kópavogur, N/A, Iceland

Married, two daughters one kid on the way, fun guy...or so I think....

Free Guestmap from Bravenet.com Free Guestmap from Bravenet.com


á www.sigurgeir.tk
á www.sigurgeir.blogspot.com
á sigurgeir.tk
á sigurgeir.blogspot.com
Weblog Commenting by HaloScan.com

Blogger

Gamlar færslur